Dagur - 03.07.1999, Síða 20
3f>- LAUGASVAGUR 3. JÚLÍ 1999
RAÐAUGLÝSINGAR
A T V I N N A
Framtíðarstarf
Óskum eftir starfsmanni í varahlutaverslun á
Akureyri. Um framtíðarstarf er að ræða. Þarf að
geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, mennt-
un og fyrri störf sendist fyrir 8. júlí í pósthólf
122, 602 Akureyri. Merkt framtíðarstarf.
Öllum umsóknum verður svarað.
Grunnskólinn í Grindavík
Lausar kennarastöður
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður: Bekkjar-
kennsla í 1.-8. bekk, kennsla í kjarnagreinum í
9. bekk og myndmennt.
Grindavík er blómlegt bæjarfélag með 2.200 íbúa í aðeins 50 km
fjarlægð frá höfuðborginni. Nemendur eru um 380 í 1.-10. bekk. í
skólanum er unnið framsækið starf af áhugasömu starfsliði. Yfir-
standandi eru miklar byggingarframkvæmdir við skólann og verður
hann einsetinn að þeim loknum. Grindarvíkurbær greiðir álag á föst
laun kennara auk þess sem sérstok fyrirgeiðsla er í boði fyrir nýja
kennara.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskólastjóri í vs.
426-8555, hs 426-8504 og 426-8363.
Umsóknafrestur er til 5 júli.
Skólastjóri.
Reykhólaskóli
Reykhólum
Lausar kennarastöður
1. Kennari í almennum kennslugreinum með kennslu í
ensku í 5.-9. bekk og dönsku í 10. bekk. Fullt starf.
2. Kennari í handmennt og smíðum, fullt starf.
3. Sérkennari í fullt starf.
Umsóknarfrestur er til 9. júlí 1999.
Upplýsingar gefur skólastjóri, Skarphéðinn Ólafsson í
símum 434 7807 og bílasíma 852 0140 og einnig
skrifstofa Reykhólahrepps í síma 434 7880.
Reykhólaskóli er einsetinn heimangönguskóli með um
50 nemendur. Skólinn er á Reykhólum og er
starfsaðstaða kennara góð. Mötuneyti er rekið fyrir
skólann. Sveitastjórn mun aðstoða við útvegun
húsnæðis, sem greitt er fyrir samkvæmt sérstökum
samningi.
Eyjafjarðarsveit
Hrafnagilsskóli
Nú fer hver að
verða síðastur!
Kennara vantar í eina stöðu í efri bekkjum.
Meðal kennslugreina: raungreinar, sam-
félagfræði, stærðfræði, smíðar og saumar
Nánari upplýsingar veitir Anna Guðmunds-
dóttir, skólastjóri, í síma 463-1137, netfang
annag@ismennt.is og heimasíma 463-1127.
AKU RE YRARBÆR
Tölvu og upplýsingamál
Stjórnandi
Auglýst er laust til umsóknar starf stjórnanda á þjónustu-
sviði. Meginverkefni er yfirumsjón og ábyrgð á tölvumál-
um bæjarkerfisins þar sem í notkun er m.a. eftirtalinn
búnaður:
AS/400 kerfi, Novell netstýrikerfi og Windows umhverfi.
Einnig er bærinn að innleiða Lotus Notes hópvinnukerfi.
Starfsmenn í tölvudeild eru nú þrír. Margs konar þróun er
í gangi og stendur fyrir dyrum.
Á þjónustusviði hafa stjórnendur ekki algjörlega afmark-
aðan starfsvettvang, heldur bera ábyrgð á skilgreindum
verkefnum og vinna að þeim með öðrum stjórnendum og
starfsmönnum.
Leitað er að umsækjanda sem hefur menntun og/eða
mikla reynslu og áhuga á tölvu- og upplýsingamálum.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Sigríður Stefánsdóttir
sviðsstjóri í síma 462-1000.
Umsóknir með góðum upplýsingum um nám og fyrri störf
berist til starfsmannadeildar Akureyrarbæjar.
Umsóknarfrestur er til 16. júli.
Starfsmannastjóri.
Hafralækjarskóli í Aðaldal
auglýsir eftir skólastjóra
Hafralækjarskóli er grunnskóli og er staðsettur í Að-
aldal um það bil 20 km frá Húsavík og um 70 km frá
Akureyri. Skólinn býr við góða aðstöðu til náms og
kennslu.
