Dagur - 27.05.2000, Page 2
18 - LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2000
HELGARPOTTURINN
Meðal sumarmanna sem verða á fréttastofu Út-
varpsins er hin eitilskarpa Lóa Aldísardóttir,
sem um nær fjögurra ára skeið var blaðamaður
hér á Degi. Hún mun hefja störf á fréttastofunni
einhvem tímann íjúní, en þegar eru raddir nokk-
urra sumarfugla á fréttunum farnar að heyrast.
Fína og fræga fólkið
er þegar farið að
hlakka til miðviku-
dagskvöldsins
næsta, 31. maí, en þá verður frumsýnd kvik-
myndin 101 Reykjavík í Háskólabíói. Leikstjór-
inn Baltasar Kormákur verður þar kynntur
sem þjóðhetja, en það er hann svo sannarlega
eftir þann góða árangur sem þessi magnaða
Baltasar Kormákur. myn(j n^j g kvimyndahátíóinni í Channes í
Frakklandi á dögunum.
í dag, laugardag verður opnuð sýningin Garðhúsabær á Kjarvalsstöðum,
alþjóðleg arkitektasýning og af því tilefni er von á ýmsum góðum gestum
hingað til lands svo sem Nicolai Ouroussoff arkitektúrgagnrýnanda á
Los Angeles Times, vini sýningarstjórans Kirsten Kiser og Jonathan
Becker Ijósmyndara á Vanity Fair, sem hefur myndað öll húsin á sýning-
unni fyrir Kirsten og tók m.a. myndir sem birtast í þessu blaði. Einnig er von
á Rebecka Tarschyis arkitektúrgagnrýnanda Dagens Nyheter í Stokk-
hólmi og arkitektunum Josef Paul Kleihues frá Þýskalandi og
Heikkinen og Komonen frá Rnnlandi
Kórastarfið blómstrar í byggðum landsins og
ekki bara í Skagafirði, heldur líka út um allt land.
Samkór Rangæinga sem syngur undir stjórn
Halldórs Óskarssonar, en hann stjómar
fimm öðmm kórum til viðbótar, heldur um helg-
ina, tvenna tónleika, það erá Kirkjubæjarklaustri
og Hvolsvelli. Ætla kórfélagar svo að toppa það
ferðalag heldur betur, því á laugardaginn um
aðra helgi halda þeir í vikulanga söngferð til
(talfu. Kórlífið er að sögn afar skemmtilegt og að
sama skapi blómlegt, því tvær þeirra kvenna sem
með kómum syngja bera nú barn undir belti.
Leikhópur frá Þjóðleikhúsinu er nú staddur í
Nuuk á Grænlandi, þar sem uppfærsla Stef-
áns Baldurssonar á Brúðuheimili Ibsens
verður sýnd í grænlenska menningarhúsinu í
kvöid. Eflaust muna einhverjir eftir því að Elva
Ósk Ólafsdóttir fékk menningarverðlaun DV fyr-
irtúlkun sína á Nóm í sýningunni, en hún hefur
fengið nýjan mótleikara sem leika mun með
henni á Grænlandi. Baldur Trausti Hreins-
son kemur úr Borgarleikhúsinu til að taka við
hlutverki Helmers, sem hinn önnum kafni
Baltasar Kormákur lék áður.
Þau eru ekki mörg hverfi í Reykjavík sem státa af
jafn fjörugu félagsllfi og Grafarvogur. Þar er hin
öfluga hverfiskrá Gullöldin, sem Valgeir Ingi
Ólafsson rekur, sem í senn býður til óvissuferða
og svo er starfandi í Grafarvogi hjóna- og para-
klúbbur sem tekur upp á uppátækjum, eins um
hattakvöldum, grillveislum, útilegum og göngu-
ferðum. í dag er hjóladagur hjá klúbbnum og
fjölmenni við Gufunesbæ þar sem viðgerð,
hjólaskoðun og ýmsar þrautir eru á dagskrá.
Hið unga fyrirtæki Genealogia Islandomm sendi
frá sér í gær fyrstu öskjuna með myndum bæði
gömlum og nýjum úr byggðum landsins. Hún er
með myndum úr Vestmannaeyjum og eru þær
teknar af Ijósmyndumm svo sem þeim Þor-
steini Jósepssyni, Sigurgeir Jónassyni,
Mars Wibe Lund og Fríðþjófi Helgasyni
Formlega séð eru myndir þessar gefnar út af ís-
lenska myndasafninu sem er deild innan Gen.is.
Ritstjóri er Kristján Sigurjónsson sem til
skamms tíma var starfandi hjá Ríkisútvarpinu á
Akureyri, en höfundur texta sem fylgir Eyja-
myndunum er Sigurgeir Jónsson kennari í
Eyjum. Hjá Gen.is er einnig að koma út Ábú-
endatal Grímsness og einnig er verið að vinna
að sambærilegri bók um byggðir á sunnanverðu Snæfellsnesi, sem stund-
um eru kenndar við vont fólk.
