Dagur - 11.03.2000, Page 19
LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 - 35
T>gptr_
í maímánuði áríð
1933 sat Hallgrím-
ur nokkur Brynj-
ólfsson í gæslu-
varðhaldi í fanga-
húsinu íVest-
mannaeyjum,
grunaður um að
hafa brotið áfengis-
löggjöfma með því að brugga
og selja áfengi. Mörgum þótti
handtakan á Hallgrími með öllu
ástæðulaus og ósanngjöm, en
lögreglan smámunasöm og
frek, og þá kannski ekki síst
hinni 28 ára gömlu dóttur Hall-
gríms, ísleifu Elísabetu.
FniöPik Þón
Guömundsson
skrifar
Um klukkan 18 safnaðist hópur manna
ásamt Isleifu að fangahúsinu og stækkaði
hópurinn brátt þegar aðrir vildu forvitnast
um hvað væri á seiði. Við rannsókn málsins
upplýstist ekkert um tildrög þess að fólkið
safnaðist saman og hélt að fangahúsinu og
ástæðan í sjálfu sér einföld; eftir atburðina
myndaðist samstaða meðal hinna ákærðu
um að segja ekkert og svara ekki spurning-
um dómarans. Hélst sú samstaða nær órof-
in og byggðust dómarnir því nær alfarið á
framburði lögreglumannanna.
Að líkindum söfnuðust milli 20 og 25
manns fyrir utan fangahúsið, en að Iokum
fór svo að 18 manns voru ákærðir. Kemur
fram að hópurinn hafi með hrópum og
köllum krafist þess að fanginn Hallgrímur
yrði þegar í stað Iátinn laus. Mönnum byij-
aði hins vegar ekki að hitna verulega í
hamsi fyrr en dóttirin trúfasta Isleif eggjaði
menn til dáða og hvatti til að fara inn og
taka föður sinn út.
Karlmenn eða helvítis lyddur?
Það var síðan þegar hún höfðaði til karl-
mennsku þeirra að þvagan tók að ýta sér að
dyrum fangahússins. ,/fítlið þið að vera
þær helvítis lyddur, allir þeir karlmenn sem
hér eru, að þora ekki að taka hann út,“
kallaði hún storkandi - og það svínvirkaði.
Færðist hópur manna að dyrunum og
ruddist á lögregluþjónana sem þar voru,
Stefán Amason og Jóhannes J. Albertsson.
Fremstir í flokki þeirra sem ruddust svo
Frá Vestmannaeyjum. Þegar manni nokkrum var stungið í gæsluvarðhald vegna gruns um brugg og
söiu brást dóttir hans ókvæða við og eggjaði menn tii dáða að frelsa föður sinn úr fangeisinu.
Múgur
frelsar fanga
fram voru Guðmundur Jónsson skipstjóri,
Jón Stefánson sjómaður og Jón Sigurðsson
útvegsmaður, að sögn lögregluþjónanna.
Aðrir fylgdu á eftir en nokkrir héldu því
fram að þeir hefðu einfaldlega borist með
straumnum inn í fangahúsið og ekki getað
spornað gegn því.
Lögregluþjónarnir veittu viðnám í dyrum
fangahússins um stund, meðan fulltrúi
bæjarfógeta símaði til bæjarfógetans, en
brátt tókst hópnum að þrengja sér inn í
anddyri hússins og þaðan inn í gang, en
ísleif sjálf beið fyrir utan. Fóru mennirnir
þegar að ldefa þeim sem Hallgnmur var í.
Var klefinn læstur með sterkum hengilás,
sem hengdur var í keng, sem festur var
rammbyggilega í dyrastafinn (í gegnum
hann), en framan á klefahurðinni var jám-
slá, sem fest var við hurðina með tveim
jámboltum, sem stóðu í gegnum hurðina
og voru hausar á jámboltunum innan á
hurðinni, en rær voru skrúfaðar á þá enda
járnboltanna sem stóðu út úr járnslánni.
