Dagur - 15.04.2000, Blaðsíða 16
32 - LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
Fluguveiðar að vetri (163)
Alltaf eitthvað í fréttum
Þessa dagana
eru skemmtileg-
ar stundir hjá
stangveiði-
mönnum. Þeg-
ar menn hittast
og hafa um
meira að spjalla
en hversu langt
sé til vorsins.
Nú er kominn
fiðringur, og
fréttir. Austan
af sjóbirtingsslóðum er það að
frétta að menn hafa verið að
taka væna fiska hingað og þang-
að. Við hinir sem teljum að
fiskurinn eigi að fá að ganga
niður á vorin til að koma feitari
á haustin, erum lítt fegnir við
slíkar fréttir. Sjóbirtingsveiði að
vori ætti að minnka að mun.
Jújú, eitthvað mun af geldfiski
innan um sem gæti verið vel
haldinn. En svo vel haldinn að
hann verði ekki enn betri í
haust? Og menn ættu að sleppa
því að monta sig af dökkum og
þreyttum stórfiskum sem nota
síðustu kraftana til að komast út
í sjó eftir að hafa gert skyldu
sína við stofninn.
Dótabúðin?
I síðasta þætti litum við í dóta-
búðir veiðimanna og gerum nú
enn. I Veiðivon voru menn að
taka upp splunknýja Sage stöng,
XP. Það þýðir að nú er þessi vel
þekkti framleiðandi kominn með
enn hraðari stöng en IV - grafít
línuna. Afl og hraði stanga get-
ur farið út í öfgar, en ekki er að
efa að þetta er fín stöng. Það er
rétt svo að maður vogi að spyrja
hvað drottningin í stangasafni
Sage kosti. Og svarið: Rétt inn-
an við 50 þúsund krónur. Sjálf-
ur á ég mjög hraða stöng sem ég
vildi ekki vera án, fyrir línu átta.
Hins vegar fínnst mér jafn gam-
an að taka í mjúku stöngina fyrir
línu sex og finna muninn. Mað-
ur fyllist rómantík og unaði þeg-
ar sú mjúka er í hönd; túrbó-
stöngin kemur að góðum notum
þegar vindar blása stríðir. Það
er svo spurning um 50 þúsund
krónur hvort maður fellur fyrir
XP?
Alveg á hinum enda verðlags
eru tíðindi af ódýrri stöng fyrir
þá sem það kjósa. Cortland er
með verðlækkun svo um munar.
Asgeir í Sportvörugerðinni segir
að nú geti hann boðið mjög
frambærilegar stangir á verðbil-
inu 6900-7900. Menn í stanga-
hugleiðingum hafa því úr
nokkru að moða. Þá eru þau
tíðindi af hjólum að æ algengara
er að framleiðendur elti Loop og
bjóði spólur með mun meira
þvermáli en áður. Þetta þýðir að
færri snúninga þarf til að ná
línu inn í baráttu við fisk. Sjálf-
ur kýs ég sh'k hjól, en það er
eins og hver önnur sérviska sem
menn geta rætt um. I báðum
ofangreindum verslunum má
finna nýjar gerðir af þessari teg-
und.
íhaldssemi
Eru fluguveiðimenn íhaldssam-
ir? Það held ég. Þangað til að
æðið skellur á. Nú er svo komið
að varla selst fluga (smá ýkjur)
ef hún er ekki með kúluhaus.
Þetta er búin að vera 10 ára þró-
un hér á landi, öfaganna á milli,
frá því að kúluhausarnir komu.
Að því tilefni spurðist ég fyrir
um aðra nýjung sem er búin að
vera fáanleg nokkuð lengi: ís-
bjarnarhár í flugnavængi. Þau
er að sjálfssögðu mjög vel til
þess fallin að „synda", lífleg með
miklu holrúmi, og svo er ég ekki
frá því að náttúrulegi gljáinn á
þeim sé ögrandi við fiska. Bendi
á þetta vængefni, því staðfest er
að menn eru víst ekkert sérlega
spenntir fyrir því. Spyrjum eftir
tíu ár!
Diskur
Á menningarsviðinu er ekki
margt, en þó. Einar Guðmann á
Akureyri hefur gefið út myndir
af Laxá í Mývatnssveit og Laxár-
dal, teknar úr lofti. Hver bugða
og flúð í ánni sést vel með þess-
um hætti og gaman að skoða
veiðistaði, kunna og framandi.
