Dagur - 26.05.1999, Síða 12
111111111111 n 11«11111111mmixiiiiiiiiiiiiiiiiimq ■■■■■■■■■■■■■■■■
12i -^MlÐVIKiJDAGVR Í6. MAÍ 1999 í
rD^tr
Simi 462 3500 • Hólabraut 12 • www.nett.ia/borgarbio
FYRSTI ALVORU SUAAARSMELLURINN !
MYNDIN SEM HEFUR VERIÐ KÖLLUD „PRETTY WOMAN FYRIR MTV-KYNSLOÐINA
MARK WAHLBERC
ÆHOÍ YUN-fAT
IskFtintli fyntjin tt.s: D V
.Manjfoltl sKéffntun H.L Mhl
Shakespeare In Love Miðvikud^ 1(1. 23:10.
Miðvikud. kl. 21.
1 B.l. 16ÁRA 1§j
V' □□IdolbvI ,4j;i □□ Íoolby ! '4íj'
D 1 G 1 T A L ; D 1 G 1 T A L
nyjft bio
'V»v<
!
D I G I T A L
RÁÐHÚSTORGI
SÍMI 461 4666 I HX
Sýnd kl. 7 - B.i. 16 Sýnd kl. 7 - B.i. 16
Síöasta sýning Síðasta sýning
Sýnd kl. 5
Sýnd kl. 9 og 11.10
Sýnd kl. 5, 9 og 11
Liðsmenn Bæjara með þýska meistaraskjöldinn sem þeir fengu afhentan
um helgina.
Heilog þreirna
ÍÞRÓTTIR
Frestað á
Ólafsfirði
Um helgina var leik
Leifturs og KR sem
fram átti að fara á
Ólafsfirði frestað um
óákveðiuu tíma vegna
lélegra vallarskil
yrða.
Leiftursmenn hafa lent í mikl-
um erfiðleikum á undirbúnings-
tímabilinu vegna lélegrar að-
stöðu til knattspyrnuiðkunar á
Norðurlandi. Einnig hefur verið
erfitt að ná hópnum saman, því
í Iiðinu spila margir leikmenn,
auk þeirra erlendu, sem ekki
búa í Olafsfirði vegna atvinnu
eða skólagöngu. Páll Guðlaugs-
son, þjálfari Leifturs, er samt
bjartsýnn á tímabilið. „Það
leggst svona ágætlega í okkur.
Við hefðum samt viljað geta
komist á gras fyrr, en veðrið hef-
ur tafið okkur í heilan mánuð.
Það er ljóst mál að eitthvað þarf
að bæta hérna, því að aðstaðan
er alls engin.“
Leiftursmenn enduðu í
fimmta sæti í Landssímadeild-
inni í fyrra og komust í úrslita-
Ieik bikarkeppninnar. En hver
eru markmiðin fyrir þetta tíma-
bil? „Markmið okkar í sumar,
þrátt fyrir erfiðar aðstæður í
byrjun, er eins og alltaf að vinna
eitthvað og við ætlum að bæta
árangurinn síðan í fyrra. Arang-
urinn í fyrra var í raun eðlilegur
miðað við miklar breytingar sem
urðu á liðinu, en þrátt fyrir svip-
aðar breytingar fyrir þetta tíma-
bil, er munurinn sá, að hópur-
inn hefur verið lengur saman
nú. Það hefur vonandi bætt okk-
ur eitthvað, en það sem háir
okkur er aðstöðuleysi.“
Greinilegt er að aðstöðuleysið
á undirbúningstímabilinu hefur
háð Iiðinu eitthvað, en það beið
ósigur í fyrsta Ieik sínum gegn
IBV í Eyjum með 5 mörkum
gegn engu, þar sem Steingrímur
Jóhannesson afgreiddi Leiftur
með Ijórum mörkum og Rútur
Snorrason bætti því fimmta við.
Það eykur svo enn á vandræði
Leifturs að um helgina átti liðið
að leika sinn fyrsta heimaleik
gegn KR-ingum, en fresta varð
leiknum vegna slæmra vallar-
skilyrða. — AÞM
Úrslit leikja í 2. umferð
Landssúnadeildarinnar:
ÍA - Víkingur R. 1-1
Grindavík - Breiðablik 1-0
Fram - Keflavík 2-0
Valur - ÍBV 0-0
Leiftur - KR frestað
Næstu leikir í Landssíma-
deildinni:
Fimmtud. 27. maí
Kl. 20.00 ÍBV - Grindavík
Kl. 20.00 Keflavík - ÍA
Kl. 20.00 Breiðablik - Fram
Kl. 20.00 KR - Valur
Laugard. 29. maí
Kl. 16.00 Víkingur R. - Leiftur
Meistaradeild
kverata
Keppni í meistaradeild kvenna
hófst í gærkvöld með heilli um-
ferð.
Úrslit leikja:
ÍA-Valur 1-1
Grindavík - Stjarnan 1-3
Breiðablik - Fjölnir 7-0
KR-ÍBV 4-1
í kvöld lýkur kapp-
hlaupi Mauchester
United og Bayem
Miindien iuii hina
heilögu þrennu, sem
svo er kölluð, þegar lið-
in leika til úrslita uin
Evrópubikarinn á Nou
Camp í Barcelona.
