Dagur - 27.05.2000, Síða 5
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000 - 21
Leikbrúduland sýndi Prinessuna í hörpunni eftir Böðvar Guðmundsson.
mm
'iStmk t?|:
kVwflBfi f.
• ». * <4 - r^jíKi ■ flk
Listahátíðar
KRONIKA
Enginn
Bubbi, bara
málþing,
brúðuleik-
hús og
Ijóðalestur.
Meira af
Svanavatninu eftir helgi.
Ekki komst ég á Bubba syngja
Bellman, en ég fór í brúðuleik-
hús á Leiklistarhátíð barnanna
og horfði á Leikbrúðuland flytja
Prinessuna í hörpunni eftir
Böðvar Guðmundsson í Tjarnar-
bíói á miðvikudaginn. Synd hvað
mikið var af auðum boðssætum,
heill bekkur tómur beint fyrir
framan mig. Þó komst heilmikið
af börnum að til fylgjast með
ævintýrum Aslaugar í hörpunni
á þessari frekar látlausu en lag-
legu sýningu. Sviðsmynd Petr
Matasek snerist snjóhvít um
sjálfa sig með aðstoð brúðu-
stjórnenda, sem brugðu sér jafn-
vel sjálfir í brúðulíki. Kossadans
Sigurðar fáfnisbana og Bryn-
hildar í upphafi var Iíflegur en
mestan svip á sýninguna settu
hjónin ófrýnilegu sem tóku As-
laugu að sér. Varðmenn konungs
voru einnig skondnir í brauð-
bakstrinum og allt endaði vel að
lokum.
Bækur f höfðinu
Ekki veit ég hvort Listahátíð er
vön að efna til málþings, en á
miðvikudagskvöldið var eitt slíkt
á Hótel Borg. Eg missti víst af
framsöguerindum Ólafar Nor-
dals og Tinnu Gunnlaugsdóttur
en datt inn í miðjar vangaveltur
Ragnars Bragasonar um kvik-
myndagerð á Islandi. Frekar fá-
mennt var í salnum. Varla full-
setið við borðin og flestir gestir
tengdir Listahátíð eða Menning-
arborginni á einn eða annan
hátt. Einhverjir hljóta að hafa
fundið á sér að umræðuefnið,
„List og menning 21. aldarinn-
ar“, myndi ekki bjóða upp á
mikið flug.
Þeir sem komu á eftir Ragn-
ari, Aino Freyja Jarvaal dansari
og Pétur Armannsson arkitekt
spáðu ekki beinlínis neinu sem
ekki hafði heyrst áður, enda
„ógerningur að segja til um
framtíðina" svo vitnað sé í Henri
Bergson, heimspekinginn sem
hvað mest velti fyrir sér hugtak-
inu tími á 20 öldinni. Það var
ekki fyrr en Andri Snær Magna-
son steig í pontu sem salurinn
tók við sér. Hann byrjaði stirð-
lega en hafði leyft hugmynda-
fluginu að ráða ferðinni og var
skemmtilegur. Andri Snær lagði
út frá tækninni og minnti við-
stadda á að hugsanir mannsins
verða ekkert hraðari þó örgjaf-
inn sé fljótvirkur en spáði því
svo að við yrðum öll komin með
innbyggt tölvuforrit í lok aldar-
innar. Við ættum því að geta
flett upp á öllum bókmenntum
heimsins í höfðinu á okkur sjálf-
um í framtíðinni.
Ný heimssýn
Eftir að hafa hlustað á óþarflega
dauflegt erindi um „öðruvísi
umhverfi" og „manneskjulegt
þéttbýli" og módernískar klisjur
um „samstarf ólíkra listgreina“
var hressandi að heyra í rektor
Listaháskóla íslands, Hjálmari
H. Ragnarssyni, þó erindi hans
væri almennt. Honum lá á og
brýndi fyrir gestum að einblína
ekki á framtíðina út frá tækni og
gleyma vísindunum. Hann spáði
því að þau gætu átt eftir að koll-
varpa núverandi heimsmynd
okkar á næstunni og þar með
listinni.
Umræðurnar á eftir náðu ekki
mjög langt, þó nokkrar setningar
hafi eflaust vakið einhverja til
umhugsunar. Hjálmar minnti á
að tæknin væri engin trygging
íyrir nýsköpun í listum ef eigin-
leikar miðilsins sjálfs væru ekki
nýttir. Andri Snær spurði hvar
mörkin á milli umbúða og inni-
halds lægju eftir að orð eins og
póstmódernismi, umbúðir, of-
hlæði, tilfinningar og innihald
höfðu endurtekið komið við
sögu. Pétur vísaði til gagnrýni á
póstmódernismann og benti á
að enginn gæti Iátið sem Ein-
stein hefði aldrei uppgötvað af-
stæðiskenninguna jafnvel þó
mönnum fyndist hún óþægleg.
