Alþýðublaðið - 23.02.1967, Síða 15

Alþýðublaðið - 23.02.1967, Síða 15
bæjarfogetinn a Seyðisfirði frétt af ferðum mannsins og þótt hann grunsamlegur Lét hann rann_ sóknarlögregluna í Reykjavík vita og voru tveir lögreglumenn á flug vellinum til að taka á móti hon um en tókst ekki að hafa hend- ur í hári hans þá en fundu hann á heimili hans um kvöldið. Sagð ist hann hafa farið beint úr flug vélinni heim til sin og ekki átt erindi inn í flugstöðvarbyggingu Flugfélagsins á Reykjavíkurflug- velli. Að vísu biðu lögreglumenn irnir eftir honum utan við bygg inguna en maðurinn tók sig strax úr farþegahópnum og komu þeir aldrei auga á hann í gærdag yfirheyrði Njörður Snæhólm vélsmiðinn og játaði hann fljótlega að hafa brotist inn í skrifstofuna og var ferð hans austur gerð til að ná í pening- ana sem hann faldi undir steini utan við Seyðisfjarðarkaupstað. Peningana var hann með í poka, en þeir voru rennandi blautir og nokkuð af þeim brunn ið eftir logsuðutækið. Sagðist maðurinn aldrei hafa talið pening ana sem hann tók úr skápnum en í pokanum voru um 70 þús. kr. í peningum og orlofsmerkj- um. Segist hann ekki hafa eytt af þýfinu Eitthvað tók hann einn ig af reikningum og öðrum plögg um úr skápnum og má vera að það séu verðmætin sem á vantar, espiíarar Spilum bridge í Ingólfskaffi nk. laugardag 25, febrú- ar kl. 2 stundvíslega. Stjórnandi Guðmundur Kr Sigurðsson. Öllum er heimill aðgangur. Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur. en því henti hann öllu f sjóinn. Maðurinn sagði að hann hefði ekki undirbúið innbrotið heldur hefði hann verið að drekka kvöld ið áður og dottið allt í einu í hug að sjá hvað væri í peningaskápn um og síðan framkvæmt verknað j inn. Eftir að hafa verið yfir- I heyrður tvisvar í sambandi við innbrotið taldi hann sig örugg- lega sloppinn og að óhætt væri að sækja fenginn austur. Vél- smiðurinn hefur orðið uppvís að misferli áður. Sukarnó Framhnld af 2. síðu. kommúnistar sæti í henni. Hinn 2. janúar 1965 leiddi baráttan gegn Malaysíu til þess að Indónesía sagði sig úr Sam einuðu þjóðunum, þar sem Mal aysía fékk fulltrúa í Öryggis- ráðinu. Nokkrum mánuðum síð ar gerði Sukarno allar banda- rískar eignir í landinu upp- tækar. Áður höfðu hollenzkar, brezkar og malaysískar eginir verið teknar eignarnámi. Hin misheppnaða byltingartilraun var gerð 19. október 1965, og barði herinn hana niður með harðri hendi og fékk æ meiri áhrif í stjórnmálum. Byltingar tilraunin leiddi til ofsókna gegn kommúnistum. Sjénvarp. Framhald af 1. síðu. tillögunni), að útvarpsráð lýsi sérstöku þakklæti til starfs- manna sjónvarpsins fyrir ágætt starf við erfiðar aðstæður. Þau tæki, sem sjónvarpið á í pöntun og koma með vorinu, eru meðal annars þessi: mynd- stjórntæki, liljóðstjórntæki, sjónvarpsmyndavélar, kvik- myndasýningartæki fyrir út- o U r n d □ □ o o Landhelgi og þjóðaréttur Innbrotið Framftald al 1. siðu. tíma voru fjölmargir menn yfir- heyrðir í sambandi við innbrot- ið, en ekkert benti til þess hver sá seki var. En vélsmiðurinn var þá yfirheyrður tvisvar sinnum og- kom ekkert fram sem vakti grun semdir. Vélsmiðurinn, sem er kvæntur og á fjölskyldu í Reykjavík vann um tíma á Seyðisfirði sl haust og síðan aftur eftir áramótin- Dag inn eftir innbrotið fór hann aft- ur suður. Var hann þá strax yfirheyrður af rannsóknarlögregl unni í Reykjavík og síðan aftur af Nirði Snæhólm, lögreglumanni, eftir að hann kom frá Seyðis- firði en þar stjórnaði hann rann sókn málsins. Á mánudag sl. sást tii ferða mannsins á Seyðisfirði, en þang að kom hann gangandi frá Egils stöðum og hafði komið með flug vél þangað. Við yfirheyrslu sagð ist hann hafa ætlað að taka bíl frá Egilsstöðum til Seyðisfjarðar en misst af honum og því geng- ið yfir