Dagur - 15.04.2000, Blaðsíða 14

Dagur - 15.04.2000, Blaðsíða 14
LÍF OG HEILSA 30 - LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 Ttoptr Um þó nokkra hríð hefur það verið tíska að vera með pinna, hring eða annað skraut í aðskiljan- legustu líkamspört- um, eyrnarsnepli, augabrúnumr, tungubroddi, nafla eða jafnvel kynfær- um. Ýmsar hættur geta verið samfara svona aðgerðum. „Þegar verið er að gera göt fyrir, til dæmis eyrnarlokka, þá er sárið opið og blóðugt þar til það grær og stundum Ýmsar hættur eru því samfara að fá hring í naflann ef ekki er farið variega. Hjá iand- læknisembættinu fengust þær upplýsingar að fólk hafi fengið ýmsar sýkingar í kjölfar svona aðgerðar, þar sem gert er gat i húð. hann. Gullsmiðir hafi verið að gera göt í eyru fólks í tengslum við sölu á skartgripum en lítið eft- irlit sé haft með því. Arný segir að sömu aldurstak- mörk gildi um starfsleyfi til götunar og húðflúr. Það sé dómgreindar- skortur að húðflúra eða gata börn, þar sem þau bera þess merki alla ævi. Þetta er eftir allt saman tískufyrirbrigði og eftir nokkur ár fari það úr tísku að vera með gat í naflanum. Verslunin Hókus Pók- us á Laugaveginum í Reykjavík hefur leyfi til þess að gera göt í húð fólks. Einar Arnarsson, afgreiðslumaður í versl- unninni, segir að þar séu í gildi strangar reglur um SMÁAUGLÝSINGAR HEILSA Vertu með í heilsuátaki! Losaðu þig við vetrarslen og þreytu og aukakílóin í leiðinni. Sjálfstæðir Herbalife dreifendur. Ragnhildur og Kristján. Símar 453 7015 og 897 7822 agga@vor- tex.is Frábær vara! Aukakílóin burt. Ég missti 11 kg á 9 vikum. Betra útlit, bætt heilsa, meiri orka. Hafðu samband. Stefanía 453 5665 GSM 862 6193 Biddu um það sem þú vilt. Biddu um hjálp, biddu um ráðleggingar og hugmyndir - en vertu aldrei hræddur um að biðja um hjálp. Guðmundur, sími 899 4662 Aukakílóin burt! Ný öflug vara! Náðu varanlegum árangri. Ég missti 7 kg. á 5 vikum. Síðasta sending seldist strax upp. Frábær vara sem vinnur á appelsínuhúð. Persónuleg ráðgjöf og stuðningur. Hringdu strax. íris 898 9995, iris@mmedia.is Visa/Euro INTERNET Hefur þú áhuga á að taka þátt í stæðsta viðskita- tækifæri 21. aldarinnar í gegnum INTERNETIÐ. Árið ‘98 velti internetið 7 billjónum $ Árið ‘99 velti internetið 200 billjónum $. Ensku kunnátta nauðsvnleg. Uppl. á www.Iifechanging.com Hafðu samband við mig ef þig vantat vörur. Lilja Stefánsdóttir, sjálfstæður Herbalife dreifiaðili. (visa/euro) vs. 462 4123 hs. 462 3450 GSM 695 1293 fær fólk sýkingar á svæðið. Það er spurn- ging um að vera alltaf vakandi fyrir hætt- unni af sýkingum," segir Vilborg Ingólfs- dóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Landlækn- isembættinu. Vilborg segir að engar reglur gildi um götun en embættið hafi sett reglur um húðflúr og þeir sem stunda slíkt eiga að vera undir eftirliti varðandi hreinlæti. Þar segir að afla beri samþykkis Landlæknis áður en heilbirgðisnefnd veitir leyfi til reksturs húðflúrstofu og ekki megi flúra einstakling undir 18 ára aldri, nema fyrir liggi skriflegt samþykki frá foreldri eða forráðamanni. Reglurnar gera ráð fyrir að á stofunum skuli gaett ítratasta hreinlætis og smitgátar, notaðar einota nálar, húð- flúrarinn skuli þvo hendur sínar vandlega og nota einota hanska við starf sitt. Auk þess er þeim sem