Dagur - 27.05.2000, Blaðsíða 21

Dagur - 27.05.2000, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 2 7. MAÍ 2000 - 37 t>^ur ...R A ÐflTG LÝS T N G fl Ú T B 0 B f 1 ■til- ^ folot _ UTBOÐ F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir til- boðum í: Úrbætur í umferðarmálum 2000. Verkið felst m.a í gerð steinlagðra og malbikaðra alda, miðeyja og hausa til afmörkunar bílastæða auk niðurtekta á gönguleiðum. Helstu magntölur eru: Stein-og hellulagðir fletir 2200 m2 Steyptir fletir 1200 m2 Malbikaðir fletir 700 m2 Malbikaðar öldur 60 m Ræktun 300 m2 Pípulögn 015OST 130 m I I I " Bré I Síðasti skiladagur verksins er 15. október 2000. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá og með 30. maí 2000, gegn 10.000 kr skilatryggingu. Opnun tilboða 8. júní 2000, kl 14:30 á sama stað. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík - Si'mi 552 5800 Bréfsími 562 2616/561 1120. Netfang: isr@rhus.rvk.is Veffang: www.reykjavik.is/innkaupastofnun - 660169-4079 S T Y R K I R Orkusjóður Auglýsing um styrkveitingar 2000 í lögum um Orkusjóð nr. 49, 19. mars 1999 eru eftirgreind heimildarákvæði um styrkveitingar úr sjóðnum, auk þeirra verkefna, sem styrkt eru og falla undir rannsóknaráætlanir Orkustofnunar. í 4. tölulið 2. mgr. 2. gr. „að styrkja sérstök verkefni á sviði hagkvæmnar orkunotkunar, þar með talda fræðslu og upplýsingastarfsemi, svo og hagrænar athuganir í orkumálum og umhverfisathuganir í tengslum við orkurannsóknir." í 5. tölulið 2. mgr. 2.gr. „að veita fyrirtækjum eða einstaklingum styrki eða áhættulán til hönnunar eða smíði frumgerðar tækja og búnaðar, sem ætla má að leiði til þess að dregið verði úr notkun jarðefnaeldsneytis." Á árinu 2000 styrkir Orkusjóður verkefni á eftirtöldum sviðum í þeim mæli sem fjármunir hans hrökkva til: a: Verkefni sem leiði til hagkvæmrar orkunotkunar. Sérstök áhersla er lögð á: 1. Að stuðla að hagkvæmri orkunýtingu og >orkusparnaði. 2. Að afla þekkingar á þessum sviðum og miðla henni. 3. Að hvetja til rannsókna- og þróunarstarfs er að þessu miðar. b: Verkefni sem leiði til minni notkunar jarðefnaeldsneytis. Sérstök áhersla er lögð á: 1. Hönnun eða smíði tækja eða búnaðar. 2. Þekkingaröflun og samstarf. 3. Nýjar leiðir til orkuöflunar/orkuframleiðlsu. c: Verkefni tengd umhverfisathugunum í tengslum við orkurannsóknir. Umsóknarfrestur er til 15. júní 2000. Umsóknum skal skilað til Orkusjóðs, pósthólf 102, Skipagötu 9, 602 Akureyri, á eyðublöðum sem þar fást. Frekari upplýsingar eru veittar í símum 461-1560 og 894-4280, netfang orkusjodur@isholf.is. Orkuráð. INNRITUN SAMKEPPNI /»\ Innritun nýnema Innritun nýnema fyrir haustönn 2000 stendur yfir til 15. júní n.k. Umsóknir um heimavist fylgi með. Við skólann eru starfræktar 3 námsbrautir: 1. Félagsfræðibraut til stúdentsprófs 2. Starfsnám í íþróttafræði og íþróttagreinum. 3. Almenn námsbraut. Nám á félagsfræðibraut er 140 einingar. Námið skiptist í kjarna 98 einingar, kjörsvið 30 einingar og val 12 einingar. Möguleikar eru á mismunandi útfærslum á kjörsviði. Á stúdentsbraut er lögð áhersla á að undirbúa nemendur undir háskólanám og annað framhaldsnám, bók- og verklegt. Starfsnám í íþróttafræði og íþróttagreinum er 24 - 30 einingar, með það að markmiði að undirbúa nemandann fyrir þjálfun barna og unglinga hjá félagasamtökum og skólum. jafnframt því að vera heppilegur undirbúningur fyrir háskólanám í íþróttafræðum, jafnt hérlendis sem erlendis. Almenn námsbraut er ætluð þeim nemendum sem annars vegar hafa náð slökum árangri á grunnskólaprófi, hins vegar þeim sem fullnægja ekki inntökuskilyrðum á aðrar brautir og vilja bæta árangur sinn. Laugar eru afar aðlaðandi byggingakjarni út í sveit, en jafnframt er stutt í næstu þéttbýlisstaði, sem eru Húsavík og Akureyri. Nátturufegurð er mikil og mjög góð aðstaða til allrar útivistar og íþróttaiðkunar, inni sem úti. Þar er tónlistarskóli, sem nemendur Framhaldsskólans eiga kost á að stunda nám við. Öflugt og eftirtektarvert leiklistarstarf er í dalnum og hafa nemendur Framhaldsskólans tekið ríkan þátt í því. Boðið er upp á mjög góða heimavistaraðstöðu við skólann, þar af eru tvær nýjar, afar glæsilegar vistir. Á staðnum er kjörbúð, bókabúð, veitingastaður, sparisjóður og pósthús og boðið er upp á reglubundna heilsugæslu. Allar nánari upplýsingar eru veittar af ritara í síma 464-3120 eða skólameistara í síma 464-3112. Samkeppni um merki Kennarasamband íslands Kennarasamband íslands efnir til opinnar sam- keppni um nýtt merki sambandsins. Veitt verða þrenn verðlaun fyrir bestu tillögurnar: 1. verðlaun 150 þúsund krónur. 2. verðlaun 100 þúsund krónur. 3. verðlaun 50 þúsund krónur. Óskað er eftir tillögum um merki, sem nota má í ýmsum stærðum, m.a. á bréfsefni, fána, nafnspjöld, sem barmmerki, á vefrænu formi o.s.frv. Merkið skal vera í lit en þannig úr garði gert, að það geti staðið svart/hvítt. Tillögum skal skilað á pappír í stærðinni A3 ásamt hug- myndum um hugsanlega útfærslu. Nánari verkefnislýsing liggur frammi á skrif- stofu Kennarasambandsins. Frestur til að skila inn tillögum er til kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 26.júní 2000 og skulu þær sendar til skrifstofu Kennarasamband íslands, Laufásvegi 81, 101 Reykjavík. Kennarasamband íslands. S K 0 B U N t Krabbameinsfélagið Blettaskoðun Föstudaginn 2. júní verður Ellen Mooney, húðsjúkdómasérfræðingur með ókeypis blettaskoðun í húsnæði Krabbameinsfélagsins að Glerárgötu 24. Hægt verður að panta tíma þriðjudaginn 30. maí og miðvikudaginn 31. maí í síma 461-1470 og 461-2548 á milli kl. 10 og 13 báða dagana.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.