Dagur - 24.11.1998, Side 2
2 - PRIDJUDA G U R 24. NÚVEMBER 1998
t FRÉTTIR
Árið 1998 ætlar að verða
ár klofningsins í pólitík-
inni. Fyrst klofnaði
Kvennalistinn, síðan Al-
þýðubandalagið og nú síð-
ast hersveit Sverris Her-
mannsonar. Sögufróðir
pottverjar bcnda á að þessi
síðasta sundrung sé að
einu leyti sú merkasta;
þetta sé í íyrsta sinn sem
stjómmálaflokkur klofni áður en heim verði til!....
Sverrir Hermannsson.
Böm í forgmnni
hj á karlmoimmn
Ahngi karla á fjölskyldu-
lífi beiuist að bömunum
eu í huga kvenua er heim-
ilisrekstur og bamaum-
mönuuneiuu heildar-
pakki.
„Flestir karlanna hafa einlægan áhuga
á góðum tengslum við börn sín og líta
á fæðingarorlof sem mikilvægan þátt í
því. Svo virðist samt sem konur og
karlar líti mismunandi augum á fjöl-
skylduþáttöku, ekki síst fæðingarorlof-
ið“, segir dr. Þorgerður Einarsdóttir, fé-
lagsfræðingur sem skýrði frá rannsókn-
inni á feðrum í fæðingarorlofi á ráð-
stefnunni: „Gegnum súrt og sætt.“
Þátttakendur í rannsókninni voru átta
karlar sem Reykjavíkurborg valdi í til-
raunaverkefnið fæðingarorlof á fullum
Iaunum, konur þeirra og vinnuveitend-
ur.
Velja og hafna
Þorgerður segir börnin í forgrunni hjá
körlunum, bæði hvað varðar áhuga
þeirra á fjölskyldulífinu og í orlofinu,
sem sérstaklega var til skoðunar. „Karl-
ar virðast hneigjast til að líta fjöl-
skylduþátttöku sem „hlaðborð" þar
sem hægt er að velja og hafna. Þar
velja þeir nánast undantekningarlaust
börnin, en hafa oft á tíðum blendnar
tilfinningar gagnvart öðrum þáttum.
Hjá konum er þetta hins vegar ótjúf-
andi heild; heimilisrekstur og barna-
uppeldi einn „heildarpakki", þar sem
öðru verður ekki sinnt nema í nánum
tengsium við hitt“. Þorgerður segir
ljóst að þessi mismunandi sjónarhorn
kynjanna skapi marga núningsfleti
milli karla og kvenna og geri „samn-
inga“ þeirra erfiðari en ella.
Vinnan togar miMð í pabbana
Og þrátt fyrir einlægan áhuga á að
sinna börnum sínum segir Þorgerður
stundum koma í Ijós að hugmynd sé
eitt en veruleikinn annar. Það sýni sig
þegar viðhorf karla til vinnunnar sé
skoðað að vinnusjálf þeirra sé afar
sterkt og vinnan togi mikið í marga
þeirra í orlofinu. Enda komi líka í ljós
að áhugi karlanna sjálfra á lengra or-
lofi en eins eða tveggja mánaða sé
ósköp dræmur.
Blendin viðhorf vinnuveitenda
Viðhorf á vinnustað þátttakenda var
einnig skoðað. „Því hefur löngum ver-
ið haldið fram að viðhorf yfirmenna og
almennt á vinnustöðum séu „fjand-
samleg" fjölskylduþátttöku karla. Þess
eru dæmi í könnuninni að slík viðhorf
byrtist grímulaus, en heyrir þó til und-
antekninga", segir Þorgerður. Víðast
séu viðhorfin jákvæð, þótt nokkuð beri
á að viljinn til að greiða götu karlanna
sé blendinn þegar kemur að fjárútlát-
um. Útgjöld til fæðinarorlofsmála fái
gjarnan neikvæð formerki út frá ein-
földum rekstrarrökum. Sé þvf hætt við
að kvennastofnanir með miklar orlofs-
greiðslur standi höllum fæti. Orlofs-
greiðslur minnki svigrúm til annarra
þátta, svo sem launagreiðslna og geti
þannig aukið kynskiptinguna á vinnu-
markaðnum. -HEI
í pottinum hafa menn mik-
iö verið að ræða um flokks-
þing framsóknarmaima og
varaformaimsslagiim. Einn
pottverjiim sem lcit við á
flokksþinginu á laugardag
sagðist hafa komist að því
að eldri framsóknarkarlar á
þinginu virtust margir
hrifnir af kraftinum í Iiiimi
ungu og glæsilegu mótor-
hjólaskvísu. Þessi pottveiji sagðist svo hafa litið yfir
salinn og sannfærst um að úr því að svona væri í pott-
inn búið ætti Siv augljóslega mikinn séns!! En það
var Finnur sem sigraði á endanum eins og kmmugt er
og er það haft til marks um að foiystuhollustu fram-
sóknarmanna sé sterkari en nýjungargimin....
Hins vegar eru pottverjar
sammála imt að stóru sig-
urvegaramir á flokksþing-
inu hafi verið skipuleggj-
endumir og únyndarsmið-
imir sem hvcrgi sáust.
