Dagur - 18.08.2000, Side 9

Dagur - 18.08.2000, Side 9
 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 - 9 ÍÞRÓTTIR Manchester United spáð sigri Tekst Sir Alex Ferguson að leiða Manchester United til sigurs í ensku úr- valsdeildinni þriðja árið í röð? Meisturum Mauchest- er United er enn einu sinni spáð sigri í ensku úrvalsdeildinni í knattspymu, en keppnin þar hefst um helgina. Samkvæmt stöðunni hjá enskum veðbönkum veðja flestir á United, en þar á eftir koma Chel- sea, Arsenal, Liver- pool og Leeds. Um helgina verður flautað til ieiks í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og fara níu leikir af tíu fram á laugardag, en einn á sunnudag, en þá hefja meistarar Manchester United titilvörnina á Old Trafford gegn Newcastle United. Samkvæmt spám enskra fjölmiðla og veðbanka, telja flest- ir að Manchesterliðinu muni takast að verja titilinn og vinna hann þriðja árið í röð, eða í sjö- unda sinn á níu árum. Spáð 1 spilin Samkvæmt stöðunni hjá William Hill veðbankanum í London, veðja flestir á Manchester United og er veðstaðan þar 11/8. Það eru þó ekki allir sem hafa trú á United, þvf einn harður stuðn- ingsmaður Chelsea, hefur veðjað 100 þúsund pundum (um 12 milljónir ísl. króna) á sína menn, sem eru í öðru sætinu með hlut- fallið 4/1. I þriðja sætinu eru Arsenal 9/2, í Ijórða Liverpool 11/2 og síðan Leeds með 14/1 í fimmta, en önnur mun neðar. Englendingar dunda sér við að veðja um ýmislegt annað í bolt- anum, eins og til dæmis marka- kónginn og hvaða lið muni falla. Þeir Jimmy Floyd-Hasselbaink hjá Chelsea ogThierry Henry hjá Arsenal eru efstir á blaði yfir markaskorara með hlutfallið 5/1, á undan þeim Kevin Phillips hjá Sunderland og Alan Shearer hjá Newcastle sem eru ( öðru sætinu með hlutfallið 7/1. Hvað varðar fallið, þá er talið líklegast að ný- liðar Ipswich falli með hlutfallið 2/1. Næst kemur Bradford með 13/8, Charlton með 11/10 og Manchester City og Sout- hampton 7/4. Verkstjóriim Barthez Þó Manchester United sé yfir- gnæfandi spáð sigri í deildinni í ár, er ekkert sem bendir til þess eftir undirbúningstímabilið að liðið verði neitt betra en í fyrra og frekar að sjá að því hafi hrakað ef eitthvað er. Yfirburðir liðsins hafa þó á undanförnum tveimur árum verið það miklir að menn hafa enn trú á að það muni halda sig á toppnum, þó eitthvað virðist hafa dregið saman með þeim næstu hvað styrkleika varðar Miðjuleikmenn United hafa sannað sig sem þeir bestu í heim- inum og ef Alex Ferguson tekst að halda þeim heilum, þá á ekk- ert lið að standast þeim snúning, þannig að framherjaparið Dwight Yorke og Andy Cole ættu að fá úr nógu að moða. Markvarðarvand- ræðin, sem hrjáð hafa liðið síðan Peter Schmeichel yfirgaf liðið fyrir síðasta keppnistímabil, ættu að vera úr sögunni með komu Fabien Barthez til liðsins og von- andi fyrir Ferguson að nú hafi hann loksins fengið verkstjóra til að standa við bakið á hinni sund- urslitnu vörn liðsins, þar sem varnarjaxlinn Jaap Stam, er þeirra styrkasta stoð. Nú hefur það heyrst að bak- vörðurinn Wes Brown, sé að ná sér á strik eftir erfið meiðsl og mun það örugglega styrkja vörn liðsins, eftir misjafnt gengi Nevilli-bræðranna að undan- förnu. Ekki væri heldur verra að Ronny Johnsen færi að komast í gang, því ekki veitir af honum til að bakka Stam upp í hjarta varn- arinnar, þar sem hinn 35 ára gamli Denis Irwin á við meiðsli að stríða, auk þess að vera kom- inn yfir það