Dagur - 18.08.2000, Side 19
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚS T 2000 - 19
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
iTl
Mangrét Eiísabet Ólafsd Valdís Viöars
Mermin^
fram á nott
Menningamótt í mið-
borginni verðurhaldin í
fimmtcL sinn á morgun,
laugardaginn 19.
ágúst. Söfn, gallerí,
verslanir, kirkjur, veit-
ingahús ogfyrirtæki í
miðborg Reykjavíkur
taka þáttíMenning-
amóttinni sem hefstá
hádegi og stendurfram
ánótt.
Fyrst á dagskrá Menningarnætur
er Reykjavíkur maraþonið sem
hleypt verður af stað eftir að
borgarstjóri hefur sett hátíðina kl.
12. Næsta blása lúðrar í Bern-
höftstorlunni kl. 14, en þar verð-
ur ýmislegt um að vera fram eftir
degi. Við bendum á ljölbreytta
dagskrá Landsbanka Islands í
Austurstræti, gjörning Magnúsar
Pálssonar í Listasafni Reykjavík-
ur- Hafnhúsinu kl. 17 og reyndar
nágrenni safnsins, Grófina, þar
sem meira en nóg verður um að
vera.
Myndlist, máljjing og blöðrur
Þegar klukkan slær þrjú verður
opnuð sýningin „Tírni - fresta
flugi þínu“ í Listasafni Reykjavík-
ur á Kjarvalsstöðum, Ragnheiður
Jónsdóttir opnar sýningu í Is-
lenskri grafík við Tryggvagötu og
Hlaðvarpinn opnar dyr sínar fyrir
líflegu afmæliskaffi. Kl. 15.15
opnar Húsavík, gestabær Menn-
ingarnætur 2000, sína dagskrá í
Ráðhúsi Reykjavíkur og korteri
síðar verður opnuð sýning um
sögu Torlusamtakana í húsum
Torfunnar. Kl. 16 koma „2000
börn“ saman í Lækjargötu og
syngja þúsaldarljóð á sama tíma
og norrænir djasstónleikar hefjast
í Norræna húsinu. Málþing
Torfusamtakanna hefst einnig kl.
16 og stendur í tvær klukku-
stundir.
Klukkan 17 verður opnuð graf-
íksýning Helga Snæs Sigurðsson-
ar í Landsbanka Islands, samtök-
in Belri borg skemmta vegfarend-
um og kynna starfsemi
sína á Lækjartorgi frá
kl. 17 til 20 og Flosi
Olafsson flytur hug-
leiðinar úr Kvosinni kl.
17.30 og 20.30. Aðal-
steinn Ingólfsson list-
fræðingur verður líka í
Landsbankanum þar
sem hann kynnir vegg-
myndir í afgreiðslu kl. 17 og
19.30. Blöðrufólk tekur við kl. 18
og þá ekki gleyma ferðum Gunna
og Felix um bankann. Dansleik-
hús með ekka býður upp á tvær
sýningar í Tjarnarbíói kl. 18 og
20.30 og Magga Stína og hr.ing.ir
troða upp í Borgarbókasafninu,
Trygggvatgötu 15, kl. 18 og 19.
Þá hafa enn ekld verið nefndar
umræður um sýninguna Besti
Hlemmur í heimi með sprengiút-
sölu á slvranlistaverkum né uppá-
komur SPRON og Herrafatar-
verslunar Kormáks og Skjaldar
við Skólavörðustíg.
Tónlist og meiri tónlist
Um kvöldið eykst Ijörið enn. Kór-
akvöld í Islensku óperunni með
Kór Graduale og Fóstbrærðrum
stendur frá kl. 20 til 23 og bland-
aðri tónlistardagskrá í Hallgríms-
Þau trylla í höfuðborginni á Menningarnótt.
