Dagur - 05.08.1998, Page 10
10 -MIÐVIKVDAGUR 5. ÁGÚST 1998
FRÉTTIR
Dítgtur
Rólegt og fámeiuit í
Reykjavík um helgina
Umferðin inn og út úr höfuðborginni gekk almennt séð vel þó hún væri
þung.
Fátt fólk var í mið-
bæniun uin helgina og
tiltölulega rólegt. Það
eru þó alltaf einhverj-
ir til vandræða og t.d.
voru fjórir teknir fyr-
ir ótímabær þvaglát
samkvæmt dagbók
lögreglunnar í Reykja-
vík um verslunar
mannahelgina.
Umferðin gekk mjög vel á svæði
Reykjavíkurlögreglu og ökumenn
almennt til fyrirmyndar þegar
miðað er við hvað umferðin var
mikil. Þó voru 50 ökumenn tekn-
ir fyrir of hraðan akstur og 16 fyr-
ir ölvun við akstur.
Færri innbrot
Lögreglunni var tilkynnt um 7
innbrot um helgina sem er fækk-
un frá síðasta ári en þá voru þau
10 og árið þar áður 22. Um þessa
helgi var Iögreglan Iíka með sér-
stakt eftirlit til að koma í veg fyr-
ir innbrot. Síðdegis á föstudag
var tilkynnt um þjófnað á nokkur
hundruð þúsund krónum úr
skúffu á bensínstöð í vesturbæn-
um. Þetta voru peningar sem
voru tilbúnir fyrir uppgjör.
A föstudagskvöld var farið í
póstkassa í húsi við Kelduland og
póstur tekinn úr þeim og rifinn.
M.a. fundust rifnar ávísanir frá
ríkisféhirði í nágrenninu.
A laugardagsmorgun var til-
kynnt um innhrot í íbúð við Vita-
stíg. Stolið var útvarpi, úrum og
fl. Akveðinn maður er grunaður.
Síðdegis á laugardag var til-
kynnt um innbrot í íbúð við
Skeljagranda. Þar var stolið verð-
mætum hljómflutningstækjum.
Snemma á sunnudagsmorgun
var gerð tilraun til innbrots í úr-
smíðaverslun við Laugaveg með
því að henda gijóti í rúðu. Orygg-
isgler var í rúðunni og því kom
aðeins lítið gat á hana og engu
var hægt að stela.
Uppúr hádegi á mánudag var
tilkynnt um innbrot f hús við
Nesbala. Þar hafði verið stolið
verulegum verðmætum í skart-
gripum og myndbandstæki.
Síðdegis á mánudag var brotist
inn í vinnuskúr við Sóltún og
stolið allmiklum verðmætum í
verkfærum. Undanfarið hefur
verið talsvert mikið um slíka
þjófnaði á verkfærum af vinnu-
stöðum og ástæða til að brýna
fyrir mönnum að geyma dýr verk-
færi á öruggum stöðum. A mánu-
dagskvöld var tilkynnt um inn-
brot í tvær íbúðir við Hverfisgötu.
Ur annarri var stolið símtæki en
ekki er vitað um hvort einhveiju
var stolið úr hinni.
Arasagjarnir unglingar
Maður var fluttur á slysadeild úr
Hafnarstræti á föstudagskvöld,
bólginn og blóðugur í andliti.
Kvaðst hann hafa orðið fyrir árás
unglingahóps.
Aðfaranótt laugardags var mað-
ur fluttur á slysadeild sem kvaðst
hafa orðið fyrir árás dyravarða á
veitingastað í miðbænum er hann
ætlaði inn í veitingahúsið.
Um svipað leyti voru tveir
menn teknir í Pósthússtræti fyrir
að sparka í liggjandi mann. Á
sama tíma varð maður fyrir árás
tveggja manna f Lækjargötu.
Hann tapaði úlpu og peninga-
veski á flóttanum en árásarmenn-
irnir fundust ekki. Maðurinn var
fluttur á slysadeild. Aðfaranótt
sunnudags var tilkynnt um með-
vitundarlausan mann utan við
veitingahús við Laugaveg. Mað-
urinn var slasaður á hnakka og í
andliti og var fluttur á slysadeild.
Arásarmaðurinn var handtekinn.
Skemmdur gróöur
A laugardagsmorgun var tilkynnt
um menn að skemma gróður í
Hljómskálagarðinum. Þetta voru
5 ungir menn og reyndust þeir
vera með fíkniefni í fórum sínum.
Fyrir hádegi á laugardag var til-
kynnt um kettling fastan uppi á
þaki á húsi við Seljaveg. Kisa var
bjargað niður með aðstoð slökkvi-
liðs.
Aðfaranótt sunnudags var til-
kynnt um konu sem væri komin
niður á dekk sem hanga utan á
Miðbakkanum. Henni var bjarg-
að upp áður en hún fór í sjóinn
og ekið á sjúkrahús.
Um hádegi á Iaugardag var
maður tekinn fyrir að bijóta með
kúbeini allar rúður í bifreið fyrr-
verandi eiginkonu. Honum var
sleppt eftir skýrslutöku.
Fjögurra ára gamalt barn
brenndist í sturtu á sunnudag er
krani fyrir heitt vatn brotnaði af.
Barnið var flutt á Landspítala
með brunasár á neðri hluta Iík-
amans.
Um miðnætti féll maður þrjá
metra og lenti á gangstétt við
Laugaveg. Maðurinn var fluttur á
slysadeild og reyndist lærbrotinn.
