Dagur - 26.01.1999, Side 5
iY’fl f
FRÉTTIR
o o o r q f
"x c w iV r> í. n vi \ m •* <1 _
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999 - S
Kerfid brást illa
Harðast gagnrýnir Guðjón Petersen seinaganginn sem átti sér stað gagn-
vart eigendum sjö eða átta húsa sem skemmdust í snjóflóðinu á Flateyri
án þess að verða fyrir altjóni, en það tók eitt og hálft ár að ganga frá bót-
um vegna þessara tilteknu húsa. - mynd: bg
„Kerfið“ gagnrýnt í
skýrslu Guðjóns Peter-
sen; eigendur 7-8 húsa
urðu útundan og fyrir
sálarlegu og fjárhags-
legu tjóni. Biðtíminn
sárastur, segir Magnea
Guðmundsdóttir.
Bæjarstjórn Isafjarðar, Ofanflóða-
sjóður, Húsnæðisstofnun og
„kerfið" fá á baukinn í skýrslu
sem Guðjón Petersen almanna-
varnaráðgjafi hefur tekið saman
um eftirmál snjóflóðsins á Flat-
eyri 26. október 1995. Harðast
gagnrýnir Guðjón seinaganginn
sem átti sér stað gagnvart eigend-
um sjö eða átta húsa sem
skemmdust í flóðinu án þess að
verða fyrir altjóni, en það tók eitt
og hálft ár að ganga frá bótum
vegna þessara tilteknu húsa.
„Það er í Ijósi þessa seinagangs
sem ég tala um sáran biturleika
biðtímans og nefni skýrslu mína
svo. Og það eru dæmi um að fólk
hafi ekki vitað fyrr en þó nokkuð
seinna hvaða bætur það fengi og á
meðan þurfti fólkið að tryggja sér
annað húsnæði. Það þurfti í sum-
um tilfellum samtímis að greiða
þann kostnað sem því fylgir að út-
vega sér nýtt húsnæði og standa
undir Iánum og kostnaði vegna
yfirgefins húss,“ segir Guðjón.
Húsnæðisstofmm lét ekld
blokkaríbúðiniar
Guðjón bendir á, að frammi fyrir
húsnæðiseklu hafi á sama tíma
íbúðir í tveimur fjölbýlishúsum
staðið auðar. „Þar reyndi á Hús-
næðisstofnun. ísafjarðarbær leit-
aði eftir því að fá íbúðirnar á Ieigu
til að endurleigja fólki, en því var
ekki við komandi hjá stofnuninni.
Þetta stóð því autt meðan fólk var
í sumarbústöðum og lagaðist ekld
fyrr en áhugasamur einstaklingur
hreinlega keypti annað húsið nú í
haust," segir Guðjón.
I skýrslunni kemur fram að
ólíkt betur hafi verið staðið að
uppbyggingu á Súðavík en á Flat-
eyri. En býst Guðjón við að ein-
hverjir verði sárir við að fá gagn-
rýni hans á sig? „Eg er ekki hissa
á því og skiljanlegt að menn geri
það. Eg er þess viss að menn sem
stjórnuðu þessu heimafyrir hafi
gert það af heilindum, en það má
t.d. gagnrýna að strax í kjölfar
flóðsins var farið f sameiningu
sveitarfélaga, sem að öðru
óbreyttu er gæfuspor, en hefði átt
að fresta vegna sjóflóðsins á með-
an menn voru að vinna úr þessum
málum. Það er hætt við því að for-
gangsröð verkefna hafi ekki verið
sem skyldi undir þessum kring-
umstæðum," segir Guðjón.
Sorglegt en kemur ekki á
óvart
Magnea Guðmundsdóttir, fyrrum
forseti bæjarstjórnar og fbúi á
Flateyri, segir í samtali við Dag að
hún hafi ekki séð skýrsluna, en
miðað við það sem hún hafi heyrt
af henni þá sé samhljómur milli
niðurstöðunnar í henni og þess
sem hún var að berjast fyrir á
Flateyri. „Mér þykir ekki ósenni-
Iegt að einhverjir geti vitnað til
um mínar ábendingar í þessa
veru,“ segir Magnea, en hvað
finnst henni sárast af því sem
fram kemur í skýrslunni?
„Þar er kannski efst á blaði bið-
tíminn, sem olli því að Ijöldi fólks
varð fyrir bæði sálarlegu og fjár-
hagslegu tjóni. Einnig er ofarlega
í huga að svokölluð uppbygging
snérist fyrst og fremst um upp-
byggingu varnargarða, en það er
ekki nóg, því það varð samhliða
að stuðla að uppbyggingu í þorp-
inu sjálfu og hvetja til búsetu.
