Dagur - 24.11.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 24.11.1998, Blaðsíða 1
— N eytendur skoði matvöruslaginn Kaupfélagsstjóri KEA spyr hvemig verslun- arkeðja geti hækkað í verði um 580 milljóu- ir á einum máuuði. Bankastjóri íslands- hanka leggur ekki mat á hvort 10-11 sé of- metið fyrirtæki. Valur Valsson, bankastjóri ís- landsbanka, segist engan dóm leggja á hvort verslunarkeðjan 10- 11 sé ofmetin. Hann segir jafn- framt að bankinn hafi á engan hátt haft áhrif á þá ákvörðun for- ráðamanna 10-11 búðanna, að rifta áður gerðu samkomulagi við Kaupfélag Eyfirðinga á Akureyri. Eiríkur S. Jóhannsson, kaupfé- lagsstjóri KEA, veltir upp þeirri spurningu hvort Neytendasam- tökin ættu ekki að skoða hvað sé að gerast á matvörumarkaðnum. KEA gerði í október samning við 10-11 um kaup á búðakeðj- unni og var samið um 900 millj- óna króna kaupverð. Kaupfélags- stjóri KEA skrifaði undir samn- inginn en nafni hans Sigurðsson hjá 10-11 hætti við. 1 kjölfarið var ákveðið að Islandsbanki hefði milligöngu með sölu verslunar- keðjunnar. Búið er að gera samn- ing milli bankans og 10-11 þar sem búðirnar eru metnar á um 1480 milljónir króna. Hvað er að gerast? Dagur spurði Ei- rík, kaupfélags- stjóra KEA, hvort hann hygðist skjóta málinu til Samkeppnis- stofnunar og svaraði hann þannig: „Þegar kaupverð hækkar um 580 milljónir á einum mán- uði, hvað er þá að gerast? Hver á að borga þennan mismun? Per- sónulega finnst mér að það sé ekki Kaupfélags Eyfirðinga eða annarra verslunaraðila að skjóta þessu til Samkeppnisstofnunar, en mér finnst að Neytendasam- tökin ættu að skoða þetta mál. Einhver verður að borga brúsann og neytendur þurfa að standa upp og athuga hvað er að gerast á matvörumark- aðnum.“ Velvakandi Jóhannes Gunn- arsson, formaður Neytendasam- takanna, segir erfitt fyrir sam- tökin að rann- saka þetta mál. Hins vegar sé það á færi sam- keppnisyfirvalda. „Okkar hlutverk er ekki að meta verðgildi fyrir- tækja, en það hefur orðið mikill samruni á íslenskum matvöru- markaði síðari ár og full ástæða til að gefa því gætur. Eitt fyrirtæki á þessum markaði hefur yfirburða- stöðu og það hlýtur að vera verk- Eiríkur S. Jóhannsson kaupfélags- stjóri KEA veltir upp þeirri spurn- ingu hvort Neytendasamtökin ættu ekki að skoða hvað sé að gerast á matvörumarkaðnum. efni samkeppnisyfirvalda að fylgj- ast með því sem er að gerast. Matvörumarkaðurinn hefur verið eitt helsta flaggskip fijálsrar verð- myndunar. Það væri mjög sorglegt ef flaggskipið sigldi í strand," seg- ir Jóhannes. Eðlileg afskipti Bankastjóri Islandsbanka neitar að bankinn hafi haft áhrif á að fyrrgreindur samningur gekk til baka. „Nei, við komum þar hvergi nærri.“ Hann var einnig spurður hvort það væri eðlilegt að bankinn væri að taka þátt í þróun verslun- ar með þessum hætti. „Við erum ekki að taka þátt í þróun verslun- ar með öðrum hætti en þeim að gera eitt af fyrirtækjunum að al- menningshlutafélagi. Við erum að greiða fyrir beiðni eigenda fyrir- tækisins og það er eðlilegt," segir Valur Valsson. En hvað segir hann um kaupverðið? Er það allt of hátt? „Verð er það sem kaupandi og seljandi koma sér saman um á hverjum tíma. Ég legg engan dóm á hvort kaupverðið er of hátt.