Dagur - 05.08.1998, Blaðsíða 11
Xk^MT
MÍÐVIKVDAGUR S. ÁGÚST 1998 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
IMFkannað
verða fjár vant
DAGUR
ÞORLEIFS-
SON
SKRIFAR
Áhyggjur af kreppunni, sem
hófst í Suðaustur-Asíu fyrir
rúmu ári og hefur síðan látið á
sér kræla víða um heim, eru
áfram miklar. Fjármálamenn og
efnahagsmálafræðingar eru
beggja blands um hvers vænta
megi í þeim efnum.
Gengisfall japanska jensins í
júní kom fjármálamörkuðum
mjög úr jafnvægi, enda er Japan
annað mesta veldi heims í efna-
hagsmálum og myndar ásamt
Vesturlöndum máttarstólpa
heimsefnahagslífsins.
Mikið veltur á stjórn
Obuchis
Von kvað vera til þess að með
nýrri ríkisstjórn í Japan, undir
forystu Keizos Obuchi, muni
óheillaþróuninni í Ijármálum þar
snúið við. En fjármálafræðingar
eru áfram mjög uggandi fyrir
hönd Japans. Þeir telja sumir að
róttækar ráðstafanir til umbóta á
bankakerfi Japans séu óhjá-
kvæmilegar til þess að landið
geti rifið sig upp úr yfirstandandi
vandræðum. Láti stjórn Obuchis
þær ráðstafanir undir höfuð
Ieggjast taki jenið nýja dýfu.
Martraðarkenndra hugmynda
gætir um hugsanlegrar afleiðing-
ar slíkrar dýfu. Haldi kreppan
áfram í Japan, sé hætta á að við
það dragist öll Austur- og Suður-
Asía niður í fjár- og efnahags-
málum. Fyrir hinu sama muni
verða lönd annars staðar þar sem
meiri eða minni gróska hefur
verið í efnahagsmálum undan-
farið, þrátt fyrir nokkurn óstöð-
ugleika í þeim efnum. Áhrifa
kreppunnar á ýmis slík ríki er
raunar þegar farið að gæta.
Fjármálamenn ýmsir segja
stöðnunina í efnahagslífi Japans
hafa reynst alvarlegri en búist
hafi verið við. Sé þetta ein af
ástæðunum til þess að kreppan
haldi áfram. Af hálfu Alþjóðlega
gjaldeyrissjóðsins (International
Monetary Fund, IMF) er sagt að
þar á bæ hafi að vísu verið húist
við minnkandi hagvexti í Japan,
en ekki „kollsteypu fram af
hömrum."
BandaríMn tregari á
framlög
IMF stóð fyrir björgunaraðgerð-
um í efnahagsmálum Rússlands
nýverið, en þrátt fyrir það hefur
bið orðið á því að álit fjárfesta á
efnahagslífi þess lands hafi auk-
ist á ný. Verðbréf héldu áfram að
hríðfalla í verði í Moskvu eftir að
áminnstar aðgerðir IMF höfðu
verið tilkynntar. Ymsir töldu að
þar væri of mikið fé Iagt fram,
sökum þess hve vonir um árang-
ur væru hæpnar. Við það bætist
að komin er slík ólga í fjármál
Malasíu, Suður-Afríku, Úkraínu
o.fl. ríkja að margir telja viðbúið
að þeim verði svo að segja á
hverri stundu brýn þörf á neyð-
arhjálp utan frá, hliðstæðri
þeirri er Rússland fékk.
Við þetta hefur vaknað kvíði
um að IMF verði fjár vant. Ekki
Baksvið
Ráðstafanir IMF til
að halda aftur af
kreppunni hafa kost-
að hann ærið fé. Á
Bandaríkjaþingi þyk-
ir sjóðurinn ekki
hafa gætt nægrar for-
sjálni við þær hjörg-
unaraðgerðir.
er Iaust við að farið sé að draga
úr trausti á sjóðnum í ríkjum
þeim, sem mest fé Ieggja í hann,
þ.e. ríkustu Iöndum heims. Þar
er með í myndinni grunur, sem
færðist £ vöxt við neyðarhjálpina
við Rússland, um að IMF fari
ekki nógu gætilega með fé sitt.
Leiðtogar repúblíkana á Banda-
ríkjaþingi ákváðu þannig nýlega
að fresta til hausts afgreiðslu til-
lögu um að Bandaríkin láti 18
milljarða dollara af hendi rakna
við IMF. Bandaríkin hafa undan-
farið fengið IMF fé mikið til
áríðandi björgunaraðgerða. Fjár-
málaráðuneyti Bandaríkjanna og
gagnrýnendur IMF á Banda-
ríkjaþingi telja að hann hafi þrátt
fyrir þetta til þess að gera lítið fé
í handraðanum til frekari björg-
unaraðgerða og álíta einnig að
sjóðurinn hafi ekki undirbúið
nógu vel hjálparaðgerðir við rík-
in sem kreppan hefur slegið
hvað harðast, eins og Suður-
Kóreu og Taíland.
Naudganir og fjármagns-
flótti
Talsmenn IMF benda aftur á
móti á að stöðugleiki hafi komist
á gjaldmiðla landa þessara
tveggja og telja það vott um þau
séu komin í afturbata í efnahags-
málum, þótt mikið vanti á að þar
hafi verið gert nóg til bóta.
