Dagur - 28.09.2000, Síða 4

Dagur - 28.09.2000, Síða 4
4 - FIMMTUDAGUR 28. SF.PTEMBER 2000 FRÉTTIR Atþingismenn munu hverfa að hefðbundnum störfum sínum innan fárra daga. Búist er við átökum. - mynd: hilli Atök uni mörg stór- mál á vetrarpmgi Alþingi kemur saman mánudaginn 2. október. Byggðamál, virkjana- og stóriðjumál, Evrópumálin og endurskoðun laganna um stóm fískveiða verða fyrirferðarmest á þinginu. Nú er hálf vika þar til aiþingi kemur sam- an en það verður mánudaginn 2. október. Að sjálfsögðu er það fjárlagafrumvarpið, sem Iagt verður fram á fyrsta degi þings- ins, sem verða mun eitt fyrirferðarmesta þingmálið fram að jólum ef að Iíkum læt- ur. Þá gæti þinghaldið í vetur orðið býsna fjörugt ekki síst fyrir þær sakir að ýmis deilumál milli stjórnarflokkanna hafa safnast upp á síðustu mánuðum. Eitt af þeim er Evrópumálið og annað stórmál er salan á Landssímanum og það þriðja er sameining bankanna. Þá má gera ráð fyrir að allir stjórnmála- flokkarnir reyni nokkurn einleik í vetur sökum þess að nú eru menn farnir að vinna samkvæmt nýrri kjördæmaskipun. Þess vegna er búist við að allir flokkarnir reyni að „vinna sér lönd,“ eins og einn þingmanna komast að orði. Þess vegna er talið fullvíst að byggöamálin verði mjög fyrirferðarmikil í vetur. Um það eru þeir Ogmundur Jónasson, þingflokksformað- ur VG og Kristinn H. Gunnarsson, þing- flokksformaður Framsóknarflokksins, sammála. Byggðamálin fyrirferðar mikil „Það eru auðvitað nokkur mál sem gætu orðið fyrirferðarmikil á haustþinginu. Þar af held ég að byggðamálin verði mjög ofarlega á baugi. Það er vaxandi þungi í kröfunni um aðgerðir, bæði almennar og sértæktækar, hjá landsbyggðarfólki. Þetta tengist því að hvergi á landsbyggðinni er um neinn uppgang að ræða. Það er ein- staka staður þar sem menn halda í en ekkert meira. Þegar ástandið er búið að vera svona lengi eru menn eðlilega orðn- ir mjög óþreyjufullir," segir Kristinn H. Gunnarsson. „Eg held að hin ldassísku mál eins og byggða- og atvinnumál í Iandinu verði of- arlega á baugi, þau hreinlega kalla á um- ræðu og aðgerðir," segir Ogmundur Jón- asson. Hann segir að fyrir utan þessi mál sé öruggt að menn vilji ræða virkjunar- og stóriðjumál og þá ekki síður sjávarútvegs- málin. Sjávarútvegsmálin sem fyrr „Menn fara að gerast æði Iangeygir eftir að fara að sjá eitthvað koma út úr sjávar- útvegsnefndunum sem kallaðar eru auð- Iindanefnd og sáttanefnd en þær hafa legið yfir þessum málum mánuðum og misserum saman. Þá þurfa menn að gera alþingi grein fyrir ummælum sínum um Evrópumálin í sumar. Menn munu áreið- anlega ætlast til þess að utanríkisráð- herra geri þinginu grein fyrir sínum um- mælum frá í sumar. Loks hljóta hin fjöl- mörgu deilumál stjórnarflokkanna, sala Landssímans og fleiri mál að koma til umræðu mjög fljótlega eftir að þing kem- ur saman," segir Ogmundur Jónasson. Kristinn H. segir að eflaust verði mikil umræða um Evrópumálin þótt enn sem komið er hafi menn ekld mikinn grunn til að ræða þau mál á eftir að hafa Iýst sín- um skoðunum. Þá þurfi menn að bíða eftir frekari upplýsingum. Það ætli fram- sóknarmenn að gera. Sjávarútvegsmálin segir hann verða mikið til umræðu í vet- ur enda mun endurskoðun löggjafarinn- ar þá fara fram. — S.DÓR í heita pottinum hafa menn mikið veriö að ræða um árángur íslcnsku íþróttamaimanna á nlymp- íuleikunum og verið að von- um ánægöir. Hins vegar þykir mörg- um sem ráðamenn þjóðarinnar blan- di sér full ákaft imi í dýrðarljóinann og sérstaklega þykir það káílegt þeg- ar menn scm aldrei hafa verið viö íþróttir kenndir koma fram og ræða um íþróttir eins og þeir hafi aldrei gcrt annað er æfa! í þessu sambandi cr eru meöal amiarra nefndir Davíð Oddsson, for- sætisráöherra og ems Bjöm Bjarnason menntamála- ráðherra. Þótti inörgmn ánægjulegt að sjá Bjöm í olympíusettinu í Sjónvarpinu í vikunni ásaint íþróttamanninum Einari Viihjálmssyni og mátti ætla að þar væm saman fomfrægir íþróttakappar... Davíð Oddsson. En talandi um stjómmálamenn og landsfeður. Stirðleikhm virðist heldur vaxa á stjómarhehnilinu frckar en mhmka. Umræöan um sölu á RÚV eða jafnvel hlutafélagavæðingu RLTV er mál sem fyrir- fram cr vitað að fer iila í skapið á framsóknarmöim- um. Því vekur athygli að sjálfstæðismemi hafa tck- ið málið upp í xumæðunni af talsverðum krafti m.a. í Morgunblaðinu og er fullyrt