kirkju frá 20 til 22 Iýkur með
helgistund. I bókakaffi Súfistans,
Laugavegi 18, verður forskot á
jólabókasæluna þegar skáldin
helja Iestur sinn kl. 20 og í Lista-
safni íslands er kvöldopnun með
leiðsögn kl. 23 og myndbanda-
sýningum um íslenska myndlist-
armenn lýrr um kvöldið. Kór
Flensborgarskóla í Hafnarfirði og
Ampop troða upp í bakgarði
Meistara Jakobs, Skólavörðustíg
5 og Kanda og Naglbítar spila
upp á þaki Músík og mynda í
Austurstræti. Harmonikkuball á
útitaflinu kl. 21.30 og í Lands-
banka Islands Ieikur dixíland-
hljómsveit Arna lsleifssonar. A
hafnarbakkaum syngur Ragnhild-
ur Gísaldóttir með Stórsveit
Reykjavíkur kl. 22.30 þar sem Eg-
ill Helgason hefur upp raust sína
með Geirfuglunum.
MEÓ.
Meiriháttar dj ass
Rune Gustafsson er
einn helsti djasstónlist-
armaðurSvía. Odd-
Ame Jacobsen ereini
norræni gítarleikarinn
sem haldið hefurein-
leikstónleika í Camegie
Hall.
Fjögurra daga djassgítarhátíð
hófst á vegum Listasumars á Ak-
ureyri í gær með tónleikum
Robin Nolan tríósins á Heitum
fimmtudegi f Deiglunni. Auk
tveggja tónleika tríósins, þá halda
einir þekktustu djassgítarleikarar
Norðurlandanna, þeir Odd-Arne
Jakobsen frá Noregi og Rune
Gustafsson frá Svíþjóð, tónleika í
Deiglunni í kvöld og heQast þeir
kl. 21.30.
Rune og Odd-Arne halda
einnig tónleika í Norræna húsinu
á morgun laugardag kl. 16.00 og
eru þeir tónleilíar forsmckkur að
Djasshátíð í Reykjavík. Þeir félag-
ar bjóða upp á úrvals djass og
verða með meiri háttar tónlistar-
hlaðborð með mörguin réttum:
Duke Ellington, Bill Evans, Odd-
Arne Jacobsen, sænsk og norsk
þjóðlög, Irving Berlin, Jerome
Kern, Kurt Weill, Antonio Carlos
Jobim og fleira gómsætt.
Rune Gustafsson
Rune Gustafsson hefur í næstum
hálfa öld verið einn fremsti djass-
leikari Svía. Hann byrjaði tónlist-
arferil sinn hjá trommuleikaran-
um Nils-Bertil Dahlander í
Gautaborg, en fiutti síðan til
Stoklchólms. Þar spilaði hann
með Putte Wickman á 6. ára-
tugnum. Rune lék síðan með
hljómsveit Arne Domnérus og
auk þess lék hann með honum
við mörg tækifæri m.a. í sænsku
útvarpshljómsveitinni og Utvarps-
djassgrúppunni. I áranna rás hef-
ur hann leikið með tjölmörgum
stórstjörnum djassins, þar á með-
al Benny Carter, George Russell,
Dizzy Gillespie, Stan Getz og
frægar eru hljóðritanir hans með
Zoot Sims, Red Nitchelle og dúó-
slufan með Niels-Henning. Rune
hefur gefið út
margar eigin plöt-
ur, þar á
meðal
„Move“,
sem kjörin
var djass-
plata ársins
í Svíþjóð
árið 1977.
Auk þess er
hann sá
tónlistar-
maður í Sví-
þjóð sem
verið hefur
hvað eftir-
sóttastur til þess að spila í
hljóðveruni.
Odd-Ame Jacobsen
Gítarleikarinn Odd-Arne Jacob-
sen er mjög íjölhæfur tónlistar-
maður. Hann fæddist í Tromsö
fyrir rúmlega 50 árum og hóf þar
tónlistarferil sinn fyrir um 30
árum. Hann semur eigin tónlist
og hefur mikið lagaval á reiðum
höndum, djass, tónlist frá Asíu og
klassíska evrópska tónlist. Odda-
Arne hefur unnið með mörgum
fremstu listamönnum Noregs á
sviði leikhúss og tónlistar. Hann
hefur haldið fjölda tónleka á
Norðurlöndunum og víða um
heint m.a. í Mexíkó, Dubai, Tókíó
og Hiroshima í Japan, Kína,
Rússlandi og Skotlandi. Meðal
þess sem aflað hefur honum al-
þjóðlegrar frægðar er samvinna
hans með mörgurn bestu djass-
tónlistarmönnum í Japan og
þættir hans í sjónvarpinu í Rúss-
landi og Kína. Odd-Arne hefur og
hlotnast sá hciður að vera eini
norræni gítarleikarinn sem haldið
hefur einleikstónleika í Carnegie
Hall.
