Dagur - 28.09.2000, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 2 8. SEPTEMIIER 2000 - 17
ERLENDAR FRÉTTIR
Ofbeldi gegn verkalýðs-
leiðtogum fer vaxandi
1/opnaðir öryggissveitarmenn í Bolivíu líta eftir bónda, en nýverið voru
tveir menn felldir þarna i mótmælaaðgerðum.
Staðfest er að á síð-
asta ári voru 140
verkalýðssinnar myrt-
ir, auk þess sem þús-
uiidir urðu að sæta
fangelsunum og pynd-
ingum
Um allan heirn hefur dregið úr
áhrifum og valdi verkalýðshreyf-
inganna. Frjálsa markaðskerfið
og nýja hagfræðin gera það að
verkum að kjarasamningar fara
að miklu leyti fram milli at-
vinnurekenda og einstakra
starfsmanna. Utboð og verktaka-
kerfi í stórum verkefnum sem
smáum leiða til þess að heildar-
samningar stórra launþegahreyf-
inga eru varla til umræðu lengur.
I iðnríkjum, svo sem í Bandaríkj-
unum, færist í vöxt að stórfyrir-
tæki ráða ekki lengur starfsfólk
beint, heldur taka önnur fyrir-
tæki að sér mannaráðningar og
samninga við starfsfólk. Þannig
eru jafnvel kjarasamningar að
verða verktakastarfsemi að bráð.
í miklum hluta heimsins er
hættulegt að taka að sér forystu í
verkalýðsfélögum. A síðasta ári
voru 140 verkalýðsleiðtogar
myrtir. Eru það 17 manns fleira
en árið áður samkvæmt athug-
unum sem Alþjóðasamtök frjál-
sra verkalýðsfélaga gerðu.
Rómanska Amerfka er hættu-
legasti heimshlutinn fyrir verka-
lýðsforingja. Þar voru 90 þeirra
drepnir á síðasta ári. Fangelsan-
ir og pyndingar eru algengar og
verða margir leiðtogar stritandi
lýðs að þola slíkar hremmingar.
Kolombia er það land sem
verst leikur þá sem standa fyrir
verkföllum eða annarri baráttu
til að bæta kjör verkalýðsins. Þar
voru 69 Ieiðtogar myrtir árið
1999. Oft eru þar að verki örygg-
issveitir, eðaeitthvað því um líkt,
sem starfa á vegum valdhafa
landsins. Síðan 1991 hafa 1336
verkalýðsleiðtogar verið drepnir í
Iandinu og hundruðum hefur
verið rænt eða þeir sendir í út-
legð.
I desember s.l. var C.esar Her-
rera Torreglosa, leiðtogi land-
búnaðarverkamanna, skotinn til
bana. Skömmu áður Ieitaði hann
ásjár lögreglu og bað um vernd
vegna morðhótana sem honum
bárust. Lögreglan hafðist ekki
að og morðingjarnir leika laus-
um hala.
Verkamenn í verkföllum eða
mótmælaaðgerðum voru felldir í
Guatemala, Nicaragua, Brasilíu,
Argentínu og Ekvador á síðasta
ári. Nær 3000 verkalýðsleiðtogar
voru fangelsaðir í Rómönsku
Ameríku á árinu.
1 Nepal voru 33 meðlimir
kennarasaamtaka myrtir. Tyrk-
neskur verkalýðsforingi lést í
varðhaldi lögreglu og annar var
myrtur. I Indónesíu voru kröfu-
göngumenn barðir og þeim mis-
þyrmt. I Burma rústaði stór-
skotalið þorp þar sem mannrétt-
indasamtök héldu fund.
I Austur-Asíu eru átök milli
verkalýðs og yfirvalda tíð, sér-
staklega á þeim svæðum sem
dregið hafa til sín erlent fjár-
magn og markaðslögmálin láta
til sín taka. í Kína eru verkföll og
mótmæli tíð og eru þau barin
niður af hörku. I Saudi-Arabíu
og ríkjunum við Persaflóa er
verkalýðshreyfing bönnuð og því
banni fylgt vel eftir.
