Dagur - 15.04.2000, Page 6

Dagur - 15.04.2000, Page 6
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 xiJrJP J ÍAjJDJjJU y Það er mín skoðun að listamenn eigi að taka þjóðféiagstega afstöðu þvíþeir geta komið sjónarmiðum sínum betur á framfæri en fólk sem er óvant að skrifa. Þeir sem geta tjáð sig eiga að gera það. Skriftimar em læknisdómur Sigurður A. Magnússon lítur yfir far- inn veg, ræðir um bókmenntir og hræringar á bókamarkaði, pólitík og lífsviðhorf. - Nií er vikci bóharinnar, þannig að það er við hæfi að hefja viðtalið á spumingu um bóklestur. Hef- urðu áhyggjur af því að hann fari minnkandi? „Auðvitað hefur maður áhyggj- ur því það er Ijóst að bóklestur hefur minnkað. Rithöfundar verða varir við það, minnkandi bóklestur hitnar á þeim þar sem þeir fá prósentur af sölunni. Svo ég taki dæmi af sjálfum mér, þá er ég með mun lægri rítlaun nú en fyrir tuttugu árum. En það er óþarfi að fyllast örvæntingu þótt eitthvað hafi dregið úr bóklestri því enn er mikið lesið og mikið gefið út af góðum bókum. Svo er rétt að benda á að fyrir tíma launasjóðsins gátu einungis örfáir lifað á skrifum sínum. I dag hafa um sjötíu íslenskir höfundar fengið heil verk eftir sig birt er- lendis. Það finnst mér hreinlega vera kraftaverk." - Finnst þér íslenskir rithöfund- ar jafn þjóðfélagslega meðvitaðir og þeir voru hér á árttm áður? „Nú er allt annað pólitískt landslag og umhverfi en var. Kalda stríðið, sem skipti mönnum í fylkingar, er að baki. En mér finnst íslenskir nútímarithöfund- ar hafa mjög sterka þjóðfélagslega vitund og höfundar eins og Guð- mundur Andri Thorsson, Guð- bergur Bergsson og Pétur Gunn- arsson koma strax upp í hugann. Það er mín skoðun að Iistamenn eigi að taka þjóðfélagslega af- stöðu því þeir geta komið sjónar- miðum sínum betur á framfæri en fólk sem er óvant að skrifa. Þeir sem geta tjáð sig eiga að gera það. Reyndar finnst mér skylda hvers einasta manns í þjóðfélag- inu að taka afstöðu til umhverfis- ins.“ - Þú ert pistlahöfundur á DV og þar verður ekki annað séð en þú sért í stjómarandstöðu. „Eg er alltaf f valdaandstöðu. Það er svo skrítið en ég hef ein- hvern veginn alltaf haft ofnæmi fyrir valdi. Þegar ég var á Mogg- anum skrifaði ég rabbdálka og það varð allt vitlaust út af þeim.“ - Hvemig fannst þér að vinna á Mogganum? „Bjarni Benediksson réð mig á Moggann á sínum tfma og stóð alltaf með mér meðan hann var ritstjóri. Kristmann Guðmunds- son var bókmenntagagnrýnandi blaðsins og var eitthvað óhress með að ungur strákur var settur við hlið hans og ekki bætti úr skák að ég hafði gagnrýnt þýð- ingu hans á einhverri bók. Hann kvartaði við Bjarna sem hélt fund með okkur og sagði við mig: „Sig- urður, þú ert ráðinn hér til að skrifa það sem þér finnst og þú gerir það áfram.“ Eftir það hætti Kristmann að heilsa mér. Það var stundum bæði erf’itt og einkennilegt að vinna á Moggan- um. I orði kveðnu hafði ég frjáls- ar hendur en ef ég kom með grein sem tengdist viðkvæmum „Fyrlr mér er Davíð Oddsson dæmigerður fýrir stjórnmálamann sem kemur óorði á stjórnmálin. Hann er vissulega orðheppinn og getur verið fýndinn en er um leið ótrúlega slunginn í innihalds- lausum málflutningi.