Vatnsæð sprakk á Einimel
Kl. 08.34 á mánudag var tilkynnt
um að vatnsveituæð hafi farið í
sundur við Einimel 19. Garður-
inn við húsið og kjallari undir bíl-
skúr fóru undir vatn. Talið er að
stofnæð hafi þversprungið og
varð að loka fyrir vatn á svæðinu.
A mánudagskvöld var kvartað
yfir hávaða frá vekjaraklukku sem
hafði verið í gangi nánast alla
helgina. í ljós kom að eigandinn
var í Vestmannaeyjum og gat ekki
stoppað klukkuna. Nágranninn
ætlaði að umbera hávaðann þar
til eigandinn kæmi heim.
Grunnskólakennarar
Við Grundaskóla vantar ennþá kennara til að sinna al-
mennri bekkjarkennslu í 1. og 8. bekk (2 stöður). Vakin er
athygli á að Akraneskaupstaður hefur gert sérstakt sam-
komulag við kennara bæjarins. Góð vinnuaðstaða er fyrir
kennara og þróttmikið skólastarf. Verið er að vinna að mati
á skólastarfi og fleira skemmtilegt er á döfinni.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í vs. 431 2811, hs. 431
2723 og 899 7327 (Guðbjartur Hannesson). Umsóknarfrest-
ur framlengdur til 11. ágúst nk.
Menningar- og skólafulltrúi.
FfÖLBRAUTASKÓLI
VESTURLANDS Á AKRANESI
auglýsir:
Kennara vantar í:
• Hjúkrunarfræði, 'A staða
• Rafvirkjun fullt starf
• Þýsku, 'A staða
Ráðið verður í störfin frá 1. ágúst 1998 og kennsla
hefst 24. ágúst. Umsóknarfrestur er til 12. ágúst.
Umsóknir skulu sendar Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi, Vogabraut 5, 300 Akranesi (ekki er þörf á að
nota sérstakt umsóknareyðublað).
Heimasíða: http//:rvik.ismennt.is/~fva/
Upplýsingar eru veittar í símum 431 2544 / 431 2528.
Skólameistari.
Hryllingiir í Vaglaskógi
Yfirleitt er friðsælt í Vaglaskógi en annað var uppi á teningnum hjá ungu
fjölskyldufólki um verlunarmannahelgina þarsem steinolíu var helltyfir
tjald þar sem lítið barn hafðist við.
Rifrildi og slagsmál
urðu til þess að kona
hellti steinolíu yfir
tjald í Vaglaskógi.
Inni í tjaldinu var
ungt bam.
Ein alvarlegasta uppákoman um
verslunarmannahelgina átti sér
stað í Vaglaskógi í Fnjóskadal að-
faranótt sunnudags. Þar spunn-
ust upp deilur og slagsmál sem
enduðu með því að skelfingu
lostnir skógargestir létu til sín
taka og kölluðu til lögregluna á
Húsavík. Ung börn blönduðust í
átökin þar sem Bakkus virðist
hafa verið í stóru hlutverki.
Ekki er nákvæmlega vitað til
þess hvað orsakaði ósættið sem
leiddi til handalögmála, en mál-
in tóku óvænta og ískyggilega
stefnu þegar kona um tvítugt
hellti steinolíu á tjald kunningja
sinna og var ungt barn inni í
tjaldinu þegar þetta gerðist. Að
sögn Sigurðar Brynjúlfssonar,
yfirlögregluþjóns hjá Lögregl-
unni á Húsavík, höfðu áhorfend-
ur að ósköpunum þá þegar
blandað sér í átökin og reynt að
stilla til friðar, auk þess að
hringja í lögregluna. Mjög skjótt
var brugðist við og var lögreglan
komin um 25 mínútum síðar í
Vaglaskóg, en um 60 kílómetrar
eru milli Húsavíkur og Vagla-
skógar.
Nærstaddir til bjargar
„Við tókum þessa tilkynningu
mjög alvarlega, en þegar við
komum á staðinn hafði átökun-
um linnt. Fjölskyldufólk sem
varð vitni að þessu hafði þá tek-
ið að sér þijú ung börn sem
þetta fólk var með. Hluti deil-
enda var farinn en aðrir voru
enn á staðnum. Okkar afskipti
voru að ræða við viðkomandi og
reyna að róa fólk niður. Við fór-
um með einn mann til Húsavík-
ur, en komum svo aftur í skóginn
á sunnudagsmorgun og skildum
ekki við fólkið fyrr en sættir
höfðu náðst," segir Sigurður.
Mjog alvarleg lióftin
Samkvæmt Sigurði virðist sá
gjörningur konunnar að hella
olíu yfir tjaldið meira hafa verið í
skyni hótunar en ásetnings.
Þannig voru eldfæri aldrei tekin
fram svo vitað sé, en málið er
engu að síður litið mjög alvarleg-
um augum. Hjón með barn sem
tengdust deilunni reyndu að
flýja vettvang á bifreið. Lögregl-
an á Akureyri fékk vísbendingu
um ferðir bílsins og tókst að
stöðva bílstjórann og Ijúka öku-
ferðinni þar með.
Hryllingur
„Þetta var hryllingur á að horfa
og menn voru slegnir yfir því að
sjá börnin blandast inn í þennan
hildarleik," segir vitni að atburð-
unum í Vaglaskógi. Mikið fyllerí
mun hafa verið á flestum þeim
sem tengdust átökunum og verð-
ur barnaverndaryfirvöldum að
sjálfsögðu gert viðvart um uppá-
komuna, að sögn yfirlögreglu-
stjórans á Húsavík. Eftirmál eru
óljós á þessu stigi en þess má
geta að fólkið sem um ræðir, á
lögheimili í Reykjavík. — bþ