Dagur - 12.02.2000, Blaðsíða 16
32 - LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
Thyptr
Fluguveiðar að vetri (154)
Garðar, hvað er í vestinu?
Hvenær er nóg dót í vest-
inu? Hver maður hefur
sinn stíl í þvf efni. Lax-
veiðimenn komast af með
minna en silungsveiði-
menn, sem eru sumir
ákaflega vel vopnum bún-
ir. Það var með nokkurri
eftirvæntingu að ég fór á
kynningarfund hjá Stang-
veiðifélagi Hafnarijarðar
þar sem Garðar Scheving
var að segja byijendum til.
Vestið hans er nefnilega sannkallaður
undraheimur.
Öryggi á oddinn
Garðar hefur tekið þá skynsamlegu ákvörð-
un að fjárfesta í veiðivesti sem er líka bjarg-
vesti. I því er smá koltvísýringskútur sem
blæs vestið út þegar kippt er í spotta. Sjálf-
ur er ég ekki enn búinn að fjárfesta í
svona, en er alltaf á leiðinni, og þá ber að
kaupa viðurkennda vöru þvf mikið er til af
drasli í þessum vöruflokki. Vonandi verð ég
ekki of seinn.
Enginn veiðimaður kemst af án þess að
vera með klippur á sér. Til að ldippa flugur
af taumi og snyrta hnúta. En það gat verið
að Garðar væri kominn með græju sem fáir
eiga: rotara, hníf og brýni, allt í einu tæki.
Mikið þing sem menn ættu að líta eftir.
Rotara vilja margir hafa, ég nota bara
hnífsskeftið. En brýni er nokkuð sem
mörgum sést yfir. Algjört þing þegar fluga
stýkur stein. Ein festa getur gert flugu
gagnslausa, en brýnið gert hana skæðari en
nokkru sinni fyrr.
Skeið!
Hvernig væri að fá sér skeið í vestið? Það
fyrsta sem Garðar gerir þegar hann er bú-
inn að ná silungi er að stinga skeiðinni upp
í hann, reka ofan í kok og draga varlega út
með þvf sem hann var að borða síðast. Að
hans mati eitt það mikilvægasta í vestinu.
Sérstaklega sniðnar skeiðar fyrir fiska fást í
veiðibúðum og pöntunarlistum.
Þyki mönnum þetta vísindi, þá bið ég
menn að halda sér fast. Garðar er alltaf
með Iítið „sýnishornaglas" á sér til að setja
góðgætið í - þetta sem hann fínnur í maga
silungsins. Til frekari könnunar og hnýt-
inga. I glasinu er formaldahýð til að kvik-
indin geymist. Hjá þeim Hafnfirðingum er
lítið og skemmtilegt skordýrasafn í svona
glösum svo menn nái réttu lagi á púpum-
ar!
Meiri vísindi!
Það næsta sem Garðar dró úr vestinu var
hitamælir. Ef vatnshiti er 4-5 gráður veiðir
hann djúpt, jafnvel með þyngdum flugum.
Ef vatnshiti fer upp í 5-7 gráður er hann
kominn í smærri flugur. Og þegar lofthiti
er kominn í kannski 13-14 gráður er eins
gott að huga að þurrflugum, og þá grípur
Garðar sílíkonbrúsann sem hann er með í
vestinu til að þær fjjóti betur. Eða úða-
brúsa með efni sem þurrkar stóru flugum-
ar. Þetta gengur hann alltaf með á sér til
veiða. Og svo þarf hann auðvitað klíputöng
því stundum þarf að fara lengst ofan í kok
á fískum - eða losa öngul úr félaganum!
Vaðstafur
Garðar dregur fram græjurnar einsog töfra-
maður kanínur: Við vöðlubeltið hefur hann
vaðstaf. Hann er sérstaldega gerður til að
leggjast saman í hólk, en réttir vel úr sér og
styður vaðandi veiðimann þegar gripið er
til. Þarfaþing og veit ég að styrkir marga
sem ekki líður vel í straumi. Og svo er
hann með netpoka líka hangandi í beltinu,
fyrir aflann.
Þarf meira í eitt vesti? Jú, tauma! Sjálfur
mælir hann með Danyl Tectan Premium,
frá pöntunarlista Cabeles. Og svo lítið
bragð: leggja taumana í bleyti yfír nótt svo
þeir séu ömgglega ekki of stökkir þegar til
kastanna kemur. Sjálfur hef ég oft lent í
að jafnvel nýkeyptir taumar em of stökkir
eftir að liggja í hillum búða. Þetta er þjóð-
ráð sem ég ætla að prófa.