“ Ekki náðist í Eirík Sigurðsson hjá 10-11 ígær. — BÞ Brjálað veður Þak fauk af húsi, auk þess sem byggingapallar hrundu í Vest- mannaeyjum í gær í miklu hvass- viðri sem gekk yfir landið. Vind- mælar í Eyjum sýndu um 160 km vindhraða í verstu hviðunum og mældist um 100 hnúta vindhraði í Keikókvínni í Klettsvík. Þar lentu vaktmenn í sjálfheldu á meðan veðrið var sem verst. Ekki var vitað um alvarleg slys á fólki í veðurhamnum í gær. Betur fór en á horfðist í Öxnadalnum þar sem fólksbfll lenti utan vegar í vindhviðu og valt á toppinn. Bif- reiðin er illa farin en ökumaður og farþegi sluppu við meiðsl. Lögregla þurfti víða um land að hafa einhver afskipti af borgurum vegna veðursins. Flugsamgöngur innanlands lágu niðri og skip héldu sér til hlés en ekki var vitað um óhöpp á sjó. Kröpp lægð olli hamaganginum. — Bt> Margir landsmanna töluðu um „brjálað“ veður í gær þegar mikið hvassviðri gekkyfir landið. Á Akureyri gekk sjór yfir Drottningarbrautina og þá bíla sem þar óku þegar hvellurinn var hvað mestur. - mynd: brink Ágúst Guðmundsson: Vill fá for- stjórastarfið aftur en til vara viður- kenningu á skaðabótaskyldu ríkis- ins. Krefst ógild- ingar brott- rekstrar Ágúst Guðmundsson, fyrrum for- stjóri Landmælinga Islands, hefur höfðað mál gegn Guðmundi Bjarnasyni umhverfisráðherra og Geir Haarde fjármálaráðherra með kröfu um að brottvikning hans úr starfi verði ógild og þar með að hann fái starf sitt aftur. Til vara krefst Ágúst viðurkenn- ingar á skaðabótaskyldu rfkisins. 1 stefnu Ágústs kemur fram sú staðhæfing að ávirðingar ríkis- endurskoðunar í hans garð hafi reynst Iítilvægar og haldlausar, en að þau atriði sem eftir standa hafi komið til vegna mikils álags og hræringa í tilefni undirbúnings á flutningi Landmælinga Islands og vegna veikinda Ágústs. 1 stefn- unni er farið hörðum orðum um rannsókn starfsmanns ríkisendur- skoðunar á málefnum Ágústs og Landmælinga og fullyrt að ríkis- endurskoðun hafi mótað sér skoð- un fyrirfram og að starfsmaðurinn hafi fengið upplýsingar frá aðila sem „annaðhvort vildi klekkja á“ Ágústi „eða hafði enga hugmynd um hvað viðkomandi málefni snérist." Ágústi var vikið tímabundið frá störfum í febrúar sl., en endan- lega í september eftir sérstaka út- tekt rannsóknarnefndar. I stefn- unni kemur fram að rannsóknar- nefndin hafi klofnað í afstöðu sinni. Meirihluti nefndarinnar taldi að ávirðingarnar réttlættu brottrekstur, en minnihlutinn var á öndverðri skoðun. Það sem virð- ist standa uppúr af þeim ávirðing- um sem sannaðar töldust er að Ágúst hafi eignað sér sem gjöf GPS staðsetningartæki sem við- skiptamaður Landmælinga lét honum í té endurgjaldslaust, en Ágúst seldi stofnuninni síðan tækið. I stefnunni er vísað til veikinda Ágústs í þessu sambandi og tekið fram að hann hefði leið- rétt þetta í kjölfarið. — FÞG ^SUBIUAY' «SUBUUflV' •SUBUJflY' Afgreíddir samdægurs Venjulegir og demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI • SÍMI 462 3524 oS cn ™ W tn || io J 41 TOByiRONI‘ Ifátindur ánægjunnar en kLI LT ■ >1 IALT ÞIG?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.