Mér finnst að eðlilega hafi verið
staðið að almennri uppbyggingu á
Súðavfk og allt gott um það að
segja, en slíkt hið sama hefði átt
að gilda um Flateyri." - FÞG
Laun opinberra starfs-
manna hækkað tvofalt
Ambjörg
sigraöi
Arnbjörg Sveins-
dóttir, alþingis-
maður frá Seyð-
isfirði, varð ör-
uggur sigurveg-
ari í prófkjöri
sjálfstæðis-
manna á Austur-
Iandi um helg-
ina. Arnbjörg er
fyrst kvenna til
að Ieiða fram-
boðslista hjá
Sjálfstæðis-
flokknum.
Alls tóku
2005 manns
þátt í prófkjöri
Sjálfstæðis-
flokksins á Austurlandi, sem er
um helmingi meiri þátttaka en var
fyrir síðustu kosningar og fleiri en
kusu flokkinn 1995 en þá fékk
hann 1260 atkvæði.
Arnbjörg fékk 936 atkvæði í 1.
sætið eða 48% atkvæða, Albert
Eymundsson, skólastjóri á Horna-
firði hlaut 681 atkvæði í 1. sætið
og 251 atkvæði í 2. sætið og Olaf-
ur Aki Ragnarsson, sveitarstjóri á
Djúpavogi, hlaut 293 atkvæði í 1.
sætið, 351 atkvæði í 2. sætið og
324 atkvæði í 3. sætið. „Eg er
mjög ánægð og það er gott að nið-
urstaðan var afgerandi og það fari
ekki milli mála hver verður for-
inginn á framboðslista sjálfstæð-
ismanna á Austfjörðum," segir
Arnbjörg. Aðalsteinn Ingi Jóns-
son, bóndi á Klausturseli á Jökul-
dal og formaður Landssambands
sauðQárbænda, varð í 4. sæti með
1148 atkvæði í 1.-4. sæti og Jens
Garðar Helgason, háskólanemi
frá Eskifirði, í 5. sæti - GG
Opinberir starfsmeim
halda áfram að bera
mun meira úr bítum í
launabaráttuimi en al-
meimir launþegar.
Laun opinberra starfsmanna og
bankamanna hækkuðu að jafnaði
tvöfalt nreira á síðasta ári heldur
en Iaun á almennum markaði,
hvort sem miðað er við hækkun
milli síðasta ársfjórðungs 1998 og
árið áður eða milli ársmeðaltala.
A síðasta ársíjórðungi ársins
1998 voru meðallaun lands-
Fjórða fikniefnamál
ársins upplýst á Akur-
eyri. Fjöldi ungmenna
undir lögaldri í dóp-
samkvæmi.
Lögreglan á Akureyri lýsir þung-
um áhyggjum af fjölgun fíkni-
efnabrota í bænum. Fjórða mál
ársins kom upp um helgina þegar
nokkur ungmenni leigðu Hús
aldraðra við Lundargötu á Akur-
eyri undir einkasamkvæmi. Þar
var fagnað tvítugsafmæli karl-
manns, en lögreglan fékk pata af
því að fíkniefni væri að finna hjá
manna tæplega 8% hærri en árið
áður, samkvæmt launavísitölu
Hagstofunnar. Þessari hækkun
var hins vegar afar misskipt milli
hólfanna á vinnumarkaðnum.
Meðallaun á almenna vinnu-
markaðnum hækkuðu einungis
um 5,5% en laun opinberra
starfsmanna og bankamanna
rösklega tvöfalt meira, eða um
11,7% á sama tímabili.
Það opinbera rausnarlegra en
VSÍ
Meðallaun ársins 1998 voru aftur
á móti rúmlega 9% hærri en árið
á undan. Hældumin á almenna
markaðnum var aðeins 7% á
samkomugestum. Lögreglan réð-
ist því til inngöngu og handtók
fjóra aðila með fíkniefni á sér. Við
yfirheyrslur viðurkenndu fjór-
menningarnir að hafa keypt 5 g af
kókaíni og tæp 20 g af hassi fyrir
eigin neyslu, að sögn.
Jafnframt bar aðgerð lögregl-
unnar þann árangur að í eldhúsi
samkomuhússins fannst hrúsi
með 96% spíra. Bolla var veitt í
samkvæminu og viðurkenndi
gestgjafi að hafa notað spírann í
bolluna og jafnframt játaði hann
að hafa veitt gestum, sem margir
hverjir voru undir áfengiskaupa-
aldri sem er Iögbrot. Ekki liggur
fyrir hvernig maðurinn komst yfir
spírann.
sama tíma og laun opinberra
starfsmanna og bankamanna
hækkuðu um 13% milli ára. A
síðustu tveim árum hafa meðal-
laun hækkað um 13,5% á al-
menna markaðnum en það opin-
bera og bankarnir hafa hækkað
Iaun sinna manna um 20,6%.
