Dagur - 26.05.2000, Page 1
Föstudagur 26. maí 2000
83. og 84. árgangur - 99. tölublað
Það leyndi sér ekki á Bessastöðum i gær að Úlafur Ragnar Grímsson og Dorrit Mousaieff eru yfir sig ástfangin. Brúðkaupið hefur ekki verið timasett en
það verður líklega í haust. Altént hefur íslenska þjóðin eignast forsetafrú að nýju. - mynd: gva
Hjónaband mOdlvægt
Biskup íslands sam-
gleðst með Ólafi
Ragnari og Dorrit
heitkonu hans. Hann
segir mikilvægt að
fólk njóti trufrelsis.
íslenska þjóðin hefur eignast for-
setafrú að nýju í Dorrit Mousai-
eff. Eftir ástarsamband síðastlið-
ið ár, sem hefur fengið að þróast
smátt og smátt, tilkynntu Olafur
Ragnar Grímsson og Dorrit trú-
lofun sína í gær. Óhætt er að
fullyrða að flestir íslendingar
samgleðjist með þeim og nú er
bara beðið eftir brúðkaupinu.
Það hefur ekki verið dagsett en
verður væntanlega fyrir árslok.
Karl Sigurbjörnsson, biskup Is-
lands, sagðist í samtali við Dag
gleðjast yfir trúlofuninni, annað
væri ekki hægt að gera þcgar fólk
staðfesti ráð sitt. „Við samgleðj-
umst forseta íslands og heitkonu
hans,“ sagði Karl.
Þau njóta trúfrelsis
Aðspurður hvort það skipti máli
lyrir forsetaembættið út á við að
Ólafur Ragnar og Dorrit væru
ólíkrar trúar, hann kristinnar trú-
ar og hún gyðingtrúar, sagði bisk-
up að þau nytu trúfrelsis. Trú-
frelsið væri grundvallaratriði í
okkar þjóðfélagi. Fjölmargir ís-
lendingar lifðu í blönduðum
hjónaböndum, bæði trúar og
þjóðernis.
„Mestu varðar að fólk virði trú
hvors annars og eins að við mun-
um eftir því að trú er ekkert
aukaatriði heldur grundvallar-
þáttur í lífi hvers manns. Hjóna-
vígsla og hjónaband er ákallega
mikilvægt frá sjónarmiði trúar-
innar. Hjónabandið er grunnein-
ing samfélagsins og mikilvægt að
hún sé virt og að henni hlúð.
Þessi ákvörðun þeirra stuðlar að
því,“ sagði Karl.
Gyðmgdómur strangari
Hvort væntanlegt brúðkaup gæti
farið fram innan íslcnsku þjóð-
kirkjunnar sagði Karl ekkert því
til fyrirstöðu. Þjóðkirkjan væri
opin. Hjónavígsla í kirkju er
kristin athöfn, en það er ekki óal-
gengt innan þjóðkirkjunnar að
fólk ólíkra trúarbragða væri gefið
saman ef annað brúðhjóna væri
kristið. Hins vegar væri ekld ljóst
hvernig þau mál stæðu af sjónar-
hóli gyðingdómsins. Þar væru
vafalaust strangari reglur. — BJB
- Sjö núnar á bls. 5.
Kolsvört
skýrsla
Umferðin í Reykjavík er sögð vera
stærsta efnaverksmiðja landsins og
jafnframt sú mengaðasta. í nýút-
kominni skýrslu starfshóps á veg-
um Orkuveitu Reykjavíkur um for-
sendur vistvænnar samgöngu-
stefnu eru talin líkindi fyrir því að
það megi rekja 5-20 krabba-
meinstilfelli til umferðarmengun-
ar. I skýrslunni er lögð fram frum-
drög að grænu bókhaldi fyrir höf-
uðborgarsvæðið. Þar kemur einnig
fram að mengun af völdum um-
ferðar á svæðinu eigi stóran þátt í
vanda Islands vegna alþjóðlegra
skuldbindinga um útblástur gróð-
urhúsaloftegunda.
3-4 tonn á íbúa
í skýrslu starfshópsins kemur fram
að eldneytisnotkun á höfuðborgar-
svæðinu samsvarar því að hver íbúi
noti að jafnaði um sex hundruð
líta af bens-
íni og rúma
Ijögur
hundruð
lítra af
díselolíu á
hverju ári.
Þá sé út-
blástur bíla
mikill og
fer vaxandi.
Þá sé útstreymi koldíoxíðs um 3-4
tonn á hvern íbúa á ári. Á sama
tímabili berast um fjögur þúsund
tonn af rokgjörnum kolefnissam-
böndum út í andrúmsloftið á ári
hverju auk koldíoxíðs. I skýrslunni
kemur einnig fram að aukning hef-
ur orðið í notkun díselolíu og þá
fyrst og fremst af auknum inn-
flutningi á jeppum. Þá fylgja um-
ferðinni svifryk og sót. Hjólbarðar
og þá aðallega nagladekk spæna
upp malbikið. Það hefur í för með
sér að um 8 þúsund tonn af mal-
biki berst á hveiju ári út í and-
rúmsloftið. A kyrrum vetrardögum
sé mengunin mest en minnst á
sumrin.
Lífskjör
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir
að skýrslan sé dómur á ástandið
eins og það sé. Hún scgir að ekki
sé hægt að skella skuldinni á neinn
sérstakan því allir séu sökudólgar í
þessu máli. Hún telur mjög að-
kallandi að ráðist verði úrbætur,
enda hefur umferðin og mengun
al’ henni þróast til verri vegar á
undanförnum árum. Ef ekki verð-
ur brugðist við þessum vanda með
sameiginlegu átaki sveitarfélaga,
stjórnvalda og almennings sé það
ávísun á verulega skerðingu lífs-
kjara. — GRH
— Sjá bls 12-13.
DinDesn
Töff hönnun frá Ítalíu ‘
\
Þyottavél ög þUrrk^ri
■** tvö tæki á aðéins'**,
59,800 kr. stgtv/
Ýmsir greiöslumöguleikar