Dagur - 12.02.2000, Page 8

Dagur - 12.02.2000, Page 8
 LÍFIÐ í LANDINU S LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 Maður verður skelfingu lostinn. Ég get ímyndað mér að það sé algengt vegna þess að maður heldur að óreyndu að það sé ekki mikið vitað um krabbamein og meðferðin sé mest í formi tiirauna. í höndum lækna og hjúkrunarfólks kemst maður sro að því að þekking þeirra er mikil og maður finnur sig fljótlega í öruggum höndum, “ segir Árni Ragnar Árnason, þingmaður Suðurnesja. Lítið hefur boríð á Áma Ragnari Ámasyni á þingi síðustu misseri enda kannski eðli- legt, hann hefur þurft að kljást tvisvar sinnum við krabbamein frá árínu 1995. Rannsóknir sýna að batahorfur hans em góðar og hefur hann samþykkt viðtal við Dag um sjúkdóminn og póli- tíkina. „Þessi sjúkdómur er eins og fal- inn eldur, hann getur kviknað aft- ur hvenær sem er. Þess vegna er ég í stöðugu eftirliti," segir Ami Ragnar Arnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sem hefur gengið í gegnum erfiða lífsreynslu síðustu ár. A skömmum tíma hef- ur hann greinst tvisvar sinnum með krabbamein og' tvisvar geng- er orðinn fær í allan sjó ist undir uppskurð og stranga lyfjameðferð. Síðari aðgerðin var mikil og meðferðin eftir því, og hann einangraði sig frá vinnu í samræmi við ábendingar lækna og einbeitti sér að því að sigrast á sjúkdómnum en er nú nánast kominn með sitt fyrra þrek og bú- inn að hella sér út í pólitíkina að nýju. Segja má að Arni sé lítt þekktur á landsvísu þó að hann hafi fyrst verið kjörinn á þing fyrir níu árum. Hann er þingmaður Suð- urnesja og hefur beitt sér íyrir framfaramálum þeirra, svo sem tvöföldun Reykjanesbrautar. Hann hefur sérstaklega unnið að sjávarútvegsmálum að utanríkis- málum ógleymdum og var vara- formaður sjávarútvegsnefndar AI- þingis á síðasta kjörtímabili. Hann er fæddur og uppalinn á Isafirði, bjó síðan í Keflavík fram til 1995 að hann flutti í Kópavog- inn. Hann hefur nánast alla sína ævi búið í byggðarlögum sem hafa lifað af gæðum sjávar. „Öll mín tengsl við lifandi efnahagslíf hafa verið í gegnum sjávarútveg- inn,“ segir hann. Haustið 1995 veiktist Árni Ragnar illa þegar krabbamein greindist í ristli eftir langan að- draganda. „Eg held að einkennin hafi veríð álitiy .á^gseinþViíni, þeim sem ég leitaði til. Það var viðkvæðið hjá læknum að ég skyldi fara mér hægar og draga úr álaginu, en svo þurfti ekki nema smávægilega athugun til að leiða í ljós hvað var að. Órskömmu síð- ar var krabbameinið komið á hátt stig,“ segir Árni Ragnar. Hann gekkst undir aðgerð í lok nóvem- ber og var hluti ristilsins fjarlægð- ur. Læknarnir töldu sig hafa kom- ist fyrir meinið en ákváðu lyfja- meðferð allt árið 1996. Að með- ferð lokinni var útlitið gott. í framhaldi af þessu hefur hann ásamt starfinu unnið með yfir- Iækni sjúkrahússins að fjáröflun fyrir rannsóknabúnaði sem mun gera kleift að greina slík krabba- mein á frumstigum, jafhvel hefja krabbameinsleit á þessu sviði. En tveimur árum síðar dundi reið- arslagið aftur yfir. Krabbamein greindist á ný. „Þetta þýddi nýja aðgerð. Ég var skorinn upp rétt eftir kosning- ar í fyrravor. Það var mikil skurð- aðgerð, ristillinn var nánast allur tekinn og hluti af lifur. I aðgerð- inni fundust mein á bak við líf- færin sem ekki var hægt að taka og voru því síðar brennd með geislum. Strax efitir skurðaðgerð- ina hófst ströng lyfjameðferð. Hún var nánast eins og í fyrra „ffiiPfl-.l’ettari. Lyfja- meðferð og geislameðferð sam- tímis var lokið á hálfu ári. Tökin voru því greinilega miklu harðari og af því dró ég þá ályktun að læknarnir teldu ástæðu til rót- tækra aðgerða og ég hegðaði mér í samræmi við það,“ segir hann. Maður verður skelfingu lostinn Tilfinningalegt áfall hlýtur að vera gífurlegt þegar krabbamein greinist og Árni Ragnar segir að fýrstu viðbrögð séu sennilega þau sömu hjá flestum. ;,Maður verður skelfingu lostinn. Ég get ímyndað mér að það sé algengt vegna þess að maður heldur að óreyndu að það sé ekki mikið vitað um krabbamein og meðferðin sé mest í formi tilrauna. I höndum Iækna og hjúkrunarfólks kemst maður svo að því að þekking þeirra er mikil og maður finnur sig fljót- Iega í öruggum höndum. Við þessa vissu er auðveldara að vera jákvæður og vinna sjálfur að bata. Ég er sannfærður um að þetta skiptir mildu máli,“ segir hann. Veikindin voru hrikalegt áfall fyrir fjölskylduna og jafnvel erfið- ari fyrir hana en hann sjálfan, sérstaklega meðan það versta gekk yfir. „Þegar kom að skurðað- gerð í bæði skiptin var ég orðitjn nokkuð veikur, veikari að vísu í lýrra skiptið en seinni skurðað- gerðin var gríðarlega viðamikil og eftirköstin tóku nokkrar vikur.“ Við veikindin kveðst Árni Ragnar hafa skoðað allt sitt umhverfi í nýju Ijósi og forgangsröðin hafi óneitanlega breyst. Heilsan fór að skipta hann meira máli en áður. „Ég reyni að gæta mín meira en áður og vera vakandi fýrir þeim sem eru mér næstir. Þeir verða náttúrulega fyrir mesta álaginu af þessu,“ segir hann. Að tjá samúð Þjóðfélagið er ekki laust við for- dóma þegar krabhamein er ann- ars vegar en þeir fara mjög hverf- andi með aukinni þekkingu. „Það er ennþá nokkuð af fólki sem veit ekki hve milda þekkingu hcil- hrigðisstéttirnar búa við vegna þess að það hefur ekki þurft á því að halda. Ég varð þess áskynja að margt fólk kann ekki að taka á djúpstæðum tilfinningalegum viðfangsefnum. Eftir að stórfjöl- skyldurnar hurfu eru vandamálin leyst inni á stofnunum. Áður voru þau Ieyst inni á fjölmennum heimilum með þrjár, jafnvel fjórar kynslóðir. Núna eru tvær kynslóð- ir inni á hverju heimili og sú þriðja kemur stundum í heim- sókn. Heimilin annast ekki svona iftár. Pað 'gfefá stöfriáiiifnár.“ •"■

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.