Dagur - 27.05.2000, Page 19
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000 - 35
Vilborg stökk ofsahrædd úr rúminu þegar hún i myrkrinu uppgötvaði að maðurinn ofan á henni var ekki
Úli, heldur hinn sköllótti Aðalgeir. Myndin er af Evelyn Keyes úr kvikmyndinni „The Prowler“.
Rangur maður
í rúminu
Áríð 1941 deildu
þrír menn herbergi
í húsi við Njálsgötu
og tveir þeirra, Að-
algeir, herbergis-
leigjandinn, og Óli,
gestur hans, not-
uðu sama rúmið,
190x85 cm. að
stærð. En þegar mál þetta kom
upp vann Aðalgeir austur í
Kaldaðarnesi og var lítið heima.
Óli hafði rúmið því oft fýrir sig -
og nýju kærustuna, verksmiðju-
stúlkuna Vilborgu. Þríðji maður-
inn, Jón, náttaði á legubekk í
herberginu.
Oli og Vilborg voru að heita má heitbund-
in, þó ekki væri það opinbert. Þótt þau
tíðkuðu holdlegar samfarir var hún af eng-
um talin lauslát, sem í þá daga skipti máli,
með bæinn fullan af enskum hermönnum.
Og þau skipti sem það gerðist að Aðalgeir
kom frá kaldaðarnesi og hún var með Ola í
rúminu, þá klæddi hún sig og fór heim, svo
Aðalgeir fengi sitt pláss í rúminu.
Samskiptin voru snurðulaus og Aðalgeir
Iét afnot skötuhjúanna af rúmi sínu af-
skiptalaus. Auðsýndi Aðalgeir ávalt góðvild
og kurteisi gagnvart Vilborgu. En þá kom
að hinum örlagaríka degi; gamlársdegi
1941.
Lagðist uppí hjá parínu
Aðalgeir kom í bæinn til að fagna áramót-
um. Á gamlárskvöld var hann framan af
kvöldinu með enskum hermönnum, kunn-
ingjurn sínunt, en fór síðan á dansleik.
Komst hann undir áhrif áfengis, sem þeir
ensku gáfu honum. OIi vissi að Aðalgeir
hefði farið á dansleikinn og átti síður von á
því að hann kæmi heim um nóttina, miðað
við fyrri reynslu. Þau Vilborg ákváðu því að
sofa í rúrninu um nóttina, þangað sem þau
komu um ld. 2 um nóttina.
Þegar þau komu i herbergið var þar f\TÍr
enskur maður að bíða eftir Aðalgeir, en |ón
einnig fjarri. Sá enski gaf þeim áfengi, sem
Vilborg drakk þó lítið af. LJm klukkan 3 fór
sá enski og þau Óli og Vilborg lögðust til
svefns, Óli fram við stokkinn, en Vilborg
íyrir ofan hann og var hún klædd skyrtubol
og undirkjól, en buxnalaus.
Eitthvað að ganga 5 um nóttina kom Að-
algeir hífaður af dansleiknum. Reyndi
hann að vekja Óla en tókst ekki. Áltvað
hann að hátta, slökkva Ijósið og leggjast
fyrir í rúminu. Þrengslin voru mikil; hann
gat aðeins legið á hlið og var nánast á
rúmbríkinni. I herberginu var nær al-
dimmt. Þannig var staðan þegar Jón kom
af dansleik. Hann sá þau þrjú í rúminu og
að Aðalgeir var vakandi. Háttaði hann sig,
slökkti ljósið á ný og lagðist til svefns. Var
hann fljótur að sofna.
Ekkert hár á höfðinu
Nú voru þau öll sofnuð nema Aðalgeir og
það almyrkt í herberginu. Grípum þá niður
í frásögn Vilborgar. Hún sagðist hafa losað
svefninn við að maður var kominn ofan á
hana og farinn að hafa sanifarir við hana.
Taldi hún að þetta væri ÓIi og hafði því
ekkert við tilburðina að athuga. Fálmaði
hún um höfuð mannsins og fann að hann
var, ólíkt Óla, sköllóttur - og fann um leið
til Óla við hliðina á sér. Sagði hún að það
hefði gerst í einni svipan að hún áttaði sig
á þessu, varð ofsalega hrædd, hljóðaði upp,
hentist undan manninum og úr rúminu.
Óli vaknaði og rauk til að kveikja ljósið. Lá
þá Aðalgeir efst í rúminu og sneri til veggj-
ar; virtist sofandi eða þóttist vera það. Vil-
borg var váti sínu fjær af geðshræringu og
ÓIi vakti Aðalgeir óþyrmilega, hafi verið
þörf á því; barði í axlir hans og gaf honum
síðan hnefahögg í andlitið.
Vilborg sagði að Aðalgeir hefði ekkert
þóst vita hvað um væri að ræða, en sagt að
hafi hann gert henni eitthvað þá bæðist
hann afsökunar á því. Honum V'ar hótað
lögreglunni en síðan fóru skötuhjúin hurt.
