Dagur - 11.03.2000, Qupperneq 5

Dagur - 11.03.2000, Qupperneq 5
 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 - 2 7 Höfundur Þorpsins kvaddur Jón úr Vör lést í síðustu viku, 83 ára gamall. Hans mun ætíð verða minnst sem höfundar Þorpsins sem telst ein- stætt nýjungarverk í ís- lenskri Ijóðagerð. Dagur bað þrjá Ijóðaunnendur að minnast skáldsins. Heimir Pálsson: Hann breytti landslaginu Með Jóni Jónssyni úr Vör er genginn einn fárra manna sem sagt verður um með sanni að hafi breytt landslagi ís- lenskrar ljóðlístar á tuttugustu öldinni. Ekki var ein- asta að Ijóðabók hans Þorpið (1946) yrði tímamótaverk í formsnilld sinni heldur sætti enn meiri tíðindum að með henni var Iátlaust erfiðisfólk ís- lenskra sjávarþorpa leitt inn á leiksvið ljóðlistarinnar, athygl- inni beint að persónum og að- stæðum sem áður hefðu þótt óskáldlegar með öllu, fátæku daglaunafólki og sjómönnum sem sóttu reisn sína í lífsbar- áttu, mannúð, samhjálp og sannan kærleika. Aðstæður þeirra sem þar stigu á svið voru áður óþekkt landslag í íslenskri lýrík, nú var fegurð þess afhjúp- uð með þeim hætti að ekki varð aftur snúið. I Þorpinu og síðari ljóðabókum Jóns glitruðu perlur sem við hljótum að þakka fyrir með hryggð í hjarta þegar hann er kvaddur. Islensk ljóðlist varð ekki söm eftir að hann hafði kvatt sér hljóðs, íslensk bók- menntasaga mun minnast hans sem eins hinna fáu. Hrafn Harðarson: Trúr uppruna sínum Jón úr Vör var trúr uppruna sínum, verkafólk- inu í fæð- ingarbæ sínum vest- ur á Fjörð- um, eins og fram kemur Hrafn Haröarson. í mörgum ljóða hans. Jón úr Vör var líka sjentilmaður, hatturinn og stafurinn voru hans einkennismerki. Hann var fastagestur hjá okkur á Bóka- safni Kópavogs, fyrrum vinnu- stað hans sjálfs, og settist oft niður hjá mér til að leita frétta eins og hann sagði. Jón sagði nýlega við mig að hann óskaði þess að „ef mín verður minnst þá verði mín minnst fyrir þátt minn í þvf að koma á legg bóka- söfnurn". Jón stóð nefniléga fyrir stofnun tveggja bókasafna á Is- landi, fýrst á Patreksfirði og síð- ar í Kópavogi. Jón var ekki aðeins sannur listamaður heldur einnig sannur Jón úr Vör. „íslensk bókmenntasaga mun minnast hans sem eins hinna fáu, “ segir Heimir Páisson. bókavörður; hans skóli var að mestu „bókasafnið", sem hann kynntist fyrst hjá kennara sínum á Núpi og gerði sér þá þegar grein fyrir þýðingu góðra bóka- safna fyrir alþýðu fólks ef hún ætti að eiga möguleika á að rífa sig upp úr fátækt. Jón var líka trúr íslenskri ljóðahefð, þótt ýmsir hafi haldið annað. Þetta kemur glöggt fram í góðri vísu hans: Ekki þarf að gylla gull, gullið verður ætíð bjart; alltaf verður bullið bull þótt bi'úð sé í rímað sltart. Eg er þakklátur fyrir að hafa kynnst Jóni úr Vör. I vikunni fyrir andlát hans sýndum við honum upplýsingar um hann sem komið hefur verið fyrir á heimasíðu Bókasafns Kópavogs. Það gladdi hann svo að hann komst við. I sömu viku tókst okkur að finna ljóð, sem Jón orti er hann var á Núpsskóla árið 1934 og birtist í blaðinu Vesturland. Hann hafði flutt það á Sólarhátíð um vetur- inn en hafði aldrei séð það í^Tr á prenti. Það gladdi hann mikið. Helst hefði ég viljað sjá útgefna bók um Jón úr Vör, myndarlega bók sem sæmdi svo miklu skáldi, íyrir andlát hans. Nú er það of seint, en betra er seint en aldrei og vonandi kemur bók um Jón úr Vör út sem allra fyrst. Kópavogs- skáldið, Jón úr Vör á það sannar- lega skilið - og íslensk þjóð á sldl- ið að vel sé gert við stórskáld sín. Meistaraverk Jóns úr Vör, Þorpið. kom út í nýrri útgáfu hjá Mál og menningu fyrir síðustu jói. í verkinu er lýst lífi í sjávarþorpi á kreppuárunum. Þorpið er fyrsta Ijóðabókin sem gefin var út á Is- landi þar sem eingöngu er að finna óbundin Ijóð. Bragi Óiafsson: Hneigi mig fýrir Þorpinu Þó ég hafi aldrei lesið Ijóð Jóns mikið þá verður