Django- og sígaunadjass
Auk þessara frægu listamanna
heldur Robin Nolan Tnóið
tvenna tónleika eins og áður segir
og námskeið í django- og sígauna-
djassi í Tónlistarskólanum á Ak-
ureyri. Námskeiðinu í Tónlistar-
skólanum lýkur laugardaginn 19.
ágúst með opnum tíma og kaffi
Id. 14-16 og eru allir velkomnir
að líta inn og hlýða á uppskeru
nemendanna.
A laugardagskvöldið verða svo
lokatónleikar Robin Nolan tríós-
ins í Deiglunni, en þá bætist
þeim ánægjulegur liðsauki, því
eistlenski fiðluleikarinn Valmar
Viiljaots kemur scm gestaleikari
og má gcra ráð fyrir að tónlistin
verði að hluta í anda Django
Reinhardt og Stephan Grapelli.
Aðgangseyrir er kr. 1000 og
miðar verða seldir við inngang-
inn.
-w
■UM HELGINA
íslenskur einleikari
- j)ýsk hljónisveit
Sinfóníuhljómsveit æskufólks
Elbe-Weser ætlar að halda
þrenna tónleika hér á landi, í
Hafnarfirði, Reykholti og
Langholtskirkju dagana 19.,
20 og 21. ágúst. Plljómsveit-
ina skipar ungt tónlistarfólk
frá níu Evrópulöndum, sem
flest er við nám í tónlistar-
skólum á svæðinu milli ánna
Elbe og Weser í Norður-
Þýskalandi. Alls leika 74
hljóðfræaleikarar á aldrinum
15 til 24 ára í hljómsveitnni í
ár. A efniskrá hennar eru
Enigma-tilbrigði eftir Edward
Elgar og píanókonsert í a-
moll eftir Edvard Grieg, þar
sem einleikari á píanó er
Sinfóníuhljómsveit æskufóls
Eibe-Weser.
Hafnfirðingurinn Ástríður
Alda Sigurðardóttir. Astríður
Alda er tvítug og lauk hún
einleikaraprófi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík fyrir ári
síðan með hæstu einkunn.
Tónleikar hljómsveitarinnar
verða í Hafnarborg þann 19.
ágúst kl. 20, í Reykholts-
kirkju, 20. ágúst kl. 21 og í
Langhotlskirkju mánudaginn
21. ágúst kl. 20. Aðgangseyrir
er 1000 kr. og 500 kr. íýrir
börn, nemcndur og eldri
borgara.
Guitar Islancio skipa þeir Björn
Thoroddsen gítar, Gunnar Þórð-
arson gítar og Jón Rafnsson
kontrabassi.
Guitar IslaiH’io í Hólminum
Sunnudaginn 20. ágúst kl.
16:00 verða tónleikar í röð-
inni Sumartónleikar í Stykk-
ishólmskirkju, þetta verður
síðasti liðurinn í bæjarhátíð
Hólmara „Dönskum dögurn".
A þessum tónleikum koma
fram Guitar Islancio það eru
þeir Björn Thoroddsen gítar,
Gunnar Þórðarson gítar og
Jón Rafnsson kontrabassi.
Þeir leika þjóðlög með léttri
sveiflu. Eins og áður er dag-
skrá Danskra daga í Stykkis-
hólmi fjölbreytt, hcimamenn
sjálfir leggja til megnið af við-
burðum hátíðarinnar sem
stendur yfir alla helgina, en
fá einnig til liðs við sig
nokkra þjóðkunna listamenn.
N______________________________/