Dagur - 07.09.1999, Blaðsíða 8

Dagur - 07.09.1999, Blaðsíða 8
8 - ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999 - 9 FRÉTTA SKÝRING FRÉTTIR Margar löggur í atvmnuleit GUI) MXJNDUR RUNAR IIIvIÐARS SON SKRIFAR Aðhald og samdráttur í rekstri lögregliumar í borgiuni. Um- frameyðsla. 30 millj- óna króna samdráttur. Lögreglufélagið aug- lýsir eftir viimu fyrir félagsmenn. Flýja lág laun. Svo virðist sem ýmsir innan lög- reglunnar í Reykjavík séu búnir að fá sig fullsadda af aðhalds- og niðurskurðaraðgerðum stjórn- valda í málefnum embættisins. Margir lögreglumenn telja að þetta hafi gert það að verkum að tekjur þeirra hafa dregist stórlega saman vegna minni aukavinnu. Af þeim sökum sé kominn tími til að líta í kringum sig eftir betur Iaun- uðum störfum á almenna vinnu- markaðnum. Þótt einhveijir gráti það kannski ekki að sjá á eftir reyndum lögreglumönnum úr starfi, þá eru þeir eflaust fleiri sem telja að tímarnir séu þess eðl- is að atgervisflótti úr lögregluliði borgarinnar sé eitthvað sem verði að koma í veg fyrir á einn eða annan hátt. Sérstaklega þegar haft sé í huga öryggi borgaranna í viðsjárverðum heimi þar sem of- beldi og glæpir séu annarsvegar og þar sé borgin ekki undanskilin. Nýstárleg auglýsing Um helgina birti Lögreglufélag Reykjavíkur nýstárlega auglýs- ingu þar sem vakin var athygli at- vinnurekenda á því að margir lög- reglumenn séu knúnir til þess að leita út á almenna vinnumarkað- inn eftir framtíðarstörfum en ekki hlutastörfum. Astæðan er sögð stórfelldar niðurskurðar- og aðhaldsaðgerðir stjórnvalda hjá lögregluembættinu í Reykjavík. I auglýsingunni er einnig tekið fram að í hópi lögreglumanna sé m.a. háskóla- og iðnmenntað fólk, sem hafi mikla reynslu af ýmsum störfum í þjóðfélaginu. Þá sé tölvu- og tungumálakunn- átta víðtæk. Ovíst er hvaða við- brögð þessi auglýsing mun fá inn- an raða atvinnulífsins, enda um ný vinnubrögð að ræða af hálfu stéttarfélags innan opinbera geirans sem berst fyrir hagsmun- um sinna félagsmanna. Vantar lögreglumenn Oskar Bjartmarz formaður Lög- reglufélags Reykjavíkur og stjórn- armaður í Landssambandi lög- reglumanna segir að stjórn fé- lagsins telji hag félagsmanna best borgið með því að leita eftir vinnu fyrir þá á öðrum vettvangi. Hann vill þó ekki tjá sig um það hvort þetta ástand sé einnig að finna meðal Iögreglumanna hjá öðrum lögregluembættum víðs vegar um landið. Hann býst fastlega við því að atvinnulífið muni bregðast við þessari auglýsingu á jákvæðan hátt. Það sem af er séu viðbrögð almennings einkum þau að hann rekur í rogastans yfir því að lög- Aðhald og samdráttur í rekstri lögreglunnar í Reykjavík hefur komið við buddu margra lögreglumanna. Á sama tíma gerist það æ oftar að ráðist sé á lögreglumenn við sín skyldustörf. reglan í borginni skuli vera kom- in í þá stöðu að stéttarfélag þeirra skuli vera tilneytt til að auglýsa eftir annarri og betri vinnu fyrir félagsmenn sína. Á sama tíma sé ástandið þannig að það vantar lögreglumenn til starfa innan lög- reglunnar í borginni, eða allt að 20 manns miðað við þann mann- skap sem starfaði í lögreglunni sl. vetur. Hann segir tekjur margra lögreglumanna hafa lækkað veru- lega á