Dagur - 05.08.1998, Blaðsíða 4

Dagur - 05.08.1998, Blaðsíða 4
4 -MIDVIKUDAGUR S. ÁGÚST 1998 FRÉTTIR Póstmeistitnun fækkar Um næstu áramót fækkar póstmeisturum á Suðurlandi um tvo. Póst- húsin í Þorlákshöfn og Hveragerði munu þá heyra beint undir yfir- stjórn stöðvarstjóra Islandspósts á Selfossi, Iíkt og nú er með póst- húsin á Stokkseyri og Eyrarbakka. Frá næstu áramótum verður Mar- grét Haraldsdóttir frá Akranesi afgreiðslustjóri í Hveragerði en Guð- rún Guðbjartsdóttir, núverandi stöðvarstjóri, verður afgreiðslustjóri í Þorlákshöfn. Frá þessu er greint í Sunnlenska. Grímsnes-Grafningur ræður sveitarstjóra Guðmundur Rúnar Svavarsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri hins nýja sveitarfélags, Grímsnes-Grafningshreppur, til tveggja ára. Það er gert vegna þess að sameiningarviðræður sveitarfélaga í Arnessýslu eru í farvatninu. Guðmundur Rúnar er múrarameistari og rekstrar- fræðingur og hefur starfað sem múrarameistari í Reykjavík, en ekki komið nálægt sveitarstjórnarmálum til þessa. Sumarslátrun á Selfossi Slátrað var 230 dilkum í fyrstu sumar- slátruninni hjá Sláturfélagi Suðurlands á Selfossi. Hæstu meðalvigt náði Unn- steinn Hermannsson í Fangholtskoti, 15,62 kg. SS greiddi 20% yfirverð fyrir hvert innlagt kíló af lambakjöti í meðal- ffokki og Markaðsráð landbúnaðarins greiðir auk þess eitt þúsund krónur á hvern dilk. Yfirborganirnar koma á 242 kr fyrir hvert kíló fyrir virðisaukaskatt. Yfirborganir fara stiglækkandi fram á haust en bytja aftur í nóvember, Greitt er 16% álag fyrir jólalömbin og 20% fyr- ir páskalömbin. Sunnlenska greinir frá þessu. GG DHkarnir urður 230 sem slátrað var i fyrstu slátrun hjá SS á Selfossi Úr áfengisversluninni við Hólabraut. Ríki áfram á Akureyri Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt erindi ATVR um rekstur vínbúð- ar að Hólabraut 6, þ.e. í núverandi húsnæði áfengisverslunarinnar. Aður höfðu verið lagðar fram umsagnir skipulagsnefndar og bygg- inganefndar sem gerðu ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis- ins enda sé starfsemin í samræmi við deiliskipulag Miðbæjar. Endurskipulagning fræðslu- og félagsmála Fögð var fram á bæjarráðsfundi skýrsla „Forathugun vegna yfirtöku verkefna Skólaþjónustu Eyþings og hugmyndir að endurskipulagn- ingu stjórnkerfa Akureyrarbæjar á sviðum fræðslu- og félagsmála" sem unnin var af Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri í sam- ræmi við samkomulag RHA og bæjarstjórans á Akureyri. Til fundar við bæjarráð komu vegna skýrslunnar Trausti Þorsteinsson og Bene- dikt Sigurðarson frá RHA, félagsmálaráð og skólanefnd. Húsbyggingu mótmælt Brynjólfur Brynjólfsson, íbúi í Þórunnarstræti 108, hefur gert at- hugasemd við fyrirhugaða byggingu húss sunnan Búnaðarbanka. Bæjarstjóra var falið að svara Brynjólfi í samræmi við umræður á fundinum. GG .D^mt Samviimu þörf í eldvamamálum Bæöi eldvamaeftirlit- iö og tryggiugafélögm em sammála um aö samvinna þeirra á milli væri mjög nyt- samleg. Sjóvár-Al- mennar segist ekki hafa fengið upplýsing- ar um skort á eldvöm- um í Tunglinu. Ólafur B Thors, annar forstjóra Sjóvár-Almennra, segir að fyrir- tækinu hafi ekki borist neinar til- kynningar um slæmar eldvarnir á Tunglinu eða öðrum stöðum. Gestur Pétursson, hjá Eldvarna- eftirlitinu segir að gæta beri var- úðar í að senda út upplýsingar um ástand staða. Þeim hafi held- ur ekki borist neinar beiðnir þar að lútandi frá tryggingafélögun- um. Gefa hækkað iðgjöld vegna athugasemda Varðandi stefnu tryggingafélag- anna í eldvarnamálum bygginga þá sagði Ólafur að almenna regl- an væri sú að vátryggingataka bæri skylda til að sjá til þess að allur umbúnaður væri í samræmi við gildandi lög og reglugerðir, svo og ákvæði í tryggingaskilmálum. Verði svo tjón þá segja skilmálam- ir að sé eitthvað að hvað þetta varðar, beri tryggingataka að sanna að það hafi ekki átt sök á brunanum eða gert afleiðingar hans mun víðtækari. Hafi skortur á eldvörnum verið sökudólgur þá er félaginu heimilt