Dagur - 19.12.2000, Blaðsíða 2
2- I’Rinjlin AGV R 19. desember 20 00
rDwfir
FRÉTTIR
Leikfélagið selur
vegna skulda
Borgin kaupir hlut LR
í Borgarleikhúsiuu.
Kaupverð 200 millj-
ónir. Bitur og döpur
tímamót. Skilyrtur
leigusamningur í 12
ár.
Borgarráð mun væntanlega sam-
þykkja á fundi sínum í dag,
þriðjudag að borgin kaupi 7%
eignarhluta Leikfélags Reykja-
víkur í Borgarleikhúsinu. Kaup-
verðið er um 200 milljónir
króna. Þar með hefur borgin
eignast allt Borgarleikhúsið.
Jafnframt er gert ráð fyrir því að
horgin geri samning \ið leikfé-
lagið til 1 2 ára um starfsemi þess
í húsinu. Söluverðmætið ætlar
leikfélagið að nota til að greiða
niður skuldir sínar sem sagðar
eru nema um 150 milljónum
króna.
Félagsfundur samþykkti
A félagsfundi í leikfélaginu fyrir
skömmu var eignarsalan sam-
þykkt mótatkvæðalaust en
nokkrir sátu hjá. Páll Baldvin
Baldvinsson formaður Leikfélags
Reykjavíkur vildi ekki tjá sig um
þessi tímamót í sögu félagsins
fyrr en búið væri
að afgreiða það
úr borgarráði.
Bitur og döpur
timamót
Samkvæmt
heimildum Dags
kom fram á fé-
lagsfundinum að
þetta væri það
eina sem hægt
væri að gera
vegna erfiðrar
fjárhagsstöðu fé-
lagsins. Hins
vegar finnst
mörgum félags-
mönnum og þá
einkum þeim
eldri að þetta séu
bitur og diipur kaflaskil í sögu fé-
lagsins. Sérstaklega þegar haft er
í huga að á sínum tíma unnu
leikfélagsmenn hörðum höndum
við að safna peningum til bygg-
ingar Borgarleikhússins en eiga
nú ekkert í þvi'.
Þótt leikfélagsfólk telji að það
eigi einhverja sök á því hvernig
komið sé, þá telja þeir að hlutur
horgarinnar sé ekki ininni og
m.a. vegna þess
fjársveltis sem
leikhúsið hefur
mátt búa við.
Þá sé óvíst hvað
gerist eftir 12
ár, enda getur
horgin þá ráð-
stafað húsinu
að eigin geð-
þótta og er laus
allra mála við
leikfélagið
nema annað
verði ákveðið.
Skýrari línur
Helgi Hjörvar
forseti borgar-
stjórnar segir að
í þessum samn-
ingi verði tryggöur fjárstuðning-
ur við leikfélagið. Það er um 180
milljónir á ári að teknu tilliti til
verölagsþróunar sem kann að
verða á samningstímanum. I ár
nam styrkur horgarinnar til leik-
félagsins um 170 milljónum
Helgi Hjörvar: Fjárstuðningur tryggður.
króna. Um leið tryggir leikfélagið
að það muni standa fyrir sjö Ieik-
sýningum á hverju lcikári á
samningstímanum. Það skuld-
hindur sig einnig til taka inn í
húsið tvær uppfærslur frá öðrum
leikhópum á hverju leikári fyrir
„sanngjarnt" verð eins og það er
orðað.
FuIItriii borgar úr
leikhúsráði
Hann segir að ástæðan fyrir
þessurn kaupum á eignarhluta
leikfélagsins sé aðallega vegna
þess að það þykir hentugra að
hafa eignarhald hússins á einni
hendi. Það helur jafnframt í för
með sér skýrari línur á milli
borgarinnar annars vegar og leik-
félagsins hins vegar. Samkomu-
Iagið gerir einnig ráð fyrir því að
fulltrúi borgarinnar hverfi úr
leikhúsráði. Það þýðir að borgin
hefur ekki lengur aðkomu að
listrænni stefnu leikfélagsins og
verkefnavali. Hins vegar mun
borgin áfram hafa hönd í hagga
með rekstri húseignarinnar, en
borgin er með meirihluta í sam-
starfsnefnd um húsið. - GRII
Jóhanna Sigurðardóttir fékk loks svör.