besta. Gerir Hasselbaink gæfumiminn? Það lið sem talið er að muni veita United hvað mesta keppni í vet- ur, er útlendingahersveitin hjá Lundúnaliðinu Chelsea, sem hefur heldur betur styrkt sig frá síðustu leiktíð, með kaupunum á framherjunum Jimmy Floyd Hasselbaink og Eiði Smára Guðjohnsen, miðjuleikmannin- um Mario Stanic og varnarjaxlin- um Christian Panucci. Hassel- baink er ætlað að leika það hlut- verk sem Chris Sutton mistókst í fjTra, það er að segja að skora mörk. Miðað við árangur hans á síðustu fjórum árum, sem hefur verið frábær, ætti hann að upp- fylla þær væntingar og með Gi- anfranco Zola, Tore Andre Flo og jafnvel Eið Smára sér við hlið, er mikils af honum að vænta. Sama er að segja um Panucci og Stan- ic og þó þeir hafi ekki verið áber- andi í ítölsku deildinni í fyrra, þá eru þeir til alls líklegir og styrkja liðið örugglega mikið. Þar sem Chelsea náði ekki að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu á síðasta keppnistímabili, hafa þeir fáar afsakanir fyrir slöku gengi í vetur og ættu með smáheppni að eiga töluverða möguleika á meistaratitlinum. Það veltur þó allt á því hverning Vialli tekst að samstilla allan út- lendingaskarann á Stamford Bridge. Ekki vantar púðrið og mannskapinn. O'Leary reynslunni rikari David O’Leary, stjóri Leed United, sem leiddi deildarkeppn- ina í fyrra lengst af, mætir nú til leiks reynslunni ríkara, eftir að hafa spilað með nær sama ellefu manna hópnum allt síðasta tíma- bil og síðan lent í þriðja sæti. Hann mun ekki gera sömu mis- tökin í vetur og hefur nú styrkt liðið til muna með kaupunum á franska miðjuleikmanninum Oli- vier Dacourt og ástralska fram- herjanum Mark Viduka. Ef þeir falla vel að leik liðsins með þeim Harry Kewell og Michael Bridges, ætti Iiðið að verða mun sterkara í ár. Spurningin er að- eins hvort ólátabelgirnir Lee Bowyer og Johnathan Woodgate muni hljóta fangelsisdóm, sem jafnvel vofir yfir og yrði liðinu ör- ugglega dýrkeypt. Hálf miðjau farin Arsenal mætir til leik með mjög breytt lið, þar sem hálf miðjan er farin með þeim Emanuel Petit og Marc Overmars sem í sumar gengu til liðs við Barselóna. Þeim Robert Pires og Lauren Etame er ætlað að fylla skörðin og stór spurning hvort þeim tekst strax að sanna sig með liðinu. Wenger, framkvæmdastjóri liðsins, þarf einnig að glíma við þau vandræði að hafa aðeins einn almennileg- an í hópnunt, sem er Thierry Henry, auk þess að þurfa að treysta á gömlu mennina þá Lee Dixon (36), Tony Adams (34) og Martin Keown (34) í öftustu víg- Iínu, en allir eru þeir farnir að láta á sjá. Það er því ljóst að Wenger þarf að styrkja lið sitt enn meira ef hann ætlar að vera mcð í toppbaráttunni. Nýtt miðjutríó hjá Livcrpool Gerard Houllier, framkvæmda- stjóri Liverpool, kemur mun bet- ur undan sumri og hefur styrkt lið sitt með framherjanum Markus Babbel og miðjutríóinu Gary McAllister, Nick Barmby og Bernard Diomede. Það eru því gerðar miklar væntingar til liðs- ins, sem fyrir hefur í leikmanna- hópnum menn eins og Emile Heskey, Robbie Fowler og Mich- ael Owen. Liðið var á mikilli sigl- ingu í Iok keppnistímabilsins í vor og ætti að koma geysisterkt til leiks á morgun. Onnur lið eru talin eiga mun minni möguleika í toppbarátt- unni og líklegt að bilið niður í þau næstu verði nokkuð. Það má þó alltaf búast við einhverju óvæntu og má þar minna á ár- angur „spútnikliðs" Sunderland í byrjun síðasta keppnistímabils. Leikir 1. og 2. umferðar Laugard. 