Dagur - 28.09.2000, Síða 1

Dagur - 28.09.2000, Síða 1
Skógræktin missir Hvamm í Skorradal Þrjátíu ára leigu- saumingi lokið. Eig- endur vilja selja. Verðið of hátt fyrir Skógræktina. Hvamm- ur eitt mesta jólatrjáaland Skóg- ræktarinnar sunnan heiða. Jörðin Hvammur í Skorradal hef- ur verið auglýst til sölu. Skóg- rækt ríkisins hefur verið með stærstan hluta jarðarinnar á leigu í 30 ár. Leigusamningurinn rann út í sumar og náðist ekki samkomulag um áframhaldandi leigu því eigendur jarðarinnar, erfingjar Hauks Thors, vilja selja jörðina. Verðið sem sett er upp er of hátt fyrir Skógræktina að sögn Jóns Loftssonar, skógræktar- stjóra ríkisins. A þeim 30 árum sem Skóg- ræktin hefur haft jörðina á leigu hefur verið plant- að þar miklum skógi og er til nokkurra ára gamalt mat sem sagði skóginn vera 30 til 40 milljóna króna virði og fer það eftir þ ví hvað er tekið inn í matið. Skógræktarstjóri sagði að eflaust þyrfti nú að dóm- kveðja mats- menn, sem báðir aðilar samþykkja, til að taka skóg- inn út. Jólatrjáaland Eigendur jarðar- innar verða að endurgreiða Skógræktinni virði skógarins nú þegar leigusamningurinn rennur út og jörðin verður seld. Ur skóg- inum í Hvammi hefur komið megnið af þeim jólatrjám sem Nytjaskógrækt í Skorradat tekur breytingum. Skógrækt ríkisins hefur höggvið undanfarin ár sunnan fjalla. Og eigendur jarðarinnar hafa fengið f leigugjald 10% af andvirði þeirra jólatrjáa sem seld hafa ver- ið úr landi Hvamms. Hefur sú upphæð numið 60 til 80 þúsund krónum á ári síðastliðin þrjú ár. Fyrir þá sem ekki vita hvar Hvammur er þá er jörðin í bein- ni sjónlínu norðan megin við Skorradalsvatn þegar komið er yfir Draga. Birgir Hauksson, skógarvörður á Vesturlandi, sagði að Hvammsland væri 390 hekt- arar. Þar af eru 200 innan girð- ingar og skógurinn sem plantað hefur verið út um 100 hektarar. Það land er um 15% af því landi sem Skógræktin hefur yfir að ráða í Skorradal en líka með því albesta. „Við sjáum vissulega eftir þessu landi en þetta var leigu- samningur sem rann út í sumar og þrátt fyrir alvarlegar tilraunir hefur samkomulag ekki tekist um áframhaldandi leigu og sölu- verð jarðarinnar sett of hátt að okkar mati. Og auðvitað sjáum við eftir jörðinni en við því er því miður ekkert að gera,“ sagði Jón Loftsson. - S.DÓR 30% fækk- un verslana Fyrirtækjum í matvöruverslun á höfuðborgar- svæðinu fækk- aði um hátt í 40% á umliðn- um áratug, eða úr nær 140 árið 1990 niður í rúmlega 90 á síðasta ári, sam- kvæmt upplýsingum í Hagvísum Þjóðhagsstofnunar. A landinu öllu fækkaði slíkum fyrirtækjum um 100 á áratugnum (30%) nið- ur í tæplega 230 í fyrra. Mikill meirihluti þeirra, eða nær 150, eru á landsbyggðinni þar sem fækkunin hefur líka verið hlut- fallslega mun minni (23%). Fækkunin er mest á Vestfjörð- um og Suðurlandi. Aðeins á Suðurnesjum hefur niatvöru- verslunum fjölgað. Þjóðhags- stofnun segir fyrirtæki sem velta á bilinu 500 til 1.000 milljónum orðin mjög fá og þeim fari enn fækkandi. - HEI Mest fækkun á Vestfjörðum. Myndlistarskólin á Akureyri er í brennidepli umræðunnar. Samskipta- reglimiun mun breytt Akureyrarbær hefur nú hafið endurskoðun á þeim reglum sem gilda um styrkveitingar bæjarins til Myndlistarskólans á Akureyri. Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri segir ljóst að reglurnar varðandi styrkveitingar og sam- skipti bæjarins og skólans þurfi að vera skýrari og gegnsærri þan- nig að ekki komi upp tortryggni og spurningar líkt og nú hefur gerst. Aðspurður um hvort hann væri hér m.a. að vísa til umræðu um endurskoðun ársreikninga segir hann: „Eg er alveg með á þessari umræðu og við erum að vinna í því máli núna .“ Og hann bætir við að það sé sjálfsagt að benda á ef eitthvað megi betur fara varðandi rekstur bæjarins, en hins vegar sé ekki alveg sama hvernig það sé gert. Kristján segir það hins vegar alveg klárt að af hálfu bæjaryfir- valda hafi menn mikinn áhuga á að styðja við og efla þróun Myndlistarskólans. „Fg get hins vegar ekki sagt að ég sé sérstak- lega ánægður með þann farveg sem umræðan um þessa stofnun er komin í og mér sýnist hún vera því marki brennd að heitar tilfinningar blandist í málið. Ef meiningin með þessari umræðu er að styrkja og efla myndlistar- nám á Akureyri þá er ég hrædd- ur um að þetta sé ekki rétta leið- in til þess,“ segir Kristján Þór. Herferð? Sú umræða sem bæjarstjóri er hér að vísa til er umræða um málefni skólans í fjölmiðlum upp á síðkastið í kjölfar greinar sem birtist á nýjum vef Gallerí Foldar - Listapóstinum. Þar eru bæði skólinn og skólastjóri hans gagnrýndur harðlega sem og eft- irlitsleysi stjórnvalda. Helgi Vil- berg skólastjóri vísar þessari gagnrýni algerlega á bug og talar um herferð. Dagur fjallar ítar- lega um þetta mál á bls. 10-11. SjÓðvél AR-A220 •- • 5/30 vöruflokkar • Allt að 500 PLU númer • 4 afgreiðslumenn • Sjálfvirk dagsetning og tími • Hljóðlaus hitaprentun ER-A150 verð H3L9Ö© stgr. Slmi 530 2800 www.ormsson.is Glerárgötu 32 • Sími 462 3626

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.