“ málum eins og hernámsandstæð- ingum var mér tilkynnt fyrirfram að greinin yrði ekki birt. Kalda- stríðsandinn réð öllu þarna. Eg man að eitt sinn birtist grein í Tímanum þar sem fjallað var um tvö andlit Morgunblaðsins og því haldið fram að blaðið notaði mig til að hafa þá sjálfstæðismenn góða sem ekki vildu fylgja Hokkslínunni í blindni. Ritstjórn Moggans svaraði þessum skrifum með því að ég þyrfti ekki að bera rnínar greinar undir ritstjórnina. Magnús Kjartansson gerði at- hugasemd við það í Austra og benti á að ég hefði verið boðaður á menningarviku hernámsand- stæðinga, ég hefði mætt en ekki skrifað neitt um hátíðina. Hann sagðist vita ástæðuna því ég hefði sagt þegar ég kom á ráðstefnuna að ritstjórn blaðsins hefði tilkynnt mér áður en ég fór þangað að ég fengi ekki að skrifa um hana og ég hefði þurft að hlýða því. Þetta væri nú allt frelsið, sagði Magnús - og það var rétt hjá honum.“ - Ef við víkjum frá árum kalda stríðsins og að nútímanum, hver finnst þér vera helsta meinsemdin í íslensku þjóðfélagi? „Otrúleg pólitísk spilling og fj'ármálaspilling. Fjársterk fyrir- tæki eru hið dulda vald sem aldrei sýnir sig opinberlega. Ríkis- stjórnin er strengjabrúða fjár- magnsaflanna sem fara sínu fram í kvótamálinu og gagnagrunns- málinu, jafnvel í virkjunarmálum. Onnur meinsemd er dvínandi áhugi fólks á stjórnmálum og þar er ekki við neina aðra að sakast en stjórnmálamennina. Almenn- ingur lítur á þá sem loddara sem ota sínum tota og fyrir vikið finnst honum stjórnmál ekki þess virði að skipta sér af þeirn." - Hver er þá skoðun þín á for- sætisráðherra, er hann ekki þungaviktarsljórnmálamaður? „Fyrir mér er Davíð Oddsson dæmigerður fyrir stjórnmála- mann sem kemur óorði á stjórn- málin. Hann er vissulega orð- heppinn og getur vcrið fyndinn en er um leið ótrúlega slunginn í innihaldslausum málflutningi. Fyrir síðustu kosningar var mál- flutningur hans í þoku, ekki var tckið á einu einasta máli, og jafn einkennilegt og það er fór það vel í þjóðina. Davíð segir aldrei neitt og það Bnnst mér svo ömurlegt. En með þessum aðferðum hefur hann náð tökum á Sjálfstæðis- flokknum sem fylgir honum ná- lega blint.“ Velgengni Máís og menningar - Við verðum að vt'kja að slótiíð- indum á íslenskum bókamarkaði, sameiningu Máls og menningar og Vöku Helgafells. Finnst þér þetta jákvæð þróun? „Auðvitað óttast maður nokkuð að fjarmagnið sé að taka yfirtaka hugsjónastefnuna. Ef svo er í þessu tilviki þá er það mjög slæmt. Eg er auðvitað ekki hlynntur því að eitt fyrirtæki verði algjörlega ráðandi á bókamarkaði. Eg hef samt ástæðu lil að ætla að svo verði ekki og að lýrirtækin tvö haldi sjálfstæði sínu. Ég held að þessi sameining gæti orðið til góðs ef rétt er haldið á málum. Og mér sýnist menn almennt vera fremur jákvæðir vegna þessa, nema Jóhann Páll Vakíimarsson enda var bann rokinn burt og er því skiljanlega í fylu.“ - Hver heldur þti að sé lykillinn að velgengni Máls og menningar?

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.