Dagur - 20.05.1999, Side 13
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999 - 13
ÍÞRÓTTIR
KR deildarbikanneistari kvenna
en karlaleiimum frestad
Sigurganga KR heldur áfram í kvennaknattspyrnunni, en á sunnudaginn
urðu KR-stelpurnar deildarbikarmeistarar eftir 2-1 sigur á Stjörnunni í úr-
slitaleik, á meðan úrslitaleiknum í karlaflokki var frestað vegna vallarleysis.
Enginit völlur fáan-
legur fyrir úrslitaleik
deildarbikars karla,
sem fara átti fram um
helgina. KR-stelpur
uunu Stjömuna 2-1 í
úrslitaleik kvenna,
sem fram fór á Ásvöll-
um.
Urslitaleikur deildarbikarins í
karlaflokki á milli Fylkis og IA
fer fram þriðjudaginn 8. júní,
líklega á Laugardalsvelli, þó enn
hafi það ekki fengist staðfest.
Enginn völlur var fáanlegur fyrir
úrslitaleikinn sem upphaflega
átti að fara fram á föstudaginn
og er það miður að þessari
keppni skuli ekki sýnd meiri
virðing. I undanúrslitum vann
Fylkir lið Leifturs 4-2 og Skaga-
menn unnu lið Islandsmeistara
IBV 2-1, en annars var leið Iið-
anna í úrslitaleikinn eftirfarandi:
Fylkir
Leikir í riðlakeppninni:
Fylkir - Víkingur R. 3-3
Fylkir - Hvöt 12-2
Tindastóll - Fylkir 1-5
Fylkir-ÍA 1-2
Fjölnir - Fylkir 0-13
Úrslitakeppnin:
Fram - Fylkir 1-2
Fylkir - Vfkingur R. 3-0
Fylkir - Leiftur 4-2
Alls 6 sigrar, 1 jafntefli og 1 tap
í 8 leikjum. Skoruð mörk alls 43
d móti 11.
ÍALeikir í riðlakeppninni:
ÍA - Fjölnir 6-0
ÍA - TindastóII 2-1
ÍA - Hvöt 7-0
Fylkir - ÍA 1-2
Víkingur R. - ÍA 0-0
Úrslitakeppnin:
ÍA-FH 3-1
ÍA - Þróttur R. 1-0
ÍBV-ÍA 1-2
AUs 7 sigrnr og 1 jafntefli t átta
leikjum. Skoruð tnörk alls 23
gegn 4.
Deildarbikarkeppnin hefur
verið að sækja á í hugum knatt-
spyrnumanna og áhorfenda sem
voru orðnir mjög leiðir á fyrri
mótum, sem gengu undir nafn-
inu Reykjavíkurmót, Reykja-
nesmót og Litla-bikarkeppnin.
Nú koma liðin af landsbyggðinni
einnig inn í þessa keppni, en
þurfa ekki lengur að búa sér til
sérstök mót til að fá æfingaleiki.
Undantekning er Norðurlands-
mótið þar sem Tindastóll vann
KA, 2-1 í úrslitaleik.
KR deildarbikarmeistari
kvenna
I deildarbikarkeppni kvenna
unnu KR-stúlkur stöllur sínar í
Stjörnunni örugglega, 4-0 í úr-
slitaleik. KR-liðið fór taplaust í
gegnum keppnina og vann alla
sína leiki.
Leikir KR:
Riðlakeppnin:
KR - Þór/KA 9-0
Fjölnir - KR 2-14
KR - ÍBV 2-0
Úrslitakeppnin:
KR-Valur 4-1
Stjarnan komst taplaus í úr-
slitaleikinn og hafði þá unnið
meistaradeildarlið Val í riðla-
keppninni og Breiðablik í úrslita-
keppninni.
Leikir Stjömnnnar:
FH - Stjarnan 1-13
Valur - Stjarnan 0-1
Stjarnan - Haukar 9-0
Úrslitakeppnin:
Breiðablik - Stjarnan 0-1
- gg/ek
Keppnin í 1. deild hefst á morgun
Keppnin í neðri deildum karla í
knattspyrnu hefst annað kvöld.
Heil umferð fer þá fram í 1. deild
karla og leika þar strax saman í
fyrstu umferð, fallliðin úr úrvals-
deildinni í fyrra, Þróttur og IR,
og fer Ieikurinn fram á Valbjarn-
arvelli. Annar spennandi leikur í
umferðinni, er leikur Fylkis og
FH, sem fram fer á heimavelli
Fylkis í Árbænum, en liðin urðu
í 3ja og fjórða sæti deildarinnar í
fyrra og háðu þar mikla baráttu
um laust sæti í úrvalsdeildinni
við Víking. Eins og flestir muna
varð það ekki ljóst fyrr en á síð-
ustu mínútu síðustu umferðar,
hvert liðanna færi upp, en FH og
Fylkir gerðu þá markalaust jafn-
tefli í innbyrðis leik, á meðan
Víkingur vann Stjörnuna 1-0
með marki á 90. mínútu, sem
tryggði þeim sætið í úrvalsdeild-
inni.