ársgrundvelli. Þarna sé því um verulega fjárhagslega hags- muni að ræða fyrir marga lög- reglumenn. Enda sé svo komið að hjá allmörgum lögreglumannin- um sé búið að skera niður auka- vinnuna hjá honum um allt að 50%, eða úr rúmum 60 tímum á mánuði í um 30 tíma vegna fjár- skorts. Hann telur að ef ekki verður gripið í taumana þá sé allt eins víst að þetta ástand eigi eftir að versna enn frekar. I þessu sambandi bendir Oskar þó á að lögreglumenn séu í sjálfu sér ekki að sækjast eftir aukavinnu. Hann minnir hinsvegar á að samkvæmt lögum sé það skylda sérhvers lög- reglumanns að vinna þá auka- vánnu sem talin sé nauðsyn hveiju sinni þegar fjárhagur emb- ættanna leyfir. Komið að fótum fram Óskar segist persónulega vera á þeirri skoðun að lögreglustjóra- embættið í Reykjavík sé komið að fótum fram. Þegar saman fer fjár- skortur, færri menn og færri stundir til að sinna verkefnum, þá sé það nánast borðleggjandi að það hljóti að koma niður á þeirri þjónustu sem lögreglan veiti íbú- um höfuðborgarinnar. Sem dæmi um þann veruleika sem lögreglu- menn lifa og hrærast í í sfnu starfi bendir Óskar m.a. á að um síðustu helgi var t.d. ráðist á lög- reglumenn þar sem þeir voru að sinna sínum skyldustörfum á veitingastað í borginni. Því miður sé það kannski að verða of al- gengt að það sé ráðist á lögreglu- menn með einhverjum hætti við skyldustörf. Enda sé mörgum lög- reglumönnum það ljóst að á flest- um sviðum sé heimur glæpa og afbrota að harðna frá því sem ver- ið hefur. Láglaunasvæði Hann segir að lögreglumenn geti unnið nánast hvaða vinnu sem sé. Innan þeirra raða sé að finna fólk sem sé með margvíslega menntun að baki, eða nánast allt lifrófið í bæði bóklegri og verk- legri menntun á ýmsum stigum. Þá séu lögreglumenn í heildina séð einna bestu sérfræðingarnir í mannlegum samskiptum sem völ sé á, enda sé obbinn af starfi lög- reglunnar sem snýst um mannleg samskipti á einn eða annan máta. Það breytir ekki þeirri heildar- mynd þótt dæmi séu um að lög- reglumönnum hafi orðið á mistök í þeim efnum. Þess utan þurfa at- vinnurekendur í sjálfu sér að kosta miklu til að geta boðið lög- reglumönnum betri kjör en þau sem þeir hafa hjá embættinu í Reykjavík. I því sambandi bendir hann á að fastakaup hjá mörgum lögreglumanninum sé um 95-130 þúsund krónur á mánuði. Á sama tíma sé fólk að fá allt að 150-200 þúsund krónur fyrir hin ólíkleg- ustu störf á vinnumarkaðnum. Hann gerir ráð fyrir að það geti verið allt að 30% af þeim 250 lög- reglumönnum sem starfa hjá embættinu í Reykja\’ík sem geta hugsað sér að skipta um starf ef annað og betra býðst. Ef eitthvað sé þá sé sú tala frekar í lægri kantinum af þeim sem telja sig knúna til að flýja það láglauna- svæði sem lögreglustjóraembætt- ið í borginni sé orðið. Hann segir að stjórn Lögreglufélagsins muni funda um framhald þessara nýj- ustu aðgerða í næstu viku. Þá sé búið að ræða þetta mál við Böðv- ar Bragason Iögreglustjóra auk þess sem félagið mun ræða málið við hann og þá trúlega á fundi í næstu viku. Þá sé ekki útilokað að stéttarfélagið muni setja sig í samband við borgarstjóra til að upplýsa borgina um stöðu þessa máls. Jafnframt hefur komið til tals að ræða málið einnig við dómsmálaráðherra. 