Kengur sá, sem hengilásinn var festur í,
gekk í gegnum gat á enda járnslárinnar,
sem stóð út af hurðinni.
Rofjám inn um gluggann
Augljóst var því að klefahurðin yrði ekki
opnuð án verkfæra. Sté þá einn hinna
ákærðu upp á borð eða skáp út við gafl
hússins og opnaði þar glugga og kallaði
út að menn skyldu ná í rofjárn. Eftir
skamma stund var slíku áhaldi rétt inn
um gluggan og tóku þá nokkrir hinna
ákærðu að bjástra við að opna klefann.
Tókst mönnunum það með því að rærnar
voru skrúfaðar af enda járnboltanna, sem
lágu í gegnum hurðina og járnsláin beygð
frá hurðinni og þurfti ekki meira til að
opna hurðina.
Meðan á uppistandinu í fangahúsinu
stóð héldu menn Iögregluþjónunum eða
aftur af þeim og ógnuðu með ókvæðis-
orðum. Einn viðstaddra, Þorkell Þórðar-
son verkamaður, hrópaði að réttast væri
að taka lögregluþjónana og rasskella þá
og annar, Karl formaður Guðmundsson
sagði að réttast væri að taka þá og loka þá
inni. Ekkert varð þó úr slíkum ráðagerð-
um, enda þetta vafalaust sagt til að halda
aftur af lögregluþjónunum. Þegar hurðin
hafði verið opnuð fór sigri hrósandi frels-
isherinn síðan út með fangann Hallgrím,
sem hélt beinustu leið heim til sín, leidd-
ur af dótturinni trúföstu.
Þagnarhjúpurinn hafði áhrif
Hófst síðan rannsókn málsins, en það gekk
treglega hjá rannsóknardómaranum: „Það
hafa ekki fengizt í málinu upplýsingar um
undirhúning árásar þessarar á fangahúsið
eða hvort um fyrirfram ákveðin samtök
hafí verið að ræða um að fremja verknáð
þennan. Sumir hinna ákærðu fengust alls
ekki til við rannsókn málsins að gefa neina
skýrslu um málavöxtu eða svara spurning-
um rannsóknardómarans, en þeir hinna
ákærðu, sem gáfu slíkar skýrslur, neituðu
að hafa í raun og veru tekið nokkurn þátt í
verknaði þessum og töldu sig því ekki vita
neitt um undirbúning árásarinnar og upp-
lýsingar um þetta hafa ekki fengist annars
staðar frá“. Þessi þagnarhjúpur skipti
mildu máli, því ekki tókst að sanna að um
samantekin ráð væri að ræða og það hafði
áhrif á refsingar að öðru leyti.
Að sama skapi upplýstist ekki hvers
vegna í ósköpunum hópurinn taldi svo
bráðnauðsynlegt að leysa Hallgrím úr
haldi, en freistandi að álykta að menn
hafi talið lögregluna fara offari gegn hon-
um. Líka er freistandi að álykta að Isleif
Elísabet hafi verið gædd miklu persónu-
og útlitstöfrum og að mennirinir hafí átt
bágt með sig þegar hún höfðaði til karl-
mennsku þeirra! En alténd var hún fund-
in sek um að hafa „eggjað" menn til árás-
arinnar og þannig haft forgöngu um
verknaðinn.
Hæstiréttur mildaði og herti
Sem fyrr segir var gefin út ákæra gegn alls
18 úr árásarhópnum. Rannsóknardómar-
inn byggði úrskurð sinn að mestu á ffam-
burði lögregluþjónanna, sem hann tók þó
ekki gildan í einu og öllu. Hann leit til þess
að enginn hinna ákærðu hefðu áður gerst
sekir um alvarleg afbrot. Hann sýknaði 6
hinna ákærðu alfarið. Fimm dæmdi hann í
45 daga fangelsi, þeirra á meðal skipstjór-
ann Guðmund Jónsson. Einn fékk tveggja
mánaða fangelsi og sex þriggja mánaða
fangelsi, þeirra á meðal Isleif og Jónarnir
tveir. Hins vegar frestaði dómarinn fulln-
ustu allra refsinganna og skyldi því enginn
fara í fangelsi sem hegðaði sér vel næstu 5
árin.