Það má með sanni segja að í kvöld
fari fram leikur ársins í knatt-
spymunni, þegar lið Manchester
United og Bayem Munchen Ieiða
saman hesta sína á Nou Camp í
Barcelona, í úrslitaleik um titilinn
besta knattspyrnulið Evrópu. An
efa eru þarna á ferðinni tvö bestu
félagslið heims í dag, skipuð frá-
bærum knattspyrnumönnum, sem
fært hafa félögum sínum stóra
sigra á Ieiktímabilinu. Manchester
United er þó skrefinu á undan
Bayern og hefur þegar unnið tvö-
falt heima fyrir í deild og bikar og
stefnir nú á þrennu. Bayem hefur
aftur á móti þegar ttyggt sér þýska
meistaratitilinn og er komið í úr-
slit bikarkeppninnar á móti
Werder Bremen. Bæði liðin eiga
því möguleika á að vinna „heilaga
þrennu", eins og það er gjarnan
kallað, en um möguleikana sýnist
sitt hvetjum.
Mark Hughes veðjar á United
Mark Hughes, fyrrum leikmaður
Manchester United, sem nú Ieik-
ur með Southampton, er einn
þeirra sem hefur tröllatrú á sínu
gamla félagi. Hughes þekkir vel til
hjá báðum félögunum, því eftir að
hafa leikið nokkur ár með United,
var hann seldur til Barcelona á
Spáni, árið 1986 og þaðan lánað-
ur til Bayem. Með Bayern Iék
hann síðan átján leiki áður en
United keypti hann aftur til Eng-
lands.
„Það má segja að í Þýskalandi sé
Bayern í sama hlutverki og United
í Englandi. Það hefur eins og
United náð frábærum árangri á
öllum vígstöðvum, en ég hef það
samt á tilfinningunni að nú sé
komið að United. Ef liðinu tekst
nú að vinna þennan mesta titil
evrópskrar knattspyrnu, þá er ég
viss um að þeir muni halda sínu
striki á næstu ámm og vinna hann
miklu oftar,“ sagði Hughes.
I sama streng tekur skoski
landsliðsmaðurinn Mark McGhee
sem á árum áður lék undir stjórn
Fergusons hjá Aberdeen. McGhee
sem um tíma lék í þýsku deildinni
sagðist hafa mikla trú á United.
„Auðvitað veikir fjarvera Roy
Keane liðið, sérstaldega þar sem
Bayern hefur menn eins og Effen-
berg á miðjunni. Einnig verður
Janker þeim erfiður í fremstu víg-
línu, en ég hef trú á því að Japp
Stam verði maður til að halda
honum niðri,“ sagði McGhee.
Byrjunarlið Bayem tílkynnt
með tveggja daga fyrirvara
I Þýskalandi ríkir mikil bjartsýni
fyrir leikinn, svo mikil að heyrst
hefur að það sé aðeins formsatriði
fyrir Bæjara að klára hann. Meira
að segja í herbúðum liðsins eru
menn ótrúlega afslappaðir. Ott-
mar Hinzfield, þjálfari liðsins, er
þar engin undantekning og er ör-
yggið uppmálað. Hann hefur þeg-
ar tilkynnt byijunarlið sitt og gerði
það með tveggja daga fyrirvara,
sem er mjög óvenjulegt.
A meðan Ferguson hefur þurft
að beina öllum sínum kröftum í
lokasiag ensku deildarinnar og í
bikarúrslitin, hefur Hinzfield get-
að leyft sér að hvíla lykilleikmenn,
þar sem sigur í þýsku deildinni var
fyrir Iöngu öruggur og bikarúr-
slitaleikurinn gegn Werder
Bremen ekki fyrr en 12. júní. Þeir
fengu meistaraskjöldinn afhentan
um helgina, en eiga samt eftir síð-
asta leildnn í deildinni gegn Bayer
Leverkusen á Iaugardag. Þýska lið-
ið ætti því að vera betur hvílt en
tvöfaldir meistarar Manchester
United.
Byrjunarlið Bayern: Markvörð-
ur: Oliver Kahn. Aðrir leikmenn:
Lothar Matthaus, Thomas Linke,
Sammuel Kuffour, Markus
Babbel, Jens Jeremies, Stefan
Effenberg, Mario Basler, Michael
Tarnat, Carsten Jancker og Alex-
ander Ziclde.
Babbel tíl höfuðs Giggs
Markus Babbel verður eflaust ætl-
að það hlutverk að glíma við Ryan
Giggs sem Bæjarar hræðast mest.
Hann hefur þvi verið færður úr
öftustu víglínu fram á miðjuna
hægra megin til Aið mæta Giggs.
Michael Tarnat hefur síðan fengið
það hlutverk að hafa auga með
David Beckham, sem Þjóðverjarn-
ir kalla „konung lyrirgjafanna".
Þannig ætla Bæjarar að klippa út
þá sem þeir telja hættulegasta í
sóknarleik Uriited og koma þannig
í veg fyrir eitraðar sendingar á
framheijanna.
Að sögn Tamat er það mjög
mikilvægt að loka á kantspilið hjá
United. „Ef okkur tekst það, þá
erum við í góðum sa/i
hann.
Eins og Alex Ferguson, er Uli
Höness, aðalframkvæmdastjóra
Bayem, mjög umhugað að vinna
þrennuna að þessu sinni. Hann
ætlar sér að endurreisa veldi fé-
Iagsins í Evrópuboltanum og veit
eins og Ferguson að Evrópumeist-
aratitillinn er lykillinn að áfram-
haldandi velgengni á toppnum.
Líklegt byrjunarlið United:
Markvörður: Peter Schmeichel.
Aðrir leikmenn: Gary Neville,
David May, Jaap Stam, Denis
Irwin, David Beckham, Nicky
Butt, Ronny Johnsen, Ryan Giggs,
Teddy Sheringham og Dwight
Yorke.
Dómari: Pierluigi Collina frá
Ítalíu.