Aðrir leikir í fyrstu umferðinni
er svo leikur KA og Víðis á Akur-
eyri, KVA og Dalvíkur á Reyðar-
firði og Stjörnunnar og Skalla-
gríms í Garðabæ. Ailir leikirnir
hefjast ld. 20:00.
2. deild
Keppnin í 2. deild hefst einnig
annað kvöld og fara þá fram þrír
af fjórum Ieikjum 1. umferðar.
Völsungur mætir Þór, Ak. á Akur-
eyri, HK fær Selfoss í heimsókn í
Kópavoginn og Ægir leikur gegn
Leikni R, í Þorlákshöfn.
A laugardag fær Léttir svo
Tindastól í heimsókn á Ármanns-
völl og KS fær Sindra i heimsókn
til Siglufjarðar.
LeiMríl.
deild karla í
knattspymu
Fyirihlnti
1. umferð - Föstud. 21. maí
Kl. 20.00 KA - Víðir
Kl. 20.00 Fylkir - FH
Kl. 20.00 KVA - Dalvfk
Kl. 20.00 Stjarnan - Skallagrímur
Kl. 20.00 Þróttur R. - ÍR
2. umferð - Föstud. 28. maí
Kl. 20.00 Skallagrímur - FH
Kl. 20.00 Dalvík - Fylkir
Kl. 20.00 Víðir - Þróttur R.
Kl. 20.00 Stjarnan - KA
Laugard. 29. maí
Kl. 14.00 ÍR - KVA
3. umferð - Þriðjud. 1. júní
Kl. 20.00 FH - Dalvík
Miðvikud. 2. júní
KI. 20.00 KA - Skallagrímur
KJ. 20.00 Fylldr - ÍR
Kl. 20.00 KVA - Víðir
Kl. 20.00 Þróttur R. - Stjarnan
4. umferð - Föstud. 11. júní
Kl. 20.00 KA - Þróttur R.
Kl. 20.00 Skallagrímur - Dalvfk
Kl. 20.00 Víðir - Fylkir
Kl. 20.00 ÍR - FH
Kl. 20.00 Stjarnan - KVA
5. umferð - Föstud. 18. júní
Kl. 20.00 Fylkir - Stjarnan
KI. 20.00 Dalvík - ÍR
Kl. 20.00 FH - Víðir
Laugard. 19. júní
Kl. 14.00 KVA - KA
Kl. 14.00 Þróttur R. - Skallagrímur
6. umfcrð - Föstud. 25. júní
KI. 20.00 KA - Fylkir
KI. 20.00 Skallagrímur - ÍR
Kl. 20.00 Stjarnan - FH
Laugard. 26. júní
KI. 16.00 Víðir - Dalvík
Kl. 14.00 Þróttur R. - KVA
7. umferð - Föstud. 2. júlí
Kl. 20.00 Fylkir - Þróttur R.
Kl. 20.00 Dalvík - Stjaman
KI. 20.00 ÍR - Víðir
KI. 20.00 FH - KA
Þriðjud. 6. júlí
Kl. 20.00 KVA - Skallagrímur
8. umferð - Fimmtud. 8. júlí
Kl. 20.00 KA - Dalvík
Föstud. 9. júli
Kl. 20.00 Skallagrímur - Víðir
Kl. 20.00 Stjarnan - ÍR
Kl. 20.00 Þróttur R. - FH
Laugard. 10. júlí
Kl. 14.00 KVA - Fylkir
9. umferð - Miðvikud. 14. júlí
Kl. 20.00 Víðir - Stjarnan
Föstud. 16. júlí
Kl. 20.00 Fylkir - Skallagrímur
Kl. 20.00 Dalvík - Þróttur R.
KJ. 20.00 ÍR - KA
Lau. 17. júlí
Kl. 14.00 FH - KVA
Miðvikud. 21. júlí
Kl. 20.00 Víðir - KA
Deildarkeppmn verður hörkuskemmtileg
ÍÞR Ó T TA VIÐTALIÐ
ÓlafurÞóröar-
son
þjálfari Fylkis.
Keppni í 1. deild karla í
knattspymu hefst anmó
kvöld og verðurþá spiluð
heil umferð. Skagamaður-
inn ÓlofurÞórðarson, veið-
ur þormeð í baráttunni,
sem þjálfari og leikmoður
meðFylki.
- Hvernig hafa Fylkistnenn
hagað undirbúningi fyrir
keppnistmtabilið?
