Dagur - 28.09.2000, Side 9

Dagur - 28.09.2000, Side 9
Thgftr FIMMTUDAGVR 28. SEPTEMBER 2000 - 9 IÞROTTIR Guðrún í sjöunda Guðrún Amardóttir lenti í sjöunda sætinu í úrslitahlaupi 400 m grmdahlaupsins í Sydney í gær og náði sínuin hesta tíma í þremur hlaupum á leikunum. Sigurveg- ari hlaupsins, Iriua Privalova frá Rúss- landi, hyrjaði að æfa grindahlaup í fehrúar s.l. Guðrún Arnardóttir varð í sjö- unda sæti af átta í úrslitahlaupi 400 m grindahlaupsins á ólymp- íuleikunum í Sydney í gærmorg- un, þegar hún hljóp á 54.63 sek- úndum, sem er besti árangur hennar á leikunum í þremur hlaupum og aðeins 26/100 frá Islandsmetinu sem hún setti í London á ágúst s.l. Góður stíg- andi var í hlaupunum hjá Guð- rúnu á leikunum, en hún hljóp á 56,30 sek. í riðlakeppninni og 54,82 sek. í undanúrslitunum og toppaði síðan árangurinn í úrslit- unum í gærmorgun. Arangur Guðrúnar er sá besti sem ís- lenskur spretthlaupari nær á ólympíuleikum og hún er jafn- framt fyrsti íslenski hlauparinn sem kemst í úrslit. Eins og áður hefur komið fram hyggst Guðrún nú Ieggja skóna á hilluna, eftir farsælan feril og verður mikil eft- irsjá að henni á hlaupabrautinni. Hún er án efa á hátindi ferilsins, enda að ná sýnum besta árangri á ferlinum, en finnst nú nóg komið að eigin sögn. I viðtali eft- ir hlaupið sagðist hún mjög sátt við árangurinn en sagðist þó hafa viljað hlaupa hraðar. Hún byrjaði hlaupið frekar rólega og hafði misst aðra keppendur nokkuð fram úr sér eftir fyrstu 100 metrana. A síðustu 100 metrun- um bættu hún töluvert við sig og náði á lokasprettinum að komast fram úr Natashu Danvers, frá Bretlandi, sem lenti í áttunda og síðasta sætinu. Hásin úr hermanni Sigurvegarinn í hlaupinu, rúss- neska húsmóðirin Irina Privalova (31 árs), hljóp á 53,02 sek. og er það hennar þesti tími til þessa. Privalova, sem er mjög fjölhæfur spretthlaupari og fyrrverandi Evrópumeistari í 100 m hlaupi, er nýstaðin upp úr erfiðum meiðslum og því er árangur hennar mjög athyglisverður. Fyr- ir ári gekkst hún undir aðgerð vegna þrálátra meiðsla í hásin, en fyrir aðgerðina var talið ólík- legt að hún mjmdi nokkurn tíma keppa aftur. Þurftu sérfræðingar að græða í hana nýja hásin að hluta til og var hásinin fengin úr látnum rússneskum hcrmanni. Að eigin sögn gekk endurhæfing- in eftir aðgerðina nokkuð vel. „Þetta var samt mjög erfitt tíma- bil, en alveg þess virði,“ sagði Privalova, sem auðvitað var him- Guðrún kemur í mark eftir frábæran árangur í Sydney. greinina henta sér vel. „Þó að aðgerðin hafi tekist vel þá gat ég engan veginn haldið áfram að æfa 100 metrana og varð því að skipta um keppnisgrein. Þess vegna reyndi ég grindahlaupið sem virtist henta mér betur. Eg byrjaði að æfa það á fullu í febr- úar s.I., en verð að viðurkenna að fyrstu æfingarnar voru mjög erf- iðar. Eg gat ekki gengið frá æf- ingasvæðinu eftir þá fyrstu og varð að skríða. Þar sem tíminn til stefnu var mjög naumur, varð ég að leggja hart að mér við æfing- arnar og þetta var virkilega erfitt tímbil, það erfiðasta sem ég hef upplifað á ferlinum. En ég var ákveðin í að standa mig og kom vel undirbúin til Sydney og í raun var úrslitahlaupið það lét- tasta sem ég hef hlaupið á stór- móti á ferlinum," sagði Pri- valova. í öðru sæti hlaupsins varð ólympíumeistarinn frá Atlanta, Jamaíkastúlkan Deon Hemmings á 53,45 sek., rétt á undan tveim- ur síðustu heimsmeisturum í greininni, þeim Nezha Bidouane frá Marokkó, sem hljóp á 53,57 sek. og Daimi Pernia, frá Kúbu, sem hljóp á 53.68 sek. Úrslitin í hlaupinu: l.lrina Privalova, Rússlandi 53.02 2. Deon Hemmings, Jamaica 53.45 3. Nouzha Bidouane, Marokkó 53.57 4. Daimi Pernia, Kúbu 53.68 5. Tetvana Antipova, Ukraínu 53.98 ó.Ionela Tirlea, Rúmeníu 54.35 7. Guðrún Arnardóttir, Islandi 54.63 8. Natasha Danvers, Bretlandi 55.00 Jón Araar hælti keppni Tugþrautarkappinn, Jón Arnar