Frásögn Aðalgeirs var nokkuð á aðra
lund. Hann sagði að hún hefði legið á bak-
inu, en síðan snúið sér að honunt, lagt
annan handlegginn víir hann. Síðan hefði
hún, ber upp að mitti, lagt vinstra lærið
vfir hann og honum þá ekki dottið annað í
hug en að hún væri vakandi og að fá hann
til við sig.
Taldi allt með eðlilegum hætti
Hann sagði að sér hefði auðveldlega tekist
að koma lim sínum fyrir á réttan stað og
síðan að koma henni á bakið. Hóf hann
síðan samfarir sem hann sagði að hefðu
staðið lengi yfir, án þess að honum hafi
orðið sáðfall. Hefði allt virst með eðlilegum
hætti og þó hún hafi ekki kysst á móti hafi
hún hreyft sig eðlilega undir honum. Hann
hefði hætt og spurt „hvort hún væri búin“,
en hún cngu svarað og hann þá farið að
sofa. Hann neitaði alfarið að Vilborg hefði
brotist undan sér. Hann hefði vaknað við
að Óli greiddi honum bvlmingshögg í höf-
uðið og sakaði hann um að hafa nauðgað
stúlkunni.
Hvorugt vildi hvika frá frásögn sinni. ÓIi
sagðist hafa vaknað við að stúlkan þreif í
hann, háhljóðaði og hentist um leið hágrát-
andi fram úr rúminu. Hún hefði sagt hon-
um að Aðalgeir hefði hafið viö hana samfar-
ir að sér sofandi. Vilborg hefði sest í mikilli
geðshræringu í sófa og kallað Aðalgeir
„djöfuls óþv'erra" og að hún fyrirliti hann.
Hann hafi síðan ætlað að fýlgja henni gang-
andi heim, en hún hafi vart verið göngutær
sökum geðshræringar og vanmáttar.
Jón á legubekknum sagðist hafa vakn ið
við að Qli og Vilborg hlupu úr rúmi sínu og
sagði að hún hefði verið hágrátandi með
þungum ekka og vart mælandi. Hefði kom-
ið til oröasennu milli Óla og Aðalgeris og
ásakanir flogið um nauðgun.
Svefninn ekki sannaður
Vitnisburður og vottorð lágu síðan fyrir um
mikla vanlíðan og veikindi Vilborgar næstu
daga og vikur. I undirrétti komst Jónatan
Hallvarðsson sakadómari að þeirri niður-
stöðu að Aðalgeir hlyti að hafa vitað að Vil-
borg svæfi, enda taldi hann það sannað að
hún hafi verið sofandi, þar sem hún lá við
hliðina á unnusta sínum. Hann hefði enga
ástæðu haft til að ætla að hún væri viljug
til ástaratlota við hann. Hann hefði enga
ástæðu haft til að túlka hreyfingar hennar
á þá lund, þvert á móti. Honum hafi hlotið
að vera það ljóst, að hafi hún í sveln-
mókinu virst viljug þá hafi hún verið í villu
um hver sýndi henni atlotin. Jónatan
dæmdi Aðalgeir því í 8 mánaða fangelsi og
svipti hann, eins og þá tíðkaðist, kosninga-
rétti og kjörgengi.
Hæstiréttur var ekki eins viss og Jónatan.
„Ekki þvkir fullyrðandi gegn staðhæfingu
ákærða, að hann hafi gert sér grein fyrir
því, að stúlkan hafi verið sofandi, er hann
hóf samfarir við hana“. En hann hafi hlotið
að vera það ljóst „að stúlkan áleit sig hafa
samfarir við mann þann, sein hún gekk til
sængur með". Mildaði Hæstiréttur refsing-
una niður í 5 mánaða fangelsi.
Alhugosemdir og úhendingar uni nuíl:
fridrik@fj.is
jsönini,
DOMSMAL
Fpiðrik Þóp
Guðmundsson
skrifar
í umferðinni. Pessi svipmynd af þjóð-
veginum sýnirvið skyldustörf þá lög-
reglumenn sem iónastir eru í því þjóð-
þrifastarfi að stoppa þá ökumenn sem
aka of hratt. Hvar á landinu eru þeir?
Bilstjórinn. Þingmenn eru margir
hverjir nú að ferðast um kjördæmi sín,
það er þau sem verða til með nýrri
kjördæmaskipan. Halldór Blöndal ferð-
ast þessa dagana um Norðausturkjör-
dæmi og þessi mynd var tekin þegar
þingmaðurinn lagði upp í ferð um sitt
nýja kjördæmi, sem nær yfir hvaða
svæði?
Fegurðardrottning. Um helgina síð-
ustu var fegurðardrottning íslands val-
in og sést hún fyrir miðju á þessari
mynd. Hver er stúlkan sem þennan
eftirsótta titil hlaut?
Flugvélin Þessa dagana er að Ijúka
mikilli viðgerð á merkri flugvél sem er
í eigu þeirra Sigurðar Aðalsteinssonar
og Jóhannesar Fossdal á Akureyri.