í pottinum að það sé með ráðum gert til að undirstrika mmhnn milli stjómarflokkaima og ergja samstarfsflokkinn enn frekar en orðið er. Eftir því sem hvíslað er í lierbúð- um stjómarliða þá hefúr það tekist mjög vel... Lengi hefur lítiö heyrst um varafor- inannsslaginn hjá frainsóknar- mönnum en sem kunnugt er hafa Guðni Ágústsson, Siv Friðleifsdóttir, Kristinn H. Guimarsson og Valgerð- ur Sverrisdótir oftast verið nefnd til sögunnar. Fleiri era sagðh hmi i myndiimi, m.a. Hjálmar Ámason sem Hulduher Hrafns Jökulssonar á vefsíðunni Pressunni telur að hlotið hafl sérstaka náð hjá Hall dóri Ásgrímssyni. Pottverjar treysta sér ekki til að meta trúverðugleika þeirrar kenningar, en lútt mmi ljóst að Jónína Bjartmarz vhðist nú ekki imú í myndinni - inenn em búiúr að sjá að núðað við hversu ný hún er í flokknum virnúst ekki nægur tími íýrh hana fram að flokksþingi að þessu shuú... Jónína Bjartmarz. FRÉTTAVIÐTALID Sérstok gæsluþjálfun Högni S. Kristjánsson sendiráðumutur í utanríkisráðuneyt- inu og sérfræðingur í Schengensamn- ingnum. ísland mun með Schengen- samkomulaginu taka í aukn- um mæli þátt í alþjóðlegu samstarji gegn stigvaxandi alþjóðlegri ajbrotastarfsemi. - Hverjir eru helstu liostir Schengensam- starfsins fyrir Islendinga? „Þar má nefna að tryggt er að Íslendingar geta áfram ferðast til Norðurlanda án þess að þurfa að framvísa vegabréfi. Ferðir Is- Iendinga til annarra Schengenríkja verða greiðari því persónueftirlit á landamærum fellur niður en mörg ríkjanna eru vinsælir áfangastaðir íslendinga. Greiðari samskipti verða milli lögregluyfirvaida aðildarríkjanna sem skapar lögreglu hér á landi betri að- stöðu við rannsókn brota er tengjast öðrum ríkjum Schengen, s.s. fíkniefnabrotum. ís- land mun í auknum mæli taka þátt í alþjóð- legu samstarfi gegn stigvaxandi alþjóðlegri afbrotastarfsemi. Ferðamenn munu eiga auðveldara með að ferðast til Islands frá Schengenríkjunum auk þess sem þjónusta við þá sem þurfa vegabréfsáritanir verður bætt, t.d. mun ein vegabréfsáritun nægja til ferðar um allt Schengensvæðið í allt að 3 mánuði og ætli viðkomandi til íslands getur hann sótt um þessa áritun á um 130 stöðum vítt og breytt um heiminn. „ - En gallar? „Hvort gallar teljist vera á samstarfinu fer sjálfsagt eftir því hvaða afstöðu menn al- mennt hafa til samstarfs af þessu tagi. Þannig vil ég ekki tína til neina galla; þróun- in verður að skera úr í þessu efni.“ - Mikill kostnaður Jtefur verið gagnrýnd- ur með þátttökunni. Hve mikill er hann og hverjir eru tekjumögideikamir á móti? „Erfitt er að leggja fram eina heildartölu í þessu sambandi m.a. vegna þess að erfitt er að aðgreina Schengenkostnað frá öðrum kostnaði er fyrirsjáanlega hefði fallið til í ná- inni framtíð. Kostnaður felst í upplýsinga- kerfi Schengen, bættum tækjakosti við landamæraeftirlit, fjölgun starfsmanna hjá lögreglu, einkum vegna aukins alþjóðlegs samstarfs, og í afmörkuðum hlutum flug- stöf 'ar Leifs Eiríkssonar. Tekjumöguleikar tengjast því hvernig tekst að vinna úr þeim möguleikum sem skapast vegna greiðari far- ar ferðamanna til íslands." - Nií höfnuðu t.d. Bretar Scltengen en gerðu sérstakan samning þess í stað. Hefði sú lausn komið til greina hérlendis? „Þá Iausn sem Bretar, og reyndar Irar, vinna nú eftir gátu ríkin knúið fram í krafti þess að vera aðildarríki ESB þar sem sam- eining Schengen og ESB hefði ekki getað náð fram án þeirra samþykkis. Hefði ísland átt þess kost að fara sömu Ieið og Bretar og írar hafa nú valið hefði það þýtt að vega- bréfaeftirlit hefði verið tekið upp í ferðum íslendinga til Norðurlanda. Þrátt fyrir Schengen mun því áfram verða eftirlit í ferð- um til og frá Bretlandi og írlandi." - Má húast við að vandamálum sem upp koma í landamæravörslu fari fjölgandi á Keflavtkutflugvelli ? „Fyrirfram er ekki ástæða til að ætla að svo verði. Reglur Schengen gera hins vegar ráð fyrir að aðildarríkin séu undir slíkt búin og því stendur nú yfir sérstök þjálfun starfs- manna við landamæragæslu auk þess sem tækjakostur embættis sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli verður bættur. Að lokum vil ég geta þess að eftir sem áður er nauðsynlegt að fólk ferðist ávallt með vegabréf sitt þar sem það er nauðsynlegt til að sanna á sér deili ef óskað er eftir. — BÞ

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.