Dagur - 17.10.1998, Qupperneq 17
LAUGARDAGUIt 17. OKTÓBF.R 19 9 8 - 33
Tkgur
LÍFIÐ í LANDINU
Sunlight-auglýsingin frá 1898 er elsta kvikmyndaauglýsing sem til og er lang-
ur vegur milli hennar og sjónvarpsauglýsinga sem við eigum nú að venjast,
með ógnarhröðum klippingum ogýmiss konar tæknibrellum.
Ertu auglýsingafíkill?
Beiðstu spennt/ur eftir
framhaldinu í kafftást-
arsögunni? Ferðu í
nostalgíukast þegar þú
heyrir: „ Veistu hvað
Ljóminn erljómandi
góður... “ Efsvarið er
jáifarðu íHáskólahíó
nk. laugardagskvöld.
Þetta hljómar heldur ótrúlega
en í kvöld verður rösklega sex
ldukkustunda sýning í Háskóla-
bíói á - auglýsingum. Um er að
ræða franska farandsýningu sem
hefur gengið um heiminn síðast-
liðin 17 ár. Þannig var að maður
að nafni Jean Marie Bouriscot
áttaði sig á því að enginn héldi
auglýsingum skipulega til haga
og stofnaði því kvikmynda- og
auglýsingasafn í París árið 1978.
Þremur árum síðar setti hann
saman sýningu á nýlegum og
eldri auglýsingum og síðan hafa
verið árlegar sýningar á auglýs-
ingum sem hann hefur safnað
frá 25 löndum. Island er 26.
Iandið.
Rocky Horror stemning
Megnið af sýningunni eru nýleg-
ar auglýsingar, segir Benóný
Ægisson, einn af aðstandendum
hátíðarinnar. „Stemmningin í
salnum er mögnuð og minnir
um margt á þennan kúltúr sem
kom í kringum Rocky Horror
myndina. Fólk situr í salnum,
fagnar og púar, syngur með,
veifar blöðrum og þeytir popp-
korni í hausinn á hvert öðru.
Þetta er dálítið sérstök sam-
koma.“
Þó slæðast eldri auglýsingar
með, m.a. má þar sjá elstu kvik-
myndaauglýsingu .sem til er. Sú
er frá árinu 1898 og er henni
ætlað að hylla Sunlight-sápuna
fyrir fólki. Nótt auglýsingaæt-
anna sýnir því að nokkru leyti
þróun sjónvarps- og kvikmynda-
auglýsinga. Benóný segir það
helst áberandi hve miklu meiri
áhersla er núorðið Iagt á mynd-
málið, sem skiptir orðið meira
máli en hið talaða orð. „Svo hef-
ur tækninni náttúrulega fleygt
fram. Eins og þessi gamla
Sunlight auglýsing. Þar er bara
ein tökuvél í víðu skoti sem tek-
ur mynd af því sem gerist.“
- Hvað gerist?
„Það gerist ekki neitt í raun og
veru. Það eru tvær konur að þvo
þvott og hengja upp á snúru og
svo eru einhver tvö börn að
skottast í kringum þær. Það er
allt annað en þessar hröðu
klippingar og mikla áreiti sem er
í nútímaauglýsingum. En við
erum þarna eiginlega að sjá
rjómann af auglýsingum heims-
• U
ms.
Óskiljanleg en flott
- Er áberandi munur á að-
ferðafræði t auglýsingagerðinni
milli ólíkra heimshoma?
„Já og nei. Þegar verið er að
auglýsa vörur þá er ekki stór
munur á milli landa. Það er
frekar þegar verið er að auglýsa
einhver huglæg gildi eða bæta
ímynd t.d. orkufyrirtækja,
Greenpeace, ríkisstofnana eða
eitthvað slikt. Þá er farið eitt-
Hálfgerð Rocky horror
stemmning ríkirá
þessum maraþonaug-
lýsingasýningum,
segirBenóný.
hvað öðruvísi að. Eins og uppá-
haldsauglýsingin mín sem kem-
ur frá Kína - og ég veit ekkert
hvað er verið að auglýsa - þar er
t.d. maður sem hleypur yfír nán-
ast allt Kínaveldi með rauðan
fána og undir þessu berja fleiri
tugir trumbuslagara á stórum
trommum sem eru næstum tveir
metrar í þvermál. Það skiptir
mann engu máli þó maður viti
ekki hvað er verið að auglýsa,
hún er bara svo flott. Svo er ansi
sterk auglýsing frá Greenpeace
þar sem ballerína dansar á skýi,
\ið tónlist úr Svanavatninu.
Hún beygir sig aðeins niður í
skýið og rís síðan upp og er þá
með olíu á sér. A endanum er
hún orðin svo olíublaut að hún
getur sig hvergi hreyft. Þetta er
sterkt.“
- Er við því að búast að fólk
flykliist í Háskólabt'ó til að horfa
á auglýsingar fram á rauðanótt?
„Ja, miðað við reynslu í öðrum
Iöndum þá reiknum við nú með
því. Það mæta um 15.000
manns á frumsýninguna í París
og ef maður lítur bara á auglýs-
ingageirann þá eru nú einhverj-
ar þúsundir manna sem vinna
við hann, fyrir utan þá sem eru í
viðskipta- og markaðsnámi. Þar
fyrir utan er líka til fólk sem
hefur bara gaman af þeim. Aug-
lýsingar geta verið andskoti
skemmtilegar." - Nú stendur
þetta fram á miðja nótt - verða
einhverjar vfnveitingar þama?
