Dagur - 21.12.1999, Blaðsíða 10
10 -ÞRIOJUD AGV R 21. DESEMBER 199S
rD^ftr
SMA AUGLÝSING AR
Happdrætti Bókatíðinda
Vinningsnúmer í happdrætti Bókatíðinda
21. desember er 4.327.
Ökukennsla_________________________
Kenni á nýjan Mercedes Benz A-class
(litla Benzinn).
Útvega öll náms- og prófgögn. Kenni allan
daginn, á kvöldin og um helgar.
Anna Krístín Hansdóttir, ökukennari,
Þingvallastræti 18,
heimasími 462-3837,
GSM 893-3440.
Húnæði óskast
Ibúð óskast á Akureyri eða nágrenni.
Upplýsingar í sima 464 4490.
Óska eftir að taka á leigu íbúð í
miðbænum. Upplýsingar í síma 862 2856.
Kirkjustarf________________________
Glerárkirkja
Kyrrðar og tilbeðslustund í dag þriðjudag
kl. 18.10. Á miðvikudag hádegissamvera
kl. 12-13, orgelleikur, helgistund og léttur
hádegisverður á vaegu verði.
VIÐ ERUM MIÐSVÆÐIS
MELVEGUR 17 • HVAMMSTANGA
SÍMI 451 2617 • FAX 451 2890
www.visir.is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
afi og bróðir,
ÁRNI VALDIMAR SIGURJÓNSSON
Leifshúsum,
Svalbarðsströnd,
lést fimmtudaginn 16. desember sl. Jarðsett verður frá
Svalbarðskirkju miðvikudaginn 22. desember kl.14.00
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem
vilja minnast hans, er bent á Lyflækningadeild FSA eða
Styrtarfélag krabbameinssjúkra barna.
Þóranna Björgvinsdóttir,
Björgvin Árnason,
Arnar Sigurjón Árnason,
Anna Kristín Árnadóttir,
Arndís Ósk Arnarsdóttir,
Ásta Sigurjónsdóttir
Frumsýning á íslandi
Halti Billi frá Miðey
eftir Martin McDonagh
Leikstjóri Hallmar Sigurðsson
Mánudaginn 27. desember kl. 20:30
Þriðjudaginn 28. desember kl. 20:30
Miðasala í síma 462 1129
nniramvl
D I G I T A L
Thx
SÍMI 461 4666
- Sýnd kl. 23:15
kl. 16:50
m/ísl.tali
■ HVAfl ER Á SEYÐI?
UPPLESTUR í KVERINU
ÞÆTTIR VERU FRÁ TUNGU
SKRIFARl: KRISTIN BJARNADÓTTIR
Kristín Bjarnadóttir, höfundur ljóðsögunnar Því að þitt er landslag-
ið: Þættir Veru frá Tungu (Uglur og ormar 1999), mun lesa úr bók
sinni í Kaffi Kverinu í Bókvali á Akureyri á miðvikudagskvöld ld.
20.00.
„Bókin er full af fallegum og eftirminnilegum myndum, og ein-
kennist af frumlegu myndmáli..." voru orð Úlfhildar Dagsdóttur í
Víðsjá. Og í Morgunblaðið skrifaði Skafti Þ. Halldórsson: „Þetta er
áleitin og metnaðarfull bók og enn einn vitnisburðurinn um gerjun
ljóðforms og efnis.“. Hann kvað það vert íhugunarefni hve skáld-
konur samtímans rækta vel hefðina, sækja föng í þjóðsögur, Eddu-
kveðskap, danskvæði og þulur, og „Kristín rær á slík mið“. Kristín,
sem hefur lengi búið erlendis, hefur fengist við textagerð og þýð-
ingar á undanförnum áratugum og hefur áður sent frá sér bæði ör-
verk og einþáttunga, en fyrsta bók hennar var viðtalsbókin Reyndu
það bara, rætt við sjö konur (Bríet 1985).
Oftar en einu sinni hefur Kristín setið við ritstörf í Davíðshúsi á Ak-
ureyri á undarförnum árum.
LANDIÐ
Jóladansleikur í Arskógi
Eins og undanfarin ár verður
haldinn dansleikur í Árskógi á
annan í jólum. Gömlu og nýju
dansarnir verða dansaðir og Jó-
hann Daníelsson stjómar marsi.
Kór kirkjunnar syngur nokkur
létt jólalög undir stjórn Arnórs
Vilbergssonar. Pálmi Stefánsson
spilar fyrir dansinum og hefst
samkoman kl. 22.00.