Vond setning
Allt var þetta á fínlegu nótunum
og varla að menn tækju eftir því
að Ólöf Nordal boðaði til bylt-
ingar, þegar hún hvatti lista-
menn til að taka yfir tölvuheim-
inn. Það var helst að Hjálmar
kæmist f ham þegar Tinna vitn-
aði í orð Halldórs Laxness frá
setningu fyrstu Listhátíðar í
Reykjavík fyrir 30 árum. Þau orð
eru fyrir löngu orðin fleyg - og
margnotuð - meðal annars í
opnunarræðu formanns Listahá-
tíðar í ár, fundarstjóra málþings-
ins, Sveins Einarssonar.
Orðin Ileygu „Það á ekki að
tala um listina, hún á að tala
fyrir sig sjálP‘, féllu ekki í kramið
hjá rektors Listaháskólans, sem
sagði þau vond. Eitt það versta
sem Laxenss hefði nokkurntíma
látið út úr sér. Auðvitað ætti að
tala um listina. En kannski hef-
ur Laxness aðeins átt við að
kraftlaus umræða eins og sú
sem fram fór á Hótel Borg á
miðvikudagskvöldið væri verri
en engin. Það missti enginn af
neinu. Þvf miður.
Ljóð í gluggakistu
Á fimmtudagskvöldið var Ijóða-
kvöld um ástina í Þjóðmenning-
arhúsinu og þægileg stemning -
ef frá er talinn skortur á stólum.
Ekki veit ég hvað hefði gerst ef
mætingin hefði verið betri, en
það var fullsetið f sextán sætum
og gluggakistum. Hrafn Jökuls-
son lofaði úrbótum fyrir næsta
skáldakvöld, l.júní.
Þetta var engu að síður nota-
legt kvöld. Kristján Þórður las
sonnettur sínar, Didda las þýð-
ingar sínar á dægurlagatexta eft-
ir Patti Smith og lendarljóð
Ertu, Hallgrímur Helgason fór á
flug í flutningi sínum og Vigdís
Grímsdóttir fangaði viðstadda
með seyðandi rödd þegar hún
las upp úr skáldsögu í smíðum.
Hlustendur náðu sér niður með
Jóhanni Hjálmarssyni og Hjalti
Rögnvaldsson fékk þá til að
vökna um augun í lokin, svo vel
fór hann með ástarljóð 19. ald-
arskáldanna.
Margrét E.
Ólafsdóttir
skrifar
áeáltÆIKFFXAG léaL
©^REYKJAVÍKURJ®
BORGARLEIKHUSIÐ
ATHUGIÐ BREYTTAN
SÝNINGARTÍMA UM
HELGAR
Stóra svið:
Kysstu mig Kata
Söngleikur eftir Cole Porter,
Sam og Beliu Spewack.
mið 31/5 kl. 20:00
uppselt
fim 1/6 kl. 20:00
örfá sæti laus
fös 2/6 kl. 19:00
örfá sæti laus
lau 3/6 kl. 19:00
örfá sæti laus
sun 4/6 kl. 19:00
örfá sæti laus
fim 8/6 kl. 20:00
örfá sæti laus
fös 9/6 kl. 19:00
laus sæti
lau 10/6 kl. 19:00
nokkur sæti laus
mán 12/6 kl. 19:00
laus sæti
fim 15/6 kl. 20:00
laus sæti
fim 22/6 kl. 20:00
laus sæti
fös 23/6 kl. 19:00
laus sæti
lau 24/6 kl. 19:00
örfá sæti laus
sun 25/6 kl. 19:00
laus sæti
eftir
Erskine Caldweil
Pýðing:
Jökull Jakobsson
Leikmynd og búningar:
Snorri Freyr Hilmarsson
Lýsing:
Ingvar Björnsson
Hljóðmynd:
Kristján Edelstein
Leikstjóri:
Viðar Eggertsson
Síðasta
sýningarhelgi
laugardag 27.maí
örfá sæti laus
Síðustu sýningar
Sjáið allt um Kötu á
www.borgarleikhus.is
Aukasýning
laugardag 3. júní
Sýningar hefjast kl 20:00
Allra síðasta sýning
Sýningu lýkur í vor
Ósóttar
miðapantanir
seldar daglega
Miðasalan er opin virka daga frá
kl. 12-18, frá kl. 13
laugardaga og sunnudaga
og fram að
sýningu sýningardaga
Símapantanir virka daga frá kl. 10
Greiðslukortaþjónusta
Sími 568 8000 Fax 568 0383
25% afsláttur
til handhafa
gulldebetkorta
Landsbankans.
Miðasalan opin alla virka daga
frá kl. 13:00-17:00 og fram að
sýninqu, sýninqardaqa.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
Hvað er á seyöi?
Tónleikar, sýningar,
fyririestrar o.s.frv...
Sendu okkur upplýsingar á netfangi, í símbréfí eða hringdu.
ritstjori@dagur.is / fax 460 6171 / sími 460 6100
Útvörður upplýsinga
um allt land.
■ ■
www.visir.is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR