Dagur - 27.05.2000, Blaðsíða 4
20
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000
ro^tr
J'jj.
fmmnmfm
WÓÐLEIKHÚSIÐ
sími 551-1200
Stóra sviðið kl. 20:00
DRAUMUR
Á JÓNSMESSUNÓTT
- William Shakespeare.
11. sýn. í kvöld lau. 27/5
örfá sæti laus,
12. sýn. fim.1/6 nokkur
sæti laus, fös. 2/6 nokkur
sæti laus, fim. 8/6, fim.
15/6. Síðustu sýningar
leikársins.
GLANNI GLÆPUR
í LATABÆ
- Magnús Scheving og Sig-
urður Sigurjónsson.
Sun. 28/5 kl. 14:00 örfá
sæti laus og kl. 17:00
nokkur sæti laus, sun.
4/6 kl. 14:00 og sun. 18/6
kl. 14:00.Síðustu sýning-
ar leikársins.
ABEL SNORKO
BÝR EINN
- Eric-Emmanuel Schmitt
Pri. 30/5 örfá sæti laus,
aukasýning mið. 31/5,
90. sýning.
LANDKRABBINN
- Ragnar Arnalds
Lau. 3/6, mið. 7/6 næst
síðasta sýning, mið. 14/6
síðasta sýning.
KOMDU NÆR
- Patrick Marber
Sun. 4/6 næst síðasta
sýning og fös. 9/6 síðasta
sýning. Sýningin er hvor-
ki við hæfi barna né við-
kvæmra.
Litla sviðið kl. 20:30:
HÆGAN, ELEKTRA
- Hrafnhildur Hagalín
Guðmundsdóttir
Mið. 31/5, lau. 3/6 og sun.
4/6. Síðustu sýningar.
LISTAKLÚBBUR
LEIKHÚSKJALLAR-
ANS
mán. 29/5 ki. 20:30
JASS “ DÚETT + “.
Jazztónleikar tileinkaðir Chet
Baker og Miles Davis en
einnig verða sungin lög eftir
Cole Porter o.fl. Flytjendur:
Þóra Gréta Pórisdóttir,
Andrés Pór Gunnlaugsson.
Valdimar K. Sigurjónsson og
Birgir Baldursson.
Miðasalan er opin
mánud.- þriðjud.
kl. 13-18, miðvikud,-
sunnud. kl. 13-20.
Símapantanir
frá kl. 10 virka daga.
Sími 551-1200.
thorey@theatre.is
Islendingar á Amazon
íslendingar
kaupa umtalsvert
af erlendum bók-
um í gegnum al-
þjóðlegar net-
verslanir, ekki síst
hjá Amazon sem
er þeirra
langstærst. Svo
er einnig um
margar ná-
grannaþjóðir
okkar. Þar sem
öll viðskiptin fara
fram í gegnum tölvur eru upplýs-
ingarnar skráðar í gagnabanka og
hægt að samkeyra þær og fá út
ýmsar forvitnilegar staðreyndir um
áhugamál einstaklinga og heilla
þjóða.
Enn sem komið er veitir
Amazon ekki almennan aðgang að
upplýsingum um bókakaup ein-
staklinga. Hins vegar er sú þjón-
usta nú til staðar að hægt er að fá
Iista yfir þær bækur sem ein þjóð
velur umfram aðrar. Þannig er til
dæmis hægt að sjá á bókakaupum
Islendinga hjá Amazon hvað ein-
kennir val íslenskra viðskiptavina
á bókum, og um leið bera þá nið-
urstöðu saman við sérkenni ann-
arra þjóða. Margt kemur þar
skemmtilega á óvart.
Bútasaumsþjóð
Það sem einkennir bókakaup ís-
lendinga hjá Amazon er yfirþyrm-
andi áhugi á svokölluðum búta-
saum! Fimm þeirra tíu bóka sem
einkenna bókaval íslenskra við-
skiptavina fjalla um þetta merki-
Iega tómstundagaman. Tvær
þeirra eru eftir Debbie Mumm,
sem virðist mikill sérfræðingur á
þessu sviði, en aðrar tvær eftir
Lynette nokkra Jensen. Fimmta
bókin um bútasaum, eða „quilts"
eins og það kallast á ensku, er
uppsláttarrit sem kennt er við
tímaritið Better Homes and Gar-
dens.
