Dagur - 20.05.1999, Síða 3
FIMMTUDAGVR 20. MAÍ 1999 - 3
FRÉTTIR
Sákar Sölumið-
stöðina iiin svik
Jakob Bjömsson, fyrr-
verandi bæjarstjóri á
Akureyri, segir SH
hafa svikið loforð sín
og útilokar ekki eftir-
mál. Akureyrardeild
lögð niður sem og þró-
unarsvið í Reykjavik.
19 missa vinnu.
Stjórn Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna hefur ákveðið að
loka starfstöð félagsins á Akur-
eyri. Þá verður þróunardeild SH
í Reykjavík lögð niður og eru
breytingarnar hluti endurskipu-
lagningar SH til að bregðast við
breyttu umhverfi. Stjórn fyrir-
tækisins heimilar jafnframt af-
nám samninga um gagnkvæma
afurðasöluskyldu. Þá er fækkun
boðuð í stjórnum dótturfélaga.
SH rekur dótturfyrirtækið Sæ-
mark og verður ýmis önnur hag-
ræðing hjá fyrirtækjunum. Sam-
tals mun starfsmönnum fækka
um 19 við þessar aðgerðir og
verður heildarstarfsmannafjöldi
kominn niður í 70-75 manns eft-
ir breytingarnar í stað 100 í fyrra.
Samkvæmt heimildum Dags tap-
ast nú 11 störf í Reykjavík en 8 á
Akureyri. Starfsmenn sem blaðið
ræddi við, sögðust slegnir en
Jakob Björnsson: Ég sé fulla ástæðu
til að skoða þetta mál nánar, en ég
get ekki sagt nánar til um viðbrögð.
ótíðindin kæmu fólki ekki algjör-
lega í opna skjöldu.
Svik við Akureyringa
Mikill styrr stóð um það hvort
bæjarstjórn á Akureyri ætti að
taka boði SH eða íslenskra sjáv-
arafurða hf. þegar fyrirtækin
kepptust um að koma til Akur-
eyrar fyrir nokkrum árum. Jakob
Björnsson, fyrrum bæjarstjóri á
Akureyri, sá um samningsgerð-
ina og hann er harðorður í garð
fyrirtækisins. „Það er illa komið
fyrir Sölumiðstöðinni ef hún þarf
að svíkja loforð sitt um uppbygg-
ingu hér. Miðað við málatilbúnað
Þórarinn B. Jónsson: Atvinnutækifæri
verða aðeins þar sem menn sjá sér
hag í að vera.
á sínum tíma stóð til að SH stæði
fyrir uppbyggingu til framtíðar
frekar en að þetta væri einhver
skammtímadúsa. Ég sé fulla
ástæðu til að skoða þetta mál
nánar, en ég get ekki sagt nánar
til um viðbrögð okkar að sinni, að
öðru leyti en því að þetta veldur
sárindum. Þetta eru hreinlega
svik miðað við það sem Iagt var
upp með fyrir þremur og hálfu
ári,“ segir Jakob.
Gjaldþrot án aðgerða?
Róbert Guðfinnsson, forstjóri
SH, bendir á að fyrirtækið hafi
lagt fyrirtækjum á Akureyri lið
Iíkt og Slippstöðinni, kexverk-
smiðju, sælgætisgerð og
Akoplasti. Gífurlegar breytingar
hafi orðið í sjávarútvegi að und-
anförnu. Fyrirtækjum fækkað og
hluti þjónustunnar færst til
framIeiðsIufyrirtækjanna. „Fyrir
norðan hefur orðið verulegur
samdráttur og væntingar okkar
til aukinnar framleiðslu hafa ekki
gengið eftir heldur er samdráttur.
Ef við ætlum að ná að reka þetta
fyrirtæki er alveg Ijóst að við
þurfum að laga okkur að breytt-
um aðstæðum,“ segir Róbert.
„Við erum að reka fyrirtæki," seg-
ir Róbert en getur þess þó að að-
gerðirnar nú séu auðvitað alls
ekki lausar við sársauka.