Hæstiréttur var í senn mildari og harð-
ari. Alls 8 voru sýknaðir, en 10 fengu dóm
frá 15 dögum upp í tvo mánuði. En
Hæstarétti þótti ekki ástæða til að skilorðs-
binda refsingu 6 hinna ákærðu, sem því
máttu gista fangaklefa um hríð. ísleif var
ekki á meðal þeirra.
Pétur biskup. Á árunum 1981 til 1989
var Pétur Sigurgeirsson biskup yfir ís-
landi og var hann fyrsti biskupssonur-
inn sem sat í biskupsstól á þessari öld.
Seinna kom Karl, sem sporgöngumað-
ur Sigurbjörns, föður síns. Hver var
faðir Péturs og hvenær var hann biskup?
Landbúnaðarverðlaunin. Þremur
bændahjónum hverju á sinu lands-
horninu voru veitt landbúnaðarverð-
launin svonefndu við setningu Búnað-
arþings um sl. helgi. Hver voru þau
sem verðlaunin hlutu að þessu sinni?
Bensínkarlar. Bensínverð hefur hækk-
að mikið á undanförnum misserum og
hafa olíufélögin því mikið verið í frétt-
um. Hverjir eru forstjórar olíufélaganna
þriggja?
Ráðherrann og bæklingurínn. For-
ystumenn Hjartaverndar afhentu heil-
brigðisráðherra í vikubyrjun bækling
þar sem fjallað er um hættuna af reyk-
ingum, sem öllum ætti auðvitað að
vera Ijós en sjaldan er góð vísa of oft
kveðin. Hvaða heitir þessi bæklingur?
Flugkona Þýsk ferjuflugkona hafði
viðkomu hér á landi í vikubyrjun og
þótti ferð hennar að þessu sinni sér-
staklega í frásögur færandi. Af hvaða
sökum?
LAND 06
ÞJOÐ
1. Eftir hverjum er nefnd Hrafnseyri við
Arnarfjörð, fæðingarstaður Jóns Sig-
urðssonar forseta?
2. Hvað heitir leikrítið sem nú er á fjöl-
um Leikfélags Akureyrar þar sem Saga
Jónsdóttir leikur einleik?
3. Hvar á landinu er Leggjarbrjótur?
4. Hver er það sem les Passíusálmana
sem fluttir eru í Útvarpinu um þessar
mundir, einsog ævinlega á föstunni?
5. Hvað heitir hið nýja hafrannsóknar-
skip íslendinga sem er í smíðum í Chile,
sem senn kemur til landsins?
6. Skáldið Jón úr Vör lést fyrír fáum
dögum. Hans fyrst Ijóðabók, Ég ber að
dyrum, kom út áríð 1937 en hans kunn-
asta Ijóðabók kom út níu árum síðar.
Ljóð hans fjalla mörg hver um líf og
baráttu alþýðufólks, meðal annars í
þorpinu sem hann ólst upp í, Patreks-
firði. Hvað heitir þessi Ijóðabók?
7. Hvar var það sem landnámsmaðurínn
Egill rauði byggði sér bú?
8. Hver var fyrsti íslenski lögsögumað-
urínn?
9. Narfeyri er einn af ótalmörgum
kirkjustöðum landsins. Hvar er hann?
10. Tveir af reyndustu útvarpsmönnun-
um á Akureyrí - og reyndar á landinu
öllu - hyggjast senn yfirgefa Ríkisút-
varpið á Akureyrí og halda til annara
starfa. Annar þeirra er forstöðumaður
RÚVAK en hinn hefur lengi séð um
þættina Sagnaslóð og þjóðlagaþáttinn
Tengja. Hverjir eru mennirnir?
