Dagur - 26.05.1999, Side 8

Dagur - 26.05.1999, Side 8
8- MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 MIDVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 - 9 FRÉTTASKÝRING rD^tr Óttast vaxandi fákeppnl Kaupin gerast hratt á eyrinni um þessar mundir. í það minnsta lá mönnum svo mikið á að ganga frá kaupum Baugs á klukkubúðunum 10-11 að ekki gafst ráð- rúm til að bíða eftir áliti Samkeppnisstofnunar. GUÐMUNDUR ■Y *>■/' RÚNAR \ - y A HEIÐARSSON j HPfe SKRIFAR Ekki búist við miklum breytmgum á mat- vöramarkaði með kaupiim Baugs á 10- 11 verslununum. Keppinautar boða aukna samkeppni. Áhyggjur hjá neytend- um. Samkeppnisstofn- un skoðar málið. Ekki glæpur að vera stðr. Talið er að markaðshlutdeild Baugs og verslana í hans eigu á matvörumarkaðnum á höfuð- borgarsvæðinu geti numið vel yfir 50% eftir að fyrirtækið keypti all- ar þrettán 10-11 verslanirnar um hvítasunnuhelgina. Innan raða Baugs eru m.a. Bónus, Hagkaup, Nýkaup og Hraðkaup. Þegar verðbréfamarkaðir voru opnaðar í gærmorgun hækkaði gengið á hlutabréfum Baugs úr 9,95 í rúm 10. Enn fremur stefna Baugs- menn að því að auka hlutafé fyr- irtækisins um 600 milljónir króna. Þá hefur þróunin á mat- vörumarkaðnum einkennst af því að þeir stóru verða sífellt stærri á sama tíma og kaupmaðurinn á horninu er nánast að hverfa af sjónarsviðinu. Kaupás, helsti keppinautur Baugsveldisins, hyg- gst bregðast við stækkun þeirra með því að efla og fjölga eigin búðum. Til marks um það verður opnuð ný Nóatúnsbúð í Hafnar- firði í haust. Kaupverð imi 1,5-2 milljarðar Svo mikill hraði einkenndi þessi kaup á 10-11 búðunum að ekki gafst tími til að bíða eftir áliti Samkeppnisstofnunar á þeim. Búist er við að Samkeppnisstofn- un muni verða tilbúin með álit sitt á kaupunum með tilliti til markaðsstöðu Baugs og fyrir- tækja þess innan fárra vikna. Eins og venja er í slíkum viðskiptum fæst kaupverðið ekki gefið upp. Hins vegar er talið af þeim sem gerst þekkja til að það geti hafa verið á bilinu 1,5-2 milljarðar króna. I þessum kaupum fylgdu engar fasteignir þar sem 10-11 verslanirnar eru allar í leiguhús- næði. Þarna var því fyrst og fremst verið að kaupa viðskipta- vild þessara klukkubúða sem Ei- ríkur Sigurðsson og Qölskylda höfðu byggt upp. I fyrstunni er ekki búist við að þessi samþjöpp- un muni leiða til hærra vöruverðs vegna þeirrar samkeppni sem fyr- ir er á markaðanum. Þar eru fyrir Kaupás með 11-11 verslanirnar, Nóatúnsbúðirnar og matvöru- deild Kaupfélags Arnesinga með 10 milljarða króna ársveltu á móti 22-23 milljarða króna veltu hjá Baugsverslunum. Nokkru minni er veltan hjá KEA og verslunum þess, eða um 4 milijarðar og hjá Kaupfélagi Suðurnesja um 2 milljarðar. Formaður Neytenda- samtakanna telur ástæðu til að hafa áhyggjur af framtíðinni með tilliti til þróun verðlags á matvör- um. Markaðsráðandi Jón Asgeir Jóhannesson, stjórnar- formaður Baugs, vísar því á bug að þeir hafi verið að kaupa sam- keppnisaðila út af markaðnum með kaupunum á 10-11 verslun- unum. Hann segir að seljendur hafi ekki viljað bíða eftir áliti Samkeppnisstofnunar á kaupun- um og því hefði