Dagur - 26.05.2000, Qupperneq 6
6 - FÖSTUDAGVR 26. MAÍ 2000
rD^tr
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Aðstodarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Sfmar:
Netfang ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELIAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.i$
Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 kr. á mánuði
Lausasöluverð: 150 KR. OG 200 KR. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
Simar auglýsingadeildar: cREYKJAV(K)563-161B Amundi Amundason
CREYKJAVÍK)563-1642 Gestur Pðll Reyniss.
CAKUREYRI)460-6192 Karen Grétarsdóttir
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Sfmbréf ritstjórnar: 460 6171CAKUREYRí) 551 6270 creykjavík)
Sigur íyrir Clinton og Kina
í fyrsta lagi
Bill Clinton vann mikinn pólitískan sigur þegar fulltrúadeild
bandaríska þingsins samþykkti með verulegum meirihluta að
taka upp svokölluð „eðlileg“ viðskipti við Kínverska alþýðulýð-
veldið og opna þessari fjölmennustu þjóð veraldar leiðina inn
í Alþjóða viðskiptastofnunina. Það er hins vegar kaldhæðnis-
legt að það voru pólitískir andstæðingar Clintons í þinginu
sem færðu honum þennan sigur á síðustu mánuðum valdatíð-
ar forsetans í Hvíta húsinu - það er sömu mennirnir og gerðu
fyrir skömmu heiftúðugar tilraunir til að reka hann úr emb-
ætti.
1 öðru lagi
Þegar Clinton var að beijast fyrir því að verða forseti Banda-
ríkjanna árið 1992 gagnrýndi hann forvera sína í Hvíta húsinu
fyrir að kjassa harðstjóra heimsins, en skipti um skoðun þegar
hann komst til valda - að minnsta kosti í samskiptum við Kína.
Undanfarin ár hefur hann haldið því fram að eina leiðin til að
ná fram breytingum í einræðisríkjum sé að opna viðskipti við
slíkar þjóðir og reyna að hafa jákvæð áhrif á stjórnarfarið,
meðal annars mannréttindi. Afstaða hans til Kína hefur byggst
á þessari kenningu. Sannfæringin hefur þó ekki náð að yfir-
buga pólitíska tækifærismennsku forsetans, því hann hefur
framfylgt allt annarri stefnu gagnvart nágrönnum sínum á
Kúbu.
1 þriðja lagi
Það er von bandarískra fyrirtækja að þegar öldungadeild
Bandaríkjaþings hefur afgreitt Kínamálið með sama hætti og
fulltrúadeildin, muni ekki aðeins opnast mikill markaður fyrir
bandarískar vörur og fyrirtæki í Kína, heldur geti stórfyrirtæk-
in einnig nýtt sér í stórauknum mæli ódýrt vinnuafl í þessu
fjölmenna ríki. Ovíst er að það gangi eftir í bráð. Þá munu
Kínveijar væntanlega standa fast gegn tilraunum til að auka
réttindi fólks og vernda náttúruna. Enda er það mikil bjartsýni
að halda að „mjúka“ leiðin muni fljótlega skila sér í auknum
mannréttindum í Kína, hvað þá lýðræði, enda er allt andóf þar
barið niður af fullri hörku. Eltas Snæland Jónsson.
Forvamasala á áfengi
Það er fullkomlega við hæfi og
óumdeilt, að Elton John skuli
halda sína tónleika á Laugar-
dalsvelli, því maðurinn er
kunnur fótboltafíkill og átti,
og á kannski enn, stóran hluta
í fótboltafélaginu Watford.
Elton hefur jafnan verið þaul-
setinn aufúsugestur á knatt-
spyrnuvöllum Evrópu og vel
virtur af Ieikmönnum álfunn-
ar, þó aldrei hafi
þeir beinlínis boðið
honum með í
sturtuklefann að
leikjum loknum af
einhverjum ástæð-
um. Og nú ætlar
kappinn á mæta á
litla Laugardalsvöll-
inn og gleðja geð
guma.
Flestir taka fagn-
andi á móti þessum einum ást-
sælasta tónlistarmanni síðustu
áratuga. En þó stendur nokkur
styr um hingaðkomu hans, því
menn gera því takkaskóna að
það verði ekki fyrst og fremst
fótboltafíklar sem mæta á völl-
inn í þetta sinn, heldur miklu
fremur alkar sem vilja væta
kverkar. Og því er ákveðið að
selja léttvín í pappaglösum á
tónleikunum og mun í lyrsta
sinn sem sprúttsala er leyfð á
þjóðarleikvanginum.