„Ja, einhverjar vínveitingar
verða. Absolut er einn aðal-
styrktaraðili hátíðarinnar þannig
að þeir verða þarna að kynna
sína vöru...
Sýningin hefst ld.20.30, er
öllum opin og kostar 1200 kr.
inn. - LÓA
Hann spilar á gítar,
bassa og trommur.
Hann syngur. Hann er
að verða tólfára og
innan skamms sendir
hannfrá sérsólóplötu -
Upplifun.
Ragnar Sólberg Rafnsson segist
hafa verið óður Iagahöfundur frá
því hann var sex ára. Hann sem-
ur Iög og segist ekki vera undir
áhrifum neins - semur og spilar
rokk. Hann er að senda frá sér
sjö laga plötu sem á að koma út
nú í október. „Þetta eru Iög og
textar eftir mig,“ segir Ragnar
Sólberg í samtali við Dag. „Egill
bróðir minn spilar á trommur og
Omar Freyr bassaleikari í
Woofer spilar líka með mér.“ Á
plötunni eru tveir gestasöngvar-
ar, Hildur söngkona í Woofer og
Heiðar í Botnleðju. Ragnar spil-
ar Iíka í hljómsveit sem heitir
Rennireið - með honum í hljóm-
sveitinni eru Frosti Örn Gunn-
arsson syngur og semur texta og
Matthías Arnalds spilar á hljóm-
borð. Allt hitt sér Ragnar um,
hann spilar á gítar, trommur og
bassa í Rennireið, sem var valin
sú efnilegasta á Músíktilraunum
Ragnar Sóiberg Rafnsson: „Eg bara fæddist svonaí" mynd: teítur
Tónabæjar í vor. En plata Ragn-
ars er sólóplata.
„Fflar“ tónlistma
- Það er ekkert venjulegt að
ellefu ára gamall strákur geft út
sólóplötu. Hvemig kom þetta til?
„Ég hef verið alveg óður laga-
höfundur frá því ég var sex ára.
Pabbi tók sig bara til og tók upp
lög með mér,“ segir Ragnar.
- Er ekki mikið mál að taka
upp og gefa út plötu?
„Nei. Eg hef að minnsta kosti
Jíilikljty Ijl an etÚ8agwvl?qili»fl.¥i89$c| “
gaman af því. Ég veit ekki hvað
þetta hefur tekið langan tíma, ég
er ekkert að skynja tímann," seg-
ir Ragnar og samsinnir þva að
hann sé bara að „fíla“ tónlistina.
Upptökur hófust í endaðan maí
og tóku tíu daga. „Þetta eru allt
gömul lög, tveggja til þriggja ára
gömul," segir hann spurður um
lögin á plötunni. Hann samdi
þessi lög semsé þegar hann var
átta og níu ára!
Hreinn unaðux
Ragnar Sólberg hefur verið í sjö
ár í Gítarskóla Islands þar sem
Tryggvi Húbner hefur kennt
honum á gítarinn. „Ragnar Sól-
berg byrjaði að læra hjá mér þeg-
ar hann var sex ára gamall,“ seg-
ir Tryggvi, „og það var hreinn
unaður að kenna þessum strák
að spila. Hann er alveg sérstak-
lega músíkalskur og duglegur. Ég
vona að platan hans muni vekja
athygli og menn muni hlusta á
þenrian unga mann,“ segir
Tryggvi og er greinilega stoltur af
þessum nemanda sínum.
„Þegar hann kom í fyrstá tím-
ann spurði ég hvort hann kynni
eitthvað að spila. „Já smávegis,"
sagði hann. „Ertu búinn að spila
lengi á gítar,“ spurði ég. „Nokk-
ur ár,“ sagði Ragnar. Hann er
svo sjálfstæður og hefur svo gott
eyra og vinnur eins og tónlistar-
maður sem er miklu eldri. Ég
þekki marga góða tónlistarmenn
og þeir eru ekki margir sem eru
færari en Ragnar. Það streymir
alveg frá honum - ég hef að vísu
ekki heyrt neitt af því sem er á
plötunni. En ég hef heyrt í hon-
um það sem hann hefur verið að
dunda og það er alveg sérstak-
lega frísklegt," segir Tryggvi.
Fæddist svona
Ragnar Sólberg er sonur Rafns
Jónssonar gítarleikara og því
liggur beint við að spyrja um
tónlistina í fjölskyldunni. Bróðir
Ragnars, Egill, er í hljómsveit-
inni Woofer og spilar á trommur
á plötunni. „Mamma er ekki
hljóðfæraleikari en hún er samt
mjög lagvís," segir Ragnar.
- Fórstu út í tónlist af þvt' að
pabbi þinn er tónlistarmaður -
hvatti hann þig til að fara í tón-
listina?
„Ég bara fæddist svona," svar-
ar Ragnar að bragði.
Ragnar kemur fram á tónleik-
um í Hafnarborg á sunnudags-
kvöldið í tilefni af afmæli Hafn-
arfjarðar. „Maggi Kjartans var
búinn að heyra lögin mín héld
ég,“ segir Ragnar „óg hann hafði
samband við pabba." Meðal
þeirra serh fram koma með
Ragnari er Maggi Kjartans sjálf-
ur.
- En hvað um framttðaráform?
„Bara að lifa af tónlistinni og
gera góða tónlist," segir Ragnar
Sólberg Rafnsson gítarleikari,
bassaleikari, trommuleikari og
laga- og textahöfundur. - m