Dagur - 28.09.2000, Síða 15

Dagur - 28.09.2000, Síða 15
 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000 - 1S j&i$L LANDiWM Valdís Viöars Anna þrífur göngugötuna. MENNINGAR LÍFIB Hausthrein- gjömingur Þvottakonan Anna Richardsdóttir er líklega ein þekktasta skúr- ingakona okkar tíma. Anna hefur einnig séð um að halda göngugötunni á Akureyri hreinni í meira en ár og eru bæjarbúar henni þakklátir fyrir það og láta sig ekki vanta til að fylgjast með þrifunum og hvetja hana áfram. Hún hefur auk þess sem hún hefur þrifið götur Reykjavíkur og Akureyr- ar farið með krafta sína og þrifið í mörgum borgum Evrópu og á Norðurlöndun- um, þar sem hún hefur hlotið fádæma lof og athygli , með- al annars tók sænska sjón- varpið upp hreingjörninginn í Gautaborg auk þess sem hún prýddi forsíður dagblaðanna þar. Nú hefur Anna verið valin til þess að gera hreint á Evr- ópska listaþinginu í Hannover í Þýskalandi á morgun föstudaginn 29. sept- ember, þar sem hún hefur verið gestadanskennari í viku. Þótt Anna hafi verið búin að gera vorhreingjörn- inginn í menningarborginni, þarf eins og á öllum öðrum heimilum að gera hreint á haustin. Anna mun því á heimleiðinni frá Hannover taka upp tuskuna í borginni dagana 6. og 7. október fyrir framan Gallery 1-8, í portinu við Kaffileikhúsið og fyrir utan Tjarnarbíó. Hinn ungi reiði maður „Samskipti kynjanna eru sígiit viðfangsefni. íþessu verki eru þau óvenju römm" Horfðu reiðurum öxl eftirjohn Osbome, í þýðingu Tfiors Vil- hjálmssonar, verður frumsýnt næstkom- andiföstudagskvöld á litla sviði Þjóðleik- hússins. Þaðmarkaði tímamót erþað kom fyrstfram á sjötta ára- tugnum og enn erþað í fullugildi. Dagur var á prufusýningu á þriðjudagskvöld og hitti leikar- ana, Hilmi Snæ, Elfu Osk Olafsdóttur, Rúnar Frey Gísla- son og Halldóru Björnsdóttur að máli á eftir. Hilmir Snær er í burðarhlutverki í sýningunni og fær fyrstur orðið. „Horfðu reiður um öxl er eitt af best skrifuðu verkum sem ég hef Iesið. Gífur- lega fallegur texti og mikilfeng- legur. Svo eru í því miklar kúvendingar þannig að það er stöðugt að koma á óvart.“ Pú leikur Jimmy, ósvífinn ungan mann sem á þó sínar mjúku hliðar. „Já, Jimmy er einn af þess- um týndu hugsjónamönnum. Hann er úr lágstétt en er giftur konu úr hærri millistétt og það er viðkvæmt mál. Þegar verkið var skrifað þótti það óvenju op- inskátt og upp úr því varð til hugtakið „hinn ungi reiði mað- ur.“ Þótt við þekkjum ekki þessa miklu stéttaskiptingu á íslandi finnst mér verkið eiga fullkom- lega erindi við okkur í dag. Jim- my talar til dæmis um að sam- félagið hafi engar hugsjónir. Það á vel við nú þegar búið er að gera allt fyrir okkur. Mér líð- ur að minnsta kosti oft þannig. Svo eru samskipti kynjanna sígilt viðfangsefni. í þessu verki eru þau óvenju römm, enda er Jimmy yfirgangssamur og ill- þolandi. Auðvitað stafar það fyrst og fremst af óöryggi og vanmetakennd, hann er óá- nægður með sjálfan sig og lætur það bitna á sínum nánustu. Þetta er þekkt atriði í lífinu." Nú eru þau Angelika og Cliff sem Jimmy býr með ósköp að- gerðalítil. Er ekki erfitt að vera fullur af eldmóði allan tímann í kring um þau? „Þetta eru svo góðir leikarar að þeir gefa manni kraft þótt ekki sé með orðum. Þannig tekst manni að halda dampi. Hlutverkið mitt tekur í en það er eitt það skemmtilegasta sem ég hef leikið og reyndar eitt af mínum óskahlutverkum.“ Nú lék Gunnar Eyjólfs þetta hlutverk á sínum tíma og er líka þátttakandi í sýningunni núna. Kenndi hann þér eitt- hvað. „Hann hefur alveg látið mig um hlutverkið en ég er alltaf að læra eitthvað af Gunnari. IJann er einn af þeim sem hefur miklu að miðla.