Dagur - 24.11.1998, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 - 3
FRÉTTIR
Frj álslyndir klofna
vegna Sverris
unum þá er til lítils barist. En öll
él birtir upp um síðir. Eg vil engu
spá um útkomuna í for-
mannsvali, það kemur í ljós. Eg
trúi ekki öðru en að menn finni
lausn. Til þess eru vandamál að
leysa þau og cf menn geta það
ekki í byrjun, méð svoná málefni
fyrir framan, er þá ekki sjálfhætt
strax, spyr ég.“
„Þægilegan gjafakvóta“ á
frama
Sverrir segist ekki nenna að
svara fullyrðingum um að hann
sé ekki búinn að hreinsa mann-
orð sitt af Landsbankamálum.
„Þarna eru menn sem ekki
kunna pólitík að nota vopnaburð
sem ekki er við hæfi og ekki
sæmandi nokkrum manni,“ segir
Sverrir.
Yfirlýsingar frá einstaklingum
innan raða Frjálsyndra hafa
borist Ijölmiðlum að undanförnu
með hörðum ásökunum. Gunn-
ar Ingi Gunnarsson sakar þannig
Þjóðareignarmenn um að af-
greiða sér „þægilegan gjafakvóta"
á sviði pólitísks frama. Þá hefur
Guðbjörn Jónsson krafist löglegs
aðalfundar hjá SUÞ og fullyrðir
hann að „meintur“ aðalfundur
hafi verið ólöglegur og menn
boðaðir á hann eftir afstöðunni
til þess hvort stofna skyldi
stjórnmálaflokk eða ekki. - FÞG
herra má búa við að lögreglumenn
gagnrýna hann harðlega oplnber-
lega.
Kaltstríð
„Eins og staðan er í dag hef ég
engu við þau ummæli sem höfð
voru eftir mér fyrir helgina að
bæta,“ segir Oskar Bjartmarz,
formaður Lögreglufélags
Reykjavíkur, í samtali við Dag,
en hann og aðrir forystumenn
lögregluliðsins í landinu hafa
svarað Þorsteini Pálssyni dóms-
málaráðherra fullum hálsi í deil-
unni um nýtt skipurit embættis
Lögreglustjórans í Reykjavík.
Oskar fullyrðir að dómsmála-
ráðuneytið hafi ekki viljað fá
Böðvar Bragason aftur í starf
lögreglustjóra, heldur hafi hon-
um verið boðið annað starf í
staðinn. Hann segir að fram-
koma Þorsteins í fjölmiðlum
hafi verið afar óviðeigandi, hann
hafi farið með rangfærslur og
ummælin ekki verið honum
sæmandi. Ljóst er af ummælum
forystumanna lögreglunnar og
Þorsteins ráðherra undanfarna
daga að alger trúnaðarbrestur
hefur orðið þarna á milli - kalt
stríð. - FÞG
FólksfLótttnn er
dýr í báða enda
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segist ekki sannfærð um að hröð uppbygging
líkt og áformuð er í landi Blikastaða sé mjög góð eða skynsamleg.
Of hröð uppbygging í
sveitarfélögiun getur
valdið vanrækslu við
þá byggð sem fyrir er,
segir borgarstjóri.
„Mér finnst þetta bara hið besta
mál. Eg er ekkert viss um það að
svona hröð og mikil uppbygging -
eins og átt hefur sér stað í Kópa-
vogi á undanförnum árum og
eins og stundum hefur átt sér
stað í Reykjavík og gæti gerst
þarna á Blikastöðum - sé mjög
góð eða skynsamleg fjárfesting
fyrir sveitarfélögin. En þetta er
bara dæmi sem aldrei hefur ver-
ið reiknað," svaraði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri,
spurð hvað henni finnist um það
að svo virðist sem meginupp-
byggingin á höfuðborgarsvæðinu
verði kannski áfram utan borgar-
marka Reykjavíkur næstu árin.