Hinar fimm bækumar lýsa ólík-
um áhugamálum. Margir hafa
keypt rit Anthony Giddens um
þriðju leiðina: The Third Way:
The Renewal of Social
Democracy. Einnig upplýsingarit
um vísindi eftir Robert L. Wllke:
What Einstein Didn’t Know: Sci-
entific Answers to Everday
Questions. Nýleg víkingabók, Vik-
ings: The North Atlantic Saga,
vekur einnig áhuga landans. Og
svo skíðamennska: Free-Heel Ski-
BÓKA-
HILLAN
Sýnishorn af bútasaumsbókunum
sem heilla íslenska kaupendur hjá
Amazon.
ing: Telemark and Parallel
Techniques for All Conditions, er
tíunda bókin á lista Amazons yfir
þær bækur sem sérkenna íslenska
kaupendur.
Viðskipti og samfélagsmál
Áhugamál frænda okkar á Norð-
urlöndum virðast af öðm tagi. Þeir
hafa að minnsta kosti engan
áhuga á bútasaumsbókum, en
þeim mun meiri á verkum sem
fjalla um viðskipti og leiðir til auk-
ins frama og fjár.
Norðmenn eru mikið á þessum
framanótum. Kaupa til dæmis
bækur sem heita The Dream Soci-
ety, Intellectual Capital, Trans-
forming Leadership og svo Funky
Business: Talent Makes Capital
Dance.
Hið sama á við um Dani; þeir
virðast líka á kafi í viðskiptum og
kaupa bækur á borð við After the
Merger og Trading Online, auk
þess sem Funky Buisness er vin-
sæl hjá þeim eins og Norðmönn-
um. En þeir hafa þó mun meiri
áhuga á samfélagslegum vanda-
málum en norskir bókakaupendur
á Amazon. The Weight of the
World: Social Suffering in
Contemporary Societies er þannig
ofarlega á sérkennalista Dana.
Einnig Personality Disorders in
Children and Adolescents og The
Corrosion of Character: The Per-
sonal Consequences of Work in
the New Capitalism.
Forvitnir um fjarlæga staði
Sænskir bókakaupendur á
Amazon virðast hafa mikinn
áhuga á eldfjöllum og (jarlægum
stöðum. Fjórar efstu bækurnar á
sérkennalista þeirra eru af því tag-
inu: Road Guide to Hawaii
Volcanoes, Road Guide to
Haleakala and The Hana Hig-
hway, Roadside Geology of Hawaii
og Volcanoes. Líklega eru margir
Svíar væntanlegir þar vestra sem
ferðamenn.
Meiri fjölbreytni er í efriisvali á
sérkennaíista Finna. Efst hjá þeim
er bók um tónlist sem meðferðar-
úrræði: Dynamics of Music
Psychotherapy, en síðan koma
ólíkar bækur; sumar eru um Netið
og upplýsingaöldina, en inn á milli
frásagnir af ævintýrum sérsveitar-
manna.
Ef leitað er út fyrir Norðurlönd-
in kemur í Ijós mikill munur á
áhugamálum bókakaupenda á
Amazon, eins og vænta mátti.
Sem dæmi má nefna að grískir
kaupendur hafa fyrst og fremst
áhuga á að kaupa bækur á ensku
sem snerta eigin þjóð, sögu henn-
ar og listsköpun. Víða annars stað-
ar er hins vegar mikill áhugi á bók-
um um viðskipti, Netið og tölvu-
Sjónræn veisla
Russel Crowe í hlutverki sínu sem rómverski hershöfðinginn Maximus
Gladiator sýnd í
Borgarbíói,
Akureyri,
Laugarásbíói og
Háskólabíói,
Reykjavik.
Leikstjóri:
Ridley Scott.
Framleiðandi:
Dreamworks
pictures.