flúraður er gert að und- irita yfirlýsingu þess efnis að honum hafi verið gerð grein fyrir því að um sé að ræða varanlega breytingu á húð. Húðflúrstofur eru háðar eftirliti heilbrigðisnefnda á við- komandi stað og nefndir veitir leyfi fyrir rekstri slíkrar stofu. Húðflúr og Iíkamsgöt- un er svo alvarlegt mál að Blóðbankinn hefur það í reglum sínum að þeim sem hafa nýlega Iátið gera göt í húðina á sér eða tattóverað sig er bannað að gefa blóð og er þetta vegna hættu á Iifrarbólgu eða alnæmissýkingu. Fólk gæti sín sjálft „Fólk verður sjálft að taka ábyrgð á eigin líkama og gera sér grein íyrir því að það hefur fulla heimild til þess að ganga út ef því líst ekki á aðstæður. Það er varasamt að láta einhvern flúra sig, sem hefur ekki til þess tilskilin leyfi,“ segir Arný Sigurðar- dóttir, heilbrigðisfulltrúi í Reykjavík. Hún segir að heilbrigðiseftirlitið vari við því að fólk láti flúra sig í heimahúsum, og segir alltaf vera smithættu, en stofurnar eigi ekki aðeins að sótthreinsa búnaðinn sem notaður er heldur eigi að dauðhreinsa hreinlæti. Nálarnar sem notaðar séu til götunar séu einnota, svæðið þar sem gatið sé gert sé sótthreinsað áður en aðgerðin sé gerð. Fólki sé bent á að hirða vel um gat- ið og þvo það tvisvar á dag í tvær vikur, með eyrnapinna vættum í sótthreinsandi lausn, og mælir Einar með svokölluðu Clorhexedíni sem sé til í apótekum, en ráðleggur fólki frá því að nota alkóhól, eða próbanól. Ef gatið er í tungunni er fólk fyrst látið sótthreinsa munninn með munnskoli og síðan mælst til þess að það skoli á sér munninn þegar heim er komið. Hann segir að stundum komi ígerð í sárið en þá eigi fólk að koma í búðina til sín og fá ráð, stundum sé málið það alvarlegt að leita þurfi til læknis en það sé sjaldgæft. „Það hreinlæti sem við höfum hérna er eitt, síðan er annað hvernig fólk hegðar sér þegar það kemur heim til sín. Það er mjög mikilvægt að fólk gæti sín sjálft,“ segir Einar. -PJESTA INTERNET-HRAÐLESTIN MEÐ FYRIRTÆKIÐ OKKAR UM BORÐ HYGGUR Á HNATTFERÐ. Ef þú átt tölvu, þá eigum við farmiðann. Vilt þú koma með í stórkostlegustu viðskiptaferð nýrrar aldar? Hafðu samband við Stefán og Sólveigu sjálfstæða HERBALIFE- dr.aðila. S. 461- 4161 899-9192 stef@simnet.is Er offita og næringatengdir sjúkdómar stærsta heilbrigðisvandamál á nýrri öld? Eiga Islendingar feitustu börn í Evrópu? Hundruð Islendinga hafa verið að ná frábærum árangri á síðustu árum. Vertu einn þeirra og komdu þér í þitt rétta líkamsform. Hringdu og ég aðstoða þig samkvæmt þínum þörfum. Aðhald og 100% trún- aður. Takmarkaður fjöldi. Visa/Euro Sími 462-1458 Jóhanna Ertu að missa vitið? Viltu grennast á auðveldan og fljótlegan hátt. 100% nátturulegar vörur. 30 daga skilafrestur. Snjólaug og Gunnar. Simi 483 4699 og 695 5677, sendum frítt í póstkröfu. Visa/Euro. E-mail gunnarmagg@islandis.is www.richfromnet.com Að byrgja brunninn Þessa dagana er mikið ritað og rætt um hina svokölluðu neyð- argetnaðarvöm eða eftirápillu eins og sumir vilja frekar kalla hana (þær). Umræðan snýst um ýmis praktísk og sið- ferðilega spurs- mál svo sem að- gengi að Iyfinu og það hvort ung- lingsstúlkur eigi að geta fengið það án þess að hringt sé í mömmu og pabba og ljóstrað upp um að litla englabamið sé farið að hafa kyn- mök. Umboðsmaður barna, Þórhildur