Dagur - 12.02.2000, Qupperneq 18
34- LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
R A Ð I \ U G L Ý S 1 n 1 G A R
A T V 1 N N A ATVINNA S T Y R K 1 R
HEILSUGÆSLAN í REYKJAVÍK
STJÓRNSÝSLA
Lausar stöður
heilsugæslulækna við
Heilsugæslustöðina Efstaleiti.
Lausar eru til umsóknar 2 stöður
heilsugæslulækna við Heilsugæslustöðina
Efstaleiti. Önnur staðan veitist 1. maí nk. en hin
staðan frá 1. september nk. umsóknir, ásamt
ítarlegum upplýsingum um læknismenntun og
læknisstörf, sendist til starfsmannasviðs
Heilsugæslunnar í Reykjavík, Barónstíg 47, 101
Reykjavík, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
krafist er að umsækjendur hafi sérfræðimenntun í
heimilislækningum og að þeir hafi reynslu af því að
kenna heimilislækningar, en gert er ráð fyrir að
kennsla fari fram á stöðinni.
Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir, Gunnar Helgi
Guðmundsson, í síma 585 1800. Umsóknarfrestur
er til 27. febrúar nk.
Afleysingastaða
læknis
við Heilsugæslustöð Miðbæjar
Tímabundin staða heilsugæslulæknis við
heilsugæslustöð Miðbæjar er laus til umsóknar.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 1. mars
nk. Um er að ræða starf í 6 mánuði. Umsóknir,
ásamt ítarlegum upplýsingum um læknismenntun
og læknisstörf, sendist til starfsmannasviðs
Heilsugæslunnar í Reykjavík, Barónstíg 47, 101
Reykjavík, á sérstökum eyðiblöðum sem þar fást.
Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir
Heilsugæslustöðvar Miðbæjar, Margrét
Georgsdóttir í síma 585 2600.
Umsóknarfrestur er til 27. febrúar nk.
Reykjavík, 4. febrúar 2000
Heilsugæslan í Reykjavík, starfsmannasvið
Barónstíg 47,101 Reykjavík
Bæjartæknifræðingur
Laus er til umsóknar staða tæknifræðings Eyrarsveitar,
Grundarfirði. Samkvæmt fyrirliggjandi starfslýsingu fer
tæknifræðingur með yfirstjórn tæknisviðs og
áhaldahúss, hefur umsjón með skipulags- og
byggingamálum, verklegum framkvæmdum
sveitarfélagsins og stofnana þess, viðhaldi mannvirkja
o.fl. Hann annast tilheyrandi áætlanagerð og
skipulagningu. Æskilegt að viðkomandi hafi haldgóða
þekkingu í tölvumálum.
Leitað er að byggingatæknifræðingi. Þarf að geta
hafið störf sem fyrst.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Eyrarsveitar,
Grundargötu 30, Grundarfirði fyrir 24. febrúar n.k.
Frekari upplýsingar gefur sveitarstjóri í síma 438-
6630.
Hefurðu áhuga á að búa og starfa í blómlegu
sveitarfélagi á uppleið?
- Grundarfjörður er fallegt sveitarfélag á norðanverðu
Snæfellsnesi, í um 180 km akstursfjarlægð frá
Reykjavík.
- íbúar Grundarfjarðar telja á tíunda hundraðið og
hefur fjölgað mikið síðustu ár.
- Grundarfjörður er vaxandi byggðarlag og þar er næg
atvinna.
í Grundarfirði starfa öflugir skólar, Grunnskólinn í
Grundarfirði með um 215 nemendur í 12
bekkjardeildum, Tónlistarskólinn með um 110
nemendur, Leikskólinn Sólvellir sem er tveggja deilda
leikskóli með um 80 nemendur með sveigjanlegri
viðveru. Fjarnám á framhaldsskólastigi er
tilraunaverkefni sveitarfélagsins,
menntamálaráðuneytis, Verkmenntaskólans á Akureyri
og Fjölbrautaskóla Vesturlands. Snæfellingar undirbúa
núna stofnun sameiginlegrar félagsmála- og
skólaþjónustu.
Kynntu þér málið, okkur vantar ennfremur
sjúkraþjálfara til starfa á nýrri heilsugæslustöð. Getum
alltaf bætt við okkur góðum kennurum í leik-, grunn-
og tónlistarskóla.
Verið velkomin í Grundarfjörð!
Sveitarstjórinn í Grundarfirði
TVG-ZIMSEN
TILKYNNING
Aðalfundur Tollvörugeymslunnar - Zimsen hf.
verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík að
Sigtúni 38 í Reykjavík miðvikudaginn 1. mars
2000 kl. 16,00.
Á dagskrá fundarins verða
1. Aðalfundarstörf samkvæmt ákvæðum
samþykkta félagsins.
2. Tillaga stjórnar um breytingu á ákvæðum
samþykkta félagsins um að fækka
mönnum í aðalstjórn úr fimm í þrjá menn
og fella niður ákvæði um kosningu
varamanna í stjórn. Þessar breytingar
komi til framkvæmda við stjórnarkjör
viðtakandi stjórnar á fundinum.
Kjörgögn verða afhent á Grand Hótel á
fundardegi frá kl. 15,00.