„Við byrjuðum undirbúning
strax í byrjun nóvember, en höf-
um þó hagað honum öðruvísi
heldur en í fyrra. Við höfum
heldur bætt við okkur og erum
því í mjög góðu formi í upphafi
keppnistímabilsins og menn
virkilega tilbúnir í átökin. Við
fórum í æfingaferð til Portúgals
fyrir páskana og sú ferð nýttist
okkur vel. Okkur hefur líka
gengið vel í vorleikjunum og
erum nú komnir í úrslit deildar-
bikarsins. Það fæst þó lítið fyrir
þann árangur, þegar í deildar-
keppnina er komið, en það gefur
okkur þó góðan meðbyr og gott
sjálfstraust í framhaldið. Ég ætla
líka rétt að vona að menn hafi
þroska til að nýta sér meðbyrinn,
því það verður örugglega mikil
og jöfn barátta í deildinni í sum-
ar og alveg ljóst að menn verða
að gefa allt sitt í hvern einasta
Ieik.“
- Telurðu að þitt lið verði
sterkara í ár?
„Við erum með ósköp svipað
lið og í fyrra, en ég tel þó að það
sé sterkara í ár og reynslunni rík-
ara. I heildina er liðið í mun
betra formi, því í fyrra var tölu-
vert um meiðsli hjá lykilmönn-
um langt fram eftir tímabili. Þeir
leikmenn eru nú í góðu formi og
því á ég von á liðinu mun
sterkara en í fyrra. Við höfum
líka fengið til liðs við okkur
sterka leikmenn eins og Júgósla-
vann Zoran Stosic, frá Ægi í Þor-
lákshöfn og einnig Þórhall Dan,
sem er kominn heim frá Dan-
mörku. Hann hefur þó ekkert
spilað ennþá, en á örugglega eft-
ir að strykja okkur í baráttunni f
sumar.“
- Nú hefur ykkur gengið vel að
skora mörk t vorleikjunum.
Hverju þakkar þú það?
„Mörkin hafa verið að skiptast
nokkuð jafnt á mannskapinn og
enginn einn sem á heiðurinn
öðrum fremur. Á móti höfum við
líka verið að fá á okkur mörk, en
það vill verða fórnarkostnaður-
inn við að spila skemmtilegan
sóknarbolta, eins og við erum að
reyna að gera.“
- Hvemig meturðu svo stöð-
utta i upphafi íslandsmóts?
„Mér sýnist að við séum með
eitt af sterkari Iiðunum í deild-
inni, en hún verður örugglega
mun jafnari en oft áður og ég
held að breiddin eigi eftir að
setja svip sinn á toppbaráttuna í
sumar. Ég á jafnvel von á því að
ein Ijögur til fimm lið muni berj-
ast um að komast upp, en alla
vega eru þau ein sex sem ætla sér
í þann síag. Þróttur, IR, Fylkir,
FH, KA og Stjarnan eru þar lík-
legust, en mjög erfitt er að meta
möguleikana fyrirfram. Ég hef
lítið séð til þeirra á grasi og þess
vegna er erfitt að gera sér grein
fyrir stöðunni, því grasboltinn er
allt öðru vísi.
FH-ingar sem voru á svipuðu
róli og við í fyrra, koma sterkir til
Ieiks og einnig hafa KA-menn
verið að styrkja sig töluvert og
eiga örugglega eftir að blanda sér
í toppbaráttuna. Þróttarar verða
einnig sprækir og hafa þegar
fengið þefinn af því að vera uppi.
Þeir eru því örugglega tilbúnir til
að leggja mikið á sig til að endur-
heimta sætið. Stjarnan hefur Iíka
verið að styrkja sitt lið og hafa
fengið til sín Júgóslavana tvo,
sem voru með KVA í fyrra. Leik-
menn sem virldlega héldu því liði
á floti í fyrra. ÍR-ingarnir eru svo
á svipuðu róli, en þeir hafa þó
misst eitthvað af mannskap og
eiga því eftir að sanna sig aftur.
Onnur lið eins og Víðir, KVA,
Skallagrímur og Dalvík eru svo
meira óskrifað blað, en eiga þó
örugglega eftir að verða erfið
heim að sækja. Það má því segja
að deildin hafi styrkst heilmikið
á milli ára og hún á örugglega
eftir að verða hörkuskemmtileg.“
- Ertu sjálfur t góðu fonni og
hvemig líst þér á að leika gegn
þtnum gömlu félögum afSkag-
anum í úrslitum deildarbikars-
ins?
„Sjálfur er ég í þokkalegu góðu
spiiformi og hlakka mikið til
átakanna í sumar. Mér líst hara
vel á að spila gegn mínum gömlu
félögum í úrslitum deildarbikars-
ins og það verður örugglega
skemmtileg viðureign. Við spil-
uðum reyndar gegn þeim í riðla-
keppninni og skoruðum þar fyrir
þá sigurmarkið í leiknum. Við
vorum manni færri í heilar 40
mínútur og potuðum inn sjálfs-
marki í lokin. Það má því segja
að við höfum marið okkur en
ekki þeir.“