það ekki verið gert. Að auki gerast kaup sem þessi einatt mjög hratt. Astæðuna fyrir kaupunum segir Jón Ásgeir fyrst og fremst þá að Baug hafi vantað þetta rekstrarform sem klukkubúðirnar séu. Það hefði verið talið vænlegra að kaupa þessa verslanakeðju í stað þess að setja upp Hraðkaupsbúðir á höf- uðborgarsvæðinu. „Stóra málið í þessu er það að Samkeppnisstofnun hefur úr- skurðað að Baugur sé markaðs- ráðandi fýrirtæki nú þegar. Þess vegna lýtur Baugur ákveðnu eftir- Iiti stofnunarinnar. Kaupin á 10- 11 breyta engu því mati,“ segir Jón Asgeir. Breytir ekki miklu Hann telur að með kaupunum og sölu á tveimur til þremur verslun- um Baugs muni markaðshlut- deild Baugs og fyrirtækja þess aukast um 4-5%. Af þeim sökum breyta þessi kaup ekki svo miklu um þeirra hlutdeild á markaðn- um. Á hinn bóginn séu þessi kaup mikill styrkur fyrir Baug. Þá sé ekki búið að taka neinar ákvarðanir um sölu á verslunum í framhaldi af þessum kaupum. Jón Ásgeir segir að neytendur muni ekki verða varir við neinar breytingar á sínum högum hvað verðlag áhrærir. Hins vegar sé viðbúið að Baugur muni ná fram nokkurri hagræðingu innan sinna raða með þessum kaupum sem síðan mun væntanlega skila sér til neytenda. Hann segir að kaup- verðið sé trúnaðarmál en sá kostnaður muni ekki koma fram í vöruverði. Að auki hefði stór hluti kaupverðsins verið greiddur út í formi hlutabréfa í Baugi, eða sem nemur 5-6% af hlutaQáreign í Baugi. Aðspurður segir Jón Asgeir að það séu ekki frekari verslana- kaup á borðinu. Hins vegar sé ekkert sem bannar verslunum innan Baugs að eflast og stækka. Spýta ílófa Þorsteinn Pálsson, framkvæmda- stjóri Kaupáss, segir að þessi kaup hafi í sjálfu sér ekki komið svo mjög á óvart. Menn hafi get- að búist við þessu eftir að 10-11 verslanirnar gerðust aðilar að innkaupasambandi Baugs sl. haust. Af þeim sökum hafi mönn- um ekki brugðið neitt þegar frétt- ist af þessum kaupum um helg- ina. Hann segir að viðbrögð þeirra við vaxandi Baugsveldi geti ekki verið nema á einn veg, þ.e. að spýta í lófana og reyna að auka enn frekar eigin veltu til að veita þeim verðugt aðhald og sam- keppni. I því sambandi bendir hann á að í haust verður opnuð ný Nóatúnsbúð í Hafnarfirði. „Menn hljóta að velta því fyrir sér,“ segir Þorsteinn aðspurður hvort Kaupásmenn séu heitir fyr- ir því að kaupa eitthvað af þeim verslunum sem Baugsmenn hafa rætt um að selja. Meira sé ekki um það að segja á þessu stigi málsins á meðan engar verslanir í þeirra eigu hafa verið auglýstar til sölu. Hann minnir einnig á að samkeppnin á matvörumarkaðn- um sé alveg gríðarlega hörð og ekkert útlit fyrir annað en að hið daglega verðstríð haldi áfram af fullum krafti. I því sambandi bendir Þorsteinn m.a. á að Baugsmenn muni eflaust reyna að sýna neytendum fram á hag- kvæmni kaupanna á 10-11 versl- unum með því að bjóða þeim „góð verð.