Dagur - 24.11.1998, Blaðsíða 11
ÞRIBJUD A G U R 24.NÓVEMBER 1998 - 11
I
ERLENDAR FRÉTTIR
Háborg Lhasa, Potala höllin, sem Tíbetar líta á sem bústað andlegs og veraldlegs valds í landi sínu.
Osmekklegar hót-
anir Kínastjómar
Valdhafarnir í Beijing eru einkar
viðkvæmir fyrir þeim tilburðum
Taiwana og Tíbeta að líta á lönd
sín sem sjálfstæð ríki. Einhver
titringur fór um þá í fyrra þegar
íslenskir ráðherrar tóku á móti
og ræddu við varaforsætisráð-
herra Taiwans og er reglan sú að
mótmæla ávallt þegar ráðamenn
ríkja láta sem leiðtogar Taiwana
og Tíbeta séu viðræðuhæfir.
Dalai Lama, útlægur, andlegur
leiðtogi Tíbeta, var fyrir
skemmstu á ferð í Bandaríkjun-
um, þar sem hann tók þátt í
fundi nokkurra friðarverðlauna-
hafa Nóbels. Clinton forseti
bauð honum að heimsækja sig í
Hvíta húsið, þar sem þeir skröf-
uðu saman um stund. Þessu
mótmæltu Kínverjar harðlega og
með fylgdi venjuleg rulla þess
efnis, að það skaði samskipti
Kína og Bandaríkjanna að Clint-
on skuli leyfa sér að taka á móti
trúarleið toganu m.
Kínverska stjórnin heldur því
stíft fram að það séu frekleg af-
skipti af innanríkismálum Kína
þegar erlendir stjórnmálamenn
leyfa sér að ræða við leiðtoga
Taiwana eða Tíbeta. Hins vegar
dettur þeim ekki í hug að sjálfir
séu þeir að skipta sér af málefn-
um annarra ríkja með því að
ákveða hver fær að tala við hvern
alls fjarri kínverskri lögsögu.
Róstuxsöm saga
Taiwan, sem áður hét Formósa,
er eyja 100 mílur austur af Kína-
strönd. Ibúaíjöldi er tæplega 22.
milljónir. Eyjan tilheyrði kín-
verska keisaradæminu frá því um
árið 1000. Á 17. öld settu
Portúgalir upp verslunarmiðstöð
á eynni og síðan lögðu Hollend-
ingar hana undir sig en voru
reknir á brott með valdi fyrir
1700 og keisaraveldið náði aftur
yfirráðum. 1895 börðu Japanar á
Kínverjum og náðu Formósu
undir sig og gerðu að nýlendu
sinni. Eftir ósigur Japana i hefm-
styrjöldinni var eynni skilað til
kínverskra stjórnvalda.
Þegar borgarastyrjöldinni lauk
1947 með sigri kommúnista
flúði Chiang Kai-shek til Form-
ósu með tveggja milljóna manna
her. Flóttamenn frá þessum tíma
eru nú 14% eyjaskeggja. 1950
var Iýst yfir sjálfstæði en nýja
herstjórnin fór með allt vald.
Síðan hafa verið haldnar lýðræð-
islegar kosningar og er ljóst að
íbúar Taiwan kæra sig ekkert um
að lúta kommúnistastjórninni í
Beijing.
Taiwan hélt sæti Kínverja í SÞ
og Oryggisráðinu til 1971, en þá
voru hinir fyrrnefndu reknir út
en Rauða-Kína hirti sæti sín.
Bandaríkjamenn hafa löngum
haldið verndarhendi yfir Taiwan
og styðja sjálfstæðiskröfur stjórn-
arinnar þar, en þó ekki opinber-
lega.
Teikn eru á lofti um að ein-
hvers konar sættir séu að nást
milli Kína og Taiwan og er jafn-
vel haldið að eyjaskeggar muni
sætta sig við eitthvað svipaða
stöðu og Hong Kong hefur nú.
En allar getgátur þar um eru
byggðar á líkum.
Ósigur og flótti
Tíbet er stórt og strjálbýlt land,
fjöllótt og víða erfitt yfirferðar.
Ibúarnir eru um 1.3 milljónir og
játa eina af greinum búddatrúar
og er Dalai Lama, sem er titill en
ekki eiginnafn, æðsti leiðtogi
þeirra, andlegur og veraldlegur.
Baksviö
Sjálfum dettur þeim
ekki í hug að þeir séu
að skipta sér af mál-
efnum annarra ríkja
með því að ákveða
hver fær að tala við
hvern alls fjarri kín-
veskri logsögu.
Þar stendur hnífurinn í kúnni,
því Kínverjar sem hafa innlimað
landið í ríki sitt, viðurkenna ekki
veraldleg yfirráð Lamans og
reyna að meina öðrum að koma
fram við hann sem leiðtoga Tíb-
eta og telja slíkt athæfi móðgun
við sig.
Tíbet er á mótum menningar-
heima, þar sem landamærin
liggja að Nepal og Buthan í suð-
urhlíðum Himalajafjallgarðsins
en fyrir norðan og austan eru
kínversku Mið-Asíuhéröðin. Frá
14. öld allt til ársins 1951 var
landinu stjórnað af lamamunk-
um og var æðsti maður þeirra
einnig þjóðhöfðingi ríkisins og
málsvari íbúa þess. Á 18. öld við-
urkenndi Kína yfirráð Dalai
Lama en tók jafnframt landið
undir sinn verndarvæng.
Þegar keisaraættin var hrakin
frá völdum 1911 tók við mikið
óróatímabil í ríkinu og Tíbet varð
í raun sjálfstætt ríki og reyndi
breska heimsveldið að hafa putt-
ana í stjórn þess, einkum með
því að hvetja munkaveldið til að
losna sem mest undan kínversk-
um áhrifum. 1950 réðust kín-
verskar hersveitir inn í landið og
gáfust Tíbetar upp og játuðust
undir yfirráð Beijingstjórnarinn-
ar. En illa gekk að koma á komm-
únistastjórn í landinu og var þar
mjög óróasamt þar til uppreisn
var gerð 1959 og var hún barin
niður af mikilli hörku. Dalai
Lama flúði til Indlands ásamt
Qölda fylgismanna sinna og eru
Kínverjar enn að reyna að kenna
Tíbetum kommúnisma með tak-
mörkuðum árangri.
I hvert sinn sem kommúnista-
stjórnin í Bejing rýkur upp og
mótmælir harðlega að frjálsir
menn í frjálsum löndum sýni
fulltrúum Taiwan eða Tíbet sjálf-
sagðan virðingarvott eða al-
menna gestrisni, viðurkennir
hún jafnframt að sjálfstæðiskröf-
ur fbúa þessara landa eru eðlileg-
ar og að það er Beijing sem beit-
ir hótunum og ofstæki sem ekki
er boðlegt í samskiptum ríkja og
þjóða.
Hnappnælur
Barmmerki
Framleiðum hinar vinsælu
hnappnælur sem fyrirtæki og
félagasamtök nota til
kynningar við ýmis tækifæri.
Leitið upplýsinga hjá
BÍS ísíma 562 1390
tölvup.: bis@scout.is J