Meginstraumurinn hefur, sem
kunnugt er, legið í Kópavog síð-
ustu árin og samkvæmt nýjustu
fréttum gæti næsta flóðbylgja
skollið á Mosfellsbæ.
Óreiknað dæmi
Borgarstjóri bendir á að byggða-
umræðan hafi ávallt snúist um
hvað fólksflóttinn af landsbyggð-
inni til höfuðborgarsvæðisins sé
dýr, vegna þess hvað Ijárfesting-
in sem eftir verður úti á landi
nýtist þá illa. En það hafi minna
verið skoðað, hvað þetta þýði fyr-
ir viðtökustaðina, þ.e. þau sveit-
arfélög sem taki við öllu þessu
fólki. „En alla vega mætti segja
mér það, að ef grannt væri skoð-
að, þá kæmi í ljós að það fylgi því
umtalsverður kostnaður fyrir
skattgreiðendur í þessum sveitar-
félögum hér - sem hafa verið að
byggjast hraðast upp - að taka við
þessu öllu saman. Menn hafa
hara aldrei reiknað það dæmi,“
sagði borgarstjóri.
Einhliða mælikvarði
Almennt tali menn bara um
þetta eins og það sé hreint hið
ágætasta mál og til marks um
góð sveitarfélög, að þau vaxi sem
hraðast og mest. „En ég held að
það sé ,nokkuð einhliða mæli-
kvarði. Því auðvitað getur það
líka þýtt það, að menn þurfi að
verja svo mikium fjármunum í
uppbyggingu nýrra hverfa; nýrra
skóla, nýrra leikskóla, nýrra leik-
svæða, nýrra grænna svæða, að
þeir vanræki þá byggð sem fyrir
er,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir. - hei
Sverrir Hermannsson: „Þarna eru
menn sem ekki kunna pólitík að
nota vopnaburð sem ekki er við
hæfi og ekki sæmandi nokkrum
manni."
Bárður Halldórsson: „Þeir sem
hafa staðið að stofnun þessa
flokks verja öllum sínum stundum
í vörn fyrir hann þannig að sóknar-
færi myndast ekki.“
Óstofnaður Frjáls-
lyndi ílokkuriim klof-
inn íherðar niður.
Formaður Samtaka
um þjóðareign segir
að menn séu í sífelldri
vörn fyrir Sverri
vegna Landsbanka-
málsins. Sverrir segir
menn nota ósæmileg-
an vopnaburð.
Hatrammur ágreiningur er kom-
inn upp í röðum þeirra sem
hyggjast stofna Frjálsynda flokk-
inn um næstu helgi. Stjórnar-
menn úr Samtökum um þjóðar-
eign (SUÞ) hafna Sverri Her-
mannssyni sem formanni Ftjáls-
lyndra og segja að hann njóti
ekki trausts landsmanna vegna
Landsbankamálsins, en Sverrir
segir það af og frá að þetta sé
sannleikanum samkvæmt.
í stanslausri vöm
Bárður Halldórsson, formaður
SUÞ, segir Ijarri því að þessar
deilur séu banabiti Frjálslyndra.
„Þessar deilur standa um það
hvort það eigi að vera lýðræðis-
legar kosningar eða ekki. Sverrir
er hinn hæfasti maður, með
margra ára þingreynslu, ráð-
herradóm og stjórnun stærstu
peningastofnunar landsins að
baki. Allt mælti með því að hann
yrði foringi þessa hóps. Hins
vegar er pólitíski veruleikinn sá
að þeir sem hafa staðið að stofn-
un þessa flokks verja öllum sín-
um stundum í vörn fyrir hann
þannig að sóknarfæri myndast
ekki. Þá verð ég persónulega að
velja milli gamallar vináttu og
hollustu við hann og þess að
reyna að koma saman fylkingu til
varnar lýðræði og frelsi í land-
inu. Ég mat þetta síðarnefnda
einfaldlega meira. Við komumst
hvorki Iönd né strönd af því við
vorum í eilífri vörn fyrir gamla
manninn. En við erum lýðræðis-
sinnar og beygjum okkur fyrir
lýðræðinu. Við munum standa
saman eftir stofnfundinn,“ segir
Bárður.