Svöruðu
umsíðir
Viðskiptaráðherra lagði fyrir
þinghlé fram skýrslu um ið-
gjaldahækkanir tryggingafélag-
anna, en það voru þingmenn
Samfylkingarinnar sem óskuðu
eftir skýrslunni. Lengi vel ætl-
uðu tryggingafélögin ekki að
svara þeim mörgu spurningum
sem Jóhanna Sigurðardóttir og
fleiri þingmenn kröfðust svara
um.
Skýrslan er mikil, þótt spurn-
ingunum sé svarað af mismikilli
kostgæfni. Helsl er að sjá að
tryggingafélögin kenni breyttum
skaðabótalögum um miklar ið-
gjaldahælikanir, einkum breyt-
ingu 1999 ineð breyttum hóta-
útreikningi. Eitt tr\'ggingafélag-
anna telur þessar breytingar
skýra um 40% iögjaldahækkun-
arinnar.
„Skýrslan var lögð fram á
laugardag og hefur mér ekki enn
unnist tími til að lesa hana. Eg
sá þó þegar ég blaðaði f gegnum
hana að tryggingafélögin hafa
svarað," segir Jóhanna Sigurðar-
dóttir, um skýrsluna. - fþg
Engtn metsala
Lauslcg könnun Dags bendir til
að hóksala sé svipuð og í fyrra en
ekki nieiri eins og ýmsir Iiafa
taliö. Fjöldi álitlegra titla er í
boði fyrir þessi jól og virðist sem
margar bækur muni seljast dável
en aðrir verða undir eins og
gengur. Svo virðist sem bókaverð
sé heilt yfir svipað og í fyrra en
verslunarmenn segja ekki algilt
að afsláttarkjör ráði mestu um
val neytenda.
Þórhalla Þórhallsdóttir, versl-
unarstjóri í Hagkaupi, segir að
salan sé ekki meiri en í fyrra en
hins vegar sé slegið meira af
verði í einstökum tilboðum í ár
en í fyrra. Dæmi séu um að Hag-
kaup selji bækur á 70% afslætti
og hafi neytendur brugðist vel
við því.
Helga Valborg Pétursdóttir hjá
Pennanum- Eymundsson segir
söluna svipaða og í fyrra það sem
af er, en það segi ekki alla sög-
una, þar sem langmest sé keypt
af bókum síðustu dagana fyrir jól
og einkum á Þorláksmessu. 30%
afsláttur er algengur á bókatitl-
um í verslunum Pennans.
Verslunarmenn eru sammála
um að gæði útgáfunnar séu mik-
il og íjölbreytt ásókn í titla. ís-
lenskar skáldsögur, s.s. Draumar
á jörðu eftir Einar Má Guð-
mundsson og Oddaflug Guðrún-
ar Helgadóttur njóta vinsælda.
Þá selst vel af ævisögum Einars
Ben og Steins Steinarr. Útkall
Ottars Sveinssonar, Harry Potter,
og 20. öldina mætti ennfremur
nefna en allt of snemmt er að
spá fyrir um vinsælustu bókina.
- BÞ
Lítiö veitt af rækju
Úttekt og endanlegri ráðgjöf
Hafrannsóknastofnunarinnar
f>rir úthafsrækjuveiði fiskveiði-
árið 2000/2001 er lokið og er
niðurstaðan sú að Hafrann-
sóknastofnun leggur til að afli úr
úthafsrækjustofninum fari ekki
fram yfir 25 þús. tonn.