Af kreppulöndum Austurlanda
fjær er nú lndónesía mesti vand-
ræðagripurinn í augum IMF. Þar
virðist stefna í upplausn og
stjórnleysi. I dreifbýli þar er ráð-
villt fólk, sem skortir mat, farið
að taka yfir eignir háttsettra
ráðamanna. Ofbeldið þarlendis
beinist þó einkum að Kínverjum,
sem haft hafa um þrjá fjórðu
hluta efnahagslffsins þar í sínum
höndum. Fyrir utan rán, brenn-
ur og manndráp, sem Kínverjar
sættu íjakarta, höfuðborg lands-
ins, og víðar, áttu sér þar stað
hópnauðganir á kínverskum
konum. Níðingsverk þessi á kín-
verskum konum hafa haldið
áfram, a.m.k. í Medan á
Súmötru og þar í grennd, þótt
dregið hafi úr öðru ofbeldi gegn
kínverska þjóðernisminnihlutan-
um. Þar sem fjármálin þarlendis
hafa að mestu verið í höndum
Kínverja hefur þetta Ieitt til mik-
ils fjármagnsflótta úr landi. Einn
helstu ráðamanna í IMF segir að
Indónesía hafi ekki mikla mögu-
leika á að rétta úr kútnum í efna-
hagsmálum nema öryggi IG'n-
verja þar sé tryggt. Þá fyrst muni
fjármagn laðast aftur til lands-
ins.
Ofan á annað hefur síðustu
daga heyrst að Kína kunni að
lækka gengi gjaldmiðils síns,
haldi jenið áfram að falla, til að
tryggja að Kína tapi ekki útflutn-
ingsmörkuðum. En stöðugleiki
kínverska gjaldmiðilsins hefur
skipt miklu við að hindra að ekki
færi enn verr en farið hefur í
efnahagsmálum Austurlanda
Ijær.
Viðrædur vopnaeftirlitsnefndar sigla
í strand
Richard Butler, aðalvopnaeftirlitsmaður Sameinuðu þjóðanna, fór
frá Baghdad í gær eftir að viðræður við háttsetta embættismenn
Iraksstjórnar um afvopnun Iraks, fóru út um þúfur. Talsmaður
vopnaeftirlitsnefndarinnar sagði að með Butler hefðu farið nítján
vopnasérfræðingar og væri Butler á Ieið til New York. Viðræðunum
Iauk í raun á mánudag, en Butler vildi ekki segja hvers vegna viðræð-
ur hans við Tariq Aziz aðstoðarmann, forsætisráðherra íraks, hefðu
siglt í strand.
Uppreisnarástand íKongó
Velai Laurent Kabila forseta er nú ógnað ar fyrrum
bandamönnum hans. Kabila hefur fyrirskipað út-
göngubann í höfuðborg landsins, sett upp vegartálma
með hermönnum á vakt víða um borgina og fyrirskip-
að skipulagða leit að málaliðum frá Rwanda. í aust-
urhluta Kongó hafa herforingjar nú hafið uppreisn
gegn Kabila og reka áróður fyrir því að steypa forset-
anum af stóli.
Kabila, forseti
Kongó.
Talibanar á sigurgöngu
Talibanar náðu í. gær þorpi sem hafði verið á valdi stjórnarandstæð-
inga, þetta er enn einn áfanginn að því að taka borgina Mazar-e-
Sharif, sem er helsta vígi andstæðinga þeirra. Þessar upplýsingar
komu frá fulltrúa Talibana, en ekki tókst að fá óháðar fregnir af at-
burðinum. Talibanar stjórna nú meirihluta Afghanistan og virðast
reiðubúnir til að taka það sem eftir er af Iandinu. Síðustu fulltrúar
hjálparstofnana hafa nú yfirgefið Mazar-e-Sharif.
Hrói Höttur í framboði
Hugo Chavez, sem reyndi að steypa ríkisstjórn Venezúela fyrir sex
árum, býður sig nú fram til forsetaembættis þar í landi. Hann sér
ekki eftir neinu og fjölmargir stuðningsmenn hans eru sammála hon-
um um það að valdaránstilraunin hafi verið réttlætanleg. Gagn-
rýnendur Chavez eru ekki á sama máli og segja hann vera lýð-
skrumara, glæpamann og tilvonandi einræðisherra. Chavez hefur
forystu í skoðanakönnunum og milljónir landsmanna, sem orðnir eru
þreyttir á spillingu og slæmu stjórnarfari, líta á hann sem hetju.
v.,-
«r<'... •'
‘. A.
Reynt að koma í veg fyrir frekari
tjón af völdum flóðanna í
Gulafljóti.
Maunskæð flóð í
Kína
Nærri eitt þúsund manns er sakn-
að eftir að stífla í Gulafljótinu (eða
Yangtzefljóti) í Kína brást. Úr-
hellisrigningar í suðvesturhluta
Sichuanhéraðs hafa einnig komið
af stað flóðum sem að minnsta
kosti 20 manns hafa látist í. Nú er
talið að samtals 1288 manns hafi
látið lífið í flóðunum. Ástæða
þeirra er óvenjumiklar sumarrign-
ingar sem þar á ofan koma óvenju
snemma. Búist er við að aftur fari
að rigna og er óttast að enn fleiri
skörð komi í varnargarðana sem
verja bæði landbúnaðarsvæði og
milljónir manna frá ógnarkrafti
Gulafljótsins, sem er þriðja lengsta
á í heimi.
BORGARSKIFULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Austurstræti 18, breyting
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að
breytingu á deiliskipulagi miðborgar Reykjavíkur, þ.e.
hvað varðar breytingu á götuhlið 1. og 2. hæðar Austur-
strætis 18.
Kynningin fer fram í sal Borgarskipulags og
Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
10:00-16:15 og stendur til 2. sept. 1998. Ábendingum
og athugasemdum vegna ofangreindrar kynningar, ef
einhverjar eru, skal skila skrifiega til Borgarskipulags
Reykjavíkur, eigi síðar en 16 sept. 1998.
Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Borgarskipulag Reykjavíkur