Dagur - 11.09.1999, Side 4
Q \
M F N NIN G A R L ÍFÐ^
A rú
LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999
Hinn ungi Einstein
Það er ekkert
BOKA- áhlaupaverk að safna
HILLAN saman og gefa út allt
það sem snillingurinn
Albert Einstein skrif-
aði á langri ævi. Eftir
langvarandi deilur,
sem leiddu jafnvel til
málaferla, hóf þessi
heildarútgáfa þó
göngu sína árið
1987. Núna, tólf
árum síðar, er átt-
unda bindi ritsafns-
ins (Collected Papers of Albert Ein-
stein) nýkomið út. En mikið er aug-
Ijóslega enn eftir þar sem áætlað er að
bindin verði alls 25-30 talsins!
Þótt margt í þessari heildarútgáfu
sé nánast einvörðungu fyrir sérfræð-
inga sem hafa áhuga á fræðimennsku
Einsteins, er þarna einnig vikið ítar-
lega að einkamálum hans. Það var
einmitt deilan um það hvernig ætti að
meðhöndla bréf sem snertu einkalífið
sem dró þessa útgáfu svo mjög á lang-
inn. Atökin voru á miili vina Einsteins
og háskólabókaútgáfunnar í
Princeton. Arið 1982 náðist loks sam-
komulag sem leiddi til þess að farið
var að undirbúa útgáfuna á vegum há-
skólanna f Jerúsalem og Princeton -
nær þrjátfu árum eftir dauða hans.
Sálufélaginn
Fyrir almenna lesendur eru það fyrst og
fremst bréf og önnur skrif sem lýsa mannin-
um Einstein sem vakið hafa athygli í þessari
viðamiklu útgáfu. Þannig hafa verið birt Ijöl-
mörg bréf sem Einstein skrifaði Milevu
Maric, sem varð eiginkona hans og barns-
móðir - en foreldrar hans voru hatrammlega
andvíg því sambandi. Einnig bréfaskipti hans
við aðrar konur, en þetta fyrsta hjónaband
endaði með skilnaði.
Albert Einstein fæddist 14. mars árið 1879
í Ulm í Þýskalandi, en ólst upp í Munchen.
Foreldrar hans áttu í fjárhagsbasli og fluttu
til Milanó á Italíu þegar Albert var 15 ára.
aði hann hjá hverjum háskólanum á
fætur öðrum - í Zurich, Prag og loks í
Berlín þar sem hann var skipaður for-
stöðumaður eðlisfræðistofnunar árið
1913. Þegar Hitler komst til valda
árið 1933 ákvað Einstein að fara úr
landi og setjast að í Bandaríkjunum.
Honum var tekið opnum örmum í
Princeton þar sem hann starfaði upp
frá því til dauðadags, 18. apríl árið
1955.
Einkabréfin vekja athygli
I heildarútgáfunni miklu eru allir
pappírar Einsteins - svo sem ritgerð-
ir, minnisblöð, fyrirlestrar, bréf
o.s.frv. - birtir á frummálinu, með ít-
arlegum skýringum. Fyrstu átta
bindin ná fram á árið 1918 - en það
þýðir að flest verkin eru á þýsku.
Þau hafa hins vegar einnig verið
þýdd á ensku og fylgja þannig með í
sérstökum aukabindum.
Fræðirit Einsteins koma að sjálf-
sögðu ekki á óvart - þau hafa verið
hluti af sögu eðlisfræðinnar mestan
hluta aldarinnar. Það felst hins veg-
ar margt nýtt um manninn Einstein
í þeim bréfum sem birt eru í heildar-
safninu, enda mörg þeirra að koma á
þrykk í fyrsta sinn. Sérstaklega á
þetta við um samskipti hans við kon-
Þannig var til dæmis vitað að Einstein
átti tvo drengi með fyrri konu sinni. Hins
vegar kom það fyrst fram í einu þessara átta
binda að hann átti dóttur með henni í
lausaleik. Ekki er vitað hvað varð um dótt-
urina.
Þeir sem kynnt hafa sér þessi bréf segja
þau sýna ungan mann sem Iifði fyrir eðlis-
fræðina og var staðráðinn í að slá í gegn í
þeirri grein hvað sem það kostaði, en sem
jafnframt var reiður og sár vegna þess að
hann hlaut engan skilning hjá þeim sem
réðu ferðinni í fræðunum; árum saman
rakst þessi snillingur alls staðar á veggi
þröngsýni og stöðnunar.
Albert Einstein á efri árum - ungur rakst hann á veggi þröngsýni og
stöðnunar.
