Dagur - 11.03.2000, Qupperneq 7

Dagur - 11.03.2000, Qupperneq 7
Tfc^iir Vladimir Ashkenazy átti heiðurinn að því að Listahátíð fór afstað með stæl. Hér er hann i félagsskap Geirs Hallgrímssonar, þáverandi borgarstjóra, Þórunnar Jó- hannsdóttur, eiginkonu sinnar og Magnúsar Torfa Óiafssonar, þingmanns. ÚR MYNDASAFNI VÍSIS. Eða það fannst Guðbergi Bergssyni sem svaraði gagn- rýninni í snilldarlega skrifaðri grein sem birtist í Þjóðviljan- um. Þar bendir Guðbergur Braga á aðdáun hans alþýðu- listinni sé á misskilningi byggð; Þetta hefði enginn haft tíma eða efni á að gera, nema höfð- ingjar. Þetta ár lagðist Listahátíð sem sagt í skipulagningu stórra og viðamikilla verkefna og kom út í mínus. Fyrsta árið hafði gengið vel, og var það ekki síst komu Led Zeppelin að þakka. Miðarn- ir á tónleika þeirra voru dýrari en á aðra viðburði, þar sem reynt var að halda miðaverðinu niðri. Ashkenazy gaf sína vinnu og svo var um fleiri. Fljótlega varð mönnum þó Ijóst að það var ekki hægt að reka hátfð sem þessa á sjálfboðavinnu og um sumarið 1975 var allt útlit fyrir að hátíðinni árið eftir yrði frestað um eitt ár. Misstu Ashkenazy Þá var það sem Bandalag ís- lenskra listamanna sem reis upp á aðalfundi sínu um haustið og mótmælti frestuninni. Thor Vil- hjálmsson var kosinn formaður og undir forystu hans tókst fé- laginu að fá henni aflýst. En skaðinn var skeður. Listahátíð var búin að missa Ashkenazy og vini hans annað. Ný stjórn hafði ekki mikið meira en sex mánuði til að redda málunum. Hrafn Gunnlaugsson var ráðinn fram- kvæmdastjóri og virðist sumum ekki hafa litist á það, þar sem hann var nýbúinn að valda hneyksli með myndinni Blóð- rautt sólarlag. I lrafni og stjórninni tókst hins vegar, á undraskömmum tíma, að bjarga hátíðinni fyrir horn. Benny Goodman var aðalstjarn- an, Helgi Tómasson kom frá New York til að dansa með hinu nýfædda Islenska dansflokki og brúðuleikhúsið hans Meschken kom frá Finnlandi og setti var- anleg spor í menningarlífið. Aldrei lognmolla Mest urðu blaðaskrifin líklega í kringum sýningu á verkum aust- urríska listamannsins Hunterwasser, en nýlega mátti lesa fréttir af andláti hans í ís- lenskum blöðum. Sagt var að hann vildi koma verkum íslenska sérvitringsins Dunganons á fram- færi erlends og mikið gert úr því. Nokkru síðar tók Níels Hafstein upp penna til að mótmæla skrípa- leiknum og sagðist heldur biðja um almennilega myndlistarmenn á hátíðina, eins og Frank Stella og Jim Dine. Það ku hafa staðið til boða, en verið hafnað. Listahátíð var vissulega hátíð, en það var heldur aldrei nein lognmolla í kringum hana. Spenningi og hrifningu á fyrstu hátíðinni fylgdu efasemdir og umræður um næstu hátíðir á eft- ir. Menn voru ekki á eitt sáttir um val á listamönnum og það varð stundum til að varpa skugga á komu þeirra sem stóðu upp úr. Framkvæmdastjóri og stjórn voru ekki óbrigðul í vali sínu og þeir sem töldu sig hafa eitthvað um málið að segja, hikuðu ekki við að taka upp penna til að benda á vankantana. Menn vildu fá al- mennilega veitingar í veislunni. Gallarnir urðu samt stundum til þess að varpa ljósi á það sem