Magnússon, hætti í gær keppni eftir þijár greinar, eftir að hafa fundið fýrir meiðslum f læri og jafnframt gert ógilt í öllum þrem- ur tilraunum langstökksins, sem var önnur keppnisgrein tug- þrautarinnar. Jón var í níunda sæti eftir fyrstu grein, sem var 100 m hlaup, þar sem hann hljóp á 10,84 sek., sem er ágæt- ur árangur. I langstökkinu, gerði hann ógilt í fyrsta stökki, en í öðru stökki virtist hann kveinka sér og auðséð að eitthvað hafði gerst í uppstökkinu. I þriðju til- rauninni var Jón kominn með umbúðir um lærið og gerði þá síðustu tilraun til að ná gildu stökki, en mistókst. Þrátt fyrir að hafa gert ógilt í langstökkinu mátti Jón Arnar halda áfram keppni, en næsta grein var kúluvarp. Þar náði Jón, þrátt fyrir meiðslin, þriðja sætinu eftir að hafa kastað 15,48 m í öðru kasti. Aður hafði hann kas- tað 14,72 m í fyrsta kasti og síð- an 15,37 í því þriðja. Þar með var þátttöku Jóns Arnars lokið á leik- unum og enn einu sinni þarf hann að horfast í augu við meiðsli á stórmóti. Fyrir leikana f Sydney voru horfurnar tvísýnar, en meiðsli hafa verið að plaga hann meira og minna tvö síðustu árin og nú síðast í sumar í Talance í Frakklandi, þar sem hann varð að hætta keppni. Það sama gerðist á HM í Sevilla í fyrra, en þá þurfti Jón einnig að hætta keppni. Hann var kominn á gott skrið í byrjun sumars og náði góðum árangri á móti í Götziz í Austurríki í vor, þar sem hann náði ólympíulágmarkinu eftir að hafa lent í 9. sæti. Efstir í tugþraut eftir fyrsta keppnisdag: inlifandi yfir árangrinum. (100 m - Langst. - Kúla - Hást. - 400 m) I. Chris Huffins, Bandar. 4554 (10.48 7.71 15.27 2.09 48.31) Byrjaði að æfa í febrúar 2. Dean Macey, Bretlandi 4546 (10.81 7.77 14.62 2.09 46.41) Grindahlaup er talið með erfiðari 3. Erki Nool, Eistalndi 4505 (10.68 7.76 15.11 2.00 46.71) hlaupagreinum og oft kallað 4. Tom Pappas, Bandar. 4476 (10.82 7.41 14.87 2.21 48.64) „manndrápsgreinin" og þegar 5. Roman Sebrle, Tékklandi 4460 (10.92 7.62 15.22 2.12 48.20) Privalova var spurð að því af 6. Frank Busemann, Þýskal. 4361 (10.91 7.64 14.52 2.09 48.97) hveiju hún hefði valið hana eftir 7. Tomas Dvorak, Tékklandi 4294 (10.91 7.50 15.91 1.97 49.11) svo erfið meiðsli, sagði hún 8. Lev Lobodin, Rússlandi 4226 (10.75 7.18 15.75 1.94 48.87) KNATTSPYRNA Stefán afgreiddi Charlton Stoke City er komið áfram í 3. umferð enska deildarbikarsins þrátt fyrir 4-3 tap gegn úrvalsdeildarliðinu Charlton í seinni Ieik liðanna á „The Valley“ í fyrrakvöld. Jöfnunarmark Islendingsins, Stefáns Þórð- arsonar, sem hann skoraði í fyrri hluta framlengingar, gerði gæfumuninn og dugði Stókurum sem höfðu unnið fyrri leikinn heima 2-1. Það var Kevin Lisbie sem skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Charlton á 25. mínútu, eftir að hafa komist inn í klaufalega sendingu James O’Connors á miðjum vellinum. Tólf mínútum síðar borgaði O’Connor fyrir mistökin þegar hann jafnaði fyrir Stoke og var staðan 1-1 í hálfleik. A 75. mfnútu kom Finninn Jonatan Johansson, sem Charlton keypti frá Rangetrs í sumar, heimaliðinu aftur yfir, þegar hann skall- aði boltann í netið af löngu færi og aðeins fimm mínútum síðar urðu Stókarar fyrir áfalli þegar Nicky Mohan var rekinn af leikvelli eftir að hafa fengið að líta tvö gul spjöld. I kjölfarið endurtók Johansson leik- inn og bætti við þriðja marki Charlton og staðan þvf orðin 3-1 fyrir úrvalsdeildarliðið. Þar með virtist öll nótt úti fyrir Stókara, einum manni færri á lokamínútunum, en með mikilli baráttu tókst Islend- ingnum Brynjari Birni Gunnarssyni að minnka muninn í 3-2 og þar með knýja fram framlengingu, þar sem markastaðan var orðin jöfn í einvígi liðanna. I fyrri hluta framlengingarinnar var svo komið að þætti Stefáns Þórðarsonar, þegar hann skoraði áðurnefnt jöfnunarmark Stoke á 106. mfnútu. Stefán náði boltanum rétt utan vítateigs og lét vaða á markið