Ekki hægt að plna
Þórarinn B. Jónsson, bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokks, segist hafa
skilning á þróuninni. Hann segir
reyndar slæmt að tapa störfum á
Akureyri og vissulega komi
ákvörðunin nokkuð á óvart.
„Hins vegar má segja sem svo að
þegar menn eru píndir í einhvern
farveg, kann það ekki góðri lukku
að stýra til framtíðar. Atvinnu-
tækifæri verða aðeins þar sem
menn sjá sér hag í að vera. Við
þekkjum erfiðleika IS og ég er
hræddur um að sama staða hefði
komið upp ef menn hefðu valið
þann kost,“ segir Þórarinn. - BÞ
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra.
Kynnir
álierslur
Islands
Halldór Asgrímsson, utanríkis-
ráðherra og formaður ráðherra-
nefndar Evrópuráðsins, kynnti í
gær áherslur Islands vegna for-
mennskunnar í ráðinu, í ræðu
sem hann hélt á fundi með
sendiherrum aðildarríkja ráðs-
ins í Strassborg.
Halldór sagði að Evrópuráðið
hefði mikilvægu hlutverki að
gegna vegna hins alvarlega
ástands í Kosovo og taldi að ráð-
ið ætti að stuðla þar að sam-
bærilegu uppbyggingarstarfi og í
ríkjum Mið- og Austur-Evrópu á
sfðasta áratug. Halldór sagði að
efla bæri fjárhag Mannréttinda-
dómstólsins og lýsti einnig
ánægju sinni með stofnun emb-
ættis umboðsmanns mannrétt-
inda við Evrópuráðið og Iagði
áherslu á að mannréttindafull-
trúinn yrði kosinn á þessu ári.
Þá má nefna að Halldór lagði
áherslu á aukna samvinnu ráð-
herranefndarinnar við þing-
mannasamkomu Evrópuráðsins
og þing sveitar- og héraðs-
stjórna. - FÞG
Fjárfestar hafa trá
á Vmnslustöðinni
Fjárfestar virðast hafa óbilandi trú á framtíð Vinnsiustöðvarinnar þrátt fyrir að fyr-
irtækið hafi tapað 100 milljónum króna á hverjum mánuðiá fyrri hluta rekstrar-
ársins. Hugsanlegt er að þeirsjái fyrir sér að fyrirtækið muni sameinast eða taka
upp samvinnu við önnur sjávarútvegsfyrirtæki.
Gengi hlutabréfa
hækkað um 20% á
tæpum mánuði. For-
stjórinn ánægður.
Fjárfestar spá í fram-
tíðina.
„Það er ánægjulegt þegar menn
hafa trú á fyrirtækinu," segir Sig-
urgeir Brynjar Kristgeirsson for-
stjóri Vinnslustöðvarinnar í Vest-
mannaeyjum.
20% hækkun
Gengi hlutabréfa í Vinnslustöð-
inni hafa hækkað um rúm 20% á
skömmum tíma. Þegar tilkynnt
var í seinni hluta aprílmánaðar
að fyrirtækið hefði tapað rúmum
600 milljónum króna á fyrri
helmingi rekstrarársins féll gengi
hlutabréfa fyrirtækisins í 1,65.
Síðan þá hefur gengi bréfanna
hækkað jafnt og þétt og í gær
hafði það hækkað úr 1,92 í 2,00.
Að baki þessari síðustu hækkun
lágu hlutabréfkaup fyrir 4 millj-
ónir króna á nafnvirði, eða 8
milljónir króna á markaðsverði.
Þá virðist einnig sem töluverð
eftirspurn sé eftir hlutabréfum í
fyrirtækinu, þrátt fyrir að stjórn
þess hafi ekki enn tekið ákvörð-
un um það hvernig bregðast eigi
við þessu mikla tapi. Stefnt er að
því að halda stjórnarfund í
Vinnslustöðinni á morgun, föstu-
dag. I húfi er áframhaldandi at-
vinna fyrir 220 manns í land-
vinnslu fyrirtækisins.
