Dagur - 19.12.2000, Síða 11

Dagur - 19.12.2000, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUK 19. DESEMBER 2000 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR Spá deilum vegna stefnubreytmga George W. Bush, sem tekur við forsetaembættinu í Washington 20. janúar næstkomandi, Colin Powell, verdandi utanríkisráðherra, og Dick Cheney væntanlegur varaforseti. Colin Powell sagður boða fækkun banda- rískra hermanna á Balkanskaga og hert viðskiptabann gegn írak. Það hefur legið fyrir lengi að Colin Powell yrði utanríkisráð- herra ef George W. Bush taeki við völdum í Hvíta húsinu, og nú hefur það verið staðfest. I eins konar stefnuræðu sem Powell hélt þegar skipun hans í emb- ættið var tilkynnt, lagði hann áherslu á þann mikla ávinning sem það hefði í för með sér fvrir Bandaríkin að knýja alþjóðavæð- inguna áfram. Fréttaskýrendur telja að í svör- um Powells við spurningum fréttamanna hafi ýmislegt komið fram sem gefi til kynna verulega breyttar áherslur í utanríkis- stefnu Bandaríkjanna við for- setaskiptin í janúar. Þannig lagði Powell mikla áherslu á hið um- deilda eldflaugavarnarkcrfi sem kennt er við „stjörnustríð" og þar með að íjármunum yrði næstu árin varið til að smíða varnar- vopn frekar en sóknarvopn. Hann spáði erfiðum viðræðum við bandalagsþjóðirnar í NATO um þessa stefnubreytingu. Herinn frá Kosovo? Powell gaf einnig f skyn að hann myndi leggja áherslu á að minn- ka kostnað Bandaríkjanna af friðargæslu í Kosovo og Bosníu, en þar eru nú alls um 11.300 bandarískir hermenn. Stjórn- málaskýrendur telja að ríkis- stjórn Bush leitist við að kalla verulegan hluta bandarísku her- mannanna heim en láta alþjóð- Iegar lögreglusveitir taka við hlutverki þeirra. Eins munu repúblíkanar segja sem svo að ef Evrópusamband- inu sé alvara með því að stofna sérstakan e\TÓpskan her, þá sé kjörið að senda þær hersveitir til Balkanskagans - að sjálfsögðu á kostnað Evrópuríkjanna. Þetta veldur þeim áhyggjum sem ótt- ast að samstarfið innan NATO bíði alvarlegan hnekki. Eins og einn bandarískur sérfræðingur orðaði það: Ef NATO á ekki að sinna slíkri friðargæslu lengur, hvað á það þá að gera? Or\'ggisráðgjafi Bush, Condo- leezza Rice, hefur áður mælt ákveðið íyrir því að Evrópumenn létti byrðum af Bandaríkjunum vegna varnarmála álfunnar. Slík- ar hugmyndir hafa valdið evr- ópskum ráðamönnum áhyggj- um. Rice hefur lagt á það áherslu að bandarísk stjórnvöld verði að hugsa um þjóðarhag í þröngum skilningi þegar ákvarðanir séu teknar um aðgerðir eins og til dæmis í Kosovo. Hún hefur gagnrýnt Clintonstjórnina fy'rir að grípa til aðgerða sem kunni að vera réttlætanlegir út frá hagsmunum alþjóðasamfélags- ins eða frá mannúðarsjónarmið- um, en það sé ekki hið sama og að þær þjóni þjóðarhagsmunum Bandaríkjanna sem eigi að vera meginforsenda slíkra ákvarðana. ViH efla refsiaðgerðir Ekkert bendir til þess að ný rík- isstjórn Bandaríkjanna muni fallast á að draga úr efnahagsleg- um refsiaðgerðum gegn Saddam Hussein og Irak. Það var sem kunnugt er George Bush eldri og Colin Powell sem stjórnuðu Persaflóastríðinu gegn Irak fyrir áratug eða svo. Ein umdeildasta ákvörðun þeirra var að hætta átökunum áður en Saddam hraktist úr embætti. Bush og Powell töldu líklegt að einræðis- herrann myndi missa völdin í kjölfar stríðsins, en svo varð ekki. Powell sagði á blaðamanna- fundinum að hann teldi nauð- synlegt að setja nýjan kraft í refsiaðgerðirnar gegn Saddam og halda áfram að cinangra hann. Leiðtogar sumra ríkja í Evrópu hafa hins vegar lagt til að undanförnu að dregið verði úr viðskiptabanninu á írak. Stefna Powells í þessu máli kann því h'ka að kalla á ágreining við suma bandamenn Bandaríkj- anna í Evrópu. Þingið heimilar Netanyahu framhoð JERUSALEM - Þingið í ísrael sámþykkti við fyrstu umræðu frumvarps að aflétta takmörkun- um á það að Benjamín Netanyahu biði sig fram sem forsætisráðherra ríkisins, en það samþykkti var hins vegar lítils virði í ljósi þess að hann hafði sjálfur lýst því yfir að hann myndi ekki bjóða sig fram á grundvelli slíkrar undanþágu. Undanþág- an sem gengur undir nafninu „Bibi - frumvarpið" til heiðurs Netanyahu, gerir ráð fýrir að í sérstök- um forsætisráðherrakosningum geti menn boðið sig fram án þess að þeir séu þegar þingmenn. Það sem