Kex
Eins og æfinlega segja sprútt-
salar að eini tilgangur áfengis-
sölunar sé sá að koma f veg
fyrir áfengisdrykkju og þetta sé
því gert í forvarnarskyni. Ef
ekkert áfengi verður veitt á
staðnum, þá verði gamla
sveitaballaaðferðin notuð og
menn smygli brennivíni í gler-
flöskum með sér inn á völlinn
og hendi umbúðunum svo
uppstyttulaust í söngvarann,
rétt eins og gert var við Robbie
Williams, þann auma drelli.
Elton John.
Eggert KSÍ-formaður Magn-
ússon er á móti áfengissölu á
fþróttavöllum, en hefur hent á
að tónleikagestir verði flestir
20 ára og eldri og eigi því að
„geta neytt áfengis í hófi og í
góðu“. Og satt er það, fáir Is-
lendingar komnir yfir tvítugt
hafa orðið uppvísir að því að
drekka brennivín í óhófi.
Hitt er stórundarlegt, þar
sem fyrir liggur að
ágóðanum af áfeng-
issölunni verður
varið til góðgerða-
mála og því mikil-
vægt að vel seljist,
hversvegna Eggert
er ekki látinn gefa
eina kexköku með
hverjum aðgöngu-
miða, því allir sem
hafa nagað þurrt
Frónkex um dagana vita að
slíkt kallar snimmendis á
drukk til að skola niður skök-
Kókaín
Og í annan stað hafa tónleika-
haldarar ekki áttað sig á því að
víða í veröldinni eru tónleika-
gestir hallari undir fíkniefni af
öðru tagi en áfengi. Þannig að
til þess að koma f veg fyrir of-
neyslu t.d. kókaíns og alsælu
fyrir tónleikana, væri þjóðráð
að selja öllum sem mæta hæfi-
legan skammt af þessum efn-
um, þannig að víman fari nú
ekki úr böndunum og spilli há-
tíðarstemningunni.
Málið er að koma í veg fyrir
ofneyslu fíkniefna á tónleikun-
um með öllum tiltækum ráð-
um og þá nægir alls ekki að
selja bara ómælt brennivín.
Hvers eiga þeir sem kjósa önn-
ur vímuefni sér til upplyftingar
að gjalda? — GARRI
ODDUK
ÓLAFSSON
skrifar
Tími er til kominn að því ljósti
saman hinu geistlega og veraldlega
valdi. Það hefur ekki gerst síðan
Jón Araspn var höggvinn að höfð-
ingjar kirkju og ríkis hafa sent hvor
öðrum tóninn. En það er gráupp-
lagt að þegar ríkið býður þjóðkirkj-
unni til afmælishátíðar á þúsöld
kristni í landinu, að yfirbiskupinn
og yfirráðherrann láti í sér heyra
og segi hreinskilningslega hvaða
skoðun þeir hafa hvor á öðrum.
Biskup byrjaði og gagnrýndi
stjómarstefnuna og taldi. að falsk-
ur tónn væri í öllum lofsöngnum
um góðærið og fór með þau gömlu
sannindi Marx gamla, að enginn
gæti efnast nema á kostnað ann-
arra. Forsætisráðherra var ekki
seinn til svars og sagði biskup ekki
hafa neitt fram að færa nema
gamlar lummur, sem ekki eru um-
ræðuhæfar.
Á þessu hafa fjölmiðlar tönnlast
með þeim árangri að enginn veit
lengur hver sagði hvað og hvaða
Hefdbimdin valdastreita
meiningar lágu að baki orðsend-
ingunum. Hitt er víst að ldrkjan og
ríkisvaldið eru komin út úr skáp-
um sínum eftir margra alda deyfð
og sinnuleysi um forystuhlutverk-
ið.
Gamlar erjur
Heiðnir menn og
kristnir sömdu um
trúskiptin á sínum
tíma af skynsamlegu
viti. En undir alda-
mótin 1300 skarst
heldur betur í odda
þegar Árni biskup
Þorláksson setti nýjan kristnirétt
og sölsaði jarðir undir kirkjuna og
lá við borgarastyrjöld út af þeim yf-
irgangi öllum. Síðar lét ríkisvaldið
afhausa síðasta kaþólska bisk-
upinn og kóngsins þénarar létu
greipar sópa um eignir kirkjunnar.
Síðan náði ríkiskirkjan sér aftur
á strik og náði jarðeignum undir
sig af miklum dugnaði. Nú situr
ríkið uppi með þjóðkirkjuna, sem
heldur fast í sitt og á sér sérstakt
ráðuneyti til að forvalta auð sinn í
löndum og Iausum aurum. Það
kostar að þjónar þess guðs sem
Lúther afhenti ríkis-
valdi á sínum tíma,
eru á Iaunaskrá hjá
því opinbera, en
kirkjan fær nefskatt
hjá borgurunum,
rétt eins og rílds-
rekna útvarpið.
