Dagur - 15.04.2000, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 - 33
Í>^WJT_
Guðríður tengir tvo
Höggmynd Ásmundar
Sveinssonar af Guðríði
Þorbjarnardóttur, kven-
hetju og landkönnuði,
og syni hennar, Snorra,
hefur verið komið fyrir í
Þjóðmenningarsafninu í
Ottawa í Kanada. Sama
höggmynd hefur staðið
við Byggðasafnið í
Glaumbæ í Skagafirði
frá árinu 1994.
í tilefni opinberrar heimsóknar
Davíðs Oddssonar forsætisráð-
lierra til Kanada á dögunum af-
henti hann kanadísku þjóðinni
að gjöf höggmynd Asmundar
Sveinssonar af Guðríði Þor-
bjarnardóttur og syni hennar,
Snorra Þorfinnssyni, þar sem
þau standa í stafni víkinga-
skips. Snorri er talinn fyrsti
Evrópubúinn sem fæddur er í
vesturheimi, fyrir um 1000
árum. Davíð afhenti Jean
Chrétien, forsætisráðherra
Kanada, höggmyndina við há-
tíðlega athöfn í Þjóðmenning-
arsafninu í Ottawa, Museum of
Civilization. Heiðursgestur við
athöfnina var hinn íslenskætt-
aði geimfari, Bjarni Tryggva-
son. Þótti nærvera hans vel við
hæfi því líkt og Guðríður var
víðförulst íslenskra kvenna á
framandi slóðum síns tíma þá
er Bjarni viðförulastur Islend-
inga á framandi slóðum nútím-
ans. Einnig kom fram við at-
höfnina Sigrún Hjálmtýsdóttir
söngkona sem tók m.a. lagið
með kanadískum grunnskóla-
börnum.
Sagan á bakvið
höggmyndina
Athöfnin í Ottawa markaði upp-
haf landafundahátíðar Islend-
inga í Kanada á þessu ári. Af-
hending höggmyndarinnar af
Guðríði og Snorra markaði hins
vegar endi á ferli sem hófst fyrir
sjö árum þegar ferðamálafröm-
uðir í Skagafirði fengu þá hug-
mynd, með Vigfús Vigfússon,
þáverandi ferðamálafulltrúa í
broddi fylkingar, að minnast
með einhverjum hætti hetjunnar
og landkönnuðarins Guðríðar
Þorbjarnardóttur og sonar henn-
ar, Snorra Þorfinnssonar. Ætl-
unin var að vekja athygli banda-
rískra og kanadískra ferðamanna
á Skagafirði og tengja saman
arfleið þessara þjóða. Naut verk-
efnið stuðnings fjölda einstak-
linga og félagasamtaka á slóðum
Vestur-Islendinga.
Vitað var um höggmynd Ás-
mundar Sveinssonar af Guðríði
og Snorra, sem sýnd var á
heímssýningunni í New York
1939-1941, og kom sú hugmynd
snemma upp að koma þeirri
höggmynd lyrir í Glaumbæ í
Skagafirði, þar sem Guðríður og
Snorri hjuggu í upphafi 11. ald-
ar. Sú höggmynd glataðist
reyndar en frumeintakið varð-
veittist á Ásmundarsafni í
Höggmyndin af Guðríði Þorbjarnardóttur og Snorra komin á sinn stað í Þjóðmenningarsafninu i Ottawa. I/ið höggmyndina
eru, frá vinstri, Vigfús Vigfússon, fulltrúi Skagfirðinga við athöfnina, Lovísa Björnsdóttir, eiginkona hans, og Davíð Gíslason,
formaður landafundanefndar I Kanada, sem átti frumkvæði að því að koma höggmyndinni vestur um haf.
Hópur Vestur-lslendinga i Ottawa, sem kallar sig íslandsvini, stillti sér að sjálf-
sögðu upp við höggmyndina af Guðríði og Snorra.
Glaumbæ fyrir 6
árum var Vestur-
Islendingurinn
Davíð Gíslason,
bóndi í Geysis-
byggð í Manitoba,
skammt norðan
við Gimli, og for-
maður landa-
fundanefndar í
Kanada. Davíð
fannst saga Guð-
ríðar mjög merki-
leg og kom til
hugar að svona
höggmynd yrði
að setja upp
vestanhafs. Á
þeim tíma vissi hann ekki af
annarri afsteypu en þegar hann
komst að því fór boltinn að
rúlla. Þegar hann var svo skipað-
ur formaður landafundanefnd-
arinnar vestra fyrir rúmum
tveimur árum setti hann málið á
dagskrá fyrir alvöru.