Frá upphafi áratugarins (þegar
launavísitala Hagstofunnar var
100) hafa meðallaun opinberra
starfsmanna hækkað um 63%
(um 26% umfram almennar verð-
lagshækkanir), en laun á al-
menna vinnumarkaðnum um
43% (aðeins 10% umfram verð-
lagshækkanir). — HEI
Dagur spurði Daníel Snorra-
son, fulltrúa hjá rannsóknadeild
lögreglunnar á Akureyri, hvort úr-
skurð sýslumanns hefði þurft í
þessu tilfelli áður en lögreglan
braust inn í húsið. Svo var ekki í
þessu tilfelli, enda rökstuddur
grunur um að fíkniefnineysla ætti
sér stað í húsinu, að sögn Daní-
els. Annars fer það eftir aðstæð-
um hvort leitað er sérstakrar
heimildar.
Sem íý'rr segir er þetta fjórða
fíkniefnamálið sem kemur upp á
þessu ári. „Við höfum þungar
áhyggjur af stöðunni," segir Dan-
íel. Fyrst og fremst hefur verið
um að ræða hass, amfetamín og
kókaín. - BÞ
Arnbjörg
Sveinsdóttir al-
þingismaður er
fyrst kvenna til
þess að leiða
framboðslista á
vegum Sjálf-
stæðisflokksins.
Dóp í Húsi aldraðra
Skar sjálfan sig og amiaii
I dagbók Iögreglunnar í Reykja-
vík helgina 22.-25. janúar 1999
segir m.a. að tvö skyldmenni af
karlkyni hafi slegist á Hverfis-
götu á sunnudagsmorgun. Ann-
ar dró upp hníf og skar báða
með honum. Þá var tilkynnt var
um slagsmál í Asgarði aðfara-
nótt sunnudags. Þar voru ætt-
ingjar að afgreiða Ijölskyldumál
fór lögreglan af staðnum.
Nokkru síðar var lögreglan enn
kölluð á sama stað og var fólkið
þá enn að vinna úr sínum mál-
um en Iítið gekk vegna ölvunar.
Var það flutt á slysadeild en síð-
an heim.
Stútux með bam í bíl
Aðfaranótt laugardags var bif-
reið stöðvuð á Vesturlandsvegi
vegna gruns um ölvun við akst-
ur. Okumaður var með 5 ára
barn með sér í bifreiðinni. Oku-
maður vildi ekki afskipti lög-
reglu og kostaði nokkuð þóf að
koma honum í blóðtöku. Um
miðjan dag á sunnudag varð
umferðarslys á Þingvallavegi við
Laxnes í Mosfellsdal en þar
hafði bifreið snúist á veginum
og lent með aðra hlið á ljósa-
staur. Okumaður var mikið slas-
aður og fluttur meðvitundarlaus
á slysadeild en farþegi var
minna slasaður.
bmbrot og þjófnaðir
Á föstudag var tilkynnt um inn-
brot í bfl í Frostafold. Stolið var
geislaspilara. Þá var einnig til-
kynnt um þjófnað á tveggja
metra háu blómi úr anddyri
húss í Húsahverfi sem og inn-
brot í hús við Bleikjukvísl þar
sem stolið hafði verið dýrri
klukku. Þrír menn reyndu að
stela hljómtækjum úr bifreið í
Tryggvagötu aðfaranótt laugar-
dags. Eigandi bifreiðarinnar
kom að mönnunum og voru þeir
handteknir og tækjunum skilað.
A laugardag var tilkynnt um inn-
brot í geymslu í Efstalandi þar
sem stolið var golfsettum og við-
legubúnaði. Tilkynnt var um
innbrot í verslun \ið Nóatún á
sunnudagsmorgun. Þar hafði
verið stolið verðmætum fatnaði.
Tilkynnt var um innbrot í
geymslu í húsi við Háaleitis-
braut á sunnudagskvöld. Stolið
var talsverðu af vindlingum.
Þokkalegt í miðbæ
Heldur var rólegt í miðborginni
og ástand þokkalegt. Þó voru
fimm manns handteknir vegna
líkamsmeiðinga, ölvunar og
óspekta en lögreglan Uutti 6
manns á slysadeild. 29 öku-
menn voru stöðvaðir fyrir of
hraðan akstur um helgina,
nokkrir þeirra í Hvalfjarðar-
göngum þar sem sumir óku yfir
100 km hraða en hámarkshraði
í göngunum er 70 km/klst. Þá
voru 17 ökumenn grunaðir um
ölvun við akstur um helgina.