Dagur - 17.10.1998, Page 18
?4-
J «j|! ...
.AVGARDAG UR 1 7 .
H O
1 HU0 JUAA
OKTÓRER 1998
I
POPPLÍFIÐ í LANDINU
Heiða söngkona. Áfram með Unun.
Ein af tvímælalaust skemmtilegri plötum sem komið hafa út á ís-
landi á seinni árum, er Æ með Unun, er nánar tilgreint leit dagsins
ljós 1995. Með þau Heiðu söngkonu, Ragnheiði Víkingsdóttur, Þór
Eldon gítarleikara og Gunnar Hjálmarsson bassaleikara, sem kjarna,
var Unun í senn frísk og kröftug innkoma í íslenskt popp á þessum
tíma og var búist við miklu af sveitinni í kjölfar þessarar fyrstu plötu.
Og það virtist ætla að ganga eftir. Spil í útlöndum og samningur í
einhveijum dráttum virtist vera í höfn, en vegna einstakrar óheppni,
útgáfan leyst upp og fleira gerði það að verkum, svo sagan sé sögð í
mjög stórum og óskýrum dráttum, varð framvindan heldur enda-
sleppt. Fyrir nokkru fregnaðist það svo, að Þór Eldon ætlaði að
hætta og í kjölfarið þeir Valgeir Sigurðsson hljómborðsleikari og
Birgir Baldursson trommari, sömuleiðis. Virtist því í fljótu bragði að
Unun heyrði þar af leiðandi sögunni til, en annað hefur nú komið á
daginn. Þau Heiða og Gunnar ákváðu nefnilega að halda áfram og
hafa nú ásamt ýmsum hjálparkokkum lokið við að taka upp nýja
plötu. Mun hún að sögn bera heitið Ótta og kemur á markað í byij-
un næsta mánaðar. Unun er sem sagt ekki ennþá „dauð“ og verður
fróðlegt að heyra hvernig til hefur tekist með nýsmíðina.
* Síðastliðinn þriðjudag, 13.
október, hefði skáldið Steinn
Steinarr (Aðalsteinn Krist-
mundsson), orðið níræður ef
hann hefði lifað. I tilefni þess
er nú komin út plata þar sem
ýmsir tónlistarmenn flytja lög
er samin hafa verið við ljóð
Steins. Þar á meðal eru Val-
gerður Guðnadóttir, Helgi
Björnsson, Páll Rósenkranz,
Magnús Eiriksson, KK o.fl.
Umsjón með gerð plötunnar
og höfundar laga á henni er
Jón Ólafsson. Auk laganna,
sem eru eftir hina og þessa,
er svo einnig upplestur
skáldsins sjálfs.
Utgáfu
fregnir
Unghetjan Jonny Lang. Nýja platan að koma.
Ungur mað
á uppleið
Fyrir tveimur árum kom fram á
sjónarsviðið kornungur gítarleik-
ari og söngvari, Jonny Langer,
sem þá þegar hafði á unga aldri
vakið milda athygli og út-
gáfurisar glenntu upp augun
yfir. Er í fáum orðum sagt um
sannkallað ævintýri að ræða
með unga manninn, því fyrsta
platan hans, Lie to me, sló ræki-
lega í gegn og náði hátt á banda-
ríska Billboardsölulistanum. í
kjölfar vinsælda plötunnar fylgdi
svo ýmis vegsemd, m.a. að hita
upp fyrir enga aðra en risana í
Rolling Stones. Verður víst ekki
komist lengra á því „upphitunar-
sviði" að margra mati. Annað
sem svo má nefna í þessu sam-
bandi, er að stráksi er gestur á
nýjustu plötu blúsjöfursins,
Buddy Guy. Nefnist hún Heavy
love og er m.a. íyrir hlut Langs
hin fínasta skífa. Mitt í tónleika-
haldi víða og ýmsum öðrum
verkum, hefur Lang svo undan-
farna mánuði verið að vinna
nýja plötu. Lauk þeirri vinnu
fyrir nokkru og er platan að
koma út nú eftir helgina, nánai
tiltekið á þriðjudaginn. Ber hún
heitið Wander this world og
inniheldur hún m.a. smáskífu-
lagið, Still raining... Blanda af
blús, rokki og poppumbúnaði ei
lýsing á því sem Lie to me bauð
upp á og má búast við svipuðu
nú, bara betra og þroskaðra ef
að Iíkum lætur. Spá menn Lang
annars, sem aðeins er um 18 ára
gamall, áframhaldandi velgengni
með nýju plötunni og má því
segja, að hann sé ungur maður á
uppleið.
„Diimnhjarta“
Nafn söngkonunnar og New York búans
Suzanne Vega varð líklega fyrst þekkt hér-
lendis og víðar er hún söng bakrödd með
rokksveitinni góðu, Smithereens, á fyrstu
stóru plötunni þeirra, Especially for you,
árið 1986. Var það í laginu fráþæra, In a
lonely place, sem hún Ijáði röddu sína auk
þess að koma fram á myndbandi við lagið.
Ferill Vega hefur svo risið nokkuð hátt
upp frá því og hún átt mörg vinsæl Iög og
plötur er selst hafa í bílfarmavís. Eins og
með fleiri alvöru tónlistarkonur á borð við
Tori Amos og hana Björk blessaða, svo
tvær góðar séu nefndar, eru textarnir ekki
sfður mikilvægir hjá Suzanne Vega heldur
en tónlistin. Hún hefur t.a.m. oft dregið
upp litlar myndir af fólki í sínum textum
og þá ekki alltaf mjög fallegar. Hún er nú
að koma með nýja plötu og er óhætt að
segja að hún sé dökk, eins og titill hennar
gefur jafnframt til kynna, Dark hearted,
„Dimmhjarta“. Þar fjallar hún m.a. um
kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum,
barnaofbeldi og annað fleira í þeim dúr,
sem Iengi vel hefur ekki þótt þola dagsins
Ijós, en er nú sífelft meir í umræðunni og
það ekki að ástæðulausu. Suzanne Vega
hefur jafnan fyrr þótt bera athygliverða
hluti á borð og verður vart undantekning á
því nú.
Suzanne Vega. Hreyfir enn við því dökka í samfélaginu á
nýrri plötu.
Metsöluplatan Einu sinni var aftur
komin út
* Vísnaplatan gríðarvinsæla,
Einu sinni var, er seldist á
sínum tíma fyrir um tuttugu
árum eða svo, í mörg þúsund
eintökum, er nú að nýju fáan-
leg í geislaplötuformi. Voru
það þeir kappar Gunnar
Þórðarson og Björgvin Hall-
dórsson er höfðu veg og
vanda af útgáfunni, en platan
er ein sú mest selda frá upp-
hafi á íslandi.
* Ef fólk skildi ekki hafa tek-
ið eftir því, þá er nýja Bubba-
platan komin út. Arfur nefn-
ist gripurinn og er Bubbi þar
að skírskota vítt og breitt til
landsmanna, bæði í þjóðar-
arfinn sem slíkan, ljóðin og
sögurnar, en líka í aðaldeilu-
efni samtímans, kvótakerfið
og „erfðaréttinri' tengdan
honum.
¥ Það er svo rétt að minna
aftur á að Hrekkjusvínaplatan
margfræga, sem Spilverkið
gerði í samvinnu við aðra
góða krafta á borð við Leif
Hauksson o.fl. er komin út.
Þessi óvenjulegasta barna-
plata Islandssögunnar hefur
elst sérdeilis vel og á pólitíkin
sem í henni felst ennþá rétt á
sér í mörgum tilfellum.