í Austur-Evrópu voru 9 verka-
Iýðsforingjar myrtir, nokkrir
þeirra í Rússlandi. Deilur vegna
ógreiddra launa og vondra
vinnuskilyrða leiddu til ofbeldis-
verka og réttur launþega til að
fylgja kröfum sínum eftir skert-
ur.
I skýrslu Alþjóðasamtaka frjál-
sra verkalýðsfélaga segir að í Afr-
íku hafi frést af dauða tveggja
leiðtoga kennara í Eþfopiu, of-
beldi gegn verkafallsmönnum í
Kenya, dauða verkalýðsleiðtoga í
Marokko og pyndingum ódælla
verkamanna í Togo.
Víða er erfitt að afla heimilda
og sannanna um ofbeldi gegn
verkalýðsfélögum og foringjum
þeirra, svo að upptalningin hér
er langt frá að vera tæmandi. En
ljóst er að víða er hættulegt að
vera í fararbroddi verkalýðs-
hreyfinga og að mannréttindi
eru lítils virt.
Ofbeldi gegn verkalýð færist í
aukana í þeim hlutum heims þar
sem yfirvöldin og auðfélög virða
mannréttindi lítils. í iðnríkjun-
um eru aðferðirnar mannúð-
legri, en vegur Iaunþegasamtaka
liggur niður á við eftir því sem
inarkaðskerfið eflist. - OÓ
Reynir að stela kosniiiguiiiun
WASHINGTON - Clinton
Bandaríkjaforseti sakaði
Slobodan Milocevic forseta
Júgóslavíu um að reyna að
stela kosningunum frá stjórn-
arandstöðunni og sagði að al-
þýða fólks í Serþíu gæti reitt
sig á stuðning Bandaríkjanna.
„Það virðist vissulega þannig,
úr fjarlægð, að þarna hafi farið
fram frjálsar kosningar og að
nú séu einhverjir komnir á
lireik sem vilji taka þær í burtu
frá þeim, en í raun er það öf-
ugt, „ sagði Clinton þar sem
hann ræddi við blaðamenn í
Rósagarðinum í Hvítahúsinu.
Clinton var að lýsa hneykslan sinni á þeirri ákvörðun yfirkjörstjórnar
að halda ætti aðra umferð kosninga þrátt fý'rir að ljóst væri að Kost-
unica hefði sigrað í kosningunum - jafnvel þótt hann hafi ekld feng-
ið hreinan meirihluta. Kostunica hefur þegar lýst því yfir að hann
muni ekki taka þátt í annarri umferð kosninga, enda sé hann og
fylgismenn hans sannfærðir um að þeir hafi unnið tilskilinn meiri-
hluta í fyrstu umferðinni.
Kani ákærður fyrir njósnir
MOSKVA - Rússneskir sak-
sóknarar tilkynntu í gær að þeir
væru tilbúnir undir réttarhöld
yfir meintum bandarískum njó-
snara, Edmond Pope, en dag-
setning réttarhaldanna Iiggur
þó enn ekki fyrir. Pope sem er
54 ára gamall hefur verið í
haldi í fangelsi í Moskvu síðan
í apríl sakaður um að hafa
njósnað um neðansjávareld-
flaugar. Það er FSB innlenda Edmond Pope í fangelsinu.
öryggislögreglan sem lagði
fram kæru á hendur honum. I
tilkynningu frá embætti ríkissaksóknara kemur fram að rannsóknar-
aðilar hafi komist að þeirri niðustöðu að Pope hafi stundað njósna-
starfsemi sem varði við 276. grein rússneskra hegningarlaga. Pope
hefur staðfastlega neitað ákæruatriðum.
Slobodan Milosevic forseti og kona
hans og samverkamaður Mira
Markovic greiða atkvæði í kosningun-
um um helgina.