Sævarsson
skrifar
■uossuobnBjS uEþsux uumueuuB
-þj96BHBcj 6o WAfld uueuinpoisjoj uossijnBH IPd Joujy ecj uin pnds ja jqh '01 'W|9ijS!>j>|Ajs QjA ueisne jujuib>is ja ujas - ejojjeijiy juáj ja q!>|9 JeBacj Q!Uio>j qb ja jsjAj uias jæq bs 6o puojjsje6o>jS e jæq qseisaA jsau
-snajæus e ja uAapB|\| 6 'Jnpuua>j uuuæq ja uueq qia -JB6uBa-uiA wn>j>joq b jnpuajs uias ‘n|sAsB||BAiq6uBaj uinjjoiujBJH uinuæq q uueq isjppæj 6o uoss6uæn ujbjh Jba uuunpBuin6os6o| i>jsus|si qsjAj ‘8 •jnpe}sdne>|
-saj\j nu ja jecj ua 'nq jas !p66Aq jecj jpnej 11163 uias pjofjpjoN pw jsaiq j jba peq z -pidjoq 'g -jeæjjijjsij jej>|sua|si uinþaqujnjj jnuiiaAj jqja pujau nja ‘uosspunuiæs i.ujBfg 60 uossqupuj !iuy ‘oaj UKlQisieujjosuuejjeq ua
‘jujBu euibs paui sd!>js sjbuub peis .1 jncuaq 60 uossqupijj jujy jjqaq P!dj>)s 'fi juu!S nssaq pe euBui|j?snissed sa| uias dn^jsiq uossujg|qjn6!s |JB» ja psq y ,;uin6a||!aq ||B bqja ‘niojqnpjoA pnqjouj nu ja 60 uuBjiglj uinjjAj jba pmi bujoj jssaq
Bueq uin ppnj puaA nu jnjaq p;3| ua 'jBpjajjqA jn||j jba 60 jnjiAi6 ja uias“ ipfjqBj66aq edsiuidjs uujq b ddn 60 ibpjbjbxq JnisaA 60 !|!6b}jbas efq ujbjj ‘jb[6buubuj|v Jn ddn jn6j}S!6uBq puaA qeq uuubj qb jjBas !UU!»oqpuBqspuB|S| j 'JBpjBfj
-|bah |!1 uin||QA6u!q bjj pja| ujoj ja jn)obqef66aq ■£ -gqjjsjjsi jqjaq esoa ue[>jæ>is z 'SjpuaiJaq uuu^uqæi ipeiuuaui qsjAj ejaA uu!|B) ja uubh npuB))ajq ejjjajq uime nisjAj b 60 jep|B zi B)n|q luujas b jddn jba uueq ua juAsjeujefquiaAS iujbjh
jqja Ja pujau ja uAasujBJH 'l P!JBqspuB|iv J|)A pjaj 'oofi JBuuaq jba euaq uias jeq MuujS nssaq pe ipuejæj jnöosejj j e6a|>|B)sias !i)oc| íq|B/v\-)japnog e|a6uv Jeuunuo>j6n|j-nbaj pjaj , nijofq u!6a|ppAi» , -nu!6B|ajn!|o uossnu6By\| jjag
60 sjio JuA)s uoss)>|!pauag jbu|3 'söunfiaqs uofisioj ja uias uossujofg uuqsu^ ja peq , ’ubjo pe Jaq puAui !puB6!ap|A p uisuw |q )s6ua| rna uias 'J!))opsouuB|/\| esy 60 uossupp uu/aAS neq ‘!uu!>|Sj|p»-bj]A ! ujupfq 60 Niajesnn j J!)|opsjpq6jag
unj6!s 60 uossuraisjoq jnjjansu» ‘uinddaASBpnu 1 6jaqurais auaj| piJpniAI 60 uossuBfisu» uuqsjj^ jeu6eg ojoa juujs nssaq pe umneipjaAjepeunqpuei n6uaj uias neq , es6i |q 6E61 QJJ dnjjsjq jba uias uosspjn6|s J|a6jn6!S jba sinipq jjpej ,
uqas