30 milljóna króna samdráttur Böðvar Bragason lögreglustjóri í Reykjavík segir að fjárliagslegut rammi embættisins á yfirstand- andi ári séu uni 1437 milljónir króna. Hann segir að á fyrri hluta ársins hafi rekstur embættisins farið frarn úr því sem áætlað hafði verið. Það þýðir að það verður að draga saman í rekstrin- um á seinni hluta ársins. Sá sam- dráttur nemur um 2% af heildar- rekstrargjöldum ársins, eða sem nemur 30 milljónum króna. Þarna sé því verið að reyna að koma rekstrinum í það jafnvægi sem IJárhagsrammi embættisins setur starfsemi Iögreglunnar. Lögreglu- stjórinn segir að það sé rétt að það vanti lögreglumenn til starfa mið- að við það sem áður var og því knappt um mannskap á vöktun- um. I því sambandi bendír hann á að í fýrra hefði verið tekið upp svo- kallað fimm vakta kerfi í stað fjög- urra vakta kerfis. Eilífðarspuraing Lögreglustjórinn segir að það sé vissulega erfitt fyrir hvaða vinnu- stað sem í hlut á að missa frá sér reynda og hæfa starfsmenn. Það sé hinsvegar ekkert við því að segja ef menn kjósa að velja sér annan starfsvettvang. Aftur á móti segist lögreglustjóri ekki hafa fengið neinar uppsagnir frá lögreglu- mönnum inná sitt borð, hvað sem síðar kann að verða. Hann segir að skoðanir manna séu mjög skiptar um það hvað löggæslan þarf að vera mikil svo að allir séu ánægðir. Þetta sé nánast eilífðarspuming hversu fjölmenn Iögreglan eigi að vera á hverjum tíma og hvort hún eigi að geta sinnt öllu mögulegu sem fyrir hana ber, bæði stóru og smáu. Hinsvegar þarf lögreglan að forgangsraða verkefnum hverju sinni og svo sé gert. Lögreglustjóri telur aftur á móti að þrátt fyrir að- hald og samdrátt í rekstri, þá muni það ekki bitna á viðbúnaði lögregl- unnar gegn baráttunni gegn fíkni- efnum svo dæmi sé nefnt. Böðvar segist ekkert vilja segja til um það hvort þessi atvinnuauglýsing Lög- reglufélagsins komi til með að hafa neikvæð áhrif á ímynd lög- reglunnar í borginni. Hann segir að menn verði að fjalla faglega um það ástand sem fyrir sé í fjármál- um embættisins. I þeim efnum verða menn einfaldlega að skipast á skoðunum um það hvort það eigi að auka fjármagn til embættisins eða jafnvel minnka það. Sjálfum finnst honum það ekki verra og raunar nauðsynlegt að menn hafi áhuga og vilja til að ræða starfsemi lögreglunnar og hvernig hún eigi að líta út í framtíðinni og svo framvegis. Af starfsmöimuiii ís- lenska álfélagsins eru 7-8% langskólageng- in, en 63% verka- menn. Af rúmlega 510 starfsmönnum Islenska álfélagsins í apríl sl. voru alls 35 háskólamenntaðir, eða tæplega 7% starfsliðsins. Formaður félagsins „Afl fyrir Austurland", Einar Rafn Har- aldsson, sagði í Degi í síðustu viku: „Eg er sæmilega bjartsýnn um það að orkufrekan iðnað eða stóriðju verði að hafa á Reyðar- firði innan eigi langs tíma. Það er búið að draga okkur Austfirð- inga á asnaeyrunum í 20 ár, fyrst með kísilmálmverksmiðju og Bessastaðaárvirkjun. Þetta hef- ur m.a. valdið fólksflótta úr fjórðungnum enda hefur hér skort vel launuð störf fyrir Iang- skólagengið fólk.