19. ágúst Charlton - Man. City Chelsea - West Ham Coventry - Middlesbr. Derby - Southampton Leeds - Everton Leicester - Aston Villa Liverpool- Bradford Sunderland - Arsenal Tottenham - Ipswich Sunnud. 20. ágúst Man. United - Newcastle 2. umferðMánud. 21. ágúst Arsenal - Liverpool Þriðjud. 22. ágúst Bradford - Chelsea Ipswich - Man. United Middlesbr. - Tottenham Miðvikud. 23. ágúst Everton - Charlton Man. City - Sunderland Newcastle - Derby Southampton - Coventry West Ham - Leicester Leik Aston Villa og Leeds í 2. umferðinni er frestað til 18. okt. vegna seinni leiks Leeds gegn 1860 Múnchen í undankeppni Meistaradeildar Evrópu á Elland Road á miðvikudaginn. Stelpumar stein- lágu í Kópavogi lslenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu tapaði stórt gegn Þýska- landi þegar liðin mættust í und- ankeppni EURO-2001 á Kópa- vogsvelli í gær. Lokatölurnar urðu 0-6, eftir að staðan var 0-4 í leik- hléi, en segja má að úrslitin hafi ráðist þegar á upphafsmínútum því þýska liðið hafði náð tveggja marka forystu strax cftir fimnt mínútur. Aðeins voru liðnar um þrjár mínútur af leiknum þegar fyrsta markið leit dagsins Ijós, en það gerði Steffi Jones eftir góðan undirhúning Maren Meinert. Að- eins tveimur mínútum síðar bætti Ariane Hingst við öðru marki eft- ir slæm mistök í íslensku vörninni og síðan Birgit Prinz því þriðja á 20. mínútu eftir mikinn einleik í teignum. Islenska liðið hresstist heldur eftir þriðja markið, en gat þó ekki komið veg fyrir að Birgit Prinz bætti við sínu öðru marki og fjórða marki Þjóðverja rétt fyrir Ieikhlé. Islenska liðið var mun ákveðn- ara í seinni hálfleik og tókst þá að brjóta niður sterkan sóknarleik þýska Iiðsins, lengst af, eða þar til á síðustu fimm mínútunum. Þá bætti Maren Meinert við fimmta markinu, eftir að hún komst á auðan sjó eftir að Þóra Helgadótt- Rakel Úgmundsdóttir á fullri ferð. ir hafði hálfvarið boltann. Sjötta markið fylgdi svo í kjölfarið, en það gerði Claudia Múller, rétt fyrir leikslok. Eftir þetta stóra tap gegn Þjóð- verjurn dugar ekkert annað en sigur gegn Urkraínumönnum á þriðjudaginn, til að tryggja þriðja sætið í riðlinum og aukaleik gegn Englendingum um Iaust sæti í úr- slitakeppni EURO-2001. Logi meö FH-inga á Skagann í hádeginu í gær var dregið um það hvaða liö mætast í undanúr- slitum Coca Cola-bikars karla í knattspyrnu. I pottinum voru Fylkir, IA, ÍBV og FH og drógust Fylkismenn, topplið Landssíma- deildarinnar, á móti Eyjamönn- um, en fyrstu deildar lið FH-inga á móti Skagamönnum. Leikur ÍBV og Fylkis fer fram í Eyjum 5. september og hefst kl. 17:30, en leikur IA og FH daginn eftir kl. 17:00 á Skaganum. Urslitaleikur hikarkeppninnar fer síðan frant á Laugardalsvelli, sunnudaginn 24. september. FH-ingar, sem eru í efsta sæti 1. deildar, leika nú Qórðu um- ferðina í röð á útivelli, en áður hafa þeir lagt 23ja ára lið Fram- ara, Stjörnuna og síðast Keflvík- inga að velli. Það er því ljóst að þeir gætu orðið Skagamönnum erfiðir andstæðingar, en Logi Olafsson, þjálfari FH-inga, mæt- ir nú á Skagann í fyrsta skipti síðan honum var sagt þar upp störfum á sfðasta kcppnistíma- bili. I Eyjum má líka búast við hörkuleik, þar sem bæði Iiðin hafa verið að Ieika mjög vel að undanförnu, Fylkismenn ekki tapað nema einum leik í Lands- símadeildinni og Eyjamenn tap- lausir á heimavelli í allt sumar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.