Dagur - 12.02.2000, Blaðsíða 3
VfVptr
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
19
Margir hneykslaðir
Hvað skyldi foreldrum finn-
ast um farsímaæðið? Hjálm-
fríður Bragadóttir gaf 1Ö ára
dóttur sinni farsíma í jóla-
gjöf. Hún segir: „Fyrst þeg-
ar dóttir mín minntist á far-
síma fannst mér það eigin-
lega út f hött en svo fór ég
að hugsa málið betur. Hún
er farin að fara út um allt,
niður í Kringlu og til vin-
kvenna sinna og mér finnst
þægilegt að geta náð sam-
bandi við hana. Hún fer
ekki með sfmann í skólann
eða á íþróttaæfingar. Bara ef
hún fer eitthvað lengra. En
það voru margir voða
hneykslaðir á mér. Flestar
vinkonur dóttur minnar
hafa þó aðgang að símum
foreldra sinna og mér fannst
gáfulegra að leyfa henni að
eiga ódýran sfma sem hún
rekur sjálf. „
- Borgar hún afhonum?
„Já, hún verður að taka af
sfnum vasapcningum fyrir
símanum til að hún geri sér
grein fyrir eyðslunni. Það
fylgdi símanum einhver
1500 kall og hann er að
verða búinn núna. Eg keyp-
ti símann á 3.900 hjá Tal og
átti sjálf GSM frelsi svo hún
verður að kaupa kort. Mér
finnst 500 kr. kortin hæfi-
leg. En hún notar símann
ekki mikið, það var mest
fyrst. Eg hef trú á að þetta
verði eins og hjá okkur full-
orðna fólkinu. Mikið sport í
upphafi og svo eru símarnir
frekar til ama.“
apparat sem fæstir telja sig
geta án verið „í nútíma þjóðfé-
lagi“. Karlmenn, konur og ekki
síst unglingar hafa tekið
gemsann í þjónustu sína og
það svo um munar. Við hittum
nokkra níundu bekkinga í
Öldulsesskóla og spurðum:
Það fer víst ekki framhjá nein-
um að farsíminn er vinsælt
- Eigið þið farsúna?
„Já,“ kvað við úr flestum áttum, eitt og
eitt lágróma „nei“ heyrðist þó Iíka.
„I okkar bekk eru bara sjö af tuttugu
og átta sem ekki eiga síma,“ upplýsti ein-
hver.
- Ilvernig líður þessum sjö?
„Eg er einn þeirra og finnst það fúlt“
„Pabbi bannar að ég fái síma.“
„Eg vil ekki síma.“
- Af hverju ekki
„Bara, til að vera ekki eins og hinir."
„En það er samt miklu betra að eiga
síma."
„Maður verður samt dálítið háður hon-
um.“
Fyrir nokkrum árum voru það einkum læknar, lögregluþjónar og sjúkraflutningamenn sem báru farsíma. Nú eru flestir
komnir með GSM sima og vinsælastir eru þeir hjá unglingunum. Þessir hressu krakkar i Ölduselsskóla voru að
minnsta kosti ánægðir með símana sína. mynd: e.ól.
Marta Ewa Bartoszek „Ég vil ekki síma afþví allir eru með
þá. Mér finnst miklu flottara að vera símalaus“
Nýársgjöf
- Hvernig eignuðust þið símana?
„Ég fékk minn í nýársgjöf."
„Keypt’ann11
„Bróðir minn gaf mér sinn því
hann var að flytja til útlanda og
gat ekki tekið hann með sér.“
„Vá, ein heppin."
- Er sama hvaða sort er afþess-
um símum?
„Nei, flestir eru með Nokia.“
- Af hverju Nokia?
„Bara, þeir eru vinsælastir.
Nokia byrjuðu með leikina og
svo er hægt að skipta um fronta
og svoleiðis."
- Eru þeir ekki dýrastir líka?
„Nei, ekkert endilega."
- Hvað kosta meðal st'mar?
„Svona tíu þúsund kall.“
- Hvað eru stmareikningarnir
ykkar háir?
„Það eru flestir með „frelsi"
sem er þannig að við borgum
bara vissa upphæð fyrirfram og
svo þegar hún er búin þá lokast
síminn."
- Hvað er algengast að talafyr-
ir mikið á mánuði?
„Ætli það sé ekki 2-5 þús-
und?“
- Eigið þið þá peninga sjálf?