að lækka tjónabætur eða hafna bótakröfum að öllu leyti. Ekki liggur fyrir enn hvort Tunglið fellur í þennan hóp. Vissu ekki til að eldvamir væru í ólagi „Hvað varðar þetta hús sem brann, þá hafa engar breytingar á iðgjöldum verið gerðar hvað það varðar enda var okkur ekki kunn- ugt um neinar athugasemdir um eldvarnir. Við getum ekkert gert ef enginn segir okkur neitt." Ólafur segir að oft sé það svo að rekstraraðilar kalli til eftirlits- mann frá tryggingafélaginu til að kynna sér málin ef gerðar eru breytingar á staðnum. Það hafi hins ekki verið gert í þessu húsi. - Nú er eitthvað af húsum í hænum þar sem Eldvarnir eru ekki t lagi, er ykkur ekki kunnugt um þessi hús? „Eg hef verið að spyrjast fyrir um þetta og mér var sagt að við hefðum ekki fengið neinar til- kynningar um það,“ segir Ólafur. Hann segir að sér þyki full ástæða til að skoða hvernig sam- skiptum væri háttað við þessa að- ila. „Við ættum auðvitað að hafa þarna samvinnu og önnur trygg- ingafélög líka. Með okkar að- gerðum hljótum við að geta stutt opinbera aðila í því að ná l’ram því sem þeir telja nauðsynlegt.“ Dagsektir gagnlegar Gestur Pétursson, hjá Eldvarna- eftirliti Reykjavíkur, segir ástand bygginga mjög misjafnt. Væru eldvarnir ekki í Iagi væri það yfir- leitt vegna vanþekkingar og menn væru fljótir að kippa mál- unum í Iiðinn. Gestur segist gjarnan vilja sjá umbætur á kerfinu. Hann vissi ekki til þess að annað sveitarfé- lag en Reykjavík beitti dagsekt- um til að fá menn til að laga eld- varnir ef þeir hefðu hunsað til- mæli eftirlitsins. Þetta væri tví- mælalaust nokkuð sem önnur sveitarfélög ættu að gera einnig, það væri ekki einungis á þeirra svæði sem ekki væru allir með sitt á hreinu. Tryggingafélögin hafa ekki óskað eftír upplýsingum Gestur sagði að erlendis hefðu tryggingafélögin á sfnum vegum sérfræðinga í brunum. Að sér vit- andi hefði bara eitt félag hér sér- menntaðan mann á þessu sviði. Þetta ætti eflaust þátt í því að hérlendis væru menn sem væru með sín mál í góðu lagi að borga brúsann fyrir þá sem hefðu það ekki. Markaðurinn væri hins veg- ar svo lítill að lausnin væri varla falin í meiri mannaráðningum, heldur öllu heldur samvinnu við þá og hönnunaraðila. Hvað snerti þau ummæli Ólafs að félagið hefði ekki fengið send- ar neinar athugasemdir um að eitthvað væri að eldvörnum sagði Gestur að fara þyrfti varlega í það að senda út upplýsingar. Menn þyrftu fyrst að fá tækifæri til að laga það sem miður væri. Tryggingafélögunum væri hins vegar heimilt að óska eftir slíkum upplýsingum en þau hefðu lítið gert af því hingað til. Hann er sammála Ólafi í því að menn þyrftu að setjast niður og ræða samvinnu sín á milli. Slíkt kæmi öllum til góða, almenningi sem og hagsmunaaðilum. -SEG Sementssala og lán á hraðri uppleið Sementssala jókst um 40 prósent og samþykkt skuldabréfalán ein- staklinga um 25 prósent á hálfu öðru ári. Stóraukin sementssala og mik- il fjölgun samþykktra skulda- bréfalána til einstaklinga hafa fylgst nokkuð að undanfarin misseri, en það sem af er þessu ári hefur síðan hvort tveggja staðið í stað. Sementssalan tók á rás einu ári fyrr, um mitt ár 1995 ogjókst síðan jafnt og þétt til síð- ustu áramóta, um samtals 70 prósent. En frá miðju ári 1996 til ársloka 1997 jukust skuldabréfa- lánin um ljórðung og sements- salan um 40 prósent á sama tíma. Þessar tölur, úr Hagvísum Þjóðhagsstofnunar, hafa verið árstíðaleiðréttar al' stofnuninni, enda þekkt að bæði sementssal- an og skuldabréfaviðskiptin sveillast töluvert milli árstíma. Sementssalan er þó kannski ekki eins mikil og ætla mætti miðað við svo mikla aukningu að undanförnu. A miðju ári 1995 hafði hún minnkað um þriðjung frá árinu 1990, þannig að þrátt fyrir 70 prósent aukningu síðan er sementssala það sem af er þessu ári einungis um 15 prósent meiri en í upphafi áratugarins. Samþykktum skuldabréfalánum hefur á sama tíma íjölgað hlut- fallslega meira, eða um fjórðung. -HEl

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.