Það er því ekki
nema von að per-
sónugervingur ríkis-
valdsins setji sig á háan hest og láti
biskup heyra hvar honum er holl-
ast að kaupa ölið þegar sá góði
hirðir lýsir yfir frati á stjórnarstefn-
una og telur góðærisklisjunarar,
sem renna upp úr forsætisráð-
herra, marklitlar.
Náðin á Þmgvöllum
Það liggur í hlularins eðii, að til
þess er ætlast að ríkisstarfsmenn-
irnir í Kirkjuhúsinu við Laugaveg
séu atvinnurekendum sínum þæg-
ir þjónar og gangi þeirra erinda, en
séu ekki með múður og klisju-
kennt tal um að frjálshyggjan sé
ekki með öllu gallalaus. Svo verður
líka að gæta þess, að starfsmenn í
Kirkjuhúsinu séu ekki að láta birta
eftir sig skálclverk sem túlka má
sem gagnrýni á stjórnvisku hins
æðsta. Slíku verður aðeins svarað
með viðeigandi hætti; brottrekstri
úr starfi.
Á kristniboðshátíð í sumar mun
náðin ráða ríkjum, ýmist í þar til
gerðum húsum eða bænakvaki
þeirra lútersku sem munu þakka
fyrir að landsmenn voru gerðir
kaþólskir lýrir þúsöld. Ríkisvaldið
sýnir þjóðkirkjunni þá náð að kosta
herleghcitin og megi svo drottinn
veita höfðingjum kirkju og ríkis þá
náð, að umbera klisjur hvors ann-
ars með kristilegu hugarþeli.
Davíð leiðast Karli leiðist
klisjur. óréttlæti.
spur&B
svairad
Hefurþú trú á því að
álvermuni rísa við Reyðar-
fjörð?
EinarMár Sigutáirson
þ ingmaðurAustfiiðinga.
„Bjartsýnn er ég
og vil trúa því að
svo verði, en veit
vel að þessi yfir-
lýsing frá í gær
festir þetta ekkert
alfarið í hendi.
Það er þó meiri
þungi í þeim pappírum sem undir-
ritaðir voru í fyrradag, en þeim sem
kenndir eru við Hallormsstað og
voru staðfestir í fýrra. Auðvitað var
nauðsynlegt að fá meiri þunga og
alvöru f málin en verið hafa til
þessa, því Austurland þolir ekki eitt
áfallið enn í þessum efnum.“
GeirA. Gunnlaugsson
jramkvæmdastjóri Hæjis.
„Ekki væri ég að
vinna í þessu
nema svo væri .
Það er miklu
meiri líkur en hitt
að þetta verkefni
gangi upp, enda
eru þær áætlanir
um álver sem við höfum nú í hönd-
unum arðsamari en aðrar sem við
höfum haft hingað til.“
Jakob Frímann Magnússon
„Það er ástæða til
að fagna því að
stjómvöld og íjár-
festar hafa séð
sitt óvænna og
orðið við kröfum
um að allar fram-
kvæmdir verði
háðar lögformlegu umhverfismati.
En umhverfismat er eitt og svo arð-
semismat annað. Til þessa hafa
menn farið undan í flæmingi þegar
spurt er hvemig ætlast sé til að hin-
ir fjárhagslegu endar virkjunar nái
saman . Miðað við það orkuverð
sem aðrir stórnotendur borga á Is-
landi í dag, sýnist manni í fljótu
bragði að um helmingshækkun
þurfi að koma til ef dæmið eigi að
ganga upp. Því tel ég leiksýningu
iðnaðarráðherra og Landsvirkjunar
bera öll merki yfirldórs og sýndar-
mennsku. Það á hreinlega eftir að
koma í ljós að allt þetta brölt er
vægast sagt afar hæpið fjárhagslega
og þjónar þeim tilgangi einum að
sefa Austfirðinga tímabundið,
a.m.k. fram yfir næstu kosningar.
Og aðalleikararnir ímynda sér
væntanlega í millitíðinni að þeir
geti haldið andliti, jafnvel höfði."
Emil Thorarensen
útgerðarstjóri á Eskijitði.
„Því trúi ég hik-
laust, en hins
vegar eru margir
Austfirðingar
komnir á aðra
skoðun og eru að
missa móðinn og
trúna á lífið á
landsbyggðinni. Af fullum heilind-
um eru stjórnmálamenn að vinna
að virkjunar- og stóriðjumálum, en
hafa hins vegar orðið fýrir miklum
áföllum og ýmsum bolabrögðum
hefur verið beitt gegn þessum
áformum. En menn ætla hins veg-
ar að halda áfram, enda er nauðsyn
á því fýrir eflingu byggðanna hér
eystra.“
umlivetjisvinur.