Þar dvaldi hann í eitt ár, en fór síðan í skóla
í Sviss, fyrst í Arrau en seinna í Zurich. Hann
var hins vegar lítið fyrir skólanámið, en not-
aði tímann til að lesa sér til í eðlisfræði og
leika á fiðlu. Þegar hann lauk háskólaprófi
árið 1900 fékk hann hvergi fasta stöðu. Hann
var stundakennari í tvö ár, en fékk svo starf
árið 1902 hjá einkaleyfaskrifstofu í Bern. Ári
síðar kvæntist hann Milevu, en hún hafði um
árabil verið helsti sálufélagi hans m.a. vegna
brennandi áhuga síns á eðlisfræði.
Einstein lauk doktorsvörn við Zurich-há-
skólann árið 1905, en birti jafnframt þrjár
vísindaritgerðir sem skíptu sköpum fyrir eðl-
isfræðina. Þær niðurstöður voru árangur af
tíu ára rannsóknum hans og vöktu þegar at-
hygli annarra fræðimanna. Næstu árin starf-
Sálarangist sála
Mafíósum er ekkert heilagt. Þegar þá vantar sáifræðiaðstoð skiptir brúðkaup sál-
fræðingsins þá engu máli.
★ ★ i
Anaiyze This
Leikstjóri:
Harold Ramis.
Handrit: Ken
Lonergan og
Peter Tolan.
Aðalleikarar:
Robert De
Niro, Billy
Crystal, Lisa
Kudrow, Joe
Viterelli og
Kyle Sabihy.
Hvað gerir mafíósi sem fær
taugaáfall og getur ekki unnið
vinnuna sína lengur. Hann getur
ekki refsað þeim sem eru óþægir
og gagnast ekki hjákonu sinni?
Jú, auðvitað það sem allir aðrir
gera þegar svoleiðis stendur á.
Hann leitar til sálfræðings. En ef
að sálfræðingurinn er á leið í frí
hvað þá? Hann fer á eftir honum
og Iætur menn sína sækja sál-
fræðinginn.
Þannig er ástandið í myndinni
Analyze This sem gæti heitið
„Sálarraunir sála“ ef Sambíóin
myndu íslenska heiti bíómynda
sinna. Sálfræðingurinn Ben So-
bol (Billy Crystal) er orðinn
hundleiður á heimsóknum ófull-
nægðra húsmæðra og langar
helst til þess að öskra á þær þeg-
ar þær koma og væla yfir vanda-
málum sínum í sófanum hjá
honum. Hann er fráskilinn og
býr með ungum syni sínum. Þeg-
8fn hðttií'cr-fl leíðmni t4l—Ffonda
til þess að kvænast sjónvarpsþul-
unni (Lisa Kudrow) fær hann
mafíósann í heimsókn. Kómedí-.
an gengur út á misheppnaða ill-
mennsku mafíósans og það hversu
sálfræðingurinn er í rauninni
misheppnaður. Hann er aumk-
unarverður greyið. Mafíósinn
Paul Viti (Robert De Niro) er í
bullandi valdabaráttu innan
samtakanna. Hann er höfuð fjöl-
skyldu sinnar. Fjölskyldurnar
fjórtán sem stjórna samtökunum
ætla að halda fund til þess að út-
nefna foringja. En slíkur fundur
með öllum toppmafíósum
Bandaríkjanna hefur eldu verið
fnrldinn síðan árið 1"956 þegar al-
ríkislögreglan gerði innrás á slík-
an fund. Löggan er að snuðra
upp fundarstað maflósanna. Sál-
fræðingurinn lendir á milli tveggja
elda þegar hann þarf að hafa
samskipti við mafíuna og lögregl-
una.
Myndin líður eiginlega fyrir
það hversu keimlík hún er mörg-
um öðrum bíómyndum. Enn
einu sinn er verið að tyggja sömu
skósólana. Robert De Niro hef-
ur Ieikið í mörgum mafíumynd-
um og þeirra frægust er kannski
sjálfur Guðfaðirinn þó hlutverk
hans hafi ekki verið burðarmikið
þar. Það er vitnað í margar þess-
ara mynda, meðal annars er
reynt að endurgera atriðið þar
sem Don Corleone var særður til
ólífis. Aumingja Fredo. Hann fer
mjög vel með hlutverk sem hann
hefur leikið oft áður. Billy Criys-
tal var skemmtilega aumkunar-
verður í hlutverki sálfræðingsins.