Aðalleikarar:
Russel Crowe,
Joaquin Phoenix, Connie Niel-
sen, Oliver Reed, Richard
Harris og Dijimon Hounsou.
Fyrsta stórmynd sumarsins,
Gladiator er komin í kvikmynda-
hús á Islandi. Þetta er epísk stór-
mynd sem minnir um margt á
gömlu Hollywood myndimar Ben
Hur og Spartacus. Gladiator gerist
á tímum Rómverja og Ijallar um
hershöfðingjann Maximus, sem
leikinn er af Russel Crowe. Ríkj-
andi keisari Marcus Aurelius (Ric-
hard Harris) biður Maximus að
taka við stjórn Rómar að sér látn-
um, en sonur keisarans Commo-
dus (Joaquin Phoenix) er ekki
sáttur, og áður en Maximus getur
gefið svar sitt er Commodus bú-
inn að myrða keisarann og gefa út
dauðadóm á Maximus og fjöl-
skyldu hans. En Maximus sleppur
og kemst heim til sín við illan leik
en kemur þar að konu sinni og
barni dauðu. Hann er hnepptur í
þrældóm og seldur fyrrverandi
skylmingaþræli Proximo (Oliver
Reed) sem nú hefur snúið sér að
þjálfun skylmingaþræla. Maximus
slær í gegn sem skylmingaþræll og
ekki Iíður á löngu að lagt er af stað
í keppnisferðalag til Rómar til að
etja kappi við aðra skylmingaþræla
og tígrisdýr íyrir framan nýja keis-
arann í hringleikahúsinu Colosse-
um. Þegar þangað er komið, ein-
setur hann sér að ná fram hefnd-
um týrir dauða fjölskyldu sinnar.
Gladiator er veisla fyrir augun,
leikstjórinn Ridley Scott og tækni-
menn hans vekja aftur til lífsins
Rómaborg til forna með aðstoð
tölvutækninnar. Þeir endureisa
hið fræga hringleikahús Colosse-
um og umhverfi listavel þannig að
maður sér á tjaldinu fyrir framan
sig Róm til foma. Við gerð bar-
dagaatriða myndarinnar, sem er
stór hluti myndarinnar, fékk Scott
til lið við sig þann hinn sama og sá
um bardagaatriðin í Gibson
myndinni Braveheart. Myndin
hefst á orrustu á milli Rómverja og
Germana, hraðar klippingar,
myndatakan gera þetta að einu
magnaðasta og raunsæasta bar-
dagaatriði sem sést hefur í kvik-
mynd.
Af Ieikurum myndarinnar bcra
tveir af, það eru þeir Russel
Crowe í hlutverki Maximus og
Joaquin Phoenix í hlutverld hins
spillta keisara Commodus. Hann
var tilnefndur í fýrra til Osk-
arsverðlauna fyrir leik sinn f
myndinni The Insider og sannar
hér að hann er kominn til að vera
í Hollywood. Tveir gamalkunnir
leikarar eru í aukahlutverkum í
myndinni, það eru þeir Richard
Harris, sem hinn aldni keisari
Marcus Aurelius og Oliver Reed í
sínu síðasta hlutverki í bíómynd
sem Proximus og gera báðir vel.
Kvikmyndin Gladiator svipar til
gömlu stórmyndanna Ben Hur og
Spartacus í því að þær gerast allar
í Róin til forna og fjalla allar um
hetjuna sem er svikin og leitar á
hefndir. Þær eiga það Ifka sameig-
inlegt að þær eru gerðar fýrir
breiðtjaldið og njóta sfn best í góð-
um bíóhúsum. Það kæmi alls ekki
á óvart að myndin eigi eftir að fá
nokkrar tilnefningar til Ósk-
arsverðlauna, þá sérstaklega fýrir
klippingu og myndatöku. Það
gengur allt upp í þessari mynd og
þó að hún sé nokkuð blóðug á
köflum þegar hausar og aðrir út-
limir fijúga, er hún sjónræn veisla
og frábær skemmtun frá upphafi
til enda, sem þakka má góðri leik-
stjórn og góðum Ieik.
KVIK-
MYNDIR