vel er gert í listum hér á landi. Og það hefur Iíka haft sinn tilgang þótt hann hafi ekki verið ætlaður. Söngkonurnar Lone Hertz og Bonna Sönderberg í rigningu fyrir utan Norræna húsið. Tónleikar Lone voru með vinsælustu dagskrárliðum hátíðarinnar 1974. LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 - 23 LÍFIÐ í LANDINU Ohugsandi án hátíðar Sveinn Einarsson formaður Listahátíðar í Reykjavík á blaðamannafundinum sem kynnti dagskránna árið 2000 í byrjun febrúar. Sveinn Einarsson núver- andi formaður stjórnar Listahátíðar í Reykjavík sat einnig í stjórninni fýrstu þrjú skiptin sem Listahátíð var haldin. Hann var varaformaður stjórnar 1998 og átti sæti í stjórn 1980. Við ræðum við Svein um sögu Listahátíðar, hlut- verk, áhrif og mótun framtíðarstefnu. Sveinn segir þrennt hafa ráðið því að Listahátíð var hrundið af stað. „Bandalag íslenskra lista- manna dreymdi um íslenska Iistahátfð. Það hafði staðið íyrir nokkrum slíkum, fyrst 1945 á 100 ára ártíð Jónasar Hallgríms- sonar, við opnun Þjóðleikhúss- ins 1950 og loks 1964. En það hafði ekki tekist að koma þessu á fast tímagengi. Fyrsti forstjóri Norræna húss- ins, Ivar Eskeland, átti stóran þátt í að Listahátíð varð að veru- leika, en hann var fyrsti fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar. Nor- ræna húsið var opnað 1968 og með því koma peningar til að stuðla að menningarskiptum milli íslands og Norðurland- anna.“ Komdu, þá kem ég „Þriðji þátturinn var stuðningur Vladimirs Ashkenazy, sem þá var búsettur hér. Hann hafði sam- band við vini sína fyrir okkur og sagði : „Ef þú kemur til að spila á minni hátíð, skal ég spila á þinni.“ Og allir vildu fá hann til sín. Þannig var frá fyrstu tíð undirstrikað, að allt sem kæmi á hátíðina frá útlöndum væri fyrsta flokks." - En frá upphafi voru líka fjöl- mörg innilend atriði á Listahátíð. „Við vildum festa þá hugsun í sessi að á Listahátíð væri hátíð þar sem íslenskir listamenn sýndu eitthvað annað en það sem sýnt var á öðrum tímum. Við nýttum því hluta af fé hins opinbera til listastarfsemi í sam- vinnu við Þjóðleikhúsið, Sinfón- íuhljómsveit Islands og fleiri." Upphaf Leikbrúðulands „Koma erlendu listamanna þurfti Iíka að skilja eitthvað meira eftir sig en góðar minn- ingar. Þess vegna höfum við reynt að skapa sameiginlegan starfsvettvang þeirra og ís- lenskra listamanna til að vinna að ákveðnum verkum. Slfkt samstarf tókst til að mynda þeg- ar brúðuleikhússmaðurinn Michael Meschken var fenginn til að setja upp sýningu, með sínum hópi sem íslendingar tóku svo við. Það var upphafið af Leikbrúðulandi." - Strax á fyrstu Listahátíð er mikið lagt úr þvt' að hafa allar listgreinar með, jafnvel íslenska kvikmynd. „Listahátið leit svo á að hún ætti að styðja við listgreinar, þar sem ekki var mikið um að vera. Á þessum tíma voru popptón- leikar erlendra hljómsveita ekki algengir og því fengum með Led Zeppelin á fyrstu hátíðina, sem var meiriháttar viðburður." Naflaskoðun er nauðsyn „Fyrstu árin var líka talsvert mikið um djass á Listahátíð. A seinni árum hafa verið stofnaðar sérstakar jasshátíðar og því minni kvöð á hátíðinni að sinna honum. Fljótlega þótti líka heppilegra að hafa kvikmyndirnar sér og „Þannig var frá fyrstu tíð undirstrikað, að allt sem kæmi á hátíðina frá útlöndum væri fyrsta flokks.