Ekkert útilokað
Rósant Torfason sérfræðingur
hjá Fyrirtæki og Markaði hjá Is-
landsbanka segir að þessi hækk-
un á gengi hlutabréfa í Vinnslu-
stöðinni sýni að fjárfestar virðast
hafa trú á fyrirtækinu og þeim
aðgerðum sem stjórn þess hyggst
grípa til. í það minnsta virðist
markaðurinn telja það jákvætt að
eigendur fyrirtækisins ætli sér að
gera eitthvað til að bæta afkomu
fyrirtækisins frá því sem verið
hefur. Þá sé ekki heldur útilokað
að einhverjir fjárfestar séu að
kaupa hlutabréf í fyrirtækinu
með það í huga að það verði fyrr
en seinna að sameinast eða taka
upp samvinnu við önnur fyrir-
tæki. - CRH
Andrés Þór á toppnum
Andrés Þór Björnsson, hinn ljóshærði
fulltrúi Islands í keppninni „Male of the
year 1999“ á Filippseyjum 29. maí næst-
komandi, virðist nokkuð sigurstrangleg-
ur, miðað við atkvæðagreiðslu meðal
þeirra sem heimsækja heimasíðu keppn-
innar á Netinu (wvvw. man h un t.com. sg).
I gær höfðu tæplega þrjú þúsund greitt
atkvæði og var Andrés Þór í efsta sæti
með 302 atkvæði eða 11% atkvæða og
hafði á fáeinum dögum stokkið á toppinn
úr þriðja sæti. Hinn 21 árs og 186 senti-
metra hái íslenski tölvusölustjóri fellur
því í góðan jarðveg meðal áhugafólks um
karlkyns fegurð. I öðru sæti er fulltrúi frá
Venezuela með 280 atkvæði og í þriðja sæti er fulltrúi Singapore með
274 atkvæði. Það rýrir gildi þessarar atkvæðagreiðslu að það vantar
myndir af þó nokkrum þátttakendum, sem hafa þar af leiðandi ekki
fengið atkvæði, t.d. fulltrúar Ítalíu, Danmerkur og Englands. Fulltrúi
Bandaríkjanna er hins vegar með mynd en hefur ekkert atkvæði feng-
ið. - FÞG
Andrés Þór Björnsson, fulltrúi
Islands, sigurstranglegur á
„Male oftheyear 1999“ á
Filippseyjum.
JökuII hyggst lækka skuldir
Á aðalfundi Jökuls á Raufarhöfn 17. maí sl. var samþykkt heimild til
stjórnar að breyta samþykktum þannig að rafræn skráning hlutabréfa
geti farið fram. I stjórn voru kjörnir Reynir Þorsteinsson sem er for-
maður, Gunnlaugur A. Júlíusson varaformaður, Þór Friðriksson, Sig-
urður Sigurkarlsson og Gylfi Arnbjörnsson. Á fundinum kom fram að
breytingar á frystitogaranum Rauðanúp hafa tekist vel. Landvinnsla
félagsins hefur einnig verið að skila mun betri árangri í vinnslu á
„rússafiski“. Stefna stjórnar er að athuga með sölu eigna og lækka
þannig skuldir félagsins.
Á áætlun ársins 1999 er gert ráð fyrir 1004 milljóna króna rekstr-
artekjum á móti 938 milljónum króna árið 1998 og rekstrargjöld
nemi 676 milljónum króna á móti 784 milljónum króna árið 1998.
Hagnaður ársins er áætlaður 8 milljónir króna á móti 219 milljóna
króna tapi á sl. ári.
" :'\vMo 6(V 11*5 íifilá ÍÖWV nséSfH e inHÍgafiííl i söthiþfll* fflfl'19 8»Y rm? «vfl
-*h8 múiP íifjúíi 6pno«