„Nei, foreldrar okkar borga það yfir-
leitt.“
„Eg borga minn síma sjálfur."
- Vitinurðu þér inn peninga til þess?
„Já, með því að passa fyrir mömmu.“
- Týnið þið aldrei sttnunutn?
„Jú, ég hef oft týnt mínurn en alltaf
fundið hann aftur.“
„Mínum var stolið um daginn. Hann
var tekinn úr tösku í íþróttahúsinu í
Garði þegar ég var að keppa þar í körfu.
Hann hefur ekki fundist en málið er í
rannsókn."
Gerðir upptækir
við þriðja brot
- Eruð þið tneð símana t skólanum?
„Já, bara ckki kveikt á þeim í tímum.“
„Það er sko bannað.“
„Þeir geta verið teknir af okkur."
„Jafnvel gerðir upptækir og ekki af-
hentir aftur fyrr en í lok skólaárs."
„Það er reyndar ekki fyrr en við þriðja
brot.“
„Við megum vera með þá á göngun-
„Ég skil minn oftast eftir heima þegar
ég fer í skólann."
- En er einhver melingur t gangi „Eg á
It'ka betri st'ma en þúú..“ eða eitthvað svo-
leiðis?
„Já, já, að sjálfsögðu.'1
„Ég á til dæmis miklu betri síma en
Steini.“
- Ertu búinn að láta hann vita af þvt'?
„Já, ég hef aðeins ymprað á því við
hann.“
„Hans er ekkert betri. Það er bara
kjaftæði."
„Sko, nýjasti síminn er yfirleitt alltaf
flottastur."
„Já, einn er kannski með flottasta sfm-
ann í dag en svo er kominn enn annar
fullkomnari á morgun.“
„Þannig að allir eru með flottasta sím-
ann einhvern tíma.“
- Þora menn að láta sjá sig með hall-
ærislega síma?
■Já, já.“
- Hvað kostaði þessi?
„Hann kostaði tuttugu þúsund kall fyr-
• £ • ((
ir ari.
„Og kostar níu þúsund núna.“
„Þetta er bara drasl.“
Rannveig Jónsdóttir „Mamma vill að ég hafi síma því henni
finnst ég öruggar/ þannig"
Andri Björn Úlfarsson „Ég borga af mínum síma sjálfur og vinn
fyrir reikningnum með því að passa fyrir mömmu“
- Skammastu þtn hálfgert fyrir hann?
„Nei, nei, ég fæ mér bráðum nýjan.
„Maður veröur helst að fá sér nýjan á
hverju ári.“
- Er nokkurn ttma slegist út af stmum?
„Nei, rígurinn gengur ekki svo langt."
- Hvað er sniðugast við gemsana?
„SMSið, að geta sent SMS skilaboð
inn á aðra síma. Það er flottast."
„En það fer líka mestur peningurinn í
það.“ ; . i t‘//l í > . .
„Sumir eru með símann í
vasanum og bara hljóðnema í
eyranu og tala svo og tala.
Maður heldur stundum að
þeir séu að tala við sjálfa sig.“
„Það eru ekta bílasímar því
það þarf ekki að halda á þeim
meðan talað er í þá.“
- Nú ná foreldrar ykkar
alltafi ykkur. Finnst ykkur það
t góðu lagi?
„Ekki kannski ef við erum
eitthvað að laumast."
„Uss, við skellum bara á
þau.“
„Við sjáum sko á númera-
birtinum hver er að hringja.“
„Samt finnst þeim öruggara
að hafa okkur með síma.“
„Við getum þá alltaf hringt
ef við þurfum á hjálp að
halda.“
- Eru áttundu bekkingar
eins sttnavæddir og þið nt'undu
bekkingar?
„Já, já, krakkarnir í sjöunda
bekk eru mörg hver með síma,
jafnvel sjötta bekk.“
Nú er Einar ljósmyndari
kominn og biður unga fólkið
að stilla sér upp. Það er auð-
sótt mál og allir simar eru komnir á loft
en hvað gerist? Dinga linga ling... hring-
ir ekki gamli rauði gemsinn hjá Einari
Ijósmyndara. Hann verður að biðja hóp-
inn að bíða meðan hann svarar kallinu
og tekur við afar áríðandi skilaboðum.
Segið þið svo að farsímar séu ekki
þarfaþing!
GUN.