Líndal, túlkar lögin sem svo að hafi stúlka náð 14 ára aldri sé heil- brigðisstarfsfólki ekki skylt að láta foreldra vita um beiðni hennar. Húrra húrra húrra?! Hugsið ykkur bara að vera 14 ára rétt að byija að dýfa tánum í djúpulaug unaðs- semda kynlífsins, lenda svo í því að smokkhelvítið rifnar, hafa kjark til að leita aðstoðar hjá réttum að- ila og svo PÆNG KRASJ? Vin- gjarnlegi félagsráðgjafinn hringir beint í mömmu og pabba án þíns samþykkis. Svona reynsla getur auðveldlega rústað því trausti sem unglingsstúlkan bar áður til fag- manneskjunnar og gert það að verkum að hún og allar hennar vinkonur leita ekki aftur hjálpar á réttum stað þegar þær lenda í vanda. Tíðni unglingaþungana á Is- landi er stjarnfræðilega há mið- að við nágrannalöndin og til þess að reyna að draga úr því fé- lagslega vandamáli er mikilvægt að gera aðgengi að eftirápill- unni sem best og reyna að hvetja ungar stúlkur til að leita sér að- stoðar með því að gera móttök- urnar hlýlegar og hrósa þeim fyrir að sýna ábyrgð. Þegar stúlka óskar eftir eftirápillu er hún vissulega hvött til að ræða mál- in við foreldra sfna og sömuleið- is fær hún ráðgjöf um aðrar og hentugri getnaðarvarnir þegar til langs tíma er litið. Þess vegna er alrangt að segja að með því að virða friðhelgi einka- KYIMLIF Ragnheiður Eipíksdóttip skrifar lífs ungs fólks sé verið að hvetja til óábyrgrar kynhegðunar. Líka fyrir fullorðnar Þó svo að hér að framan hafi ég lagt áherslu á notkun eftirápill- unnar hjá ungum konum er ekkert sem mælir gegn því að hún sé not- uð hjá kynvirkum eldri konum líka. Að vísu er ekki hægt að mæla með því með góðri samvisku að hver landsins freyja eigi alltaf til töflur inni í baðskáp og noti þær eftir hverjar samfarir sem hafa endað með sæðisinnspýtingu? Aðrar getnaðarvarnir eru betri kostur til langframa s.s. pillan, lykkjan eða smokkurinn. En þó að árin færist yfír er ekki þar með sagt að konur geti ekki lent í því að hafa óvarðar samfarir hvort sem það er með ráðum gert eður ei. Dramatiskasta dæmíð um slfkt er auðvitað nauðgun og þá er ómet- anlegt að geta gripið til neyðar- getnaðarvarnar í stað þess að bíða og sjá til og fara svo ef til vill í fóst- ureyðingu sem er stórt líkamlegt inngrip. Svona gerum við Tvær pillur eru teknar í einu sem fyrst eftir óvarðar samfarir, allt að 72 klukkustundum síðar. Hálfum sólarhring sein- na eru aðrar tvær teknar. Með því er komið í veg fyrir að mögulega frjóvg- að egg geti tekið sér ból- festu í legveggnum og bytjað að búa til fóstur. Konan getur fundið fyrir dálitlum aukaverkunum eftir töku taflanna, helst ógleði og spennu í brjóst- um. Arangurinn er 98% en ef svo ólíklega vill til að fijóvguðu eggi tekst að grafa sig inn í slímhúðina þrátt íyrir allt er ekki hætta á fósturskemmd- um af völdum lyfsins. Eg vil undirstrika að taka eft- irápillunnar jafngildir ekki fóstureyðingu þar sem ekld er um neitt fóst- ur að ræða þegar gripið er inn f. eftirá Að visu er ekki hægt að mæla með því með góðri samvisku að hver landsins freyja eigi alltaf til töfl- ur inni i baðskáp og noti þær eftir hverjar samfarir sem hafa endað með sæðisinnspýtingu? Aðrar getnaðarvarnir eru betri kostur til langframa svo sem pillan, lykkjan eða smokkurinn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.