Sverrir er ekki sammála Bárði.
„Þetta er upphlaup sem rennur
út í sandinn. Málið er ónýtt og
sjálfdautt ef þessir menn ná
undirtökunum í flokknum. Ef
menn ætla að hefja manntaflið
svona en gleyma sjálfum málefn-
LOGREGLAN
Rólegt í miðbænum
Fámennt var í miðborg Reykja-
víkur um helgina eins og reyndar
hefur verið undanfarnar helgar.
Fá afskipti varð að hafa af fólki
og ekki þurfti að flytja nein ung-
menni í athvarf sem er nokkuð
óvenjulegt. Nokkrir harðir
árekstrar urðu um helgina og er
ástæða til að hvetja ökumenn til
að aka varlega við þær aðstæður
sem oft fylgja þessum árstíma.
Tæplega 40 kærðir fyr-
ir hraðakstur
Alls voru 38
ökumenn
kærðir fyrir of
hraðan akstur
og 13 fyrir
ölvunarakst-
ur. Þá voru um 60 bókanir
vegna lagninga ökutækja þar
sem óheimilt er að Ieggja. Aldrei
er of oft brýnt fyrir ökumönnum
að virða gildandi reglur um lagn-
ingu ökutækja og taka tillit til
þeirra sem nota gangstéttir.
Okumaður var stöðvaður á
Vesturlandsvegi við Mosfellsbæ
eftir að hafa mælst aka á 113 km
hraða. Ökumaður var færður á
lögreglustöð en hann er einnig
grunaður um að hafa ekið undir
áhrifum áfengis.
Höfð voru afskipti af öku-
manni á laugardag vegna ógæti-
legs aksturs hans. Hafði öku-
maðurinn gerst sekur um hættu-
legan svigakstur milli akreina og
vanrækt merkjagjöf. Hann mun
fá sekt fyrir akstur sinn auk þess
sem ökuskírteini hafði ekki verið
meðferðis eins og skylda er að er
gera.
Ilarður árekstux
Klukkan 01:00 að morgni laug-
ardags varð mjög harður árekst-
ur tveggja bifreiða á gatnamót-
um Kringlumýrar- og Miklu-
brautar. Ökumenn beggja bif-
reiða og farþegar úr báðum bíl-
um voru fluttir á slysadeild með
áverka á höfði, hálsi og baki.
Annar ökumanna er grunaður
um akstur undir áhrifum vímu-
efna. Bæði ökutækin voru óöku-
fær auk þess sem skemmdir
urðu á umferðarmannvirkjum
Fiimn á slysadeild
Um miðjan laugardag varð harð-
ur árekstur á Bústaðavegi við
Háaleitisbraut. Fimm einstak-
lingar voru fluttir á slysdeild
vegna meiðsla, þar af þrjú börn
sem voru öll í annarri bifreið-
inni.
Um hádegisbil á sunnudag var
árekstur fjögurra ökutækja á
Vesturlandsvegi við Víkurveg.
Ekki urðu slys á mönnum en
fjarlægja varð þrjú ökutæki af
vettvangi með kranabifreið. Einn
ökumanna var sviptur ökurétt-
indum til bráðabirgða vegna ölv-
unar.
Innbrot í austurborg-
inni
Brotist var inn á heimili í austur-
borginni á föstudag og þaðan
stolið nokkrum verðmætum auk
þess sem skemmdir voru unnar á
innanstokksmunum. Afskipti
voru höfð af hópi unglinga sem
hafði farið inn í bakarí í austur-
borginni að kvöldi laugardags.
Lítilsháttar skemmdir voru unn-
ar á hurðarbúnaði.
B 1’1‘1’t
t'i’r i
i 11«!,