Óvenjuleg leikin þáttaröð verður á dagskránni
hjá Skjá einum í júnf og júlí. Hún heitir „Lifandi"
og koma nokkrir höfundar að henni: Marteinn
Þórisson, Ragnar Bragason, Brian
FitzGibbon, Krístófer Dignus Pétursson
og Einar Öm Gunnarsson, en Ásgrímur
Sverrisson leikstýrir. Fyrir liggja persónulýs-
ingar og sögurammi en það verður undir leikur-
unum komið hvemig verkið þróast áfram - en
Asgrímur Sverrisson. þættjmir verða í beinni útsendingu.
Valgeir Ingi Úlafsson.
Þórarinn Eldjárn. „Ég
á því von á að leik-
ritið komi fyrir augu
margra barna og eft-
ir það viti þau að
minnsta kosti um
hvað Völuspá er.“
mynd: billi
Vonar að forvitnin
sé vakin
Þórarinn Eldjárn hefur unnið leikrit upp úr hinu forna kvæði Völuspá og ætlar það
einkum börnum á aldrinum 9-15 ára. Það verður frumsýnt í dag kl. 17.00 í Mögu-
leikhúsinu við Hlemm og er eitt af atriðum Listahátíðar og Reykjavíkur Menningar-
borgar 2000.
„Kvæðið Völuspá fjallar um hinn
magnaða heim norrænu goðanna
og leikritið er hugsað eins og lykill
að því að geta lesið sjálfa Völuspá
fremur en að þetta sé kennslu-
stund um þann heim. Þarna vonar
maður að forvitnin sé vakin. En
það er ekki farið út í að þylja upp
alla æsina eða neitt slíkt.“
- En noklirir þeirra koma vænt-
anlega við sögu?
„Já, það eru sagöar sögur af
ýmsum eins og Baldri hvíta og
Loka. Það er útskýrt og leikið þeg-
ar Oðinn nær í skáldamjöðinn til
Gunnlaðar og mörgum fleiri
myndum er hrugðið upp. Valvan
sjálf er auðvitað í forgrunni því
samskipti hennar og Óðins eru
undirrótin. Hann ákveður að leita
til hennar til að fá upplýsingar um
framtíðina. Hún sér í báðar áttir,
alveg frá því löngu fyrir daga Óð-
ins og í aðdragandanum að |>ví að
hún spáir lyrir framtíðinni rifjar
hún upp hitt og þetta úr fortíð-
inni.“
- Þarnafær maður semsagt fróð-
leikinn beint í æð?
„Já, þegar völvan fer að rekja
fyrir Óðni ýmsa atburöi úr fortíð-
inni koma þar inn margar helstu
goðsagnir úr norrænni goðafræði
því það er smá upprifjun á þeim í
sjálfri Völuspá. Eins og sést í
Snorra-Eddu þegar hann er að
reyna að berja saman heildarmynd
úr þessum dálítið ruglingslega
goðaheimi þá Ieitar hann í Völu-
spá. Þannig er líka þessi saman-
tekt.“
- Er leikritið í bundnu máli?
„Nei, ekki er það nú í heildina
en þarna eru vissir karakterar sem
eru skáldmæltir og þeir hregða
gjarnan fyrir sig bundnu máli.“
- l ara margir leikarar á svið?
„Nei, bara einn og hann er Pét-
ur Eggertz. Hann kemur inn sem
sögumaður og svo bregöur hann
sér í öll hlutverkin sem fyrir koma.
Hann er Oðinn, völvan og æsirnir.
Hann bregður sér í hlutverk arnar
og hann er iíka hrafnarnir Huginn
og Muninn sem flögra um kring.“
- Er tónlist í verkinu?
„Já, Guðni Franzson hefur gert
tónlist við leikritið og sá sem flyt-
ur hana er Stefán Örn Arnarson
sem.er á sviðinu allan tfmann og
tekur beinan þátt í framvindu
leiksins. Leikmynd og búningar
eru eftir norska stúlku, Anette
Werenskiold. Svo má ekki gleyma
að geta Ieikstjórans, hann heitir
Peter Holst.“
- Hversu löng er sýningin?
„Hún er um 50 mínútur og það
er miðaö við að með haustinu fari
hún á flakk, auk þess sem hún
verður sýnd í Möguleikhúsinu.
Þetta er heppileg farandsýning því
hún er auðveld f meðförum, að-
eins einn leikari og sparlega farið í
allan umbúnað. Eg á þvf von á að
leikritið komi fyrir augu margra
barna og eftir það viti ]>au að
minnsta kosti um hvað Völuspá
tt
er.
- GUN
MAÐUR VIKUNNAR GERIST ÍSLENDINGUR!
Dorrit Mousaieff er maður vikunnar. Á blaðamannafundi
Dorrit og Ólafs Ragnars Grímssonar í gær var staðfest að
Dorrit ætlar að láta ástina ráða. Hún mun því giftast for-
seta vorum og gerast íslenskur ríkisborgari. Þannig eign-
ast forsetinn nýja eiginkonu og þjóðin tengdadóttur.
Dorrit Mousaieff.