Diskurinn (CD íyrir tölvur) fæst
á heimasíðu Fluguveiðifélags Is-
lands, kostar innan við 3000.
Vinir Laxár hafa vafalaust mjög
gaman af þessu efni. Ekki fylgja
neinar veiðileiðbeiningar með
hjá Einari. Aðspurður sagði
hann það viljandi, menn yrðu að
etja kappi við urriðann á jafnétt-
isgrundvelli.
Þá má geta þess að á slóðinni
nat.is hefur Birgir Sumarliðason
komið ýmsum veiðileiðbeining-
um á framfæri. Þetta er ferða-
vefur, með veiðiefni líka. Þarna
er efni í handbókar-
stíl, stuttar frásagnir
af vötnum og ám, en
ekki neitt svo að
menn geti farið inn á
vefinn til að moka
upp fiski. Góður til
að fá hugmynd um
hvar geti verið hægt
að fá að renna þegar
maður er á feró um
landið.
Eldisfiskur?
Við hófum spjallið í
dag á niðurgöngufiski
og endum á eldisfiski.
Hvar sem veiðimenn
hittast í fyrstu vor-
blíðu er þetta umræðuefni.
Veiðimenn ættu að fylgjast vel
með þeirri umræðu sem nú
stendur um kvíaeldi við strendur
landsins. I minnum er haft hve
mikinn skaða eldisfiskur vann
hér á árum áður þegar hann
gekk í ár landsins eftir að hafa
sloppið úr fangelsi. Hlutfall af
eldisfiski í Elliðaánum fór í
hæstu hæðir. Umræðan um hin
öruggu búr er ekki komin á það
hátt stig að maður trúi, frekar
en maður trúi á hin öruggu
minkabú. Þá berast fregnir af
því að í Færeyjum eigi menn í
höggi við skæða sjúkdóma í eld-
isfíski, smitið hafí hugsanlega
komið með fóðurskipum frá
Evrópu. Viljum við taka slíka
áhættu við okkar strendur? Is-
land er eitt af örfáum löndum
við Norður-Atlandshaf sem stát-
ar af tiltölulega hreinum veiði-
lendum, sæmilega sterkum
stofnum, og náttúrulegu skilyrð-
um til að njóta. Samt er laxinn
okkar í mikilli hættu. Viljum við
taka áhættuna af því að eitthvað
bresti? Þá verður ekki aftur
snúið. Stangveiðimenn geta
ekki bara tekið. Við verðum lfka
að gefa. Náttúrunni þá vernd
sem hún verðskuldar.
FLUGUR
C0RTLAND
, FLUGU
LINURNAR
.. HÆFA
0LLUM
AÐSTÆÐUM
Cortland 444 Hugulínurnar
fást í 10 geröum sem hæfa
sérhverjum aðstæöum.
Framþungu fluguitnurnar fést
í 2 geröum af flotlinum, 3
geröum af sökk-odds Ifnum,
intermediate ásamt 4 geröum
af sökklínum.
Þvi ekki að byrja með Cortland,
þú endar þar hvort eð er!
Fæst f næstu veiðlverslun.
Sportvörugerðin
Heildsala-smásala
Mávahlíó 41, Rvik, sími 562-8383
1Djg^jnr'
Krossgáta nr. 182
Lausn ..................
Nafn..........:.........
Heimilisfang
Póstnúmer og staður
Helgarkrossgáta 182
í krossgátunni er gerður
greinarmunur á grönnum
og breiðum sérhljóðum.
Lausnarorð sendist til
Dags (Helgarkrossgáta nr.
182), Strandgötu 31, 600
Akureyri eða með símbréfi
í númer 460-6171.
Lausnarorð 180 var
„vörubíH". Vinningshafi er Verðlaun: ísíð-
Eiríkur Egill Sigfússon, asta sinn, eftir
Stafafelli í Fellahreppi og Ágúst Borgþór
fær hann senda bókina Sverrisson.
Tvær fyllibyttur að norð- Skjaidborg gefur
an, eftir Guðmund Frí- út.
mann. Skjaldborg gefur
út.
idlavjiíóiv : Ji u i-frfsí/i k. V/'