Kvikmyndaframleiðendiir snúa vöm í
sókn
WASHINGTON - Kvikmyndaframleiðendur í HoIIywood, sem ný-
lega hafa sætt mikilli gagnrýni fyrir að beina ofbeldisefni sem þeir
framleiða með óeðlilegum hætti að börnum, fóru á fund bandarískra
þingmanna til að útskýra mál sitt í gær. í samhæfðri tilraun fram-
kvæmdastjóra kvikmyndavera, var lögð fram áætlun í 12 liðum í við-
skiptanefnd öldungadeildarinnar sem þeir sögðu að ætti að geta
komið f veg fyrir markaðsstarfsemi sem beindi ofbeldisefni að börn-
um. „Vissulega má segja að við höfum ekki alltaf verið jafn passasam-
ir og við gætum hafa verið. En ég trúi því þó ekki að hægt sé að segja
ð við höfum kerfisbundið beint bönnuðu efni að börnum og ungling-
um,“ sagði Rob Friedman aðstoðarforstjóri f)TÍr Paramount Pict-
ures.
■ FRÁ DEGI
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER
272 dagur ársins, 94 dagar eftir.
Sólris kl. 7.28, sólarlag kl. 19.07.
Þau fæddust 28. sept-
ember
•1898 Ragnar H. Ragnar tónlistarfröm
uður og skólastjóri á lsafirði.
• 1901 Ed SuIIivan, bandarískur sjón-
varpsþáttastjóri.
•1904 Símon Jóh. Ágústsson.
• 1924 Marcello Mastroianni, ítalskur
kvikmyndaleikari.
• 1929 Nikolaj Rúskov, forseti Sovétríkj-
anna 1985-91.
• 1940 Indriði H. Þorláksson ríkisskatt-
stjóri.
•1950 John Sayles, bandarískur kvik-
myndaleikstjóri.
Þetta gerðist 28. sept-
ember
• 1066 réðst Vilhjálmur hinn sigursæli inn
í England til þess að krefjast bresku
krúnunnar.
TIL DflGS
•1855 lést Vatnsenda-Rósa (Guðmunds-
dóttir), 60 ára.
• 1914 lést Þorsteinn Erlingsson skáld f
Reykjavík, 56 ára.
• 1930 var hús Elliheimilisins Grundar við
Hringbraut í Reykjavík vígt.
•1939 gerðu Sovétríkin og Þýskaland með
sér samkomulag um að skipta Póllandi á
milli sín.
•1994 sökk ferjan Estonia í Eystrasalti, og
fórust þar meira en 900 manns.
•1995 undirrituðu Jitsak Rabin og Jasser
Arafat samkomulag um að Palestínu-
menn fengju umráð yfir dágóðum hluta
Vesturbakkans.
Vísa dagsins
Oss fæslwnhýðst lífið fullt og heilt,
en flestum í brotum og skert og veilt,
og hljóti einhver meira þá höldum vér,
það hlutskipti ríkara en vera ber.
Jón Helgason (eftir Vinje)
Afmælisbam dagsins
Brigitte Bardot lék í fyrstu bíómyndinni
sinni árið 1952, átján ára gömul. Hún
sagði endanlega skilið við kvikmynda-
leik árið 1973, en þá hafði hún leikið í
rúmlega 50 kvikmyndum á tveimur ára-
tugum. Vinsældir hennar voru ómældar,
og hún söng einnig þó nokkuð af dæg-
urlögum á þessum árum. Sviðsljósið var
henni hins vegar ekkert mjög að skapi,
og á endanum sneri hún sér að baráttu
fyrir réttindum dýra. Brigitte Bardot er
fædd í París árið 1934, og er því 66 ára
í dag.
Tíminn kælir, tfminn skýrir;
engu hugarástandi er hægt að halda
óbreyttu með öllu klukkutímum saman.
Thomas Mann (1875-1955)
Heilabrot
Hvert var hæsta fjall f heimi áður en fjall-
ið Everest fannst?
Lausn á síðustu gátu: Þú myndir raun-
ar tapa 120 krónum, þar sem þú fengir að-
eins þrjátíu krónur fyrir þrjá fimmtíu
króna peninga.
Veffang dagsins
Einhver hefur verið svo framtakssamur að
setja upp myndavél á Ingólfstorgi í Reykja-
vík og sýna myndirnar jafnóðum á Inter-
netinu: www.bbs.is