Þeim hafi tekist að láta alla
tæknilcga viimu við þingið
ganga snuðralaust og auk
þcss að vcra á góðri leið
með að þvo „púkó" stimp-
ilinn af framsókn og gcra
þá að nútímalegasta og opnasta flokknuin.
Siv Friðleifsdóttir.
Færrí fortíðadraugar en
í ððrum kjördæmum
FRÉTTA VIÐTALIÐ
Heimir
Ingimarsson
fyrrum bæjarfulltrúi á Akureyri og
nefndarmaðurí uppstillingamefnd
Samjylkingar á Norðurlandi eystra.
Samþykkt vará Húsavík á
laugardaginn afhálfuAlþýðu-
bandalags, Alþýðuflokks og
Kvennalista að efna til opins
prófkjörs um skipan á fram-
boðslista Samfylkingar á Noð-
urlandi eystra, sem framfer
um mánaðamótin janúar/febr-
úar 1999.
- Heitnir Ingimarsson segir prófkjörið
farafram 30. og 31. janúar 1999 og ekki
verði fyrirfram ákveðið að t.d. Aljrýðu-
bandalag skipi í 1. sætið og Alþýðuflokk-
urinn í 2. sætið enda sé þá ekki verið að
framkvæma neitt prófkjör.
„Þetta er opið prófkjör en hvort það verði
settar einhveijar girðingar vegna framboðs
eða þátttöku er síðari tíma mál. En það var
einróma samstaða í nefndinni um þessa af-
greiðslu mála og í prófkjörinu geta allir tek-
ið þátt nema þeir séu íélagsmenn í öðrum
stjórnmálaflokkum en Alþýðubandalagi,
Alþýðuflokki eða Kvennalista. Okkar lá á
að ljúka þessum þætti málsins svo fjölmiðl-
ar hættu að búa til einhverjar draugasögur
um ósamlyndi eða einhvern annan djöful-
skap. Auðvitað hafa menn velt fyrir sér
þessum gamla draugagangi sem flokkarnir
hafa staðið fyrir, en þessi samfylking á
vinstri væng stjórnmálanna snýst um fram-
tfðina en alls ekki fortíðina. Ef þetta geng-
ur ekki upp verður þá þessi tilraun aldrei
framkvæmd nema í þetta eina sinn.“
- Hefurðu trú á því að Samfylkingar í
öðrum kjördæmum muni fylgja ykkar
fordæmi og verða með opið prófkjör um
skipan á framboðslistann án þess að
binda ákveðin sæti ákveðnum stjómmála-
flokkum fyrirfram ?
„Það er búið að ákveða að Alþýðuflokkur-
inn fái 1. sætið á Vestfjörðum en Alþýðu-
bandalagið á Austfjörðum og þar er tekið
mið af fylgi flokkanna eins og það hefur
verið. I þessu kjördæmi er uppi önnur
staða þar sem hvorugur A-flokkanna er al-
veg með hreint borð úr fortíðinni. Alþýðu-
bandalagið hafði mesta fylgið hér en hefur
ekki lengur neinn þingmann eftir að Stein-
grímur Sigfússon yfirgaf okkur en Alþýðu-
ílokkurinn fékk mun minna fylgi en engan
þingmann, en nú á hann skyndilega þing-
mann eftir að Svanfríður Jónasdóttir hefur
yfirgefið Þjóðvaka og gengið til Iiðs við
Jafnaðarmannaflokk Islands. Við höfum
því færri fortíðardrauga að kveða niður en
í flestum öðrum kjördæmum."
- Hafa einhverjir þegar gejið kost á sér
í prófkjörinu?
„Ekki við mig en reiknað er með því að
fyrir jól verði búið að ganga frá öllum Iaus-
um endum í sambandi við þetta og hvernig
að þessu prófkjörí verður staðið. En ég er
sannfærður um að valið stendur um fullt af
góðu og frambærilegu fólki. Það var sam-
þykkt á fundinum á Húsavík að banna all-
an auglýsingaslag og það er af hinu góða.
Menn eiga ekki að vera takast á með slík-
um hætti. Við munum að sjálfsögðu ekki
setja okkur gegn því að Qölmiðlar tali við
einstaka frambjóðendur og við munum
ekki setja okkur gegn því að frambjóðend-
ur láti bera dreifibréf í hús eða hafi per-
sónulegt samband við kjósendur. En heil-
síðuauglýsingar í blöðum eða annað með
þeim hætti er bannað. Það er Iöngu orðið
tímabært að stemma stigu við þessu aug-
lýsingaflóði, það er lýðræðislegt en auglýs-
ingaleiðin snýst um peninga sem frambjóð-
endur eiga mismikið af. Þessi brauð eru
ekki þeirra peninga virði sem verið er að
setja í þau, ekki sfst þegar auglýsingareikn-
ingurinn hleypur á milljónum króna eins
og dæmi eru um nýverið.“
- Það verður þá engin blaðútgáfa kring-
um þetta prófkjör?
„Eg á nú frekar von á því að A-flokkarnir
muni gefa út sín jólablöð og bera í hvert
hús í kjördæminu, þ.e. Norðuland hjá Al-
þýðubandalagi og Alþýðumaðurinn hjá AI-
þýðuflokknum. Þar verður nánar kynnt fyr-
irkomulag prófkjörsins og t.d. hver verður
kosningastjóri, en það er ófrágengið mál.“
GG