Stjórnin
TILKYNNING S T Y R K 1 R
Auglýsing um styrki úr
Fræðslusjóði brunamála
í samræmi við reglugerð nr. 138/1993, skv. 24. gr. laga nr.
41/1992, er hér með auglýst eftir umsóknum um styrki úr
Fræðslusjóði brunamála.
Fræðslusjóður brunamála starfar innan Brunamálastofnunar
ríkisins. Markmið sjóðsins er að veita þeim sem starfa að
brunamálum styrki á sviði brunamála. Sjóðurinn greiðir styrki til
rannsókna-og þróunarverkefna, námskeiðsgjöld, ferða- og
dvalarkostnað, laun á námsleyfistíma og styrki vegna námskeiða
og endurmenntunar.
Auk styrkja til stakra verkefna mun sjóðurinn á þessu ári styrkja
yfirmenn slökkviliða til að sækja námskeið sem
Brunamálastofnun skipuleggur í samvinnu við
þjálfunarmiðstöðvar slökkviliða erlendis. Styrkir til námskeiðanna
verða veittir viðkomandi slökkviliðum og skulu slökkviliðsstjórar
sækja um fyrir hönd þeirra manna sem þeir hyggjast senda á
námskeiðin.
Umsóknir um styrki skal senda Brunamálastofnun ríkisins,
Laugavegi 59, 101 Reykjavík fyrir 10. mars 2000 merkt
“Fræðslusjóður"
Athygli skal vakin á því að ef styrkur er ekki nýttur innan tveggja
ára frá veitingu hans fellur styrkveitingin úr gildi.
Nánari upplýsingar um styrkveitingar og starfsemi sjóðsins veitir
Steinar Harðarson verkfræðingur. Upplýsingar um
yfirmannanámskeiðin veitir Guðmundur Haraldsson, skólastjóri.
Sími Brunamálastofnunar er 552-5350. Fax:552 5413-
Netfang:brs@brs.is
Stjórn Brunamálastofnunar ríkisins.
Menntamálaráðuneytið
Styrkur til háskólanáms í
Tékklandi
Tékknesk stjórnvöld bjóða fram styrk til átta mánaða
námsdvalar við háskóla í Tékklandi skólaárið 2000-
2001. Styrkir til skemmri námsdvalar koma einnig til
greina þó ekki skemur en til þriggja mánaða.
Umsóknum um styrkinn skal komið til
menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, fyrir 15. mars nk., á
umsóknareyðublöðum sem þar fást. Umsóknum fylgi
staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum.
Menntamálaráðuneytið, 11. febrúar 2000.
www.mrn.stjr.is
Auglýsing um
styrki
Norræna Atiantsnefndin - NORA - veitir styrki til
samstarfsverkefna er tengjast þróun atvinnulífs,
nýsköpun og rannsóknum á íslandi, Færeyjum,
Grænlandi og Noregi.
Styrkir eru veittir til samstarfsverkefna á eftirfarandi
sviðum:
• sjávarútvegur og umhverfismál sjávar
• landbúnaður og jarðrækt
• ferðaþjónusta
• samgöngur og upplýsingatækni
• verslun og iðnaður
Skilyrði fyrir styrkveitingu er að verkefnið feli í sér
samstarf a.m.k. tveggja landa á starfsvæði NORA.
Æskilegt er að í verkefni felist nýjung er geti haft
áhrif á hefðbundna atvinnustarfsemi á svæðinu.
Mikil áhersla er lögð á miðlun þekkingar og færni
milli landa.
Umsækjendur geta verið fyrirtæki, einstaklingar og
félagasamtök, en einnig kemur til greina að styrkja
opinberar stofnanir vegna sérstakra
samstarfsverkefna á þessu svæði.
Ekki eru sérstök eyðublöð fyrir umsóknir. Umsókn
verður hins vegar að innihalda greinargóða
verkefnislýsingu, kostnaðaráætlun, upplýsingar um
verkefnisaðila og fjármögnun verkefna.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að skila
inn umsóknum á dönsku eða norsku.
Styrkveitingar NORA eru að jafnaði frá 50.000 dkr.
til 500.000 dkr. Einungis er greitt fyrir hluta af
kostnaði við hvert verkefni og aldrei meira en 50%
af heildarkostnaði.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2000 og ber að skila
inn umsóknum til Helgu D. Árnadóttur hjá
þróunarsviði Byggðastofnunar á Sauðárkróki.
Styrkumsóknir verða afgreiddar af stjórn NORA í
júlí 2000.
Nánari upplýsingar eru veittar á þróunarsviði
Byggðastofnunar á Sauðárkróki og á heimasíðu
NORA www.nora.fo.
Norrænt Atlantsamstarf
Helga Dagný Árnadóttir
Þróunarsviö Byggðastofnunar
Skagfirðingabraut 21
550 Sauðárkrókur
Sími: 455 6200
Bréfsími: 455 6201
helgad@bygg.is
Nordisk Atlantsamarbejde
Bryggjubakki 12
Postbox 259
110 Þórshöfn
Færeyjar
Sími: 00 298 31 4028
Bréfsími: 00 298 31 0459