Netanyahu hins vegar setur fýrir sig er að ekki er gert ráð fyrir að samhliða forsætisráð- herrakosningum fari fram almennar þingkosn- ingar. Hann segist því ekki ætla að taka þátt í kosningum þar sem einungis er kosinn forsætisráðherra en ekki nýtt þing. Benjamín Netanyhu, vill þingkosningar Skipta eignum Jiigóslavíu BRUSSEL - Embættismenn frá Júgóslavíu, Bosníu, Króatíu, Makedóníu og Slóveníu hófu í gær viðræður um hvernig skipta ætti milli ríkjanna eignum sem ríkið í gömlu Júgóslavíu átti meðan það var og hét. Talsmaður Bosníustjórnar sagði að þetta væri fýrsti fund- urinn þar sem öll ríkin ættu fulltrúa frá því í fyrra og væri þessi f’und- ur til þess ætlaður að reyna að finna einhverja Ieið áfram í þessu flók- na og erfiða máli. Talið er að eignir júgóslavneska rfkisins sem enn eru hægt að nálgast og eru því í þessum potti sem nú er verið að ræða, nemi um 100 milljörðum Bandaríkjadala. Það er því eftir tals- verðu að slægjast. Putin hittir Chretien OTrAWA - Vladimir Putin forseti Rússlands og Jean Chreticn forsætisráðherra K;mada hittust í gær með formlegum hætti til að ræða um af- vopnun, þróun mála á heimskautasvæðum ríkj- anna og aukna verslun. Putin, sem er í 3ja daga opnberri heimsókn í Kanada og Jean Chretien ætluðu í gær að undirrita yfirlýsingu um nokkur atriði sem varða hernaðarlegt jafnvægi í heimin- um. I þessari yfirlýsingu eiga að koma fram hel- stu viðmiðanir og markmið í þessum efnum sem ríkin hyggjast þróa í samskiptum sínum - en bæði ríkin eiga gríðarlega mikið land á heimskauta- svæðinu. Heimsókn Putins hófst á sunnudag en til Kanada kom hann frá Kúbu þar sem hann hafði verið í opinberri heimsókn áður. Vladimir Putin er nú I heimsókn I Kanada þar sem hann ræðir m.a. við Jean Chretien Dómarar skora á hægri öfgameim VIN - Dómarar og saksóknarar í Austurríki sökuðu í gær Frelsis- flokkinn um að ógna sjálfstæði þjóðarinnar með því að hafa ólögmæt afskipti af rannsóknum á málefnum fyrrum formanns flokksins Joerg Haider. Um tveir þriðju hlutar dómara og saksóknara í Iandinu undirrituðu yfirlýsingu þar sem stjórnmálamenn eru hvattir til að virða lögræði í landinu reyna ckki að beita bolabrögðum til að nýta sér réttarkerfið í landinu í pólitískum tilgangi. ■ FRÁ DEGI TIL DflGS ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 354. dagur ársins, 12 dagar eftir. Sólris kl. 11.20, sólarlag kl. 15.30. Þau fæddust 19. desem- her • 1910 Jean Genet, franskur tugthúslimur og rithöfundur. • 1915 Edith Piaf, frönsk dægurlagasöng- kona. • 1937 Jónatan Þórmundsson prófessor. • 1938 Alfreð Flóki myndlistarmaður. • 1939 Cicely Tyson, bandarísk leikkona. • 1944 Richard Leaky, kenískur fornleifa- fræðingur, mannfræðingur og stjórnmála- maður. • 1901 brunnu 12 hús á Akureyri í mesta eldsvoða sem orðið hafði hér á landi. • 1969 var samþykkt á Alþingi að ísland yrði aðili að Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA). • 1972 lauk síðustu ferð manna til tungls- ins, en þá höfðu þrír bandarískir geimfarar verið á ferðalagi sínu um borð í geimfarinu Apollo 17. í tólf daga. • 1984 samþykkti breska stjórnin að af- henda Kínverjum Hong Kong að nýju, eins og Bretar höfðu upphaflega samið um árið 1898. • 1998 samþykkti fulltrúadeild Bandaríkja- þings að kæra Bill Clinton forseta til emb- ættismissis f\'rir að hafa svarið rangan eið í yfirheyrslum um framhjáhald sitt. Þetta gerðist 19. desem- her • 1821 hófst eldgos í Evjafjallajökli. Skyrgámur Litlar líkur eru tii þess að Skyrgámur geti gengið hús úr húsi og hámað í sig skyr upp úr heilu keröldunum eins og hann er sagður hafa gert áður fyrr. Þráhvggjuna getur hann þó vart hamið, og því er óþarfi að láta s< bregða þótt komið verði að tómum skyrdollum í ísskápum landsmanna dag. Jafnvel dyggðin þarf að eiga sér takmörk. Montesquieu Vísa dagsins Norðanvindur leið um láð Ijótur einu sinni, fannst mér þá sem fest á þráð, flest hér húsakynni. Páll Ólafsson Heilabrot Hvað er það, sem alltaf er framundan en enginn getur þó séð? Lausn á síðustu gátu: Kerti. Vefur dagsins Sögur af grasrótarhreyfingum í Banda- ríkjunum og hetjudáðum sem unnar hafa verið í tengslum við þær ættu að gleðja einhver hjörtu svona rétt fyrir jól- in: www.grass-roots.org

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.