Fjarðarheiði í krapahríð, enda var hann rennandi blautur er til Seyðisfjarðar kom. Á hó- telinu þar hitti hann fyrrverandi vinnufélaga og sagði honum að hann væri að koma frá Eskifirði og þyrfti að hittá lækni. í fyrra dag tók hann sér far með flug- vél til Reykjavikur. Hafði þá í umræSum um landgrunnsmál- iö á Alþingi fyrir nokkrum dög■ um lýsti Þórarinn Þórarinsson því sem meginskoðun sinni, að íslendingar mundu ekki geta llreyft sig í landhelglsmálum, fyrr en samningunum við Breta verð- Ur sagt upp og hrundið ákvæði þeirra um að leggja deilumál á þessu sviði fyrir Haag-dómstólinn. Þetta er athyglisverð yfirlýsing og þess verð, að hún sé athuguð nokkru nángr. Það hefur verið meginregla ís- lendinga hingað til að gera ekk- ert í landhlgismálum, sem vseri brot á alþjóða lögum eins og þau eru almennt talln vera hverju sinni. Fyrri útfœrslan byggðist á úrskurði Haag-dómstólsins í máli Norðmanna og Breta. Það var styrkur okkar að bjóða Bretum að leggja málin fyrir dómstólinn á sínum tlma, en þeir neituðu. Og í átökunum við Breta um 12 mílna mörkin var það burðarás í öllum málflutningi okkar, að við hefðum ekkert gert, sem bryti í bága við alþjóða lög. Nú segir Þórarinn Þórarinsson, að við munum ekkert komast á- fram, nema við losnum við að þurfa að leggja inál okkar undir Haag-dóminn, ef um þau verður deilt. Þetta þýðir, að Þórarinn telur enga leið opna fyrir íslendinga í náinni framtíð innan ramma al- þjóða laga. Hann telur nauðsyn- legt að fara út fyrir þann ramma. Það er álit þjóðréttarfræðinga, að 12 mílna fiskveiðimörk séu nú viðurkennd sem alþjóða lög, en meira ekki. Ýms ríki í S-Amer- íku hafa tilkynnt miklu meiri landhelgi, en á því tekur enginn mark. Þar hafa aðrar þjóðír ekki sótzt eftir að veiða við strendur, svo að ekki hefur komið til deilu eins og hér varð á sínum tíma. Á næstu árum verður að hefja sókn að því marki, að almenn við- urkenning fáist fyrir meiri lög- sögu vegna verndunar fiskistofna. Smám saman munu fleiri og fleiri þjóðir sjá, að þetta er nauðsynlegt og viðurkenna víðari landhelgi — unz hún hlýtur almenna viður- kenningu eins og 12 mílumar hlutu 1950—’60. Vafalaust munu einhverjir, halda fram, að íslendingar verði að færa út einhliða og án tillits til alþjóða laga. En telja menn, að sllk útfærsla yrði virt af öðr- um og mundi hún koma að gagni? Mundi það vera skynsamlegt að breyta um stefnu l landhelgis- málunum og hefja aðgerðir, sem við vitum að eru brot á alþjóða- lögum? Það er mjög vafasamt. Að þessu máli er unnið á mörg- um vígstöðvum og ýmis konar að- gerðir eru hugsanlegar utan 12 mílnanna. Með gætni og festu tekst vonandi að ná árangri, en, hann fæst ekki, ef farin verður leið Þórarins að virða þjóðarétt: ið vettugi. sendingu og ýms önnur kvik- myndatæki. í þeirra stað eru notuð norræn lánstæki og er stjórnklefi útsendinga enn í gamla, sænska bílnum, sem stendur utan við sjónvarpssal. Fulbright Framhald af 3. síðu. auglýsingabrögð til að vekja athygli á. Hann tók sérstaklega fram um mikilvægi þess að þetta væri nú tvíhliða saarfsemi, þ. e. a. s. að bæði bandarískir og islenzkir námsmenn nytu góðs af. Væri slíkt mikils virði, því í samskiptum þjóða væri það sem einhliða væri sjaldan væn- legt til langlifis eða árangurs. Fulbri'ght starfsemin sjálf væri ekki aðeins orðin mjög umfangsmikil heldur væri á- reiðanlegt að 'hún ætti sinn mikla þátt í blómlegri starf- semi American Field Sirvice og nemendaskipta á vegum kirkjulegra samtaka, sagði am- bassadorinn. Áður en samkoman í hátíða- sal Háskólans hófst í gærdag hélt senator Fulbright stuttan fund með blaðamönnum í kenn arastofu Háskóla íslands. Þar lýsti hann ánægju sinni með að vera kominn hin'gað til lands í því ánægjulega tilefni, að tíu ár væru