Bikarkeppni Bridgesambands
Norðulands vestra
Dregið hefur verið í fyrstu um-
ferð bikarkeppni Bridgesam-
bands Norðurlands vestra. 13
sveitir skráðu sig til keppni,
mögulegt er að bæta við í 3
sveitir ef skráð er strax. Skrán-
ing er hjá Jóni Sigurbjörnssyni
í síma 467-2188 og 467-1389.
Sveitir sem spila saman í fyrstu
umferð:
Björn Ólafsson Siglufirði -
Suðurleiðir Skagafirði,
Ingibergur Guðmundsson
Skagaströnd - Guðni Kristjáns-
son Skagafirði,
Guðmundur H. Sigurðsson
Hvammstanga - Gunnar Þórð-
arson Skagafirði,
3 Grönd og Toni Siglufirði
íslandsbanki Siglufirði,
Neta og veiðarfæragerðin
Siglufirði - Karólina Sigurjóns-
dóttir Siglufirði,
Yfirseta 1
Stefán Berndsen Blönduósi
Yfirseta 2
Eyjólfur Sigurðsson Skagafirði
Yfirseta 3
Benedikt Siguijónsdóttir Siglu-
firði
Leikjum skal lokið fyrir 23.
janúar.
■ frá degi
ÞRIÐJUDAGURINN 21. DESEMBER
355. dagur ársins, 10 dagar eftir
Sólris kl. 10.14 og sólarlag kl. 16.12
Þau fæddust 21. desember
• 1639 fæddist franska skáldið Jean
Baptiste Racine.
• 1879 fæddist rússneski byltingarfor-
inginn Jósef Stalín.
• 1894 fæddist Benedikt Gíslason frá
Hofteigi.
• 1904 fæddist Þorsteinn Ö. Stephens-
sen Ieikari.
• 1929 fæddist Örlygur Hálfdánarsson
bókaútgefandi.
• 1932 fæddist Hringur Jóhannesson
listmálari.
• 1937 fæddist bandaríska leikkonan
Jane Fonda.
• 1959 fæddist bandaríska fijálsíþrótta-
hetjan Florence Griffith Joyner.
TIL DAGS
Þetta gerðist 21. desember
• 1965 komst lagið Turn, turn, turn
með The Byrds á topp Bilboard-vin-
sældarlistann.
• 1968 var geimfarinu Apollo 8 skotið
frá Kanaveralhöfða í Florída, fyrsta
mannaða geimafarinu sem fór á spor-
braut um tunglið.
• 1975 gerði skæruliðinn lllich Ramirez
Sanches, betur þekktur undir nafninu
Carlos, árás á höfuðstöðvar OPEC,
samtaka olíusöluríkja í Vínarborg.
• 1988 hrapaði farþegaþota Pan Am
flugfélagsins ofan á skoska þorpið
Lockerbie. Talið er að hún hafi verið
sprengd í loft upp. 270 manns létust.
Vísa dagsins
Bólu-Hjálmar heyrði eitt sinn lát ríkis-
manns nokkurs, en sá hafði verið harðbýll
og miskunarlítill og orti þá þessa vísu.
Dó þar einn úr drengja flokk,
dagsverk hafði unnið,
lengi á sálar svikinn rokk
syndatogann spunnið.
Afmælisbam dagsius
Bandarríski gítarleikarinn Frank
Vincent Zappa fæddist þann 21.
desember árið 1940 í Baltimore.
Þegar hann var tíu ára flutti fjöl-
skyldan til Kalifomíu. A 7. áratugn-
um stofnaði hann hljómsveitina
Mothers of Invention, og gáfu mæð-
urnar út sína fyrstu plötu árið 1967.
Hann var annaláður bindindismað-
ur, þekktur iyrir vinnusemi og gaf út
um 70 hljómplötur á ferlinum. I
textum sínum réðist hann gjarnan
gegn hræsni. Frank Zappa lést þann
4. desember árið 1993 úr krabba-
meini í blöðruhálskirtli.
„Samvinna er ekki tilfinngasemi, hún er
hagfræðileg nauðsyn."
K. Steinmetz
Heilabrot
Hvar í heiminum er alltaf hægt að finna
frið, frelsi, jafnrétti og bræðralag?
Svar við síðustu heilabrotum:
Sá hreini hélt að hann væri jafn óhreinn og
hinn og sá óhreini hélt hann væri jafn
hreinn og hinn.
Veffang dagsius
Á vefnum má finna allskonar föndurhug-
myndir í tilefni jólanna. Það má til að
mynda skoða:
http://www.isholf.is/arndisk/fondur.htm