Vélin ber einkennisstafina TF - LBP. í
eigu hvers var þessi vél upphaflega
þegar hún kom fyrst til landsins?
5
■
Tr
i
Rúnar. Suðurnesjamaður númer eitt
er vitaskuld Rúnar Júlíusson, sem
hefur marga fjöruna sopið í tónlist-
inni. Hann spilaði áður fyrr á árunum
með Hljómum en fyrir nokkrum árum
var hann í sveit með Bubba Morthens,
sem nefnd var eftir frægustu gítar-
hljómunum. Hvað hét sú sveit?
LAND 0G
ÞJÓB
1. Skálmarnesmúli er kirkjustaður í
mannlausri sókn á Vestfjörðum. Hvar er
þessi kirkja?
2. Hvað heitir leiðin frá Skógum undir
Eyjafjöllum og niður í Goðaland í Þórs-
mörk?
hann? 5. Hvar á landinu er Vestmannsvatn?
4. Á níunda áratugnum voru gerðar um- 6. Hvað heitir fjallið sem Þingeyri við
fangsmiklar fornleifarannsóknir á sögu- Dýrafjörð stendur undir?
frægum stað undir Eyjafjöllum og leiddu
þær margt merkilegt í Ijós. Um ástir og 7. Tóarfjall. Hvar á landinu er það?
örlög ábúenda þar á sextándu öld skrif-
aði Jón Trausti eftirminnilega skáld- 8. Gæsavatnaleið. Hvar á landinu er
9. Hver er framkvæmdastjóri kristni-
tökuhátíðar?
10. Björk Guðmundsdóttir spjaraði sig
vel um sl. helgi á kvikmyndahátíðinni í
Channes. Hver er kvikmyndin sem hún
fékk Gullpálmann fyrir leik sinn í?
3. Hvalvatnsfjörður. Hvar á landinu er sögu. Hver er bærínn og hver er sagan? hún?
skrifar
>gep ogt u| jæuea uipuAui>|!A>| jo euog oi 'uiajsjeH snj|np ’6 •tun||ofj e |epnjpo|/\| e uu!6e/\po[cj gw jepue 6o njg e nddgj>| jyX ‘n6unjnddej» uepjou •iun||ofj e es|n»or e
njq jgA 6o eöuiddAjddn! 6o n»sg) uepjs jn66iq 'S|n»g[s||ejeu6unx uejseA 6o uegjou jn66i| 6o e6eipeseuioi ubqjou ujpioi is!U!9j6 p!9|spues!6u9jdg bjj ’simigteuje/y uepjou pg|SS]pu9|eq J9 p!9|eujeAesæg g jepjeíjjeujv 6o jepjejjejÁa !||!Ui
Lunujpje6||e[j j J9 ||e[pegi z ■nguiieAefs jjjA jbjjsuj /gg ‘||9j j6e| je ujss 'majepues j|pun jnpuajs uAaöuiq -g jpuepnpjON e jeuun[>p!» Jipnqjeuins jeiqaajjjeis rna ssac| e»»eqjnisne p!A 'n|sAsje[Aa6u!q-jnpns j s|epe[>|Aay 6o S|ep|epv ujniouj p
uieAnpgis ]uunj6 ja ujBASuueuJisaA 'S '6jog-mois E ElJuv unq Jjqaq 6o !uu!p|g e emuiaus in uioq uias nögspieqs n6a|!uu!uu|ija eujs !peju>|s jisneji ugp uias ei|e[H-euieg 6o 6jog-njgis e nuug jqse uin jba pecj ua ‘uin||g[je[A3-jnisnv J|pun
6jog-njgis tun pnds ja jbh y eo|jepuej|e[>|s 6o -jepjejjefAg jhjuj p ja uias uu!pje6||e[j j uu! isja>|S uias jnpjg[j uqji ja jnpjg[jsuieA|eAH 'E 'B|>|ofs|epjA|A| 6o -e||e[je[A3 iipui p jn66j| uias ‘sipqnpjgAUJUJH ja euacj z -nisAsjepueJisepjeg - jnjsnv
j jepje[jjeui|e>is 6o jepje[pe6u!pa» imuj e ja pecj ua '!saujeui|e>is e ja !|niusaujeui|e>is 'i '009 , 's6n|jej>|n[s |g |aA n6ou !»>|a unq ^peiuaq epua 'euiji uetuuje»s uin swape 9cj euqaA ipeiou æg[g 'isei PME spue| |q peöwq ujo>| 6o edde>|6n|j
jeuossiey sujgfg n6|a j e6a|jeqddn jba issscj |8A6n|3 , 'J!ugpsnu6e|A| jnpjjjuj|e|A| u»3 ja 000Z spue|S| 6u!uuojpjepjn6a3 , jpjeqseuueuiiv pe jnpns 'uin jnisne 6o !pj!jn|6|s bjj jæu ]uiæpjg[>|jnisnepjo|\|, isonpugig e uuauin|6aj6g| nja euaq ,
■JQAS