“ Hann segir að þeir muni ekki gefa neitt eftir í þeirri baráttu, frekar en fýrri daginn. Samkcppni keypf út Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að kaup Baugs á 10-11 verslunum sé í sjálfu sér ekki nýjung. Það sé vegna þess að verslanakeðjan hef- ur verið í viðskiptum við Aðföng, fyrirtæki Baugs, um nokkurt skeið. Hins vegar sé ljóst að með þessu sé Baugur að kaupa sam- keppnisaðila út af markaði. Til að byija með telur Jóhannes að þessi kaup muni ekki hafa nein áhrif á vöruverð til neytenda. Það helg- ast af þeirri samkeppni sem sé á markaðnum og því sé engum stætt á því að fara að hækka vöru- verð. Engu að síður sé ástæða til að hafa áhyggjur af því hvað framtíðin ber í skauti sér í þess- um efnum. Það getur þó haft áhrif til hækkunar þegar til Iengri tíma sé litið þegar Baugur sé orðinn svo stór á markaðnum. I það minnsta munu þessi kaup ekki auka á sam- keppnina, svo mikið sé víst. Aúkinyfirráð Þá sé næsta víst að þessi kaup séu m.a. gerð til þess að ná meiri yfir- ráðum á markaðnum og til að geta stýrt honum betur. Af þeim sökum hljóta Neytendasamtökin að setja spurningarmerki þegar svo sé komið. Það megi svo aftur deila um það hversu mikið 10-11 verslanirnar hafi verið virkar í þessari samkeppni eftir að þær fóru að kaupa nær allar sínar vör- ur frá Aðföngum. Jóhannes minnir hins vegar á að 10-11 verslanirnar voru í bullandi sam- keppni t.d. við Hagkaup á sínum tíma. Síðast en ekki síst telur hann að 10-11 verslanirnar hafi átt heiðurinn að lækkun vöru- verðs í landinu á tímabili. Hann telur að síðan verslanirnar byrj- uðu viðskipti við Aðföng hafa hlutirnir breyst í þá veru að verð- Iag hefur stigið fremur upp á við en til lækkunar. Hann minnir enn fremur á að ef menn gleyma sér á verðinum í samkeppninni, þá skapa menn rými fýrir aðra. Það ættu Baugsmenn að þekkja öðrum fremur. Ekki heppilegt Formaður Neytendasamtakanna telur einnig ljóst að út frá sjónar- miðum samkeppninnar sé staðan þannig að Baugur og hlutdeild verslana í hans eigu séu orðin markaðsráðandi á matvörumark- aðnum. Það sé hins vegar sam- keppnisyfirvalda að dæma um það. Þá telur formaður Neyt- endasamtakanna einsýnt að yfir- völd samkeppnismála munu skoða mjög vandlega þessi kaup með tilliti til stöðu Baugs og fyr- irtækja þess á matvörumarkaðn- um. Engu að sfður sé það ekki heppilegt, hvorki í matvöru né í öðrum atvinnugreinum, að hafa markaðsráðandi aðila. Hins vegar eiga menn eftir að sjá hver þróun- in verður í framhaldinu. Tvö módurfélög Hann minnir á að Baugsmenn hafa boðað sölu á einhverjum af sínum verslunum. Þá sé það spurningin hver muni kaupa af þeim, hversu margar verslanir þeir ætli sér að selja og hversu stórar séu þær verslanir. Formaður Neyt- endasamtakanna telur engu að síður að þetta ýti því miður undir þá þróun að hérlendis verða tvö stór móðurfélög í matvörugeiran- um sem séu í samkeppni hvort við annað og einnig innbyrðis. Hann hefði þó gjarnan viljað sjá að fleiri væru á markaðnum í stað þessara stóru, Baugs með allar sínar versl- anir og síðan Kaupás með 11-11 verslanirnar og Nóatúnsbúðirnar svo ekki sé minnst á KEA Nettó búðir. Honum þykir það einnig mjög miður að þessi kaup skuli hafa þurft að ganga fram með þeim hætti að rétt yfirvöld hefðu ekki getað kannað lögmæti þess- ara viðskipta áður en þau voru gerð. I því sambandi bendir hann á að það sé mun erfiðara að vinda niður slíka hluti en að vinda þá upp. Kluhkan tifar Guðmundur Sigurðsson hjá Sam- keppnisstofnun segir að stofnunin sé ekki búin að taka afstöðu til þess hver sé markaðshlutdeild fyr- irtækja Baugs eftir kaupin á 10-11 verslununum. Hann segir að stofnunin muni fara að skoða þetta mál og hvaða áhrif það hefur á samkeppnina á markaðnum. Samkvæmt lögum mega líða allt að tveir mánuðir frá því að Sam- keppnisstofnun sé kunnugt um slíkan samruna og þangað til stofnunin verður að birta sitt álit. Það þýðir að hans mati að klukkan hafi byijað að tifa frá og með síð- asta laugardegi. Guðmundur úti- Iokar þó ekki að stofnunin verði tilbúin með sinn úrskurð áður en þessi formlegi frestur rennur út, enda með þokkalega yfirsýn yfir markaðinn. Hann minnir þó á að stofnunin hefði verið Iátin vita af þessum kaupum fyrir helgi, en bæði kaupendur og seljendur höfðu ekki tök á að bíða eftir áliti stofnunarinnar. Skilgreining Guðmundur segir að allar tölur um hugsanlega markaðshlutdeild Baugs og fyrirtækja þess séu dálít- ið varhugaverðar. I þeim efnum þarf að liggja fyrir hvað heildar- markaðurinn sé stór, enda hægt að skilgreina hann með ýmsum hætti. I þeim efnum þarf m.a. að taka afstöðu til þess hvort mat- vörumarkaðurinn samanstendur aðeins af veltu hefðbundinna verslana eða hvort einnig sé tekið tillit til þeirrar veltu sem er í sölu- turnum og bensínstöðvum, eða ekki, svo dæmi sé tekið. I þessu sambandi þarf einnig að skilgreina hinn landfræðilega markað, höf- uðborgarsvæðið eða aðeins Iands- byggðina nema hvort tveggja sé. Af þeim sökum sé hægt að fram- kvæma slíka úttekt á marksstöð- unni á marga vegu, eða allt eftir því á hvaða forsendum sé unnið út frá. Ekki glæpur að vera stór Sigurður Jónsson, framkvæmda- stjóri Kaupmannasamtaka Islands, telur fljótt á litið að litlar breyting- ar verði á matvörumarkaðnum þrátt fýrir þessi kaup Baugs á 10- 11 búðum, enda verði þessi versl- anakeðja væntanlega áfram rekin á sínum forsendum. Það sé m.a. ástæðan fyrir kaupum þeirra Baugsmanna. Þá sé ekki heldur búist við að kaupin breyti neinu með tilliti til samkeppninnar, enda hefur 10-11 keypt nær allt sitt frá Aðföngum. Hins vegar sé því ekki að leyna að með þessum kaupum séu Baugur og verslanir hans orð- in stór og ráðandi eining á mark- aðnum og ekki nema eðlilegt að neytendur og aðrir hafi áhyggjur af því. Aftur á móti telur Sigurður að viðhorf manna til stærðarinnar í samkeppnismálum hafi verið breytast í seinni tíð og líklega til samræmis við það sem sé að gerast í Evrópu. „Þau eru að breytast í þá veru að það sé ekki glæpur að vera stór. Það sé hins vegar glæpur að mis- nota stærð sína,“ segir fram- kvæmdastjóri Kaupmannasamtak- anna. Hann áréttar þó að það sem sé talið markaðsráðandi í einu landi sé það ekki í öðru. Þetta ræðst fyrst og fremst af mati sam- keppnisyfirvalda í hverju landi fyr- ir sig. Akureyrsk menningamótt Magnús Már Þorvaldsson hefur hafið undirbúning að opnun skrifstofu Ferðamálafélags Eyja- fjarðar að Hafnarstræti 82. Hann er ráðinn til sex mánaða, en verk nýrrar stjórnar Markaðsskrif- stofu Akureyrar verður að semja um framhald starfseminnar. Magnúsi Má er ætlað að undir- búa og sjá um reksturinn til að byrja með og kynna svokallaða viðburðaferðamennsku. Hefur m.a. verið stofnaður hugmyndabanki þar sem afurð- irnar hafa þegar litið dagsins ljós. Þannig er Jón Haukur Brynjólfs- son skráður fyrir hugmynd um „Akureyrska menningarnótt" mánaðamótin ágúst-september og Iíta menn þá til Menningar- nætur Reykjavíkur sem fyrir- myndar. Um 5 ára skeið hefur takmark- aður hópur hagsmunaaðila kom- ið að ýmsum viðburðum á Akur- Skrifstofa Ferðamálafélags Eyjafjarðar að Hafnarstræti 82 eyri og hefur hugtakið viðburða- ferðamennska verið notað um þær uppákomur. I bréfi Mark- aðsskrifstofu Akureyrar til hags- munaaðila í ferðaþjónustu segir að kraftur hins takmarkaða hóps hafi gert mögulegt að halda stór- viðburði á Akureyri, sem ekki eigi sér hliðstæðu í sögu bæjarins. Nú hyggist menn fara af stað með enn meiri krafti en nokkru sinni fyrr. - BÞ Háskóli íslands, endurmenntunarstofnun Aðgerðir gegn ofbeldi Ráðstefna í tengslum við fund sérfræðinganefndar Evrópuráðsins, í samvinnu við Neyðarmóttöku vegna nauðgunar og Skrifstofu jafnréttismála Dagskrá: Haldið á Hótel Sögu 27. maí kl. 9.00-17.00: í dagskránni: 09.00-09.10. 09.10-09.40. 09.40-10.10. 10.10- 10.30. 10.30- 10.50. 10.50-11.05. 11.10- 11.30. 11.30- 11.50. 12.00-12.35. 12.35-14.00. 14.00-14.20. 14.20- 15.00. 15.00-15.20. 15.20- 15.40. 16.40-17.00. Setning Guðrún Agnarsdóttir. Ávarpsorð. Ráðherra. Kynning á jafnréttisnefnd Evrópuráðsins, CDEG, með sérstakri áherslu á aðgerðir gegn ofbeldi. Caroline Mechin. Kynning á sérfræðinganefnd Evrópuráðsins um aðgerðir til verndar konum og ungum stúlkum gegn ofbeldi, EG-S-FV, og tillögum nefndarinnar. Guðrún Agnarsdóttir. Kynferðislegt ofbeldi í styrjöldum. Charlotte Lindsay. Kaffi. Aðgerðir og bráðaúrræði Evrópuráðsins til að varðveita lýðræði og stöðugleika í Suð-austur Evrópu (Balkanskaga.) Sophía Piguet. Vandamál við samanburð á ofbeldi í ólíkum samfélögum. Hildigunnur Ólafsdóttir. Neyðarmóttaka vegna nauðgunar, þverfagleg fyrirmynd. Eyrún Jónsdóttir. Hlutverk löglærðra talsmanna - áhrif nýrra löggjafar. Helga Leifsdóttir. Hádegisverður. Ákvörðun refsingar í nauðgunarmálum - hæstaréttardómar á tuttugu ára tímabili. Ragnheiður Bragadóttir. Langtíma afleiðingar kynferðislegs og líkamlegs ofbeldis - meðferð og forvarnir. Barbro Wijma. „Karlar til ábyrgðar11 - meðferðarúrræði fyrir karla sem beita heimilisofbeldi. Einar Gylfi Jónsson. Kaffi. Umræður. Staða og viðbrögð við ofbeldi. 15.40-16.00. Hvað er að gerast í Austurríki? 16.00-16.20. Hvað er að gerast í Tyrklandi? 16.20-16.40. Hvað er að gerast í Rúmeníu? Valentín Wedl. Cánán Arin. Norica Nicolai. Fundarstjórar: Fyrir hádegi: Elsa Porkelsdóttir, framkvæmdarstjóri Skrifstofu jafnréttismála. Efir hádegi: Sigrún Árnadóttir, framkvæmdarstjóri Rauða kross íslands. Veiðc 3.500 kr. Nánari upplýsingar og skráning í síma 525-4923, myndsíma 525-4080 og tölvupósti endurm@hi.is. Heimasíða: www.endurmenntun.hi.is

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.