Dagur - 27.05.2000, Qupperneq 23
Tfc^ur
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000 - 39
SKAKMOLAR
UMSJÓN:
HALLDÓR B.
HALLDÓRSSON
Brekkuskóli sigraði
Brekkuskóli frá Akureyri
sigraði af miklu öryggi á ís-
landsmótigrunnskólasveita
sem fram fór um síðustu
helgi. Brekkuskóli fékk
30vinninga af 36 möguleg-
um og var heilum 4.5 vinn-
ingi á undan næstu sveitum,
Rimaskóla og Réttarholts-
skóla sem fengu 25.5 vinn-
inga. Halldór B. Halldórs-
son vann allar 9 skákir sínar
á fyrsta borði, Stefán Bergs-
son fékk 8 vinninga á öðru,
Agúst B. Björnsson 7 og Jo-
hann Rolfsson 6-Brekku-
skóli fer því á Norðurlanda-
mót grunnskólasveita annað
árið í röð en Brekkuskóli
varð einnig Islandsmeistari í
fyrra. Það er því Ijóst að
mikið og gott unglingastarf
hefur verið unnið á Akureyri
undanfarin ár og vill öll
sveitin þakka þjálfara sínum
Þór Valtýssyni þennan góða
árangur. Þeir Halldór og
Stefán vilja þó taka fram að
þeir Gylfi, Gestur og Rúnar
eiga sinn þátt í velgengni
þeirra félaga.
Fjör í Sarajevo!
Mikið fjör er þessa dagana í
Sarajevo en þar fer fram
mjög sterktskákmót með
þátttöku Kasparovs sjálfs.
Þegar sex umferðir hafa ver-
ið tefldar af eilefu eru þeir
Kasparov og Shirov efstir og
jafnir með 4.5 vinning.
Margar skemmtilegar skákir
hafa verið tefldar á mótinu
og kom þessi staða u|)p í
einni þeirra. Það var
búlgarski stórmeistarinn
Veselin Topalov(2702) sem
hafði hvítt gegn Tékkanum
unga Movsesian(2671).
Topalov lék síðast 73. Ke4
með og hótaði þar með máti
á e5 en Movsesian fann
snjallt svar.73ÖBf6! 74.Bxf6
h3! Nú mætti halda að
staðan væri unnin á svart
enTopalov var ekki á sama
máli enda þekktur fyrir flest
annað en að gefast upp.
75.Bxg5 h2 76.Bf6 Rd3
77.Kxd3 hl=D 78.Be4 Ke6.
Movsesian tókst ekki að
brjóta niður stöðu hvíts og
því var jafntefli samið
nokkru síðar.
Sverrir stal senunni!
Skákþingi Vestmannaeyja
Iauk um síðustu helgi og var
það Sverrir Unnarsson sem
að stal sigrinum eftir að sá
efnilegi, Björn ívar Karls-
son, hafði leitt nær allt mót-
ið. Þeir félagar mættust
reyndar í síðustu umferð og
lauk þeirri skák með sigri
Sverris og varð Iokastaðan
eins og hér segir.
1. Sverrir Unnarsson 6
vinningar af 8.
2. Björn Karlsson 5.5
3-4.Einar Guðlaugsson og
Sigurjón Þorkelsson 4.5.
5. Stefán Gíslason 0,5
Aðeins tóku fimm þátt í
þinginu og endurspeglar það
kannski þá lægð scm að
skákin er í. Ég þykist þó sjá
merki þess að bjartari tíð sé
framundan.
Skapmikil
stórstjarna
Russell Crowe er að slá í
gegn í mynd sinni Gladiator
sem nú er verið að sýna hér á
landi. Leikarinn hóf feril sinn
sem söngvari undir nafninu
Rus Le Roc og fyrsta smá-
skífulag hans bar heitið „Ég
vil vera eins og Marlon
Brando“. Leikarinn er ástr-
alskur og þykir með eindæm-
um skapmikill og gefinn fyrir
slagsmál. Hann er enn söngv-
ari í hljómsveit sem ber nafn-
ið 30 Odd Foot of Grunts og
stefnt er að því að hljómsveit-
in gefi út geisladisk í sumar.
Crowe er ógiftur og býr í Sid-
ney og segir útilokað að hann
flytjist til Hollywood.
Russell Crowe á svlði með hljóm-
sveit sinni. Hann ætlar að gefa út
geisladisk í sumar.
KRAKKAHORNIÐ
Teiknaður
eftir tölunum
Ef þú teiknar strik á milli talnanna á
þessari teikningu kemur í Ijós hvað er á
myndinni.
Fróöleikur
Vissir þú að seglbrettasigling, þar sem
menn fleyta sér áfram á bretti með þrí-
hyrndu segli, er upprunnin í Bandaríkj-
unum og kom þar fjTst fram árið 1969.
Seglbrettasigling hefur verið olympíuí-
þrótt frá árinu 1984.
Vissir þú að riðuveiki, sem oft er talað
um í fréttum er hægfara ólæknandi
veirusjúkdómur sem leggst á sauðfé.
Veikin leggst á miðtaugakerfið og veldur
lömun. Þegar sjúkar Idndur reyna að
ganga verða þær óstyrkar og ullin verður
rýr og loks leggjast þær niður og eru
með sífelldan titring á höfði og fótum.
Riða hefur verið þekkt frá því um 1900
hér á landi.
Við viljum hvotja alla sem haí'a eitthvað í pokahorninu að senda okkur efni. Utanáskriftin er:
Dagur - Barnahorn
Strandgata 31
600 Akuroyri
Tölvupóstur: biggi@dagur.is
Vatnsberinn
Sjaldan er ostur
undir brauði. En
oft sligast snauð-
ur undan álagi og
þunga endurá-
lagningar.
Fiskamir
Engar líkur eru á
að menn deyji úr
hungri í Irafárinu
á Sultartanga. En
fáir fara þaðan
feitir.
Hrúturinn
Af tvennu illu er
hvorug skárri,
Alabama Islands
og Bangkok
norðursins.
Nautið
Nætursaltaðar
tilfinningar eru
lítið endingarbetri
en einnar nætur
gaman.
Tvíburarnir
Það mæta ekki
allir fjölmiðlar á
staðinn þegar
þið opinberið. En
Lögbirtingarblað-
ið sendir örugg-
lega fulltrúa.
Krabbinn
Náttúruverndar-
hermdarverka-
menn verða frið-
aðir á næstunni
og um leið svipt-
ir skotleyfi.
Ljónið
Farðu með
hvítvínsfernuna á
fótboltavöllinn.
Það dregur úr
drykkjuskapn-
um.
Meyjan
Það er tilvalið að
nota fjárfesta í
tannfyllingar.
Þær losna þá
síður.
Vogin
Læstu buxna-
klaufinni í kvöld
og geymdu lykil-
inn heima. Allur
er varinn góður.
Sporðdrekinn
Betra er að fara
með veggjum en
fara ekki
nokkurn skapað-
an hlut.
Bogamaðurinn
Langæ vandamál
leysast um helg-
ina fyrir tilstilli
tengdafólksins.
Það hendir þér
loksins á dyr.
Steingeitin
Oft má heyra
svanasöng í
heiði skammt
frá krumma-
skuði.