“ það varð úr. Listahátíð stóð að fyrstu kvikmyndahátíðunum, en það breyttist í áranna rás. „ - Nií munaði mjóu 1975 að Listahátíð yrði frestað um eitt ár og hún jafnvel lögð niður. „Það hafa alltaf verið umræð- ur um það öðru hverju að leggja hátíðina niður. Enda er nauð- synlegt að vera í stöðugri nafla- skoðun. Við erum alltaf að spyrja sjálf okkur hvaða gagn við höfum af þessu og hvort Lista- hátíð hafi verið sá samfélags- og vellíðunarauki sem ætlast er til." Peninganna virði „Það er einnig spurt að því hvort hátíðin hafi verið peninganna virði, þótt þeir fjármunir sem hafa farið í Listahátíð séu ekkert ýkja miklir. Það er staðreynd." - Það kemur á óvart hversu lágar þær upphæðir eru sem veitt er til Listaháliðar, samtals 32 milljónir frá ríki og horg í ár, ef tillit er tekið til þess hvað það kostar að fá hingað stórviðburði eins og Svanavatnið. Hvemig stendur á þessu? „Eins og staðan er í dag eru samanlagðir styrkir frá ríki og borg einn þriðji af veltu hátíðar- innar. Að vísu koma óbeinlínis fram aukin fjárframlög þar sem við vinnum náið með Menning- arborginni en hún er að stórum hluta fjármögnuð af þeim. Annar þriðjungur kemur frá fyrirtækjum sem stutt hafa dyggilega við bakið á Listahátíð í gegnum árin og eiga stóran þátt í að hægt var að fá hingað Svanavatnið og Stórsöngvara- veisluna. Þriðjunginn sem á vantar kemur af aðgöngumiða- sölu.“ - Þegar Listahátið er stofnuð er hún eina listahátiðin. Siðan hafa sprottið upp allskyns hátíðir og nýverið stóð Sinfóníuhljómsveit lslands fyrir stórri óperuupp- færslu. llver er staða Listahátíðar i dag í Ijósi aukinnar samkeppni og hvaða stefnu mun hún taka í framtíðinni? „Allir þessir viðburðir sýna okkur að það er markaður hér fyrir menningu og listir. En það væri engu að síður óhugsandi að fá hingað jafn stóra viðburði og Svanavatnið öðruvísi en á Lista- hátíð og með því að Ieggja sam- an með Menningarborginni. Þetta á einnig við um flestar stórstjörnur sem þarf að panta með löngum fyrirvara." Verður haldin árlega „En Listahátíð er búin að slíta barnsskónum og það er augljóst að hún er komin til að vera. Hún er búin að sanna gagn sitt, bæði inn á við, hvað snertir okk- ar eigið menningarlíf, og út á við, sem tæki til að fá hingað sjaldséð toppatriði. Listahátíð hefur færst í horf atvinnumennsku og þegar þess- ari hátíð lýkur taka í gildi ný lög sem gera ráð fyrir listrænum stjórnanda, sem á eftir að setja mark sitt á hátíðina með öðru máli en í gamla fyrirkomulag- inu. I framtíðinni er augljóst að Listahátíð mun verða haldin ár- lega. Það er nauðsynlegt til að hún geti haldið réttum rythma. Við erum einnig að velta fyrir okkur hvernig hægt væri að breiða hátíðina betur út um Iandsbyggðina. Hún heitir Lista- hátíð í Beykjavík, en bæði ríki og borg standa að henni og í fulltrúaráðinu eru fulltrúar stofnana og samtaka af öllu landinu." -MEÓ. I

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.