Skólinn er einsetinn heimanakstursskóli með um það
bil 100 nemendur úr 4 sveitarfélögum, þar sem sam-
kennsla árganga er umtalsverð. Áhersla á list- og verk-
greinar, þó einkum tónlist, eru helstu einkenni skóla-
starfsins. Innan veggja skólans er rekinn tónlistarskóli
með sameiginlega stundaskrá, aðstöðu og búnað. Við
skólann er rekin sérdeild, sem þjónar meðferðarheimil-
unum í Árbót og Bergi.
Umsóknarfrestur er til 16. júlí nk.
Nánari upplýsingar gefur Svanhvít Magnúsdóttir, skóla-
stjóri, í síma 464-3580 eða 464-3581 og Dagur Jó-
hannesson, oddviti, í síma 464-3510 eða 464-3520.
Heilbrigðisstofnunin Selfossi
Sjúkrahús
Á sjúkrahúsið óskast hjúkrunarfræðingur til
starfa á hand- og lyflækningasviði. Um er að
ræða fjölbreytt störf við góðar aðstæður. Vinnu-
hlutfall og vaktafyrirkomulag er samningsatriði.
Þetta er upplagt tækifæri fyrir þá sem vilja
komast burt úr borgarerlinum en þó er stutt í
höfuðborgina. Á Selfossi er góð aðstaða til
íþróttaiðkana, fjölbreytt verslun og hvers konar
þjónusta.
Aðstoðum við útvegun húsnæðis.
Upplýsingar um verkefni sjúkrahúss, starfsum-
hverfi, launakjör og aðra þætti gefur Margrét
Sigurðardóttir, deildarstjóri, í síma 482-1300,
gsm 861-5563.
Símenntunarmiðstöðin • Box 32, Bjarnarbraut 8
310 Borgarnes.* Sími: 437-2390/863-0862 • Fax; 427-1494
Netfang: bjorg@simenntun.is • Veffang: www.simenntun.is
Skrifstofustarf í
Borgarnesi
Símenntunarmiðstöð Vesturlands vill ráða starfs-
kraft í 60% vinnu við skrifstofustörf; fjármál, bók-
hald, símsvörun og skráningu á námskeið. Góð
tölvu- og bókhaldskunnátta nauðsynleg.
Símenntunarmiðstöðin hefur skrifstofu að Bjarna-
braut 8 í Borgarnesi, en þjónar öllu Vesturlandi.
Símenntunarmiðstöðin er samstarfsverkefni sveit-
arfélaga, atvinnulífs og menntastofnana og hlut-
verk hennar er að efla fullorðinsfræðslu, endur
og símenntun með námskeiðshaldi og fjar-
kennslu.
Umsóknir berist fyrir 9. júli til Símenntunarmið-
stöðvarinnar, Box 32, 310 Borgarnesi.
Upplýsingar veitir Þórir Ólafsson í síma 431-
2544 eða 431-2528.
Snæfellsbær
Leikskólakennari
óskast
Við í leikskólanum Kríubóli á Hellissandi óskum eftir
leikskólakennara til starfa. Kríuból er lítill tveggja deilda
leikskóli með sveigjanlegan vistunartíma. Við leikskól-
ann starfa 34 börn, einn leikskólakennari ásamt áhuga-
sömu og metnaðarfullu starfsfólki, sem vilja fá leikskóla-
kennara til liðs við sig frá og með 16. ágúst nk.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 9. júlí nk.
Nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 436-
6723.
Ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða
annað uppeldismenntað starfsfólk eða fólk með
reynslu af uppeldisstörfum.
Snæfellsbær er ungt sveitarfólag sem vefur sig utan um Snæfellsjökul:
Staðarsveit, Búðir, Breiðurvík, Arnarstapi, Hellnar, Hellissandur, Rif,
Ólafsvík og Fróðárhreppur. í góðu veðri er Hellissandur í tveggja tíma
aksturfjarlægð frá Reykjavík - og veðrið er að sjálfsögðu alltaf gott undir
Jökli.
í Snæfellsbæ býr gott fólk sem er alltaf tilbúið til að bjóða nýja Snæ-
fellsbæinga velkomna. Hór er líka sérstaklega fallegt umhverfi enda
býður bæjarfélagið upp á alla flóru landsins þegar kemur að landslagi,
fugla- og dýralífi.
Kennarar
Kennara vantar við Grunnskólann á Bakkafirði
næsta skólaár. Meðal kennslugreina er almenn
kennsla, enska, danska og handmennt. í skólan-
um eru 15 nemendur í 1.-9 .bekk. Skólastarfið er
metnaðarfullt og skólinn vel búinn tækjum. Sveitar-
félagið útvegar húsnæði og greiðir flutningsstyrk.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Sigríður
Hlöðversdóttir í síma 473-1636 og skólanefndar-
formaður, Rósa Magnúsdóttir í síma 473-1663.
Umsóknarfrestur er til 25. júli.