Skemmtileg tenging
I samtali við Dag sagðist Davíð
vera afar ánægður með hvernig
til tókst í Ottawa. Athöfnin hefði
markað upphaf landafundahá-
Nemendur úr grunnskólum ÍOttawa og náqrenni
aðstnðí 'eikSynin9u um Guðríðiog víkingana með
runu Hjalmtysdóttur. Diddú.
tíðarinnar og vel til fundið að
byrja á svo táknrænni athöfn
sem tengdi saman þessa menn-
ingarheima.
Davíð er fæddur í Manitoba
árið 1941, sonur Jósefs Gísla-
sonar og Guðrúnar Eiríksdóttur.
Hann tengist Skagafirði og
Glaumbæ með skemmtilegum
hætti því móðir hans fæddist á
Tilkomumikil athöfn
Vigfús Vigfússon var viðstaddur
athöfnina í Ottawa, fyrir hönd
Skagfirðinga, og sagði hann í
samtali við Dag ánægjulegt að
höggmyndin af Guðríði og
Snorra væri komin upp vestan-
hafs. Hann sagði marga aðila
hafa komið þar að máli, m.a.
Sigríður Sigurðardótt-
ir, safnstjóri í Glaum-
bæ, Svavar Gestsson,
aðalræðismaður Is-
lands í Kanada, Davíð
Gíslason, formaður
landafundarnefndar í
Kanada, og síðast en
ekki síst hefði Davíð
Oddsson átt stóran
þátt í að leggja loka-
hönd á verkið.
„Athöfnin var til-
komumikil og tókst í
alla staði mjög vel.
Þetta fékk mikla at-
hygli fjölmiðla í
Kanada. Opinher heim-
sókn Davíðs gaf þessu
aukið vægi og fékk athöfnin enn
meiri athygli fyrir vikið. Högg-
myndin tengir óneitanlega
Skagafjörð við fornar slóðir
Guðríðar í vesturheimi og getur
haft mikla þýðingu fyrir ferða-
þjónustu beggja landa," sagði
Vigfús.
-BJB
Vigfús afhendir Sylvie Morel, safnsstjóra ^ðmena/ngar-
safnsins I Ottawa, tjósmynd frá afhjupunmn
"« 1« og imgwHBnrH*"
Reykjavík. Var afráðið að gera
tvær bronsafsteypur af verkinu
og setja aðra þeirra upp í
Glaumbæ. Vigdís Finnbogadótt-
ir, þáverandi forseti íslands, af-
hjúpaði minnisvarða, þar sem
höggmyndin stendur ofan á blá-
grýtissteini, sumarið 1994 og nú
hefur hin höggmyndin loks hlot-
ið verðugan stað í vesturheimi.
Sú hugmynd varð til með
skemmtilegum hælti því meðal
viðstaddra á athöfninni í
Einar Gústafsson, forstöðumaður skrifstofu Ferðamálaráðs i New York, og Bjarni
Tryggvasongeimfari á góðri stund. Bjarni var heiðursgestur við hátiðina og Einar
attiþátt í að komá höggmynd af Guðríði og Snorra upp í Glaumbæ á sínum tíma.
bænum Miklagarði í Skagafirði
og var skírð í Glaumbæjarkirkju.
Eins árs gömul fór hún með for-
eldrum sínum til Kanada árið
1920. „Þessi tenging er mjög
skemmtileg og ég á marga ætt-
ingja í Skagafirði, sem og víðar á
landinu því faðir minn á ættir
sínar að rekja til Snæfellsness,“
sagði Davíð.
Aðspurður hvort samskipti
landanna aukist ekki enn meir,
eftir að Guðríður og Snorri eru
komin á áberandi stall, sagðist
Davíð reikna með því. Þannig
væru formleg tengsl komin milli
Byggðasafnsins á Glaumbæ og
Vesturfarasetursins á Hofsósi
annars vegar og hins vegar Vest-
ur-íslenska safnsins í Gimli í
Kanada. „Höggmyndin er orðin
tákn þessara samskipta sem von-
andi eiga eftir að aukast," sagði
Davíð Gíslason.