Dagur - 05.08.1998, Side 16
WWll^wPc fcAH'ff? 3>
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100
Reykjavík
SSV3 VSV2 VSV2 VSV2 SSV2
V3 VSV3 SSV3 SV3
Stykkishólmur
3 V3 SV2 VSV2 S3
VNV3 SV3 SSV3 SV3
Bolungarvík
? F/m Fös Lau Sun
15-f
10
-10
- 5
0
SSV2 NNV1 A1 VSV1 SV1
NNV2 SSA2 SV2 VSV2
Blönduós
!? Fim Fös Lau Sun mm
NNV1 N1 LOGN NV1
Akureyri
VSV3 V3 N2 SV2 SV2
V3 NV3 NV2 VNV3
Egilsstaðir
iG-i F,m Fös Lau Sun
V2 V2 S1 S2 SSV2
SSV2 SSA2 SA2 SSA2
Kirkjubæjarklaustur
!? F'm Fös Lau Sun
SV2 V2 V2 VSV2 VSV2
VSV2 V2 VSV2 VSV2
Stórhöfði
c F,m Fös Lau Sun
SV5 V5 V4 VSV4 SV3
V4 V3 SV3 VSV5
Miðvikudagur 5. ágúst 1998
Veðrið í dag...
Suiman- og suðvestan gola eða kaldi. Rigning eða súld meö
köflum, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti 10 til 17 stig,
hlýjast á Austurlandi.
Hiti 10 til 17 stig.
ÍÞRÓ TTIR
íslenska liðið mætti
ofjarli sínrnn í
leiknum gegn
Norðmönnum og
tapaði stórt, 8-2.
íslenska liðið á Opna KEA-
Norðurlandamótinu í knatt-
spyrnu lék sinn fyrsta leik í mót-
inu á Akureyrarvelli í gær gegn
Norðmönnum, og beið ósigur, 2-
8. Norðmenn skoruðu fyrsta
markið en Island jafnaði fljót-
lega 1-1 með marki Ólafs Páls
Snorrasonar, Val. Næstu tuttugu
mínútur voru hins vegar martröð
fyrir íslenska liðið, vörnin opn-
aðist illa og eftir hálftíma Ieik var
staðan 1-4 fyrir Norðmenn og
þannig var staðan í hálfleik.
I seinni hálfeik byrjuðu Norð-
menn af krafti og var staðan orð-
in 1-6 eftir 20 mínútur. Þá
minnkaði ísland muninn í 2-6
en tvö síðustu mörkin skoruðu
Norðmenn og unnu mjög sann-
gjarnt. Lið þeirra var mjög heil-
steypt, oft brá fyrir frábærum
samleik, sem oftar en ekki byij-
aði hjá miðjumanninum Fredrik
Strömstad. Flest mörk Noregs
gerði Trond Ludvigsen, eða 4; en
eitt mark gerðu Ruben Hansen,
Kurt Heggested, Vidar Hoseth
og Ole Talberg. Bæði mörg Is-
Iands gerði Ólafur Páll Snorra-
son.
Magnús Gylfason, þjálfari,
sagði að þetta hefði ekki verið
dagur íslenska Iiðsins, fátt hefði
gengið upp og vörnin verið mjög
slök auk þess sem Norðmenn
væru með mjög sterkt Iið sem ef-
laust næði langt. Þegar staðan
hefði verið 1 -4 hefði íslenska lið-
ið misst trúna og ekkert gengið
eftir það.
A Dalvíkurvelli léku fyrst Svíar
og Færeyingar, og sigruðu Svíar
3-0 og var sá sigur síst of stór.
Síðari leikurinn á Dalvík var
Ieikur Englands og Finnlands
þar sem England hafði forystu 3-
1 allt fram til loka er Finnar
skoruðu tvívegis, seinna markið
með Iokaspyrnu leiksins, ogjöfn-
uðu, 3-3. A Ólafsfirði sigruðu
Irar Dani 4-0 og var Iið Ira mun
heilsteyptara. Irarnir eru Evr-
ópumeistarar U16 og U18 og því
ættu þessi úrslit ekki að koma á
óvart.
A morgun leika á Sauðárkróki
Noregur og Danmörk og síðan
Island gegn Irlandi og hefst fyrri
Ieikurinn klukkan 15.00. A
Húsavík leika England og Fær-
eyjar og Finnar gegn Svíum og
hefst fyrri leikurínn þar einnig
klukkan 15.00. Mótið heldur
síðan áfram á föstudag og því
lýkur á laugardag. — GG
Við undirskrift samnings KSÍ og KEA sem er styrktaraðili mótsins. F.v. Árni
Magnússon fjármálastjóri KEA, Eggert Magnússon, formaður KSÍ og Þór-
arinn £ Sveinsson aðstoðarkaupfélagsstjóri KEA.