mér oft hugsað til Þorpsins. Sú bók var ein af þeim lyrstu sem ég Ias í heild eftir íslenskt skáld og eins og ég held með fleiri, þá hafði hún talsverð áhrif á mig, annars vegar hvað varðar frásögnina eða ljóðformið (sem manni þótti ansi nýstárlegt á þeim tíma) og hins vegar efnið, það er að segja hina djúpu sam- úð með fátæka fólkinu og þá lif- andi mynd sem Jón dregur upp af lífi og kjörum fólks í sjávar- þorpi. Kannski er Þorpið eitt af mjög fáum íslenskum bók- menntaverkum með mjög skýran vinstri sinnaðan boðskap sem tíminn hefur ekki eyðilagt. Eg veit ekki hvernig augum yngri kynslóðir horfa á þennan horfna hcim Jóns en ég held að bókin verði alltaf lesin af cinhverjum, bæði sem góð lýsing á horfnu samfélagi og Iíka falleg og ein- læg ljóðlist. Hugurinn á bakvið hana er góður og afgreiðslan - svo við notum svona smart og nútímalegt orð - er alveg príma; mjög kraftmikil í látleysi sínu. Þrátt fyrir að IjóðstíII Þorpsins sé langt frá þvf að vera sú teg- und sem ég hef mest gaman af og hef helst nýtt mér, þá mun ég alltaf hneigja mig fyrir þess- ari bók. Og auðvitað höfundi hennar. B^leikfélacT Sa ©^REYKJAVIKURJB? BORGARLEIKHÚSIÐ ATHUGIÐ BREYTTAN SÝNINGARTÍMA UM HELGAR Stóra svið: Kysstu mig Kata Söngleikur eftir Cole Porter frumsýndur iau 25. mars Djöflarnir -eftir Fjodor Dostojevskí, leikgerð í 2 þáttum. Lau 11/3 kl. 19:00 nokkur sæti laus Formáli að leiksýningu kl. 18:00 Sun 19/3 kl. 19:00 Síðasta sýning Litla hryllingsbúðin -eftir Howard Ashman tónlist eftir Alan Menken lau 18/3 kl. 14:00 nokkur sæti laus, lau 18/3 kl. 19:00 nokkur sæti laus Allra síðustu sýningar Sex í sveit eftir Marc Camoletti Aukasýn. v/ mikillar aðsóknar Sun 12/3 kl. 19:00 nokkur sæti laus Fös 24/3 kl. 19:00 nokkur sæti laus SÍÐUSTU SÝNINGAR Afaspil -Höf. og leikstj.: Örn Árnason Sun 12/3 kl. 14:00 uppselt Sun 19/3 kl. 14:00 uppselt Sun 26/3 kl. 14:00 örfá sæti laus Sun 2/4 kl. 14:00 nokkur sæti laus Litla sviðið Fegurðadrottningin frá Línakri -eftir Martin McDonagh Lau 18/3 kl. 19:00 nokkur sæti laus ****** Sun 2/4 kl. 19:00 **** Leitin að vísbendingu um vitsmunalíf í alheiminum -eftir Jane Wagner Lau 11/3 kl. 19:00 nokkur sætí laus Fös 17/3 kl. 19:00 nokkur sæti laus ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN Diaghiev: Goðsagnirnar eftir Jochen Ulrich Tónlist eftir Bryars, Górecki, Vine, Kancheii. Lifandi tónlist: Gusgus. Fös 17/3 kl. 19:00 Sun 2/4 kl 19:00 Takmarkaður sýningarfjöldi. Miðasalan er opin virka daga frá kl. 12-18, frá kl. 13 laugardaga og sunnudaga og fram að sýningu sýningardaga Símapantanir virka daga frá kl. 10 Greiðslukortaþjónusta Sími 568 8000 Fax 568 0383 InjDMlíilKitl^hnibillrilninlj LÍíKFÉLAG AKIfREYRAR Samstarfsverkefni Leikfélags Akureyrar og leikhópsins Norðanljós Skækjan Rósa -eftir José Luis Martín Descalzo Þýðandi Örnólfur Árnason Ljósahönnun: Ingvar Björnsson Hljóðmynd: Kristján Edelstein Leikmynd og búningar: Edward Fuglo Leikstjóri: Helga E. Jónsdóttir Leikari: Saga Jónsdóttir (...Skækjur verða á undan yður inní guðsríki. Matt. 21 - 31) Sýningar laugard. 11. mars kl. 20.00 laugard. 18. mars kl. 20.00 laugard. 25. mars kl. 20.00 Allra síðustu sýningar. Leikhúsið 10 fingur og Leikfélag Akureyrar frumsýna leikbrúðusýninguna „Gosi“ eftir Helgu Arnalds Skólasýningar í miðri viku almenn sýning laugard. 11. mars kl. 14.00 sunnud. 12. mars kl. 14.00 Leikstjóri Þórhallur Sigurðsson. Ljósahönnun Ingvar Björnsson Hljóðmynd: Kristján Edelstein. Leikendur: Helga Arnalds, Herdís Jónsdóttir og Þórarinn Blöndal GJAFAKORT ■ GJAFAKORT Einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir. Muniö gjafakortin okkar - frábær tækifærisgjöf! Miðasalan opin alla virka daga frá kl. 13:00-17:00 og fram að sýninqu, sýninqardaqa. Sími 462 1400. www.leikfelag.is

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.