Dagur - 04.08.2000, Blaðsíða 1

Dagur - 04.08.2000, Blaðsíða 1
600 millj ónir nin- fram i lyflunum Lyfjakostnaður og heilsugæslan langt fram úr áætlirn. Sum sjúkrahúsiu gætu átt afgang um næstu ára- mót eftir aukafjár- veitinguna sem þau fengu í fyrra. Sjúkrahúsin í landinu hafa ekki farið fram úr þeirri aukafjárveit- ingu upp á um 5 milljarða króna, sem þau fengu á fjáraukalögum í íyrra. Meira að segja lítur út fyr- ir að sum þeirra muni eiga af- gang þegar næsta fjárhagsár þeirra hefst. Að sögn Kristjáns Pálssonar, sem sæti á í fjárveitinganefnd, lítur út fyrir að lyfjakostnaður ríkisins fari um 600 milljónum króna fram úr áætlun. Sömuleið- is fer kostnaður vegna heilsu- gæslustöðva í landinu fram úr áætlun sem nemur um 400 milljónum króna. Astæða þess er sú að heimilislæknar vísa í aukn- um mæli sjúklingum til sérfræð- inga. Sérfræðtnga kostnaður I úittekt sem Dagur gerði í vetur sem leið, á sífellt hækkandi lyija- kostnaði ríkisins, kom fram hjá núverandi heilbrigðisráðherra, Ingibjörgu Pálmadóttur, og tveimur fyrrverandi heilbrigðis- ráðherrum að það væri innbyggð 12% hækkun árlega á lyfjakostn- aði ríkisins. Það stafar fyrst og fremst af til komu nýrra lyfja sem eru verðlögð upp úr öllu valdi fyrst þegar þau koma á markaðinn. „Astæða þessarar framúr- keyrslu hjá heilsugæslunni er sú að heilsugæslulæknar sömdu þannig í síðustu kjarasamning- um að þeirra vinnuumhverfi er ekki lengur afkastahvetjandi. Þeir taka nú öll möguleg frí og öll fáanleg námskeið. Þeir taka ekki fleiri sjúklinga en sem nem- ur því að þeir standi við sína samninga og vísa síðan bara öðr- um sjúklingum til sérfræðinga. Þetta er auðvitað mjög dýrt og er kostnaðurinn nú kominn um 400 milljónum króna fram úr áætlun," sagði Kristján Pálsson. Hann sagði að engar endan- legar ákvarðanir lægu fyrir um hvaða opinberum framkvæmd- um yrði frestað á næsta ári til þess að draga úr þenslu. Stærstu framkvæmdinni sem í gangi er hjá ríkinu, stækkun flugstöðvar- innar á Keflavíkurflugvelli, verði ekki frestað því búið sé að gera um hana bindandi samninga við verktaka. Eftir stæðu þá minni framkvæmdir hér og þar og svo auðvitað vegaframkvæmdir en um frestun þeirra hefði enn eng- in ákvörðun verið tekin, enda þótt fjárlagagerð sé nú í miðju kafi. - S.DÓR 54% viljahert viðurlög Mjög skiptar skoðanir eru um hvort stórherða eigi refsingar fyrir of hraðan akstur. Meiri- hluti þeirra sem greiddu atkvæði á Netinu um spurningu Dags var þó fylgjandi hertum refsing- um. Dagur spurði: A að stórherða refsingar fyrir hraðakstur? 54 prósent svöruðu spurningunni játandi, en 46 prósent voru á móti. Nú er hægt að greiða atkvæði um nýja Dagsspurningu á Net- inu, svohljóðandi: Ertu sátt(ur) við innsetningarræðu forseta Is- lands? Slóðin er sem fyrr: visir.is Blaðið í dag er síðasta tölu- blað fyrir verslunarmanna- helgi. Dagur kemur næst út miðvikudaginn 9. águst. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Þessir kátu krakkar voru í gær staddir á Reykjavikurflugvelli á leið til Vestmannaeyja. Verslunarmannahelgin er að ganga I garð og þorri landsmanna á ferðinni. Dagur er með á nótunum en á bls. 4 má sjá umfjöllun um umferðina og á bls. 10 má lesa allt um helgarveðrið. Konur á llótta frá sjálfum sér „Þegar ég horfi á mjög ungar konur í dag finnst mér þær marg- ar hverjar vera á flótta frá sjálfum sér. Þær eru enn að bíða eftir því að prinsinn á hvíta hestinum bjargi þeim. Þær eru í leit að ör- yggi hjá einhveijum öðrum en sjálfum sér. Ég held að það sé ekki góð uppskrift að hamingju,“ segir Jónína Benediktsdóttir lík- amsræktarfrömuður í helgarvið- tali Dags, en þar ræðir hún með- al annars um framtíðaráform sín, heilsurækt og offþjálfun, stöðu kvenna og íþróttaiðkun barna. Hjónin Chandrika og Gunnar Gunnarsson reka indverskt veit- ingahús er nefnist Austur Indía- félagið. Dagur kíkti í heimsókn, fræddist um indverska matargerð og fékk uppskiftir af spennandi réttum. Arnaldur og Alicia reka og eiga stærstu gít- arverslun á Spáni, una sér í sveitasælunni á Arnaldur og Islandi og sóla Alicia sig um helgar. — Og segja lesend- um helgarblaðsins frá því. Fyrir rúmu ári kom til starfa hjá Þróunarstöð Útgerðarfélags Akureyringa, Agnes Joly. Hún er franskur lífefnafræðingur sem starfar hjá Þróunarstöð Útgerð- arfélags Akureyringa. I helgar- blaðinu segir hún frá vinnunni og reynslu sinni af að vera ein- hleypur útlendingur í höfuðstað Norðurlands. Kona ein í næði heitir kyn- lífspistill Bagnheiðar Eiríksdótt- ur, hjúkrunarfræðings, í þessu helgarblaði Dags - en þar leið- beinir hún konum um hvað þær geta gert í einrúmi. Hvernig á að ráða við timbur- mennina? Dagur sló á þráðinn til Hjördísar Ingimundardóttur, deildarstjóra hjá Heilsuverslun Islands, sem flytur timbur- mannatöflur til landsins. Þetta og margt, margt fleira er í helgarblaði Dags. Góða helgi! SJÓN ER SÖGU RÍKARI moiommi Geislagötu 14 • Slmi 462 1300 BRÆÐURNIR ORMSSON Lágmúla 8 • Sfmi 530 2800 www.ormsson.is Black ínvar • 28" B rnagnari • Allar • 2 Scart tengl • Heymartótetengi • Islenskur lelðarvislr. \ ■

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.