liðin frá því að Mennta stofnun Bandaríkjanna á ís- landi var stofnuð. Hann skýrði blaðamönnum í upphafi fundarins frá þeirri meginreglu sinni að úttala sig aldrei um viðkvæm eða mikil- væg utanríkismál, þegar hann væri erlendis. Slíkt væri nán- ast smekkleysa af formanni ut anríkismálanefndar senatsins, sagði hann. Þeirri spurningu, hvernig honum hefði dottið í hug að koma fram með lögin um náms styrkina, sem síðan hafa verið kenndir við hann, svaraði Ful- bright á þá lund, að það hefði vafalaust haft mikil áhrif að hann hefði á námsárum sínum átt þess kost að dveljast þrjú ár á Rhodes námsstyrk í Ox- ford ,í Englandi, og svo hefði honum oft orðið hugsað til þeirra margvíslegu vandamála, sem sköpuðust eftir fyrri heims styrjöldina m.a. vegna greiðslna stríðsskulda og skaðabóta. Um Atlantshafsbandalagið sagði hann, að mikilvægi þess væri enn mikið og hann mundi vissulega harma ef þáli ætti eftir að gliðna í sundur, því enn stafaði hætta frá kommún- istum í Evrópu þótt hún hefði vissulega minnkað mjög. Hann lýsti þeirri skoðun sinni, að rétt væri að Bandaríkjamenn fækkuðu í her sínum i Vestur- Þýzkalandi, því svo mikill fjöldi hermanna væri þar ekki lengur nauðsynlegur. Ekki kvað Fulbrjght Bandaríkjun- um standa sérstök ógn af Kín- verjum þessa stundina og minnti á að Kínverjar væru svo uppteknir af sínum eigin vandamálum um þessar mund- ir, að þeir mættu lítt vera að því að hugsa um annað. Hann kvaðst harma að síð- asta hléið á bardögunum í Vlet- nam hefði liðið og bardagar hafizt á ný án þess að sam- komulag næðist um vopnahlé. Ekki kvaðst hann eygja neina möguleika á að slíkt vopnahlé gæti tekizt nú á næstunni. * *' Fulbright talar á morgun á hádegisverðarfundi á Hótel Sögu, og þar mun Emil Jóns- son utanríkisráðherra kynna hann fyrir viðstöddum. Er þessi hádegisverðafundur á vegum íslenzk- ameríska félagsins. Senator Fulbright og kona hans halda héðan af landi brott síðdegis í dag. GorsSla Framhald af 1. síðu. in og fólk sem þekkir hana getur leitt hana. Hún getur stokkið helj arstökk og klappað saman hönd- unum. Górillan hefur verið send til dýragarðsins í Barcelona. ICísia Framhald af 2. síðu. flokksins en var sjálfur settur af um áramótin. Annars er nú til- tölulega kyrrt í Peking, en menn- ingarbyltin,gin heláur áíram af fullum krafti annars staðar í Kína. Sagt er, að stuðningsmenn Maos hafi tekið völdin í mörgum bæj- um. Fyrrverandi flokksstarfsmenn hafa verið sýndir hópum Mao- sinna með háðungarspjöld, en slík um sýningum er nú lokið í Peking. í hinum opinbera áróðri er nú 'iögð áhorzla á :|!amvinniu her- deilda í 'hinum ýmsu fylkjum og byltingarsamtaka. Skorað er á fólk að ihlíta a'ga og leggja kapp ál að auka framleiðslu í landbúnaði, og iðnaði. Útvarp Framhald af 7. síðu. -3) Sé ákveðið að sjónvarpa beint, skal útsending ekki vera lengur en til kl. 6 síðdegis. Þá skal sú sjónvarpsstofnun- in, sem ekki sendi beint frá þingi, flytja úrdrátt síðar um kvöldið. Ekki hefur frétzt, hvort þingið hefur samþykkt þessar reglur. Froskmenn rann- saka hrygningar- stöövar Nokkrir fiskifræðingar munu á næstunni taka nýja tækni í þjón- ustu sína við rannsóknir á hrygn- ingu síldarinnar. Hinn 3. marz n. k. hefst 10 daga rannsóknarleið- angur á vegum Hafrannsóknastofn unarinnar norsku. Þrír froskmenn munu taka þátt í leiðangrinum og verður hlutverk þeirra að ná í sýnishorn af síldarhrognum á hrygningarstöðvunum við Norður- Noreg, Hrygningarstöðvarnar verða leit aðar uppi með neðansjávarsjón- varpi og síðan munu froskmenn- irnir kafa eftir 'hrognunum sem verða rannsökuð af vísindamönnr um. Hrygningartsöðvar síldarinnr ar eru yfirleitt á um 70 m dýpi. 23. febrúar 19.67 - ALÞÝÐUBLAÐiÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.