Dagur - 12.02.2000, Síða 21

Dagur - 12.02.2000, Síða 21
I—W LAVGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 - 37 RAÐAUGLÝSINGAR SKÖLAR DEILISKIPULAG STYRKIR FRAMHALDSNÁM VIÐ KENNARAHÁSKÓLA ÍSLANDS Kennaraháskóli íslands býður upp á framhaldsnám í uppeldis- og menntunarfræðum. Rétt til að sækja um inntöku eiga þeir sem lokið hafa fullgildu starfsmenntanámi á sviði kennslu, þjálfunar, uppeldis og umönnunar. Gilt er talið nám frá Fósturskóla íslands, Háskóla íslands, Háskólanum á Akureyri, íþróttakennaraskóla íslands, Kennaraháskóla (slands, Kennaraskóla íslands, Þroskaþjálfaskóla íslands og öðrum skólum sem veita sambærilega menntun. Umsækjendur skulu hafa a.m.k. tveggja ára starfsreynslu. Unnt er að Ijúka framhaldsnámi við Kennaraháskóla íslands með tvennum hætti, með formlegri viðurkenningu (diplómu) eða meistaraprófi (M.Ed.). Nám sem leiðir til formlegrar viðurkenningar (diplómu) getur verið að lágmarki 15 einingar og að hámarki 60 einingar. Meistaraprófsnám er samtals 60 einingar (30 e á diplómustigi + 30 e á meistaranámsbraut, þar af er meistaraprófsverkefni 15-30 e). Haustið 2000 verður boðið nám á eftirtöldum sviðum ef næg þátttaka fæst: * Framhaldsnám fyrir þroskaþjálfa (30 einingar, fjarnám, þrjú ár). í náminu verður m.a. fjallað um fræðigreinina þroskaþjálfun með hliðsjón af breyttum áherslum í þjónustu við fullorðið fatlað fólk og nýjum rannsóknum í fötlunarfræðum, aðferðafræði, handleiðslu, vinnubrögð í félagslegri stjórnsýslu, gerð þjónustuáætlana og mat á þjónustu. * Kennslu-og námskrárfræði (15 einingar, fjarnám, eitt ár). Námið verður tengt nýjum aðalnámskrám og er ætlað kennurum á öllum skólastigum og er einkum miðað við þarfir þeirra sem leiða eiga skólanámskrárgerð eða annað þróunarstarf í skólum. Fjallað verður um stefnur og strauma í skólamálum og kennslufræðum, námskenningar, kennsluaðferðir, námskrárfræði og námskrárgerð, námsmat, mat á skólastarfi og þróunarstarf í skólum. * Nám og kennsla ungra barna (15 eða 30 einingar, fjarnám, eitt eða tvö ár), einkum ætlað leikskóla- og grunnskólakennurum. Helstu námskeið fjalla um uppeldis- og þróunarsálfræði, stefnur og strauma í byrjendakennslu, aðferðafræði, málþroska, lestur og lestrarkennslu, auk valnámskeiða á ýmsum sviðum. * Sérkennslufræði (30 einingar, fjarnám, tvö ár), einkum ætlað leikskólakennurum, grunnskólakennurum og þroskaþjálfum. * Stjórnun (30 einingar, fjarnám, tvö ár eða staðbundið nám, eitt ár). Námið er einkum ætlað skólastjórum og stjórnendum deilda og stofnana, fag- og árgangastjórum, ráðgjöfum, kennurum og þroskaþjálfum sem stefna á stjórnunarstörf. Helstu námskeið fjalla um stjórnsýslu, þróunarstörf, matsfræði og gæðastjórnun. * Tölvu- og upplýsingatækni (15 eða 30 einingar, fjarnám, eitt eða tvö ár). Náminu er einkum ætlað að mennta frumkvöðla í upplýsingatækni í skólastarfi sem geta skipulagt og unnið að framkvæmd upplýsingamála í skóla- og uppeldisstofnunum og leiðbeint samstarfsfólki um notkun á tölvum og upplýsingatækni. * Uppeldis- og menntunarfræði (15 eða 30 einingar, fjarnám, eitt eða tvö ár eða staðbundið nám eitt ár). Nemendur á þessari námsbraut geta valið sér námskeið á þessu sviði af ýmsum námsbrautum. Einnig er gert ráð fyrir möguleikum til sjálfstæðs náms undir leiðsögn. * Meistaranám til M.Ed. prófs (30 einingar, fjarnám, tvö ár). Rétt til að sækja um meistaranám eiga nemendur sem lokið hafa 30 einingum í framhaldsnámi með fyrstu einkunn. Leiðbeiningar til umsækjenda, umsóknareyðublöð og inntökureglur fást á skrifstofu Kennaraháskóla íslands og á heimasíðum framhaldsdeildar (vefslóð: http://www.khi.is/framhaldsdeild/). Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu framhaldsdeildar ( Guðrún Sóley Guðjónsdóttir, sími 563 3898 árdegis; netfang: soley@khi.is) og hjá námsráðgjöfum skólans (símar 563 3912 og 563 3913). Umsóknarfrestur er til 13. mars 2000. Deiliskipulag jarðarinnar Laufáss í Grýtubakkahreppi. Deiliskipulag jarðarinnar Laufáss í Grýtubakkahreppi. Tillaga að deiliskipulagi, auk fylgiskjala, fyrir Laufás í Grýtubakkahreppi er hér með auglýst samkv. 25. gr. Skipulags-og byggingarlaga nr. 73/1997 og liggur frammi til kynningar frá og með 10. febrúar til 10. mars 2000 á skrifstofu Grýtubakkahrepps. Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 10.00 til kl. 15.00. Allir hafa rétt á að kynna sér tillöguna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en kl. 15.00, 24. mars 2000 á skrifstofu Grýtubakkahrepps, Gamla skólanum 610 Grenivík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við auglýsta tillögu innan tilgreinds frests, teljast samþykkir henni. Grenivík 9. febrúar 2000. Sveitastjóri Grýtubakkahrepps. BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR B0R6ARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Breyting á deiliskipulagi í Reykjavík Fossvogshverfi, einbýli Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 24. ágúst 1999 breytingu á deiliskipulagi fyrir einbýlishúsahverfi í Fossvogshverfi sem nær til Árlands, Bjarmalands, Grund- arlands, Haðarlands, Kvistalands, Lálands og Traðarlands. í breytingunni felst að byggingarreitir húsa stækka um 4 metra til suðurs og nýtingarhlutfall verður 0,24. Tillagan var auglýst þann 11. júní 1999 og stóð kynningin til 9. júlí. Athuga- semdafrestur var til 23. júlí og bárust tvær athugasemdir við tillöguna. Fallist var á athugasemdirnar og tillagan samþykkt með þeirri breytingu að byggingarreitir nyrðri húsa á þeim reitum sem tillagan tók til, voru einnig stækkaðir um 4m til suðurs. Þeim aðilum sem athugasemdir gerður hefur verið send afgreiðsla borgarráðs. Skipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til yfirferðar og hlaut gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda þann 4. febrúar 2000. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Borgarskipulags Reykjavíkur. _____________________________________-__ Undur nq stormerkl... FYRSTUR MtÐ FRÉTriRNAR Styrkir til atvinnumála kvenna Félagsmálaráðuneytið hefur á þessu ári heimild til að úthluta í styrki 20 milljónum króna til atvinnumála kvenna. Áhersla er lögð á að greinargóð lýsing á verkefni fylgi með umsókn, sundurliðuð kostnaðaráætlun svo og að fram komi hvort leitað hafi verið til annarra um fjárstyrk. Tilgangur styrkveitinga er einkum að auka fjölbreytni í atvinnulífi, viðhalda byggð um landið og efla atvinnutækrfæri á landsbyggðinni, auðvelda aðgang kvenna að fjármagni og að draga úr atvinnuleysi meðal kvenna. Skilyrði fyrir umsókn: • Allar konur hvaðanæva af landinu geta sótt um styrk. • Aðaláherslan verður á verkefni í þremur atvinnugreinum; þróun á lífrænum vörum, nýsköpun í ferðaþjónustu og stuðningur við atvinnuþróunar- verkefni kvennahópa, en heimilt er að styrkja verkefni innan allra atvinnugreina. Forgangs njóta verkefni sem þykja líkleg til að fjölga atvinnutækifærum kvenna. Svæði þar sem hlutfall atvinnulausra kvenna er hátt og fábreytni í atvinnulífi eru þar með talin. • Styrkir ekki veittir til verkefna sem eru í samkeppni við aðila í hliðstæðum atvinnurekstri á landsvísu. • Til að verkefni sé styrkhæft í 2. eða 3. sinn þarf fyrir að liggja greinargerð vegna fyrri styrkveitinga. • Ekki eru veittir rekstrarstyrkir. • Ekki eru veittir styrkir til listiðnaðar en tekið er tillit til nytjalistar. • Stofnstyrki er heimilt að veita að hámarki 25% af stofnkostnaði til véla og tækjakaupa og einnig vegna húsnæðis til hópa. • Ekki eru veittir styrkir til afmarkaðra verkefna sem ekki eru atvinnuskapandi. • Að öðru jöfnu nemur framlag af hálfu ríkisins ekki meir en 50% af heildarkostnaði við verkefnið. • Hámarksstyrkur á verkefni er kr. 2,5 milljónir. • Þeim aðilum sem hyggjast sækja um styrk til námskeiða/mennta-smiðju verkefna er bent á að hafa samband við Vinnumálastofnun. Umsóknareyðublöð fást á Vinnumálastofnun, Hafnarhúsi v/Tryggvagötu, Reykjavík, sími 511 2500 og á heimasíðu stofnunarinnar www.vinnumalastofnun.is Umsóknarfrestur ertil 21. mars 2000 UTBOÐ i i F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í viðhald raflagna í ýmsum fasteignum. Útboðsgögn eru seld á skrifstofu okkar á kr. 1.000. Opnun tilboða: 29. febrúar 2000, kl. 11.00 á sama stað. F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tiiboðum í viðhald pípulagna í ýmsum fasteignum. Útboðsgögn eru seld á skrifstofu okkar á kr. 1.000. Opnun tilboða: 29. febrúar 2000, kl. 14:00 á sama stað. F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í verkið: Umferðarmerki 2000 — 2004. Helstu magntölur eru. Ýmis umferðarmerki: 5.000 stk. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2004 Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 15. febrúar n.k. gegn kr. 5.000 skilatryggingu. Opnun tilboða: 2. mars 2000 kl. 14:00 á sama stað. F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík, Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavíkurhafnar er leitað tilboða í verkið: “Klettagarðar, gatnagerð og þrýstilagnir við hreinsistöð”. Helstu magntölur eru: • Útvegun og lagning 1200 m plastpípna: um 510 m • Gatnagerð, holræsi, vatns- og hitalagnir í Klettagarða og Héðinsgötu, gatnalengd: um 420 m Skiladagur er 1. nóvember 2000. Cðsgögn fást á skrifstofu okkar, frá og með 15. iar 2000 gegn 20.000 kr. skilatryggingu. un tilboða: 1. mars 2000 kl. 14:00, á sama stað. ' : INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík - Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616/561 1120. Netfang: isr@rhus.rvk.is Veffang: reykjayijc.jsfirinkaupastofnun - 660169-4079 i

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.