“ Elfa Ósk leikur Alison, kúg- aða eiginkonu hins athyglis- sjúka Jimmys. Hvernig líður henni í hlutverkinu? „Þetta er það sem Alison þráði. Hún er alin upp í bómull- arhnoðra og fannst Jimmy vera spennandi því hann ögraði því mynstri. Það er auðvitað ekki búandi með svona manni því hann nærist á því að niðurlægja hana en þau eru í svona ást- ar/hatur sambandi." Rúnar Freyr, þú leikur Cliff, daufgerðan mann en gegnum- góðan sem býr hjá þeim hjón- um. Hvernig líkar þér? „Ég mundi sjálfur bregðast við þessum látum í kring um mig á einhvern hátt en Cliff er hann alinn upp við illdeilur og æsing og það er eins og hann kunni best við sig í shku and- rúmslofti. Svo þykir honum ofur vænt um Alison. Þó kemur þar að hann fer eða ætlar að fara. Halldóra Björnsdóttir leikur Helenu, vinkonu Alison og verð- ur ástfangin af Jimmy. Hall- dóra kanntu skýringar á því hvers vegna Helena heillast af hinum ofstopafulla Jimmy? „Það fylgir honum gríðarleg- ur kraftur og hann hefur eitt- hvað í fari sínu sem þessar stúlkur hafa ekki kynnst í sínu umhverfi. Kannski er undirrót allrar óhamingjunnar sú að hann er fa.ngi sinnar stéttar. En sambandið milli hans og Hel- enu er skemmtileg glíma." -GUN. SHOPPING & FUCKING Höfundur: Mark Raven- hill. Þýðing: Bjami Jónsson. Leikstjóri: Við- ar Eggertsson. Egg-leikhúsið í samvinnu við Nýlislasafnið og Leikfélag íslands. Þetta leikrit - nal’nið er ckki borið við að þýða - er sprottið beint úr firrtum samtímanum, lýsir víti fíkniefnanna, veröld sem hefur snúið baki við öllum siðférðilegum gildum, virðingu og kærleika í garð annars fólks. Peningar og hin harða krafa fíknarinnar er hið eina sem máli skiptir. í upphafi er brugðið upp mynd af verustað Marks, Robba og Lúlú. Mark hefur „keypt" þau síðastnefndu, eiturfíknin leikur hann grátt og nú er hann að fara í meðferð. Þá standa þau Lúlú og Robbi ein eftir. Þá kemur til sög- unnar verkefni sem þau fá í hendur hjá Brian, að selja dá- góðan skammt af efnum. Því klúðrar Robbi gjörsamlega, og eru þá góð ráð dýr. En nú hefur Mark komist í tæri við ungan homma, Gary; - hann hefur pen- inga og er kannski tilbúinn að láta þá af hendi, gegn þjónustu. Ekki við allra hæfi Þetta leikrit er ekki við allra hæfi, svo gróft er það og nær- göngult - en auðvitað er það frægt af þeim sökum. Það hefur verið sýnt víða enda efni þess orðið nærtækt öllum, líka okkur hér norður í hafinu. Sagt hefur verið að verkið sé álíka ögrun við samtímann og leikrit Osborne, Horíðu reiður um öxl, reyndist á sínum tíma. Shopping & Fucking er vel heppnað gangstykki, til þess ætlað að hleypa hrolh niður eftir bakinu á værukærum borg- ururn. Er kannski verið að gæla við lægstu hvatir? Ekki lít ég svo á. Áliorfandanum er látið eftir að draga sjálfur sínar ályktanir og hann á þess engan kost að h'ta undan eða vísa á bug þeirri nöt- urlegu mannhfsmynd sem hér er brugðið upp. Gleymist ekki í hráð Sviðsetning Viðars Eggertssonar er vel heppnuð. Manni kann að þykja Nýhstasafnið óaðgengilegt leikrými en í raun hæfir það þessu hrjúfa og nakta verki vel. Sviðið alhvítt og dautt, leikið er í tveimur htt aðgreindum rýmum sem reynir meira á einbeitingu áhorfandans en gengur alveg upp. Tónlistin er hrá, hávær, lýs- ing skjannabjört, hvergi gefið færi á að hjúpa það sem sýnt er í neitt mildandi ljós. Textinn hljómar vel í þýðingunni, hæfi- lega grófur. Það geislar kraftur og áhugi af leikendunum öllum. Ólafur Darri Ólafsson hefur líkamsburði mikla og sterka rödd sem hann notar sér hvortveggja ótæpilega. En hann hefur líka innsæisgáfu og gerði Mark ljóshfandi. Sama er að segja um parið Robba (Atla Rafn Sigurðarson) og Lúlú (Nöimu Kristínu Magnúsdóttur). Þau náðu góðmn samleik. Atla Rafn hef ég ekki séð gera betur, og gaman að fylgjast með Nönnu Kristí'nu, þar er álitleg leikkona komin th skjalanna. Hjalti Rögnvaldsson hefur sterka nærveru á sviði eins og við höfum löngu séð, og í texta- ílutningi á hann vart sinn hka meðal íslenskra leikara. Hinn kaldriljaða, mynduga og yfir- borðsviðkvæma skúrk Brian gerði hann þannig að alltaf var sem gustur færi um sviðið þegar hami gekk inn. Agnar Jón Egils- son var smekkvís og næmlegur í hlutverki Garys, enn einn ungur leikari sem fær að blómstra og verðskuldar athygli. Þannig var þetta góð siund í Nýhstasafmnu, sýmng sem ekki gleymist í bráð. svo óþyrmUeg sem hún er.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.