“ Þar sem fleiri Austfirðingar hafa að undan- förnu talað um álverksmiðju á Austurlandi sem uppsprettu starfa fyrir Iangskólagengna þótti Degi ástæða til að leita upplýsinga um hlut langskóla- genginna hjá ISAL, sem fram- leiddi 162.000 tonn af áli í fyrra. Verkamenn 63% starfsliðsins Hrannar Pétursson, blaðafull- trúi Islenska álfélagsins, hafði handbærar tölur frá því í lok aprfl í vor. Samanlagður starfs- mannafjöldi var þá um 510 manns: þ.a. 320 verkamenn, 19 verkstjórar (sem geta verið vél- fræðingar eða því um líkt), 18 almennir skrifstofumenn, 120 iðnaðarmenn, þ.a. rúmur helm- ingurinn vélvirkjar en líka marg- ir rafvirkjar, bifvélavirkjar, raf- Af rúmlega 510 starfsmönnum íslenska álfélagsins í apríl sl. voru alls 35 háskólamenntaðir, eða tæplega 7% starfsliðsins. eindavirkjar og úr fleiri iðngrein- um. Langskólagengnir voru 15 verkfræðingar og 20 aðrir há- skólamenntaðir fræðingar, m.a. véltæknifræðingar, viðskipta- fræðingar, tölvunarfræðingar og fleiri, eða samtals 35 manns, eða tæplega 7% af heildarfjölda sem fyrr segir. Hrannar tók fram að alltaf sé einhver smáhreyfing innan starfsliðsins. Þannig hafi há- skólamenntuðum t.d. ljölgað um 2-3 síðan í vor og færu því að nálgast fjóra tugi. Langskóla- gengnir gætu því verið um 7-8% stafsmannanna um þessar mundir. — HEI Langskólagengnir 7-8% í Straiunsvik Farsímaverja Farsímaverja dregur verulega úr áhrifum af útvarpsbylgjum við notkun far- síma. Fyrirbyggjandi vörn. Farsímaveija, sem nýlega kom á markað hér á landi, dregur veru- lega úr áhrifum af útvarpsbylgj- um við notkun farsíma. Þetta kemur fram í rannsókn á algeng- um farsímavörnum, sem fram- kvæmd var í Bretlandi nýverið. Með sífellt aukinni notkun farsíma hefur umræða um skað- leg áhrif þeirra á heilsu notenda farið vaxandi. Ekki hafa enn fengist óyggjandi sannanir fyrir því að geislun frá farsímum sé skaðleg þó margt bendi til þess. „Mér fannst vera full þörf á því að koma farsímaverjunni á markað hér á landi,“ segir Erling Bjarnason, framkvæmdastjóri Ný-Tækni, sem sér um inn- flutnig á farsímaverjunni. „Þó að engar beinar sannanir Iiggi fyrir um skaðsemi farsímanotkunar vitum við að gríðarlegt magn geisla fer inn í höfuðið á okkur við notkun farsíma og talsverður hópur af fólki kennir sér meins vegna mikillar notkunar. Far- símaverjan er þvf skynsamleg fyrirbyggjandi vörn.“ Handfrjáls liúnaður engin lausn Margir töldu að handfrjáls bún- aður væri svarið gegn útvarps- bylgjunum þvf þá er síminn hafður í beltisstað og höfuðið verður ekki fyrir eins mikilli geislun. Svo virðist hins vegar ekki vera því hugsanlegt er að útvarpsbylgjurnar hafi áhrif á þau líffæri sem næst eru og jafn- vel er talið að líkaminn dragi til sín meiri útvarpsbylgjur en höf- uðið. „Handfrjálsi búnaðurinn færir í rauninni bara vandamálið frá einum stað til annars,“ segir Erling. Farsímaverjan er svipuð venju- legri farsímatösku í útliti að und- anskildum loftnetsvaranum sem liggur meðfram loftneti símans. Taskan er gerð úr sérhönnuðu varnarefni úr nickel og polyester sem vafið er á ihilli leðurlaga hennar og ver þannig notandann fyrir útgeislun frá símanum sjálfum. Nú þegar eru fáanlegar hjá Ný-Tækni, farsímaverjur fyr- ir algengustu tegundir farsíma. - GÍS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.