Garðar er með fí'na tauma fyrir þurrflug-
ur, og sverari í nokkrum stærðum fyrir aðr-
ar veiðar. Og svo er hann með leðurpjötlu
hangandi framan á sér til að draga taum-
inn gegnum svo hann rétti vel úr sér. Og
þá er eftir að geta þess að þessi veiðimaður
fer aldrei út í vatn nema hafa með sér þijár
spólur á hjólið í vestinu: eina með flotlínu,
eina með hægtsökkvandi, og eina með
sökkenda. Er þá ekki allt talið: grifflur em
í einum vasa, tilbúnar ef hann skyldi nú
kula og manni verða kalt á höndunum.
Bingó. Þetta er eins og heilt herfylki. Og
er þá ótalinn háfurinn sem hangir aftan á
baki í teygju. Fyrirgefíð. Og FLUGURN-
AR! Eg náði ekki að telja boxin, en sýndist
þau 4 og það stór.
Ofrausn?
Við Garðar höfum rætt þessi mál og höfum
ólíka heimspeki. Ég segi: því minna sem
maður ber á sér, því betra. Hann segir:
maður á að hafa allt sem mögulega þarf við
höndina: „vestið mitt er ekki nema 2.5
kíló“. Þetta ber hann til allra veiða. „Mað-
ur veit jú aldrei" segir hann og þá rifjast
upp að enn ein græjan er um borð, Íítið
stjörnuskrúfjárn „því það er svo gaman að
hjálpa félaganum ef þarf'. Og svo veiðir
hann auðvitað aldrei án gleraugna.
En hvaða flugur?
En á hvað veiðir þessi vel búni veiðimaður?
Eg bað Garðar að velja „tíuflugnaboxið“
sem ýmsir veiðimenn hafa sýnt í að undan-
förnu. Þetta eru þær 10 flugur sem Garð-
ar myndi hafa með sér ef hann mætti að-
eins hafa þær og engar aðrar. Gefum hon-
um orðið:
Blue Charm: Þessi fallega orginal fluga
er hnýtt á Partridge Q 10 nota ég til leitar
að fiski. Það er ekki að furða þótt fískur
taki eftir slíkri flugu. Ég kasta henni þvert
í strauminn, dreg ýmist hægt eða hratt eftir
því sem við á.
White Wing númer 8 Kamasam 830
með hring hakkel bæði sem blautfluga og
þurrfluga númer 12. I björtu hlýju veðri
(hálfskýjuðu) tvö til þijú vindstig.
Mickey Finn á Kamasam númer 8-830
hefur reynst mér vel og oftast strippa ég
hana. Hún er góð í sjóbleikju og urriða-
veiði.
March Brown númer 10. Hún er góð
fluga bæði einkrækja og tvíkrækja. Blaut-
og þurrfluga númer 12.
Lensman þurrfluga númer 12 og 14 er
sterk þurrfluga, kasta henni upp í straum-
inn.
Black and Blue einkrækja númer 8
Kamsam 830 er ein af þeim flugum sem ég
læt ekki vanta í boxið.
Evrópa þurrfluga er nýtt á 12 og 14
Kamasam 440. Góð í hlýju suddaveðri og
hægum vindi.
Black Gnat þurrfluga númer 12 og 14
er einnig góð fluga. Taumurinn sem ég
mæli með er Tectan Premium frá DAM
0,14 Ijögurra punda mjúkur, sterkur og
Ieggst vel á vatnið og er einnig samlitur
vatninu.
Watson’s Fancy púpa númer 8 Kama-
sam 170 læt ég ekki vanta, strippa púpur
eftir þörfum.
Peacock púpa með gull kúlu og rauðan
háls má ekki vanta í boxið. Hnýtt á númer
8 Kamasam 170. Þessi púpa er mjög góð
bæði í ám og vötnum.
Þessar flugur mínar reynast góðar í sjó-
bleikjuveiði og inn til landsins í ám og
vötnum.
Góða veiði!"
FLUGUR
Stefán Jón
Hafstein
skrifar
..............
Krossgáta nr. 173
Lausn .................
Nafn...................
Heimilisfang
Póstnúmer og staður
Helgarkrossgáta 173
í krossgátunni er gerður
greinarmunur á grönnum
og breiðum sérhljóðum.
Lausnarorð sendist til Dags
(Helgarkrossgáta nr. 173),
Strandgötu 31, 600 Akur-
eyri eða með símbréfi í
númer 460-6171.
Lausnarorð 171 var
„grindverk". Vinningshafí
er Guðbrandur Jóhanns-
son, Dilksnesi, 781 Horna-
Ijörður og fær senda bókina
Grafar-Jón og Skúli fógeti,
saga úr Skagafirði frá 18.
öld, eftir Bjöm Jónsson
lækðírSkjaldliotg gefur Út.
Verðlaun: Fylg-
snið eftir Dean
R. Koontz.
Skjaldborg gefur
út.