Stofnstærð úthafsrækju hefur
veriö í mjög mikilli lægð undan-
farið og er lækkunin talin koma f
kjölfar aukinna gangna þorsks á
norðurmiö á árunum 1997-
1998. I skýrslu langtímanefndar
frá því árið 1994 um þróun
þorskstofnsins var því spáð að
samfara stælikun þorskstofnsins
væri fyrirsjáanleg veruleg minnk-
un rækjustofnsins. Þá var talið
að afli gæti minnkað úr 60-70
þús. tonnum í minna en helming
þess magns. Þessi niðursveifla
er nú komin fram.
Ú t h a fs r æ kj u s t o f n i n n n á ð i
sögulegu lágmarki fiskveiðiárið
1999/2000. Við mat á rækju-
stofninum núna sýnist stofninn
þó vera aðeins að vaxa á ný sam-
fara minnkandi göngum þorsks
norður fyrir land. - BÞ
Gætu komist í háskóla
Björn Bjarnason menntamálaráðherra vill að gefnu
tilefni taka fram að þeir nemendur sem ljúka áttu
stúdentsprófi nú um áramót og hyggjast sækja um
inngöngu í háskóla eiga rétt á að fá staðfestingu um
námsframvindu sína hjá skólameisturum framhalds-
skólanna.
I 6. gr. laga nr. 136 um háskóla frá 1997 segir að
nemendur, sem hefji nám í háskóla, skuli hafa lokið
stúdentsprófi, öðru sambærilegu námi eða búa yfir jafngildum þros-
ka og þekkingu að mati stjórnar viðkomandi háskóla. Ennfremur
skuli tryggt að inntökuskilyrði í háskóla og námskröfur svari jafnan
til þess sem krafist er f viðurkenndum háskólum á sambærilegu sviði
erlendis. - BÞ
Halldór óskar heiHa
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, sendi f gær Colin Powell
hershöfðingja árnaðaróskir í tilefni af tilnefningu hans í embætti ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna. Powell mun sitja í ríkisstjórn George
W. Bush, sem tekur forinlega við völdum forseta Bandaríkjanna 20.
janúar næstkomandi. - BÞ
Rætt uin sölu á Orkuhúinu
Engin afstaða hefur verið tekin af hálfu sveitarstjórna á Vestfjörðum
til sölu á 60% hlut þeirra í Orkubúi Vestfjarða til ríkisins samkvæmt
tilboði sem barst 7. nóvember sl. Ríkisvaldið hefur gert tilboð í orku-
fyrirtækið en hluti af andvirði söluhagnaðar sveitarfélaganna er skil-
yrtur þannigað hann gangi til greiðslu á skuldum við félagslega íbúð-
arkerfið. Sveitarfélögin mynduðu viðræðuhóp og eru að ræða við rík-
isvaldið um fýsilegri lausn fyrir þau, en sum þeirra eru í miklum fjár-
hagslegum vandræðum.
Kristján Hálfdánarson, framkvæmdastjóri Orkubús Vestfjarða, seg-
ir það heldur ekki ákveðið hvort Orkubúinu verði breytt í hlutafélag.
Til þess þarf lagabreytingu á Alþingi og ekki verður farið að huga að
því fyrr en þing kemur saman á nýjan leik 29. janúar nk. - GG
Nýtt öflugt fjarskiptákerfi
Lína.Net, dóttunyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur og Fjarski, dóttur-
fyrirtæki Landsvirkjunar, hafa gert samning um samtengingu fjar-
skiptakerfa fyrirtækjanna upp úr áramótum og verður þá til nýtt og
öflugt grunnnet sem í framtíðinni mun ná til stærsta hluta landsins.
Með þessu fyrirkomulagi geta f\rirtækin sameiginlega boðið gagna-
flutninga til lielstu þéttbýlissvæða, á sviði internet - , síma - og ann-
arra fjarskiptatenginga sem þurfa mikla flutningsgetu. - fþg