Söguþráðurinn er frekar tæt-
ingslegur enda er byggt uppá
„slappstikk“ húmor. Aumingja
mafíósinn getur ekki drepið þó
hann þurfi að bjarga lífi sínu,
þess vegna þarf aðstoðarmaður
hans að grípa inní. Mönnum er
hent útum giugga eða eru bitnir
í rassinn af hákörlum. Það eru
nokkrir sálfræðibrandarar sem
vart er hægt að gefa meira en
fimm aura fyrir. Freud gamli fær
sinn skerf. Það er gert grín að
Ödipusarduldinni. Þeirri frægu
„nevrósu“ sem heitir eftir Grikkj-
anum sem drap föður sinn og
giftist móður sinni.
f bíómyndinni eru nokkrar
aukasögur sem hálfpartinn gufa
upp. Eins og samskipti sálfræð-
ingsins við föður sinn. Eins og í
texta þeirra Stuðmanna um
Svarta Pétur þá sigraði réttlætið
að lokum og farsinn endar eins
og farsa er siður. Hollywood ger-
ir útá fjölda og múgmenningu,
engin áhætta er tekin. Það er
helsti galli myndarinnar hversu
kraftlaus hún er. Þó er oft hægt
að brosa yfir henni og hlægja og
það er öllum hollt að gera það
stöku sinnum.
KVIK-
MYNDIR
Ð^vr
■bokalifið
Smásögur Hammetts
Dashiell Hammett olli straum-
hvörfum í ritun bandarískra
spennusagna með bókum sín-
um um einka-
spæjarann Sam
Spade (m.a. þá
frægu sögu The
Maltese Falcon)
og um „The
C o n t i n e n t a I
Op“ (s.s. Red
Harvest og The Dashiell
Dain Curse). Hammett:
Þetta voru „Nightmare
harðsoðnar og Town.“
raunsæjar saka-
málasögur - að
flestu Ieyti mjög ólíkar að allri
gerð þeirri ensku hefð glæpa-
sagna sem áður var vinsæl - og
er reyndar enn.
Hammett skrifaði mikið af
smásögum svipaðs eðlis, en
þær hafa ekki verið á almenn-
um markaði. Nú er búið að
bæta úr því. í nýrri bók sem
heitir „Nightmare Town“ (út-
gefandi Alfred A. Knopf) hefur
verið safnað tuttugu smásög-
um sem gerast í þeirri dimmu
veröld sem lesendur skáld-
sagna Hammetts kannast svo
vel við.
Þjóðskáld látið
Arabísk nútímaskáld eru Iítt
kunn hér á landi. Eitt þeirra,
Abdullah al-Baradouni, sem
var eitt helsta þjóðskáld Jem-
ena, andaðist á dögunum, 70
ára að aldri.
Al-Baradouni var vel þekktur
í arabaheiminum bæði fyrir
ljóð sín og afskipti af stjóm-
málum. Hann missti sjónina
aðeins sex ára að aldri. Það
aftraði honum hins vegar
hvorki frá námi né starfi.
Hann gekk menntaveginn og
gerðist síðan kennari í arabísk-
um bókmenntum og stjórn-
málasögu. A sjötta, sjöunda og
áttunda áratugnum lenti hann
nokkrum sinnum í fangelsi fyr-
ir ljóð sín sem fólu í sér gagn-
rýni á einræðissinnaða ráða-
menn. Hann barðist fyrir lýð-
ræði og réttindum kvenna, og
hlaut fyrir dauðahótanir bók-
stafstrúarmanna. Eftir hann
liggja 12 ljóðabækur og 6 rit
um stjórnmál, bókmenntir og
jemenska þjóðfræði.
Breytenbach
kominn heim
Suðurafríski rit-
höfundurinn
Breyten Breyten-
bach hefur aldrei
farið troðnar slóð-
ir. Hann fæddist
inn í yfirstétt
hinna hvítu en
lagði kúgaða
minnihlutanum
lið. Sat í fangelsi
og fór í útlegð til
Parísar. Idann hef-
ur skrifað margar bækur sem
byggja á eigin reynslu - „A Sea-
son in Hell“ lýsir þannig heim-
sókn hans til Suður-Afríku árið
1973 en „Confessions of an Al-
bino Terrorist“ er frásögn af
þeim sjö árum sem Breyten-
bach sat í fangelsi sakaður um
njósnir fyrir afríska þjóðarráð-
ið. Nú er hann snúinn heim til
föðurlandsins og hefur ritað
enn eina bókina. „Dog Heart“
nefnist hún og segir frá lífi
hans í Suður-Afríku eftir að
lýðræði var komið á og Nelson
Mandela fluttur úr fangelsi i
forsetahöll. Að venju er Breyt-
enbach upptekinn af sjálfum
sér og hvass í dómum, en hann
er sem fyrr nánast að skrifa
með eigin blóði; það sem hann
fjallar um hefur hann reynt á
sjálfum sér.