frá vítateigshorninu vinstra megin af uppáhaldstorfunni sinni og boltinn söng f netinu. I Iok seinni hluta framlengingarinnar sótti heimaliðið stfft, sem endaði með því að Kevin Lisbie skoraði sitt annað mark og kom Charlton í 4-3. A lokasekúndunum voru þeir svo nálægt því að bæta við fimmta markinu, en þá komst Simon Brown í upplagt færi en skaut himinhátt yfir markið. Þar með höfðu Stókarar tryggt sig áfram í þriðju umferð deildarbikarsins og sent Charlton, fyrst úrvalsdeild- arliða, út úr keppninni. Onnur lið sem tryggðu sig áfram í þriðju umferðina: (Fyrrnefnda liðið kemst áfram) Tottenham - Brentford (2-0) Ipswich - Millvall (5-2) Wimbledon - Wigan (2-1) Derby - WBA (5-4) Birmingham - Wycombe (5-3) Newcastle - Leyton Orient (3-1) Man. City - Gillingham (5-3) Sunderland - Luton (5-1) Watford - Notts County (3-3) Middlesbr.- Macclesfield (5-2) Southampt. - Mansfield (5-1) Blackburn - Portsmouth (5-1) Tranmere - Swindon (2-1) Barnsley - Crewe (7-0) Crystal Palace - Bumley (3-3) Lyfjaleíkaxiiir í Sydney Eitt lyfjamálið rekur nú annað á ólympíuleikunum í Sydney og eftir allt uppistandið eftir að rúmenska fimleikastúlkan Andreea Raducan var svift gullverðlaunum sínum vegna verkjatölfuáts fyrir keppni, hefur önnur rúmensk stúlka nú verið gripin fyrir lyfjamisnotkun. Sú er öllu stærri og sterkari, enda sleggjukastari að nafni Mihaela Melinte. Hún mældist jákvæð með of mikið magn af steralyfinu Nandrolone í blóðinu og var leidd í burtu af keppnisvellinum í fyrra- dag í miðri keppni. Melinte, sem er 25 ára, varð heimsmeistari í sleggjukasti á HM í Sevilla í fýrra og fyrir tveimur dögum var hún dæmd í keppnisbann af alþjóða frjálsíþróttasambandinu IAAF, eftir að hafa mælst með of mikið magn af nandrolone, eftir prufur sem teknar voru eftir alþjóð- Iegt mót í Mílanó á Ítalíu í júní s.I. Um er að ræða sama efni og fýrr á árinu mældist í kúluvarparanum C. J. Hunter, eiginmanni Marion Jones, en efnið hjálpar til við að byggja upp styrk og stærri vöðva. Að sögn talsmanns IAAF greip stjórn sambandsins til þessara að- gerða þar sem frjálsíþróttasamband Rúmeníu hafði ekkert gert f mál- inu. „Þeir voru látnir vita skriflega um niðurstöðurnar þann 25. sept- ember og því bar þeim að setja hana strax í bann. Hún hefði aldrei átt að hefja keppni hér f Sydney," sagði talsmaðurinn. Prufurnar munu hafa verið rannsakaðar hjá fulltrúum IOC f Róm, en niður- stöður bárust stjórn IAAF ekki fyrr en 5. september. Síðan hefur það tekið IAAF heila tuttugu daga að láta rúmenska samhandið vita, en þeir skýra tafirnar með því málið hafi verið í frekari rannsókn. Þetta er þriðja lyfjatilfellið sem upp kemur hjá rúmensku íþrótta- fólki í Sydney, því áður höfðu tveir lyftingamenn verið sendir heim vegna jákvæðra prufa, sem teknar voru stuttu fyrir leikana. Þá stóð til að senda allt lyftingalið Rúmena heim, því reglur gera ráð fyrir að ef tveir að fleiri mælast jákvæðir þá beri að útiloka alla í greininni írá viðkomandi landi frá keppni, nema viðkomandi samband greiði upp- setta sekt, sem rúmenska íþróttasambandið gerði, að upphæð 50 þúsund dollara og þar með fengu þeir serii ekki mældust að taka þnr.í f leikunum. Nú er svo komið að eilíf lyfjamál eru farin að skyggja á íþróttaár- angurinn á leikunum og ljóst að þeirra verður minnst sem mestu lyfjaleika í sögu ólympíuleikanna. A tólf kcppnisdögum hafa fimm keppendur mælst jákvæðir og þar af hafa fjórir verið sviftir verðlaun- um. Auk þess hafa tvær íþróttakonur sem hafa nýlega afplánað bann, unnið til gullverðlauna á leikunum, en það eru þær Ellina Zvereva, 39 ára frá Hvíta-Rússlandi, sem varð elst kvenna til að vinna gull- verðlaun á ólympíulcikum og Olga Shishigina frá Kazakhstan sem vann 100 m hlaupið. Sú fyrrnefnda tók út árs bann cn sú síðar- nefnda tveggja ára bann.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.